Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 27
lega miklum árangri. Ég er t.d. núna
í New York þar sem er að hefjast 30
þúsund manna ráðstefna American
Society of Clinical Oncology. Þetta er
virtasta ráðstefna sinnar tegundar
þar sem færustu sérfræðingar bera
saman bækur sínar, þar sem maður
fréttir af öllu því sem máli skiptir
þessa stundina og þar sem maður
hittir gamla félaga, alls staðar að úr
heiminum, sem hafa lagt starfsferil
sinn í þessa baráttu.
Ýmsum finnst baráttan við
krabbamein ganga hægt og það er
kannski skiljanlegt þegar fólk missir
ástvini og félaga úr þessum skelfilega
sjúkdómi. En í raun hafa orðið og
eiga sér stað, þessi misserin, ótrúlega
miklar framfarir á þessu sviði.
Það gerir baráttuna spennandi og
áhugaverða.“
Fjölskylda
Fyrri kona Sigurðar var Guðný
Stefanía Kristjánsdóttir, f. 26.9. 1945,
frjómeinatæknir. Þau skildu.
Börn Sigurðar og Guðnýjar Stef-
aníu eru Kristín, f. 12.3. 1966, læknir í
Las Palmas á Kanaríeyjum en maður
hennar er Geir Þráinsson viðskipta-
fræðingur; Björn, f. 18.1. 1969, skurð-
læknir í Reykjavík, en kona hans er
Sigríður Snorradóttir sálfræðingur;
Signý Sif, f. 5.2. 1978, fjármálaverk-
fræðingur hjá Landsbankanum, en
maður hennar er Arnar Vilmundar-
son, viðskiptafræðingur hjá Marel.
Seinni kona Sigurðar er Rakel
Valdimarsdóttir, f. 24.6. 1946, hjúkr-
unarfræðingur, BSc, og MA í mann-
auðsstjórnun.
Börn Rakelar af fyrra hjónabandi
eru Áslaug Magnúsdóttir, f. 25.11.
1967 hdl., LLM, MBA, en maður
hennar er Gabriel Levy, MBA, hjá
American Online; Sigurður R. Magn-
ússon, f . 2.9. 1980, kerfisstjóri hjá
Stika, en kona hans er Berglind Ó.
Einarsdóttir viðskiptafræðingur.
Systkini Sigurðar: Edda Sigrún, f.
1.12. 1936, d. 5.9. 1987, augnlæknir í
Reykjavík; Jóhannes, f. 13.11. 1947,
yfirlæknir og prófessor.
Foreldrar Sigurðar voru Björn
Sigurðsson, f. 3.3. 1913 á Veðramóti í
Skagafirði, d. 16.10. 1959, dr. med.,
forstöðumaður Tilraunastöðvar Há-
skólans í meinafræði að Keldum, og
Una Jóhannesdóttir, f. 15.2. 1913 á
Hofstöðum í Skagafirði, d. 8.12. 2000,
fulltrúi.
Úr frændgarði Sigurðar Björnssonar
Jósef Björnsson
skólastj. og alþm. á Hólum
Hólmfríður Björnsdóttir
húsfr. á Hólum
Björn Magnússon
hreppstj. á Hofsst.
Una Jóhannesdóttir
húsfr. á Hofsst.
Björn Jónsson
hreppstj. á Veðramóti
Björg Magnúsdóttir
húsfr. á Rútsst.
Guðmundur Þorsteinsson
b. á RútsstöðumSigurður
Björnsson
Una Jóhannesdóttir
húsfr. í Rvík.
Jóhannes Björnsson
hreppstj. á Hofsst.
Kristrún Jósefsdóttir
húsfr. á Hofsst.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
húsfr. á Veðramóti
Sigurður Á. Björnsson
hreppstj. og oddv. á Veðramóti
Þorbjörg Stefánsd.
húsfr. á Veðramóti
Sigurður Stefánss.
pr. í Vigur
Stefán Stefánsson
alþm. og skólam.
