Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 ✝ SveinbjörnÓlafsson fædd- ist að Syðra-Velli í Flóa 17. október 1916. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 30. maí 2012. Foreldrar hans voru Margrét Steinsdóttir, f. 17. maí 1890, d. 18. des 1970 og Ólafur Sveinn Sveinsson, f. 15. jan. 1889, d. 17. júlí 1976. Systkini Sveinbjörns: Sigursteinn, f. 1914, d. 2010, Guðrún, f. 1915, d. 2011, Ólafur, f. 1917, d. 2005, Ingvar, f. 1919, d. 2007, Gísli, f. 1920, d. 1920, Ólöf, f. 1921, d. 2007, Guðfinna, f. 1922, d. 2008, Kristján, f. 1923, Soffía, f. 1924, Margrét, f. 1925, Sigurður, f. 1928, Gísli, f. 1929, d. 1991, Að- alheiður, f. 1930, Jón, f. 1931 og Ágúst Helgi, f. 1934. Þann 10. mars 1945 kvæntist Sveinbjörn Borghildi Þorláks- dóttur, f. 28. júní 1924, frá Stefánsson. Börn þeirra eru Arnar, Daníel og Birna. Sveinbjörn ólst upp á Syðra- Velli í Gaulverjabæjarhreppi. Hann tók þátt í bústörfunum á bænum, fór til sjós bæði frá Stokkseyri og Vestmannaeyjum, tók vélstjórapróf 1938 og vann sem vélstjóri í Síldarverksmiðj- unni í Djúpavík. Var á samningi í Vélsmiðju Hafnarfjarðar og lauk prófi í rennismíði frá Iðn- skólanum í Hafnarfirði 1947 og meistaraprófi í rennismíði 1950. Vann í Vélsmiðju Hafn- arfjarðar, Vélaverkstæði Jóns Gíslasonar og var verkstjóri í Skipasmíðastöðinni Dröfn. Hann var í Ungmennafélaginu Samhygð í Gaulverjabæjar- hreppi, í Góðtemplarareglunni, skáti, einn af stofnendum Hjálp- arsveitar skáta í Hafnarfirði og í varaliði Slökkviliðs Hafn- arfjarðar. Hann var hagleiks- maður og það lék allt í hönd- unum á honum. Smíðaði allt mögulegt bæði úr timbri og járni og var mikill uppfinn- ingamaður. Þau hjónin bjuggu í Hafnarfirði öll sín búskaparár, lengst af á Álfaskeiði 30. Sveinbjörn verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 5. júní 2012 og hefst athöfnin kl. 15. Veiðileysu í Strandasýslu. For- eldrar hennar voru Ólöf Sveinsdóttir, f. 20. maí 1892, d. 6. apríl 1952 og Þor- lákur Guðbrands- son, f. 16. apríl 1893, d. 15. febr. 1977. Bogga og Svenni eignuðust sex börn. 1) María, f. 1944, maki Steen Knud Jörgensen. Börn með fyrri maka, Sveinbjörn, Helgi og Ágústa Hildur, barnabörnin eru 10. 2) Trausti Sveinbjörnsson, f. 1946, maki Ingveldur Ein- arsdóttir, f. 1950. Synir þeirra eru Björn, Bjarni Þór og Ólafur Sveinn, barnabörnin eru 6. 3) Margrét Ólöf, f. 1947, maki Þór- ir Steingrímsson, f. 1947. Dætur þeirra eru Borghildur, Dagmar og Steinþóra, barnabörnin eru 7. 4) Ásta, f. 1955, sonur Ívar Atli. 5)Ólöf Þóra, f. 1957. Dætur hennar eru Sara og Ásta Eygló. 6) Erla, f. 1962, maki Grétar Páll Það er ótrúlega erfitt að kveðja svona flottan mann eins og hann pabba. Ég var svo stolt af honum og sagði það óspart og betri fyrirmynd var ekki hægt að fá. Pabbi var ótrúlega ern. Léttur í spori, léttur í lund, algerlega skýr í hugsun og ennþá stálminnugur. Það eina sem háði honum var heyrnarleysið en hann bjargaði því með því að lesa af vörum. Pabbi gekk í öll verk óhikað, hvort sem það var að festa tölu, sinna heimilisstörfum, laga pípulagnir eða gera við bíla og báta. Hann fann lausnir á öllu og ef verkfærið var ekki til þá bara bjó hann það til. Eftir að mamma veiktist 2005 fannst honum ekkert sjálf- sagðara en að hugsa um hana og taka við heimilinu. Á kveðjustund leitar hugur- inn til baka. Ég man eftir mér lítilli á vélaverkstæði Jóns Gíslasonar þar sem ég var að horfa á pabba vinna við renni- bekkinn sinn og ég man eftir ökuferðum í „Rauð“, sem var gamall pallbíll sem pabbi átti. Á sumrin voru mamma og pabbi dugleg að fara í tjaldútil- egur um landið í einhverjar vikur, oft í fylgd