Morgunblaðið - 05.06.2012, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Viðhorf þitt er að hallmæla ekki því
sem þú hefur ekki prófað. Þú nærð árangri,
en færð ekki endilega viðurkenningu, enda er
það ekki takmarkið núna.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert ekki alveg ánægð með hvar þú
stendur, en það er engin ástæða til að byrja
upp á nýtt. Hafðu augun opin og ekki láta
sárindi í fortíðinni hindra að þú nýtir tækifær-
ið nú.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt ýmsar áhyggjur sæki að þér
skaltu ekki láta þær draga úr þér kjarkinn.
Sinntu því sem máli skiptir og gleymdu ekki
sjálfum þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leitaðu að öruggum farvegi fyrir
atorku þína en mundu að enginn er annars
bróðir í leik. Ekki skuldbinda þig ef þú mögu-
lega kemst hjá því.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver kemur þér svo á óvart að þú
verður að játa þá staðreynd að aldrei skyldi
dæma eftir útlitinu einu saman. Meginmark-
miðið er gagnkvæmur stuðningur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ósmeykur við að binda þig til
langs tíma. Fylgdu innsæi þínu. Jafnvel stíga
til hliðar og leyfa öðrum að njóta sín líka.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekkert leyndarmál að vogin er oft
lengur að taka ákvarðanir en flestir aðrir.
Vandamál sem hefur íþyngt þér um skeið
virðist allt í einu smávægilegt og auðleyst.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú færð góðar hugmyndir um
hvernig þú getur aflað meiri tekna en áður.
En reyndu ekki að stytta honum leið; það
hefnir sín alltaf fyrr en síðar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þennan dag ætti að nota til þess
að skipuleggja ferðir með fjölskyldunni. Það
er að færast meiri hraði í líf þitt. Gættu þín að
vera ekki óþolinmóð/ur gagnvart þeim sem
eru þér nákomnir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vissar upplifanir henta þér svo
fullkomlega að þær gætu ekki verið ætlaðar
öðrum. Þú ferð þangað sem þig lystir og ert
öðrum til ánægju.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allt virðist ganga þér í haginn svo
þú skalt bara njóta þess. Nýstárlegar hug-
myndir eiga hug þinn allan. Heilbrigð skoð-
anaskipti eru af hinu góða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin minnkun að því að
þekkja takmörk sín og viðurkenna þau. Tal-
aðu við vini þína, félaga og maka.
Jón Gissurarson yrkir fallegastemningu:
Glitra daggardropar
digna laut og bali
rjúpa í kjarri ropar
rennur fé um dali.
Ljóma vík og vogar
vermir sunna börðin.
Norðurloftið logar
lýsir Skagafjörðinn.
Pétur Stefánsson orti í tilefni
af sjómannadeginum:
Fyrrum meig ég í saltan sjó.
Síld og þorsk um borð ég dró.
Aflann vann og ældi og spjó.
Af því fékk ég meir en nóg.
Friðrik Steingrímsson er fljót-
ur að prjóna við:
Kvenfólki var um og ó
athygli hann til sín dró.
Flestöll kvöld hann drakk og dó
daginn eftir reis hann þó.
Skúli Pálsson kastar fram
stöku á Boðnarmiði um það sam-
félag sem dafnar þar:
Boðnarmjaðar fellur foss
í feikna dýrum versum,
ríma ofan, upp, í kross,
aftan, langsum, þversum.
Og Vigfús M. Vigfússon:
Lýkur för við lygnan sjó
leggur snör til bragsins.
Aldrei spör á augnafró
eru fjörbrot dagsins.
Atli Harðarson rifjar upp brag:
„Eftirfarandi kvæði er eignað
Kolbeini Grímssyni sem nefndur
var jöklaraskáld. Hann var uppi á
17. öld og kvaðst á við hann úr
neðra eins og frægt er. Vísan er
rifjuð upp í tilefni sjómannadags.
Hér í vörum heyrist bárusnarið,
höld ber kaldan öldu vald á faldi,
seltu piltar söltum veltast byltum
á sólar bóli róla í njólu gjólu;
öflgir tefla afl við skeflu refla,
sem að þeim voga, boga, toga,
soga;
en suma geymir svíma-drauma
rúmið sofa ofurdofa í stofu kofa.
(Ég fann þetta kvæði á bls. 44-
45 í bók sem kom út 1923 í
Reykjavík og heitir Hafræna.