Valtýr Stefánsson
ritstj. Morgunblaðsins
Helga Valtýsdóttir
leikkona
Hulda Stefánsdóttir
skólastjóri
Guðrún Jónsdóttir
arkitekt
Bjarni Sigurðss.
hreppstj. í Vigur
Sigurður Bjarnason
alþm.og ritstj.Morgunbl.
Sigurlaug Bjarnadóttir
alþm.
Björg
Thorarensen
prófessor
Haraldur Björnsson
leikari
Jón Haraldsson
arkitekt
Jakob Sigurðsson
matvælaverkfr.
Björgvin Sigurðsson
hrl. og framkv.stj. VSÍ
Björn Sigurðsson
læknir og forstöðum. á Keldum
Björn Jóhannesson
prófessor í efnaverkr. hjá Sþ.
Einar Jóhannesson
yfirlæknir í Svíþjóð
Hermann Jónasson
forsætisráðh.
Steingrímur
Hermannss.
forsætisráðh.
Pálína Björnsdóttir
húsfr. Siðri-Brekkum
Riddari íslenskrar fálkaorðu Sig-
urður og Rakel Valdimarsdóttir í
tilefni orðuveitingar árið 2008.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
90 ára
Ingibergur E. Jónsson
Jóhanna Guðjónsdóttir
85 ára
Lilja Þórarinsdóttir
Sólveig Jónsson
Steingrímur Ragnarsson
Theódóra Ásdís Smith
80 ára
Borghildur Garðarsdóttir
Gústaf Adolf Jakobsson
Hörður Hallbergsson
Ólöf Steinarsdóttir
75 ára
Erla Kristinsdóttir
Kristín Minny Pétursdóttir
70 ára
Anna Lúthersdóttir
Dóra Garðarsdóttir
Haraldur Sigurðsson
Ingibjartur G. Þórjónsson
Olgeir Erlendsson
Signý Guðmundsdóttir
Sigurður Björnsson
Soffía Zophoníasdóttir
60 ára
Aldís Jónína Höskulds-
dóttir
Björg J. Snorradóttir
Chalao Sonklin
Elías Þórmarsson
Evica Eva Markovic
Eyjólfur Þór Kristjánsson
Finnur Torfi Magnússon
Guðjón Pétur Ólafsson
Guðlaug Jónsdóttir
Gunnar Egill Finnbogason
Helga Júlíusdóttir
Konráð Jónsson
María Jóhanna Ívarsdóttir
María Pétursdóttir
Svanhvít Leifsdóttir
Þórður Jakob Adamsson
Þórir Einar Steingrímsson
50 ára
Elís Sigurbjörn Valtýsson
Garðar Ólafsson
Grétar Ólafsson
Hafdís Hrefna Haralds-
dóttir
Hafsteinn Steingrímsson
Helga Unnur Jóhannsdóttir
Ingibjörg M. Þorvaldsdóttir
Ingvar Gísli Jónsson
Kristinn Sigurðsson
Ólöf G. Jóhannsdóttir
Tómas Ingi Jónsson
Vala Björk Þórhallsdóttir
Vilborg Einarsdóttir
Vilborg Guðný Óskarsdóttir
40 ára
Anna Lilja Reynisdóttir
Anna Pála Gísladóttir
Auður Guðmundsdóttir
Baldur Eiðsson
Friðmey Baldursdóttir
Halla Þorsteinsdóttir
Helgi Már Bjarnason
Rannveig Jónasdóttir
Sigurjón Einar Þráinsson
Sigvaldi Guðmundsson
Susanne Braun
30 ára
Andrius Vilimas
Anna Björk Sigurðardóttir
Dóra Sif Sigurðardóttir
Elín Gísladóttir
Elín Marta Eiríksdóttir
Ellen Ragnars Sverrisdóttir
Finnbogi Rafn Jónsson
Guðný Lára Óskarsdóttir
Guðrún Inga Torfadóttir
Kristín Eva Pétursdóttir
Logi Hrafn Kristjánsson
Nantasiri Mankamnerd
Patrycja Sobczak
Þórður Bergsson
Til hamingju með daginn
30 ára Friðbjörn ólst upp
í Grafarvogi. Hann starfar
sem vörumerkjastjóri hjá
Mekka vínheildsölu. Einn-
ig er hann yfirþjálfari
sunddeildar Stjörnunnar
og skemmtikraftur. Frið-
björn er með BS-próf í
viðskiptafræði frá HÍ
2007.