með vinum eða ættingjum, og ekki voru fá- ar ferðirnar í Veiðileysu á æskuslóðir mömmu. Á sunnu- dögum fórum við í heimsóknir og gjarnan að Syðra-Velli til ömmu og afa. Pabbi lagði mikið upp úr reglusemi. Það var matur kl. tólf og kaffi kl. hálffjögur. Ef kaffið var komið á borð kl. þrjú leit hann á klukkuna og beið í hálftíma. Það þýddi ekki að bjóða honum upp á hvítt brauð, það var bara fyrir mýs. Gróft skyldi brauðið vera. Sætabrauð vildi hann aldrei og kók, það var bara ropvatn. Það átti ekki mikið við hann að sitja aðgerð- arlaus. Hann fann sér alltaf eitthvað að gera, fór í göngu- ferðir daglega en las líka mikið. Pabbi var skemmtilega hrein- skilinn og lét mann heyra það ef maturinn var ekki góður en ef hann fékk sér tvisvar á disk- inn var það hrós. Það eru forréttindi að hafa alist upp hjá þeim mömmu og pabba. Þau héldu utan um hóp- inn sinn með ást og umhyggju og það hefur skilað sér til allra afkomenda. Það sýnir sig best í því hvað dætur mínar tala um þau með mikilli virðingu og hlýju. Þegar við komum í heim- sóknir til þeirra var alltaf sama viðmótið, stórt bros og faðmlag. Við höfum verið dugleg fjöl- skyldan að hittast á gleðistund- um en maður finnur hversu mikils virði samheldnin er á svona sorgarstundu sem þess- ari. Bless elsku pabbi minn og takk fyrir allt. Þín dóttir, Ólöf Þóra. Hann tengdafaðir minn Sveinbjörn Ólafsson, sem lengst af bjó á Álfaskeiði 30 í Hafnarfirði, er látinn. Mörgum er hann harmdauði, bæði skyld- um og óskyldum. Hans verður lengi saknað. Ég þekkti Svenna löngu áður en ég giftist dóttur hans. En þá fyrst kynntist ég honum al- mennilega og varð mér þá fyrst ljóst hvert gull af manni hann var. Hann var svo traustur og áreiðanlegur, laghentur, útsjón- arsamur og uppfinningasamur, hvort sem smíða þurfti úr tré eða járni. Eitt kunni hann þó ekki og það var að segja nei við fólk sem bað hann um greiða. Því í þá tíð vann hann, eins og marg- ur annar, frá morgni til kvölds alla daga og stundum langt fram á nótt, en þegar komu frí- dagar, sem ekki voru margir, þá fór hann í að hjálpa til heima hjá vinum og kunningj- um. Og þá var það að hann fékk okkur tengdasynina með sér í hin ýmsu verkefni. Þá fannst mér ég vera aftur kom- inn í skóla, því við lærðum handtökin af honum í hinum ólíkustu verkum, sem hefur nýst okkur æ síðan. Svenni var þriðji elstur af 16 systkinum á Syðri-Völlum í Flóa og maður skyldi ætla að hann hefði verið orðinn leiður á börnum, en svo var aldeilis ekki. Hann var óskaplega barn- góður og börnin löðuðust að honum, bæði skyld og óskyld. Iðulega sat hann heilu og hálfu tímana og spilaði við börnin eða fór með þau í göngutúr út og suður. Og það er falleg sjón að sjá lítinn stúf haldandi í hönd- ina á afa eða langafa röltandi út um móa og torg. Og ekki kom það minna í ljós hvaða mann hann hafði að geyma þegar konan hans hún Bogga veiktist og varð alls óvinnufær. Þá gerði hann allt sem gera þurfti; þvoði þvott, straujaði, eldaði, skúraði og stjanaði við Boggu frá morgni til kvölds. Svo eftir að þau fluttu inn á Hrafnistu snerist allt hans líf um að hjálpa konunni sinni henni Boggu. Þá var hann orðinn 94 ára gamall. Hann ók henni fram og aftur í hjólstólnum, hann hjálpaði henni að borða, las fyrir hana bréfin sem komu frá Mæju dóttur þeirra sem býr í Danmörku og fleira og fleira. Það var fallegt að sjá hvað þessum fullorðnu hjónum þótti vænt hvoru um annað. Að síðustu langar mig til að þakka þér Svenni fyrir að gefa mér þína elskuðu dóttur hana Möggu og ekki kann ég orð til að þakka þér fyrir hvað þið Bogga voruð góð við dæturnar okkar þrjár: Borghildi, Dagmar og Steinþóru, og