Morgunblaðið - 05.06.2012, Síða 26

Morgunblaðið - 05.06.2012, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi þrístökkvari og skólameist-ari, fagnar 78. aldursárinu í dag. Dagurinn er tvíheilagurfyrir kappann því fyrir 54 árum kvæntist hann sinni heitt- elskuðu, Gerði Unndórsdóttur. „Ég held að konan hafi sýnt klókindi sín í þessu því nú gleymi ég síður giftingardeginum,“ sagði ólympíu- farinn glettinn. Afmælið leggst vel í Vilhjálm sem segist ekki vera með neitt sérstakt á prjónunum fyrir daginn. Sú afmælisveisla sem haldin var í Reykholti fyrir þremur árum er Vilhjálmi minnisstæðust. „Þar komu hátt í fjögur hundruð gamlir nemendur saman og þar kom út bók sem fjallar um skólastjórn mína í Reykholti á árunum 1965 til 1978 og ber sú bók nafnið Skóli fyrir lífið.“ Spurður út í fleiri afmælisdaga minnist hann sjötugsafmælis- ins en þá var haldið ættaríþróttamót á Valbjarnarvelli í Laugardal auk fagnaðar seinna um kvöldið. Sumarið verður viðburðaríkt fyrir silfurmanninn en haldið skal til giftingarveislu um næstu helgi auk þess sem efnt verður til ættarmóts í júní. Ljóst er að þau hjón eru rík og Vilhjálmur hefur á orði að hann sé tuttugufaldur afi en er fljótur að breyta tölunni í nítján eftir að Gerður leiðréttir hann. „Það er dásamlegt verkefni að vera afi, það þykir mér alveg sérlega ánægjulegt. Afabörnin eru skemmtilegust, verst hvað þau stækka fljótt.“ davidmar@mbl.is Vilhjálmur Einarsson er 78 ára í dag Tvíheilagur Vilhjálmur fagnar tveimur merkisdögum í dag en auk þess að eiga afmæli fagnar hann einnig brúðkaupsafmæli. Tveimur afmælis- dögum fagnað S igurður fæddist í Prince- ton í New Jersey í Banda- ríkjunum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1961, kandídatsprófi í læknisfræði frá HÍ 1968, öðlaðist sér- fræðingsviðurkenningar frá Americ- an Boards of Internal Medicine 1973, American Boards of Internal Medic- ine, Medical Oncology 1975, varð við- urkenndur sérfræðingur í lyflæknis- fræði og lyflækningum krabbameina í New York-ríki frá 1975 og á Íslandi sama ár. Lækningar, rannsóknir og kennsla á sviði krabbameina Sigurður var aðstoðarlæknir á Landspítala, Borgarspítala og Barnaspítala Hringsins 1968-70, við New Britain General Hospital í Con- necticut 1970-72 og við Roswell Park Memorial Institute í Buffalo í New York 1972-74, sinnti kennslu, læknis- og rannsóknastörfum við Roswell Park Memorial Institute 1974-78 og við State University of New York at Buffalo 1974-78, var sérfræðingur við lyflækningadeild á Landakoti 1978- 89, yfirlæknir 1989-95, sérfræðingur við geisladeild og síðar krabbameins- lækningadeild Landspítala 1978-96, ráðgefandi sérfræðingur í lyflækn- ingum krabbameina við Borgar- spítala 1978-95, yfirlæknir við blóð- sjúkdóma- og krabbameins- lækningadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur 1996-99, yfirlæknir blóð- sjúkdóma- og krabbameins- lækningadeildar LHS í Fossvogi 2000-2001 og yfirlæknir lyflækn- ingadeildar krabbameina LHS 2001-2008. Hann hefur stundað sér- fræðilækningar í Læknasetrinu sf. Sigurður hefur kennt við lækna- deild HÍ, námsbraut í hjúkrunar- fræðum, í lyfjafræði lyfsala við HÍ, við Hjúkrunarskóla Íslands, Nýja hjúkrunarskólann, HA og Tækni- skóla Íslands. Form. Krabbameinsfélagsins Sigurður var formaður Krabba- meinsfélags