Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Í tilefni þess að komin eru út tvö ný bindi í rit- röðinni Kirkjur Íslands bjóða Húsafriðunar- nefnd, Þjóðminja- safn Íslands, Biskupsstofa, Minjasafn Reykjavíkur og Hið íslenska bók- menntafélag til málstofu og opnunar sýningar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag kl. 16. Erindi flytja þau Þórir Stephensen, fyrr- verandi dómkirkjuprestur og stað- arhaldari í Viðey, Þorsteinn Gunn- arsson arkitekt, Júlíana Gottskálks- dóttir listfræðingur, Gerður Róbertsdóttir sagnfræðingur og Pétur H. Ármannsson arkitekt. Sagnfræði Málstofa um friðaðar kirkjur Útskorin tafla í Kristskirkju. Auðnuleysingjar og aðalsmenn er yfirskrift síðustu hádegistónleika Hafnarborgar á þessu vori sem fram fara í dag kl. kl. 12. Þar munu Hrólfur Sæ- mundsson bari- tónsöngvari og Antonía Hevesi píanóleikari flytja aríur um ást, hefnd og afbrýðisemi þar sem auðnuleysingjar og aðalsmenn eru í aðalhlutverkum. Tónlist Aríur um ást, hefnd og afbrýði Hrólfur Sæmundsson Myndlistarmað- urinn Teddi, Magnús Theodór Magnússon, opn- ar sýningu á höggmyndum í Perlunni í dag kl. 17. Teddi hefur valið tré sem sinn efnivið, sem hafa sögu, en einnig ólíka áferð, lit og lögun, allt frá rekaviði sem fáir sjá notagildi í að úrvals harðviði. Á sýningunni eru ríflega 50 verk sem að stórum hluta eru unnin í þingvíði úr görðum í mið- borg Reykjavíkur. Sýningin, sem stendur til 30. júní, er opin alla daga frá kl. 10-21 og er aðgangur ókeypis. Myndlist Teddi sýnir í Perlunni Magnús Theodór Magnússon Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Gálgaklettur og órar sjónskynsins er yfirskrift myndlistarsýningar sem opnuð var í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, laugardaginn síð- astliðinn. Grunnur sýningarinnar eru verk sem Jó- hannes Kjarval málaði á stað sem hann kenndi við Gálgaklett í Garðahrauni norðan Hafnar- fjarðar en verkin sem Kjarval mál- aði þar skipta tug- um. Auk verka eftir Kjarval eru á sýningunni verk eftir tuttugu íslenska listamenn af ólíkum kynslóðum og spanna þau heila öld, verk sem sýningarstjórinn Ólafur Gíslason taldi sig finna í end- urómun við Gálgaklettsviðfangsefni Kjarvals. Má þar finna verk jafn- ólíkra listamanna og Finns Jóns- sonar og Egils Sæbjörnssonar. Myndhugsun Kjarvals og heimspeki Merleau-Ponty „Þessi sýning byggist á því að ég fór að taka saman þessar myndir sem Kjarval hefur málað og kennir við Gálgaklett. Það var í samhengi við kennslu mína í Listaháskólanum í listheimspeki þar sem ég nota þessi verk Kjarvals til þess að útskýra heimspeki Maurice Merleau-Ponty, benda á samhengið á milli mynd- hugsunar Kjarvals og heimspeki þessa franska heimspekings en þeir voru uppi á sama tíma,“ segir Ólafur. „Merleau-Ponty er helsti talsmaður fyrirbærafræði í heimspeki, þess skóla sem kenndur er við fyrir- bærafræði og byggist á ákveðnum hugmyndum um skynjunina. Skynj- unin skiptir miklu máli, hvað er það sem gerist þegar við skynjum t.d. náttúruna?