Systir Elísa Pálsdóttir, f.
1988, sálfræðinemi í HR.
Foreldrar Páll Garðar
Andrésson, f. 1958, d.
1997, og Kristjana Frið-
björnsdóttir, f. 1959.
Friðbjörn
Pálsson
30 ára Katrín ólst upp í
Vesturbænum. Hún er í
fæðingarorlofi eins og
stendur.
Maki Ólafur Gunnar
Long, f. 1982, tæknimað-
ur hjá Vodafone.
Synir Gabríel Ólafsson
Long, f. 2009 og Ísak
Breki Ólafsson Long, f.
2011.
Foreldrar Guðlaugur
Gíslason, húsvörður, f.
1956 og Birna Gerður
Jónsdóttir, f. 1958, ljós-
móðir.
Katrín
Guðlaugsdóttir
Þórarinn Þórarinsson, skóla-stjóri Alþýðuskólans á Eið-um, fæddist 5. júní 1904.
Hann var sonur Þórarins Þórarins-
sonar, prests á Valþjófsstað í Fljóts-
dal, og Ragnheiðar Jónsdóttur hús-
freyju. Fyrri kona Þórarins var
Helga Guðríður Björgvinsdóttir sem
lést 1937. Seinni kona hans var Sig-
rún Ingibjörg Sigþórsdóttir og eign-
uðust þau sjö börn; Ingibjörgu, f.
1941, Þórarin, 1943; Stefán, f. 1947,
Sigurð Þór, f. 1948; Ragnheiði
Helgu, 1952, Hjörleif, f. 1959 og
Halldór, f. 1962.
Þórarinn lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri og
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1924. Hann nam við Há-
skóla Íslands og lauk embættisprófi
í guðfræði 1928. Þórarinn hélt til
Marburg í Þýskalandi í framhalds-
nám í uppeldisfræði, trúarsálfræði
og helgisiðafræði árin 1929-30 og
einnig í kennimannlegri guðfræði í
Herborn, 1930. Hann dvaldi í Berlín
1936 og kynnti sér æskulýðs- og
íþróttastarfsemi. Þá var hann í
námsleyfi í danska lýðháskólanum
veturinn 1959-60.
Þórarinn hóf kennslustörf við Al-
þýðuskólann á Eiðum 1930 og var
skólastjóri þar 1938-65 og gegndi
formennsku í skólanefndum um ára-
bil.
Hann starfaði ötullega að menn-
ingarmálum í Héraði og var formað-
ur Menningarsamtaka Héraðsbúa
frá stofnun þeirra og um árabil. Þá
var hann einn af hvatamönnum
byggingar héraðsheimilisins Vala-
skjálfar, sem vígt var 1966. Vala-
skjálf tók þá við af Eiðastað. Hann
sat sem fulltrúi á Kirkjuþingum og í
Kirkjuráði. Þá var hann einnig í
stjórn Skógræktarfélags Austur-
lands og gegndi formennsku þar.
Þórarinn ritaði margar greinar í
blöð og tímarit um hugðarefni sín;
sagnfræði, menntamál og þjóðmál.