Undir bókarheiti á kápu stend-
ur„Sjávarljóð og siglinga. Safnað
hefur Guðm. Finnbogason“.)“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af rjúpu í kjarri
og fjörbrotum dagsins
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
HVERN LANGAR
EKKI Í SVONA
MAGAVÖÐVA
SVONA NÚ,
BORÐAÐU
EITTHVAÐ!
ÞETTA
ER FRÁBÆR
DAGUR TIL AÐ
ELTA
KANÍNUR
SVONA NÚ, DRÍFÐU ÞIG! ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ
ÞÆR SÉU HÆGFARA
ER ÞETTA BARA
ANDLITSMÁLNING?
EN... ÉG SEM LÉT
LITA Á MÉR HÁRIÐ,
FÓR Í NEF- & EYRNA-
AÐGERÐ OG LÉT FLÚRA
Á MÉR ANDLITIÐ
ÉG VEIT AÐ ÉG
FÉKK LAUNAHÆKKUN Í
FYRRA, EN ÉG ÞARF
AÐ FÁ AÐRA NÚNA
HVERSU
MIKIÐ ÞARFTU
NÚNA?
BARA RÉTT
NÓG SVO ÉG
ENDI EKKI Í
SKULDAFANGELSI
ÞAÐ
ER ALLTAF
SAMA
SAGAN...
MAÐUR RÉTTIR
ÞEIM LITLAPUTTA OG ÞAÐ
NÆSTA SEM MAÐUR VEIT
ER AÐ ÞEIR HEIMTA ALLA
HENDINA
SVONA NÚ SNOOPY,
KOMDU AÐ ELTA
KANÍNUR!
Víkverji?“Já.
„Ég hef fengið fyrirmæli!“
Nú, jæja. Hvaða fyrirmæli eru
það?
„Að berja þig í klessu!“
Undir venjulegum kringum-
stæðum hefði Víkverja brugðið við
símtal af þessu tagi á síðkvöldi, ekki
síst þar sem hann bar ekki kennsl á
röddina á hinum enda línunnar og
hringt var úr leyninúmeri. Víkverji
var hins vegar tiltölulega rólegur,
þar sem hann vissi að tveir uppá-
tækjasamir aldavinir hans voru
staddir á endurfundum með skóla-
félögum sínum úti á landi. Þeir hlutu
að vera á bak við þetta dularfulla
símtal. Það kom á daginn.
„Höfuðpaurinn leggur áherslu á
að ég gangi alveg frá þér. Best að þú
talir beint við hann.“
Eftir mikinn hlátur fékk Víkverji
að vita að maðurinn sem hafði í hót-
unum við hann var gamall félagi sem
Víkverji hafði hvork heyrt né séð ár-
um og jafnvel áratugum saman.
Gaman að þessum endurfundum!
x x x
Víkverji kvartaði sáran undan töf-um á framkvæmdum við nýjan
knattspyrnuvöll á Kjalarnesi fyrir
tveimur vikum en þeim átti að vera
löngu lokið. Þar sem Víkverji er
sanngjarn maður að upplagi gleður
það hann að upplýsa lesendur um að
þær framkvæmdir eru nú hafnar af
fullum krafti á ný og allt útlit fyrir
að ungliðahreyfing UMFK geti
spyrnt á nýja vellinum síðar í sumar.
x x x
Djöfull er þetta ljót beygla!“ sagðibetri helmingur Víkverja hátt
og snjallt á bílaplani við verslunar-
miðstöð í borginni á dögunum og átti
þá við dæld á hlið bifreiðar þeirra
hjóna, sem enginn veit hvernig varð
til. Álengdar stóð ókunnug kona og
horfði flóttalega til þeirra Víkverja-
hjóna. Hafi hún tekið orðin til sín er
hún beðin afsökunar.
Spétímabilið er gengið í garð í fót-
boltanum í Evrópu samanber eftir-
farandi fyrirsögn af enskum net-
miðli: „Van Persie ræðir um að ræða
ekki um viðræður fyrr en eftir EM.“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far
þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafn-
skjótt fékk hann sjónina og fylgdi hon-
um á ferðinni. (Mark. 10,52.)
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Orbital borð
kr 855.000
L165/D105/H75
Stækkun 255
Anais borðstofustóll
kr 89.000 leður