Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 / 823 0303
þegar þú ætlar að selja bílinn
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
R
eynir Ingibjartsson leit-
ar uppi forvitnilega
staði sem ekki eru endi-
lega öllum kunnir í nýj-
ustu bók sinni 25
gönguleiðir á Reykjanesskaga.
„Þetta er lykilbók fyrir fólk sem
vill kynnast þessu svæði. Hver leið
samanstendur af leiðarlýsingu, korti
og myndum. Þá las ég allar örnefna-
skrár sem til eru hjá Árnastofnun og
flétta þannig sögulegan fróðleik sam-
an við. Fyrir þá sem vilja vita meira
um slíkt mæli ég hins vegar með að
kíkja á vefsíðu Ómars Smára Ár-
mannssonar, ferlir.is. Hann hefur
gengið og skoðað Reykjanesskagann
með fleira fólki í mörg ár og viðað að
sér gríðarmiklum fróðleik sem finna
má á vefsíðunni,“ segir Reynir.
Þrír stórir hringir
Svæðið teygir sig frá Reykjanes-
tá að Þrengslavegi og Þorlákshöfn en
Reynir segir að svæðinu megi í raun
skipta í þrjá hluta. Fyrst beri að
nefna Suðurnesjahringinn, það er að
segja ysta hluta Reykjanesskagans
vestan Grindavíkurvegar. Þar ber að
sjá Sandgerði, Hafnir, Garð, Reykja-
nesvita og fleiri staði. En í fyrra opn-
aðist ný leið frá Sandgerði til Hafna
sem eykur möguleikana á útivist á
þessu svæði. Næsti stóri hringur er á
milli Grindavíkurvegarins og veg-
arins meðfram Kleifarvatni til Krísu-
víkur. Reynir segir mjög mikið að sjá
á þeim hring og út frá honum liggja
vegir til að mynda að Keili og Djúpa-
vatnsleið en þaðan er komið niður á
nýja Suðurstrandarveginn. Þessi leið
sé skemmtilegt millileið og með henni
hægt að búa sér til minni hring. Þriðji
hringurinn er síðan austan Kleifar-
vatns að Þrengslavegi. Þá er keyrt til
Krísuvíkur og komið að Herdísarvík,
Selvogi, Strandarkirkju og til Þor-
lákshafnar. En í stað þess að keyra
Þrengslaveginn mælir Reynir með að
fara inn á Bláfjallaveginn og enda svo
aftur á Krísuvíkurveginum fyrir
sunnan Hafnarfjörð.
Út frá föstum punktum
„Í stað þess að keyra skagann í
einum hring þá mæli ég með að velja
sér nokkrar gönguleiðir út frá því
sem hægt er að keyra.
Í bókinni er að finna stuttar
leiðir sem taka um 1-3 tíma og
eru frá 2-7 km þannig að hver og
einn getur haft sína hentisemi.
Vegakerfið í dag er
orðið mun aðgengilegra
á þessu svæði en það
var og þessi bók er
lykillinn að því að
njóta þess sem er ut-
an vegarins. Ég vil
að fólk geti upplifað
Reykjanesskagann upp á nýtt með
því að fara út á stað sem allir þekkja
en fara örlítið lengra og komast þá á
stað sem enginn eða fáir þekkja.
Í Herdísarvík þekkir fólk til að
mynda húsið þar sem Einar Ben bjó
en þar er líka heilmikið að sjá við
ströndina svo að ég bjó til gönguleið
eftir henni. Hið sama er að segja um
Garðsskagavita en þaðan er stutt að
fara niður á þessa fínu strönd þar
sem krakkarnir geta buslað og
leikið sér á góðum degi. Ef
gengið er síðan áfram suður
með ströndinni þá kemur fólk á
staði þar sem fornminjar voru
grafnar upp. Strandlengjan
á Reykjanesinu er því
fjölbreytt og margt þar
að sjá,“ segir Reynir.
Fínir spássitúrar
Reynir hafði
þann háttinn á að fara
hverja leið tvisvar og
Örlítið lengra á
óþekktan stað
Með bókinni 25 gönguleiðir á Reykjanesskaga vonast höfundurinn, Reynir Ingi-
bjartsson, til þess að fólk geti upplifað Reykjanesskagann upp á nýtt. Í bókinni er
að finna leiðarlýsingu og kort, sögulegar staðreyndir og myndir frá svæðinu.
Morgunblaðið/Ómar
Fallegir litir Hjá Bláa lóninu er fagurt, fjallið Þorbjörn er á miðri mynd.
Þegar hlýtt er í veðri jafnast ekkert á
við að tjalda úti í náttúrunni og njóta
íslensku sumarnáttanna til fulls. Þó
getur verið erfitt að ákveða hvert
skal halda í útilegu en við ákvörðun-
ina spilar til dæmis veður og aðstaða
veigamikið hlutverk. Sumir kjósa að
tjalda við frumstæðar aðstæður og
elda með prímus en aðrir vilja hafa
aðgang að salerni, þvottavél, sund-
laug og ýmsum þægindum. Á vefsíð-
unni tjalda.is má finna allar helstu
upplýsingar um tjaldsvæði landsins.
Þar er til dæmis hægt að velja sér
landshluta og merkja svo við þær
kröfur sem gerðar eru til
tjaldsvæðisins, s.s. hvort megi vera
með hunda þar og hvort sturta sé á
staðnum. Einnig má nálgast veður-
spá á síðunni. Að ferðinni lokinni er
hægt að fara inn á síðuna og gefa við-
komandi tjaldsvæði einkunn og miðla
af reynslu sinni.
Vefsíðan www.tjalda.is
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Smekkfullt Allur gangur er á hvað hentar fókki í útilegu. Sumir vilja helst velja
sér tjaldstæði þar sem fáir eru. Aðrir vilja frekar tjalda þétt við næsta mann.
Tjaldsvæði við allra hæfi
Næstkomandi sunnudag, þann 10.
júní, verður hið árlega Álafosshlaup.
Hlaupið hefst kl. 13 við Álafoss-
kvosina í Mosfellsbæ og verður
hlaupið um austursvæði Mosfells-
bæjar.
Hlaupnir verða 9 kílómetrar eftir
heldur óvenjulegum hlaupaleiðum á
borð við göngustíga, slóða, malarvegi
og þurfa keppendur meðal annars að
stökkva yfir læk á leið sinni í mark.
Forskráning í hlaupið er á vefsíðunni
www.hlaup.is en einnig er hægt að
skrá sig á staðnum frá kl. 11:30 á
sunnudaginn. Búningsaðstaða er við
sundlaug Varmár.
Endilega...
...takið þátt í
Álafosshlaupi
Spennandi Farnar eru óvenjulegar
hlaupaleiðir í Álafosshlaupi.
Soroptimistaklúbbur
Reykjavíkur hélt um helgina
kvennagolfmót til að fjár-
magna sumarnámskeið ein-
hverfra unglinga, Minn
styrkur. „Mótið var alveg
troðfullt og þetta var alveg
frábært,“ segir Herdís
Sveinsdóttir, formaður
Soroptimistanna, ánægð
með þann áhuga sem ís-
lenskar konur hafa sýnt
málefninu. Herdís vann
mótið í fyrra en í ár var það
Þórdís Geirsdóttir úr GK
sem átti besta skor vallar.
Stærsta kvennagolfmót sumarsins
Gleðiríkt golfmót Soroptimista
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.