svo barna- börnin okkar, Þóri, Þórunni, Oddnýju, Margréti, Hafstein, Benedikt og Guðbrand. Þau búa að því alla ævi. En að lokum: Fyrirgefðu Svenni hvað þetta eru aum skrif um þig en ég get ekki skrifað meira því ég sé ekki á skjáinn fyrir tárum. Takk Svenni, takk fyrir allt, þú varst öllum góð fyrirmynd. Þinn tengdasonur, Þórir. Afi var ein af okkar stærstu fyrirmyndum í lífinu. Það var ekkert sem vafðist fyrir honum. Ef það var eitthvert verkefni sem þurfti að leysa þá gekk hann í málið. Ef hann sá eitt- hvað sem þarfnaðist viðgerðar var hann kominn með verkfæri í hönd. Hann var ávallt svo yndislegur og tillitssamur gagnvart okkur krökkunum. Hann var alltaf til í að taka einn ólsen ólsen með okkur eða gera við biluðu leikföngin okk- ar. Þegar við hugsum til afa þá eru okkur systrunum ofarlega í huga kaffipásurnar á leiðinni í Veiðileysu og ísinn sem keypt- ur var handa okkur á Brú. Við sátum þrjár saman aftur í gömlum rauðum Saab og amma og afi keyrðu á undan á Citro- ën. Afi var mjög vanafastur og vildi fá sína kaffitíma svo það var stoppað í nokkrum góðum lautum á leiðinni þessa löngu ferð norður á Strandirnar. Í minningunni er alltaf sól í laut- inni og þar gæddum við okkur á kleinum, sviðakjömmum og heimabökuðu flatkökunum hennar ömmu. Þegar í Veiðileysu var komið var eins og afi væri kominn heim. Hann naut þess að vera þar en var samt alltaf á fullu að stússast eitthvað, höggva í eld- inn, veiða í matinn eða dytta að einhverju. Eitt sumarið fyrir norðan tókum við systurnar okkur til og byrjuðum að byggja kofa. Afa leist nú ekki mikið á þessar aðfarir okkar í kofabyggingum, við byrjuðum nefnilega á hurðinni. Hann kom því og hjálpaði okkur að byggja nýjan kofa. Þetta var ekki stór eða merkilegur kofi en okkur þótti hann stórglæsilegur og vorum yfir okkur stoltar af þessari fallegu byggingu með múrsteinsgólfinu. Margar minningar koma upp í hugann þegar við hugsum til baka um stundirnar með afa og ömmu, hvort sem var í ferðum um landið með tjaldvagninn, í berjamó, Ítalíuferðum eða bara heima á Álfaskeiðinu og seinna á Boðahleininni, en alltof langt mál að nefna þær allar, þótt okkur langi mest til þess. Þess- ar minningar okkar um afa og ömmu eru fullar af sól, yl, ham- ingju og fegurð sem ylja okkur nú á erfiðum tímum. Við kveðjum því afa með söknuði en yl í hjarta. Borghildur, Dag- mar og Steinþóra. Nú er komið að þeirri sorg- arstundu að kveðja þarf elsku besta afa okkar. Við erum svo stoltar að hafa átt hann sem afa og hann var okkur svo mikil fyrirmynd. Hann var sú mann- eskja sem við litum mest upp til í lífinu. Hann var svo já- kvæður og lét ekkert stoppa sig. Samkvæmt honum var ekk- ert til í lífinu sem hét vanda- mál, heldur bara verkefni sem þyrfti að leysa. Hann var ynd- islegur í alla staði, hugsaði svo vel um alla í kringum sig og bauð alltaf alla velkomna með hlýju brosi sínu og faðmlagi. Það var alltaf jafnæðislegt að fara til hans og fór maður alltaf út með bros á vör. Við vitum ekki um eitt skipti þar sem við komum til hans og hann neitaði að spila við okkur olsen olsen. Það sem hann gat setið og spil- að olsen olsen með barnabörn- unum var með ólíkindum, kippti sér ekki upp við það þótt við spiluðum yfir 10 sinnum í sömu heimsókn og þessar heimsóknir voru nú reglulegar í mörg ár. Hann var engum lík- ur. Þú varst svo sterkur elsku afi okkar. Hugsaðir um ömmu þegar hún gat það ekki sjálf lengur. Við erum svo stoltar að segja að þú hafir verið afi okk- ar. Maðurinn sem var 95 ára en hjálpaði samt til við að hugsa um hitt fólkið á Hrafnistu. Maðurinn sem bjargaði sér, sama hvað. Maðurinn sem allir