SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 34
34 24. júní 2012 Stangveiði Tveir veiðimenn koma gang-andi í slyddunni eftir vatn-bakkanum og nálgast bíla-stæðið. Enn grillir í einhverja félaga þeirra í muggunni, í króknum suður við Námshraun, en þessir eru á leið í bílinn, að hvíla sig um stund, enda búnir að standa við síðan rúmlega níu um morguninn og klukkan nú að ganga fjögur. Annar er með laxatösku á bakinu og hún sígur greinilega í. Það er ekki skrýtið, í henni eru hátt í þrjátíu bleikjur. Þetta eru Örn Svavarsson og Bjarki Dan sonur hans. Þeir eru mættir í hópi félaga í stangveiðifélaginu Ármenn í árlega veiðiferð í Framvötnin svoköll- uðu, vötnin sunnan Tungnaár, við for- dyri Landmannalauga. Örn hefur um árabil komið til veiða í þessum töfra- heimi sem hann kallar „paradís“, og þá einkum í þessu vatni, Frostastaðavatni. Það er líklega vinsælasta stang- veiðivatnið á svæðinu, með mikið af bleikju og tignarlegt umhverfi, en meðal annarra vatna þar sem hafa gefið silung, þó að þau séu misgjöful, má nefna Dómadalsvatn, Ljótapoll, Löð- mundarvatn og Kýlingavatn. Ekki vel haldnir í ár Ferðin var farin um liðna helgi og þennan laugardagsmorgunn var bjart og fallegt veður þegar veiðimenn komu að Frostastaðavatni; það var ekki fyrr en síðdegis, þegar vindurinn reif í úti- vistarfatnað erlendu ferðamannanna sem tóku ljósmyndir ofan af Frostaða- hálsi, að þungbúin skýin sigldu yfir, hitinn féll niður í eina eða tvær gráður og slyddan helltist yfir veiðimenn. Of- an af hálsinum mátti sjá að veiðimenn sem stóðu á svörtum sandinum við vatnsborðið voru stundum tveir og þrír með hann á í einu, en í hópi Ármanna voru nær tuttugu manns að þessu sinni. Örn og Bjarki sýna mér fallega bleikjukös í laxatöskunni. „Við tókum okkur nú góðan kaffitíma í blíðunni. Slyddan var ekki byrjuð þegar við ákváðum að við værum orðnir sáttir með þessa 20, 30 fiska,“ segja feðgarnir og bæta við að innanum séu nokkrir virkilega fallegir. „Þetta er mikið pundsfiskur,“ segir Örn. „Eitthvað er smærra og nokkrir aðeins stærri. En þeir eru ekkert rosa- lega vel haldnir í ár,“ bætir hann við og veltir fyrir sér hvort lífríkið þarna í Friðlandi að fjallabaki kunni að hafa tekið óvenju seint við sér í ár. Einn fiskur á hverja flugu Þegar spurt er um veiðitæknina sem þeir beita í Frostastaðavatni segir Örn bleikjuna hafa tekið ágætlega en þó fengu þeir yfirleitt ekki nema einn fisk á hverja flugu. „Þá þurftum við að skipta um og oft tók hann í fyrsta kasti með þeirri nýju. Eftir að hafa landað og fimm, sex árangurslaus köst að nýju, þegar ekkert gerðist, varð að skipta. Við reyndum allt litrófið og ég setti meira að segja undir appelsínugulan nobbler og fékk eina bleikju á hann. Það var eiginlega sama hvað ég setti út, það kom einn fiskur á. Við vorum þarna fremst í hrauninu,“ segir hann og bendir suður með vatni. „Þegar glæran var á í morgun sá maður þá taka fluguna ofan í vatninu. Það kraumar allt af fiski þarna.“ Feðgarnir voru búnir að reyna víðar. „Þegar við komum í gærkvöldi byrj- uðum við á að fara í Dómadalsvatn en fengum ekkert. Einn félagi okkar fór líka þangað í morgun, hann hafði farið í fyrra og þeir mokveitt, en fékk nú ekkert.“ Þá segir Örn að fararstjóri hópsins, Guðmundur Haukur Jónsson, hafi farið í Löðmundarvatnið kvöldið áður en bara sett í smælki sem hann hirti ekki. „Þau Guðmundur Haukur og Jó- hanna Benediktsdóttir kona hans gengu þarna hinumegin í hraunið og þar sem þau eru ekki komin til baka geri ég ráð fyrir að þau hafi verið í fiski.“ Örn hristir af sér bleytuna og segir brosandi að þeir feðgar hafi vonast eftir einhverri rigningu. „Við vorum fegnir að fá skúrir í dag en það er verra þegar „Kraumar allt af fiski“ „Þegar lygnir vakir fiskur um allt og byltir sér,“ segir Örn Svavarsson um Frostastaðavatn í ná- grenni Landmannalauga. Örn er einn þeirra veiðimanna sem stunda Framvötnin svokölluðu í Friðlandi að fjallabaki, en þeir veiða oft vel. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Bjarki Dan og Örn Svavarsson við Frostastaðavatn. „Þetta er stóri aflatúrinn á hverju ári,“ segir Örn um júníferð sína í Frostastaðavatn. Þeir fengu nær 60 bleikjur.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.