Íslands, Sérfræðinga- félags íslenzkra lækna, sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur, Lækna- félags Íslands, Samtaka lækna gegn kjarnorkuvá, í fræðslunefnd Landspítalans, í stjórn Vísindasjóðs Landspítalans og var formaður Rannsóknastofu Háskólans, vara- formaður fræðslunefndar Landa- kotsspítala, varaformaður lækna- ráðs Landakotsspítala og hefur setið í ýmsum opinberum nefndum. Sigurður er félagi í European So- ciety for Medical Oncology, fulltrúi Íslands í fulltrúaráði þess frá 1995, félagi í American Society of Medical Oncology, American Association for Cancer Research, The New York Academy of Sciences og The World Medical Association. Sigurður er höfundur fjölda greina um læknisfræðileg efni í erlendum og innlendum fagtímaritum og hefur haldið fjölda fyrirlestra víða um heim. Sigurður var sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í læknisfræði árið 2008. Ótrúlega miklar framfarir í krabbameinslækningum Sigurður segir að starfið sé hans aðaláhugamál. En er þá ekki þreyt- andi að hugsa um krabbamein öllum stundum? „Sjáðu til, baráttan snýst um að sigrast á krabbameinum og einhvern tíma var sagt: „Þekktu óvin þinn.“ Þess vegna verðum við að rannsaka og afla upplýsinga um þennan vá- gest. Þetta er spennandi og áhuga- verð barátta, ekki síst vegna þess að hún hefur skilað og er að skila ótrú- Sigurður Björnsson krabbameinslæknir 70 ára Spjallað við dótturdóttur Frá vinstri: Freyja Stefanía Arnardóttir, Signý Sif Sigurðardóttir og Sigurður. Baráttan við krabbann Akureyri Eyþór Páll fæddist 13. júlí kl. 9.23. Hann vó 3.740 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ásthildur Kristín Júlíusdóttir og Ólafur Gísla- son. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Hörður Hallbergs- son rafvirki er átt- ræður í dag, 5. júní og langar af því til- efni að hitta ætt- ingja og vini laugardaginn 9. júní næstkomandi í húsi Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar á Flatahrauni 29 kl. 17. Hörður var yfir- verkstjóri hjá Rafveitu Hafnarfjarðar til margra ára. Hann dvelst nú á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Árnað heilla 80 ára Sara Lind Sigur- steinsdóttir og Matt- hildur Una Valdimars- dóttir héldu tombólu við verslun Samkaupa í Hrísalundi á Akur- eyri. Þær söfnuðu 3.847 kr. sem þær styrktu Rauða kross Íslands með. Hlutavelta mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjónDraghálsi 4 - 110 Reykajvík Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.is T A K T IK _ a p r1 2 _ 3 8 0 5 Kælitæki Pöntunarsími: 535 1300 199.000.+vsk SD 800 B: 1130 D: 720 H: 2020 - 1000 L innanmál - Kæling +2/+10°C - 8 hillur - Læsing 299.000.+vsk OFC 125 B: 1250 D: 610 H: 1485 Kæling 2/7°C 79.000.+vsk SC 85 Stærð (bxdxh) 485x530x920mm Kæling +2/ +10°C SC 208 Stærð (bxdxh) 900x500x900mm Kæling +2/ +10°C 89.000.+vsk RT 78 Stærð (bxdxh) 425x380x960mm Kæling +2/+12°C 59.000.+vsk OFC 70 B: 700 D: 740 H: 2015 Kæling 2/12°C 3 stærðir Br.70cm 269.000. Br.90cm 289.000. Br.125cm 299.000. 99.000.+vsk KK 415 B: 606 D: 575 H: 1980 - 360 L innanmál - Kæling +2/+10°C - 8 hillur - Læsing Kælar SC 138 Stærð (bxdxh) 600x500x900mm Kæling +2/ +10°C 69.000.+vsk Til á lager Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn má uð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.