elskuðu. Hvíldu í friði elsku afi okkar, þín er sárt saknað. Sara og Ásta Eygló. Elsku besti afi minn, ég hélt að þessi dagur myndi aldrei koma að ég þyrfti að kveðja þig. Þú hefur verið minn allra besti vinur og haldið í hönd mína frá því ég fæddist. Mér þykir óskaplega vænt um að vera nefnd í höfuðið á þér og þrátt fyrir heyrnarleysi þitt gengu tjáskipti okkar mjög vel. Þegar ég hugsa til baka sé ég fyrir mér ýmislegt sem við höfum gert saman eins og að ganga niður að tjörn og gefa öndunum brauð, þú að lesa fyr- ir mig, við að púsla, við að spila saman Ólsen Ólsen, Svarta-Pét- ur og fleiri spil, ráða kross- gátur, stundir okkar saman í Veiðileysu og margt fleira. Ég eyddi mörgum stundum með þér og ömmu og ég hlakkaði alltaf til að koma inn í hlýjuna til ykkar. Þið tókuð alltaf svo vel á móti mér og tilbúin að gera allt fyrir mig. Þú passaðir mig ótal sinnum og minningarnar um allar stundir okkar saman eiga eftir að gleðja mig um ókomna tíð. Ég heyrði þig aldrei æsa þig eða segja neitt ljótt og þú varst alltaf í góðu skapi. Þú varst hagmæltur og mamma skrifaði niður kvæði sem þú hafðir ort um mig og sum þeirra er ég að sjá núna í fyrsta skipti. Síðan fyrst ég sá þig hér sólskin þarf ég minna gegnum lífið lýsir mér ljósið augna þinna. Lítil stelpa, létt á fæti leikur við hann afa sinn. Hann vildi að henni gefið gæti gullinn lífsins vísdóminn. (Sveinbjörn Ólafsson) Takk fyrir, elsku afi, að hugsa svona vel um mig og sjá til þess að mér liði vel. Við vor- um og verðum alltaf bestu vinir þó að þú sért farinn á góðan stað en það er mjög sárt að missa þig, yndislega afi minn. Minning þín mun um alla tíð lifa í hjarta mínu og þú munt alltaf vera ofarlega í huga mér. Hvíldu í friði afi. Þín dótturdóttir, Birna Grétarsdóttir. Sveinbjörn Ólafsson  Fleiri minningargreinar um Sveinbjörn Ólafsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR EINARSSON frá Snjallsteinshöfða, Karlagötu 7, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn 8. júní klukkan 13.00. María Eggertsdóttir, Jóhann Teitur Ingólfsson, Halldóra Ingólfsdóttir, Kjartan Birgisson, Hildur Kjartansdóttir, María Kjartansdóttir. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, JÓHANN ÞÓR GUÐMUNDSSON, Fannarfelli 12, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug. Guðmundur Jóhannsson, Elísabet Vigfúsdóttir, Vignir Guðmundsson, Jadvyga Usvaltiene, Ásthildur Guðmundsdóttir, Hafsteinn Benediktsson, Ingvar Guðmundsson, Sólveig Þorsteinsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og frændsystkini. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir amma og langamma, AUÐUR DAVÍÐSÍNA PÁLSDÓTTIR, Neðstaleiti 4, lést af slysförum 19. maí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ágúst Atli Guðmundsson, Páll Ágústsson, Ragnheiður Högnadóttir, Hörður Ágústsson, Elínborg Gísladóttir, Þórhallur Ágústsson, Valgerður Bjarnadóttir, Atli Ágústsson, Bryndís Dagsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA FRIÐRIKSDÓTTIR, Dúdda, lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugardaginn 2. júní. Anna Lilja Sigurðardóttir, Inga Hrönn Sigurðardóttir, Eiríkur Óskarsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HELGA ÁRNADÓTTIR, Silla, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugar- daginn 2. júní. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Árni Hjörleifsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Stella Hjörleifsdóttir, Árni Jóhannesson, Sveinn E. Hjörleifsson, Itka Kothes, Hinrik A. Hjörleifsson, Ósk Reynaldsdóttir, Hjörleifur E. Hjörleifsson, Unnur Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.