“ útskýrir Ólafur. Klett- urinn sem Kjarval málaði ítrekað skipti ekki máli sem slíkur heldur samband listamannsins við náttúr- una, sjónskynjunin og sú sýn sem orðið hafi til innra með honum. Klett- urinn sé í sjálfu sér ekkert merki- legri en aðrir steinar en Kjarval hafi engu að síður valið sér hann og kall- að Gálgaklett. Málverkið gefur náttúrunni merkingu, ekki öfugt „Þegar við sjáum allar þessar myndir saman uppgötvum við að þessi steinn eða klettur tekur á sig óteljandi myndir í þessum mál- verkum og það er í raun og veru málverkið sem gefur náttúrunni merkingu en ekki náttúran sem gef- ur málverkinu merkingu, það snýst við,“ segir Ólafur. Samband manns- ins og umhverfisins og eins konar samtal við náttúruna eigi sér stað. „Þá sjáum við að út úr því verða til það sem ég kalla órar sjónskynsins. Vegna þess að þegar þú ferð að skoða og hugsa djúpt út í það sem þú horfir á finnurðu ákveðið svarthol, ákveðinn svartan blett sem er eig- inlega líkjanlegur við það að þú get- ur horft á sjálfan þig alveg eins og þú getur horft á klettinn en þú getur ekki horft á eigið auga. Það er ákveð- ið svarthol í okkar sjónskyni og þeg- ar þú ferð að horfa inn í þetta svart- hol verða til þessir órar sjónskynsins sem ég kalla svo og fjalla um djúpa tilvistarspurningu mannsins. Þannig að Kjarval sem málari og listamaður var að fjalla um djúpar, tilvistarlegar spurningar og hans myndlist á sér þannig frumspekilegar rætur. Hún er ekki lýsing á náttúrunni heldur eru þetta frumspekilegar spurningar sem hann vekur um samband manns og náttúru.“ Auk Jóhannesar Kjarvals eiga verk á sýningunni Finnur Jónsson, Svavar Guðnason, Jóhann Eyfells, Erró, Vilhjálmur Bergsson, Steina Vasulka, Kristján Guðmundsson, Hreinn Friðfinnsson, Jóhanna Krist- ín Yngvadóttir, Helgi Þorgils Frið- jónsson, Ívar Valgarðsson, Erla Þór- arinsdóttir, Halldór Ásgeirsson, Kristján Steingrímur Jónsson, Georg Guðni, Bjarni Sigurbjörnsson, Margrét Blöndal, Egill Sæbjörns- son, Heimir Björgúlfsson og Sig- urður Guðjónsson. Sýningin stendur til 26. ágúst. Frumspekilegar spurningar um samband manns og náttúru Meistarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var mikill listamaður.  Jóhannes Kjarval málaði tugi málverka af stað sem hann nefndi Gálgaklett í Garðahrauni í Hafnarfirði  Grunnur sýningar á Kjarvalsstöðum þar sem verk Kjarvals eru innan um verk tuttugu íslenskra listamanna sem spanna heila öld Frekari upplýsingar um sýninguna og Kjarval má finna á vef Lista- safns Reykjavíkur, listasafnreykja- vikur.is. Staðurinn Eitt af málverkum Kjarvals á sýningunni, Úr Gálgahrauni, verk sem Kjarval málaði á árunum 1955-60. Ólafur Gíslason Ýmsir viðburðir verða haldnir í tengslum við sýninguna Gálga- klettur og órar sjónskynsins. Viðburðadagskráin hófst sunnudaginn sl. með sýning- arstjóraspjalli Ólafs Gíslasonar. 14. júní, kl. 20-22, mun fjöl- miðla- og fræðimaðurinn Jón- atan Garðarsson leiða kvöld- göngu að Kjarvalsreitnum í Gálgahrauni og hefst hún við Hraunvík nærri Sjálands- og Ásahverfum. Boðið verður upp á rútuferð frá Grófarhúsi kl. 19.30. Tíu dögum síðar, sunnudag- inn 24. júní, kl. 15 verður svo fjölskylduleiðsögn á Kjarvals- stöðum um sýninguna og smiðja henni tengd. Ganga, leið- sögn, smiðja VIÐBURÐADAGSKRÁ Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Dreymir þig nýtt eldhús! Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.