SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 26
26 24. júní 2012
Félagarnir Freyr Heiðar Guð-mundsson, Friðþjófur HögniStefánsson, Jóhann Torfi Ólafs-son, Jón Bjarni Magnússon og
Þórólfur Jarl Þórólfsson fóru á dögunum
fótgangandi frá suðausturhorni Íslands,
yfir hálendið, og enduðu á norðvestur-
horni landsins. Áður hafði hluti hópsins
gengið Langleiðina svokölluðu, sem er
frá Reykjanestá í vestri til Langaness í
austri. Það er því ljóst að stórt X hefur
verið markað yfir landið í formi göngu-
ferða, í fyrsta skiptið sem slíkt hefur ver-
ið gert svo vitað sé til.
Eldgos setti strik í reikninginn
Blaðamaður hitti þrjá meðlimi hópsins á
kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur auk þess
sem Jón Bjarni fékk að taka þátt í viðtal-
inu í gegnum símtæki. Freyr Heiðar var
hinsvegar því miður fjarverandi. Að sögn
drengjanna reyndu þeir við svipaða ferð á
síðasta ári með misjöfnum árangri.
„Við reyndum þetta í fyrra en þá urð-
um við að hætta eftir rúmlega 200 kíló-
metra. Það fór að gjósa eins og frægt er
orðið auk þess sem náttúran sagði ein-
faldlega nei við okkur. Það kom smá
kuldakast og hálendið fylltist af snjó og
svo kom hitakast og þetta var bara allt að
leka niður,“ segir Friðþjófur. Vinirnir
voru þó ákveðnir í því að láta ekki deigan
síga og fóru aftur í ár.
„Mig langaði að labba þetta áður en
Svandís bannar lausagöngu mannfólks
um hálendi Íslands. Maður veit aldrei
hvenær það gerist,“ bætir Þórólfur við
um verndaráætlanir Svandísar Svav-
arsdóttur umhverfisráðherra.
Aðspurðir út í það hvort þeir séu vanir
fjallgöngumenn viðurkenna félagarnir að
þeir séu ekkert sérstaklega reynslumiklir
á því sviði.
„Ekki ég. Maður hefur gengið á rjúpu
og einhverjar dagsferðir en aldrei neitt
svona. Ég er að vinna með Frey Heiðari
hjá Lax-á og hann var búinn að tala svo
mikið um bæði Langleiðina sem hann fór Félagarnir fögnuðu vel og innilega þegar komið var á leiðarenda. Hér eru þeir Jón, Jóhann, Þórólfur og Friðþjófur sáttir með lífið.
Þeir félagar þurftu að fara yfir nokkuð margar ár á leið sinni. Hér fer Freyr Heiðar yfir á í klakaböndum.