Endurminningabókin Horft til lið-
inna stunda, kom út 1981, er skreytt
teikningum höfundar og Þórarins
sonar hans.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1965
og kenndi við Kvennaskólann í
Reykjavík í nokkur ár.
Þórarinn Þórarinsson lést 2. ágúst
1985.
Merkir íslendingar
Þórarinn
Þórarinsson
30 ára Jórunn er nemi í
Hönnunar- og handverks-
skólanum þar sem hún
lærir klæðskera- og kjóla-
saum.
Maki Birgir Þór Gylfason,
f. 1982, tölvutæknifræð-
ingur.
Börn Hrafn, f. 2007 og
Lovísa, f. 2010,
Birgisbörn.
Foreldrar Steingrímur Þ.
Gröndal, f. 1946, við-
skiptafræðingur og Sig-
ríður Ásgeirsdóttir, f.
1956, bankastarfsmaður.
Jórunn S.
Gröndal
Lac Sensation - útsölustaðir
býður upp á
seiðandi sumar
með Lac Sensation
UV naglalakk sem endist í allt að 3 vikur
Styrkir náttúrulegu nöglina, hentar bæði fyrir
náttúrulegar neglur og gervineglur, frábært á tásur!
Reykjavík og nágrenni
• Snyrtistofan Helena Fagra Laugarvegi 163, 105 Rvk.
• Snyrti og nuddstofan Paradís Laugarnesvegi 82, 105 Rvk.
• Dekurhornið Snyrtistofa Faxafeni 14, 108 Rvk.
• Snyrtistofa Grafarvogs Hverafold 1-3, 112 Rvk.
• Snyrtistofan Ágústa Hafnarstræti 5, 101 Rvk.
• Snyrtihús Bergdísar Ólafsgeisla 65, 113 Rvk.
• Snyrtimiðstöðin Kringlunni 7, 103 Rvk.
• Snyrtistofan Gyðjan Skipholti 50d, 105 Rvk.
• Snyrtistofan Ársól Efstalandi 26, 108 Rvk.
• Dagný Snyrtistúdíó Miðhúsum 50, 112 Rvk.
• Victoria Salon & Spa Suðurlandsbraut 16, 108 Rvk.
• Verði Þinn Vilji Borgartún 3, 105 Rvk.
• Eygló Heilsulind Langholtsveg 17, 104 Rvk.
• Heilsustofan Háaleitisbraut 58-60, 108 Rvk.
• Snyrtistofan Xanadú Hamrabergi 4, 111 Rvk.
• Snyrtistofan Rós Engihjalla 8, 200 Kóp.
• Snyrtistofan Hrund Grænatún 1, 200 Kóp.
• Snyrtistofan Cara Bæjarlind 1-3, 200 Kóp.
• Snyrtistofan Garðatorgi Garðatorgi 7, 210 Garðabæ
• Snyrtistofan Lipurtá Staðarbergi 2-4, 221 Hafnarfirði
• Snyrtistofan Þema Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði
• Snyrtistofan Líkami & sál Þverholt 11, 270 Mosfellsbæ
Landsbyggðin
• Abaco Heilsulind Hrísalund 1a, 600 Akureyri
• Snyrtistofan Alda Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstaðir
• Snyrtistofan Anka, Aðalgötu 24, 340 Stykkishólmi
• Riverside Spa Eyrarvegi 2, 800 Selfoss
• Snyrtistofa Ólafar Austurveg 9, 800 Selfoss
• Snyrtistofa Jennýjar Lind Borgarbraut 3, 310 Borgarnes
• Snyrtistofan Dekur Dalsbraut 1, 300 Akranes
• Snyrtistofan Fagra Hafnargötu 7b, 240 Grindavík
• Snyrtistofan Spes Suðurgötu 10, 250 Sandgerði
• Snyrtistofan Mánagull Aðalstræti 21-23, 415 Bolungarvík
• Snyrtistofan Ágústu Hilmisgötu 2a, 900 Vestmannaeyjum