SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Page 23

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Page 23
24. júní 2012 23 Minningar flestra íslenskrabjöllueigenda eru tengdarmiðstöðinni, sem oft og ein-att var biluð, að minnsta kosti í þeim sem ég ferðaðist með. Stella systir þurfti stöðugt að vera með sköfuna á lofti til að sjá eitthvað út. Svo man ég líka eftir eldrauðu bjöllunni hans Valla á æskuslóðunum í Vanabyggð, sem var alltaf nýbónuð og gljáandi. Það var Valmundur Antonsson, verkamaður hjá Raf- veitunni á Akureyri, sem var okkur strákun- um góður – ef við bara létum það vera að fara í viðstöðulausan á húsveggnum á heimili hans. En ég áttaði mig ekki á því að bjallan stæði fyrir annað og meira. Eins og fram kemur í viðtali Karls Blöndals við nafna sinn Carl Hahn, fyrrverandi stjórnarformann Volkswagen, í Sunnudagsmogganum í dag, þá varð hún „tákn um endurreisn Þýska- lands sem friðsamrar þjóðar með sterka stöðu í viðskiptalífi heimsins“. Og auglýsingarnar mörk- uðu tímamót, enda öllu snúið á hvolf í landi kádiljákanna og bílakaupendur hvattir til að „hugsa smátt“. „Það er auðvitað nokkuð sérstakt að við vegna hlutverks okkar í efnahagslífinu erum neydd til að taka að okkur forustuhlutverk í Evrópu gegn vilja okkar vegna sektarkenndar okkar, sem ég tel að við höfum enn og það með réttu, þótt nú sé komin ný og yngri kynslóð,“ segir Hahn. Nú er svo komið að nýjar kynslóðir eru að taka við í Þýskalandi, sem ekki þekkja stríðið nema af afspurn, og það sama má segja um önnur Evrópuríki. Ég hef aldrei verið trúaður á erfðasyndir. Þó að víst megi draga lærdóm af sögunni. Það er full ástæða fyrir Þjóðverja að bera höfuðið hátt. Þeir hafa með dugnaði og útsjónarsemi reist við efnahag og orðstír landsins. Og það var mikið afrek hvernig staðið var að sameiningu Þýskalands. „Friðsama byltingin“ markaði farsæl endalok kalda stríðsins – þegar landamærin milli austurs og vesturs þurrkuðust út í bókstaflegri merkingu. Í lokin er gaman að geta þess að nú er það þýska landsliðið í knattspyrnu sem eflir sjálfstraust þýsku þjóðarinnar. Þar koma saman leikmenn af margvíslegum uppruna, sem spila skemmtilega knattspyrnu og vekja hrifningu um allan heim. Það er tímanna tákn að yngsta kynslóðin á mínu heimili styðji þýska landsliðið. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Bjallan markaði tímamót Rabb „Ef fólk heldur áfram að kjósa svona vit- leysinga þarna inn verður að finna ein- hverja leið til að takmarka þetta því það er að verða fullkomlega óbærilegt að vera í þingsalnum. Það er ekki af tilviljun að þingsalurinn er yfirleitt tómur.“ Þráinn Bertelsson, alþingismaður, um ræðutíma á Al- þingi. „Ég gæti ekki verið saklaus- ari.“ Annþór Kristján Karlsson í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Með því að festa veiði- gjaldið í krónutölu til eins árs er enn verið að ýta undir óvissu innan sjáv- arútvegsins í stað þess að vinna að sátt til framtíðar.“ Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, um nýsamþykkt veiðigjöld. „Ég á börn og mér finnst miklu skipta að jafnréttislög hafi eitthvert vægi.“ Anna Kristín Ólafsdóttir sem fékk dæmdar miskabæt- ur byggðar á því að forsætisráðherra hefði lítilsvirt og niðurlægt hana á opinberum vettvangi með yfirlýsingu í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. „Alþingi vann pólitískt ippon í gær þegar það samþykkti með öruggum meirihluta lög um veiðigjöld.“ Björn Valur Gíslason, alþingismaður, fagnaði sigri í veiðigjaldamálinu á bloggsvæði sínu. „Óneitanlega hvarflaði það að mér hvað hlutskipti mitt í lífinu væri undarlegt þegar ég var þarna hokinn, 44 ára gamall maðurinn, um- kringdur tökumönnum, að reyna að fá bavíana til að veita mér kinnhest.“ Paul Giamatti leikur á móti bavíana í sinni nýjustu kvik- mynd. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Hverju svarar frú Merkel? Og hvaða svar á frú Merkel? Henni dylst ekki að illt er í efni, efnafræðingnum sjálfum. En hún er ekki sjálf liprari í taumi en aðrir. Og henni er ekki skemmt. Enda fer því fjarri að landar hennar og kjósendur vilji láta þrengja að sér, vegna vand- ræða annarra, umfram það sem þegar hefur verið gert. Kanslarinn fékk ekki einu sinni að ljúka í tæka tíð lagasetningu sinni um síðasta björg- unarpakka, ESM-sjóðinn og ríkisfjármálasamn- inginn. Stjórnlagadómstóll landsins óskaði eftir því að forsetinn frestaði staðfestingu sinni á lög- um um pakkann þar til dómurunum hefði gefist færi á að fara í gegnum málið. Og forsetinn varð við beiðninni. Það var mikið áfall fyrir kansl- arann, að sögn fréttaskýrenda, enda hefur hingað til verið litið á undirskrift forseta á lögum sem hreint formsatriði í Þýskalandi. Þótt stjórnlaga- dómstóllinn þýski hafi heldur harðnað í sinni af- stöðu til valdaframsals upp á síðkastið er ekki lík- legt að hann muni setja fótinn fyrir kanslarann og þingmeirihlutann að þessu sinni, fremur en fyrri daginn. En þessi afskipti dómstólsins og forsetans verða þó örugglega til þess að kanslarinn gætir sín enn frekar en ella gagnvart kröfum um að Þýska- land gangi í lokaábyrgð á öllum þeim ógöngum sem svo margar evruþjóðir hafa komist í eftir að þær gerðust aðilar að sameiginlegu myntinni. En sjálfsagt er ekki útilokað að Merkel kanslari bendi Mario Monti einfaldlega á að nýlega hafi framsækinn forsætis- og jafnréttisráðherra uppi á Íslandi, Jóhanna Sigurðardóttir, lýst því yfir að þessi evruvandræði, sem hún hefði heyrt orðróm um fyrir skömmu, væru í rauninni góð tíðindi fyrir evruna og ekki síst fyrir aðild og aðlögun Ís- lands að myntinni og ESB. Þess vegna kynni hann og hinir beiningamennirnir að gera réttast í að anda bara rólega. Skipist mál þannig á fundinum er ekki ólíklegt að Mario Monti forsætisráðherra sortni fyrir aug- um og hann ímyndi sér að ólíklegasta fólk á sam- lagssvæði ESB sé fallið fyrir launhelgum bunga- bunga Berlusconis eða einhverju þaðan af verra. Morgunblaðið/RAX meri“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.