SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 45
24. júní 2012 45
Síðustu ár hef ég gjarnan útskýrt óskiljanlegt orða-
blæti mitt fyrir fólki sem svo að ég sé orðaperri. Rétt-
ara væri þó eflaust að kalla mig orðafíkil. Ég skemmti
mér konunglega yfir kúnstugum orðasamsetningum
og glugga gjarnan í orðabækur.
Öll list er yfirleitt sérlega persónubundinn vímu-
gjafi og ófáum sinnum hef ég lagt frá mér heims-
bókmenntirnar hálfkláraðar. Eflaust skortir mig
þroska og þolinmæði gagnvart kanónunni en sömu
sögu er einnig að segja af mörgum vinsælum nýlegri
verkum. Ég og Salman Rushdie erum til dæmis ekki
náin og þó svo að Nabokov hafi snarað mig í fyrstu
með Lolitu fékk ég fljótt hvítuna og gafst upp.
Hinsvegar eru til höfundar sem veita mér sælu-
hroll við hvern lestur. Þar fer fremstur í flokki (hvað
sem sárasóttinni líður) Jónas nokkur Hallgrímsson.
Föðurlandsástin fer á flug yfir Gunnarshólma og
ósjaldan falla tár yfir Ferðalokum. Uppáhalds skáld-
sagan er sjaldan sú sama lengi. Þessa stundina vermir
Everything is Illuminated eftir Jonathan Safran Foer
efsta sætið. Þar leikur höfundurinn sér að tungu-
málinu á stórskemmtilegan hátt en stórir hlutar
sögunnar eru sagðir af Úkraínumanninum Alex á
hressilega bjagaðri ensku. Þeir kaflar vöktu mikla
kátínu orðaperrans en hinir kaflarnir, sem segja frá
afdrifum hins töfrum slungna smábæjar Trachim-
brod, reyndust jafnvel betri við nánari lestur.
Einu sinni fannst mér ég verða að klára bók ef ég
var á annað borð byrjuð að lesa hana, svona eins og
börnum er sagt að klára af disknum. Nú orðið hef ég
hinsvegar góða tilvitnun í Frank Zappa bak við eyr-
að.
„So many books, so little time“
Best er að varpa allri þrjósku eða snobbi fyrir borð
og lesa aðeins það sem auðgar lífið á einhvern hátt
og þá jafnvel oft.
Í augnablikinu svíf ég um á bleiku skýi með Pablo
Neruda og Twenty Love Poems and a Song of
Despair. Hann vill gera með mér það sem vorið ger-
ir með kirsuberjatrjánum.
Lesarinn
Anna Marsibil Clausen
Óskiljanlegt orðablæti
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
[I]NDEPENDENT PEOPLE / „SJÁLFSTÆTT FÓLK“ 19.5. - 2.9. 2012
ÖLVUÐ AF ÍSLANDI / INSPIRED BY ICELAND 19.5. - 4.11. 2012
DÁLEIDD AF ÍSLANDI / HYPNOTIZED BY ICELAND 19.5. - 4.11. 2012
HÆTTUMÖRK / ENDANGERED 19.5. - 31.12. 2012
HÁDEGISLEIÐSÖGN um sýningar safnsins
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10-12:40
Listaklúbburinn SELMA: árskort sem veitir ókeypis aðgang á
sýningar Listasafns Íslands og margt fleira. Nánari upplýsingar og
skráning á listasafn.is, eða í tölvupósti selma@listasafn.is.
SAFNBÚÐ, útskriftartilboð á útgáfum safnsins
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
Listasafn Reykjanesbæjar
MILLILANDAMYNDIR
45 verk eftir ýmsa listamenn
2. júní – 19. ágúst
Bátasafn Gríms Karlssonar
100 bátalíkön og ýmsar sjóminjar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
VERTÍÐIN - Ný sýning
um sögu svæðisins til 1940
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Kvikmyndasýning sunnudaginn 24. júní kl. 15:
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Fjölbreyttar sýningar:
TÍZKA – kjólar og korselett
Björgunarafrekið við Látrabjarg – ljósmyndir Óskars Gíslasonar
Aðventa á Fjöllum – Ferðalangar á Fjöllum
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Spennandi safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga kl. 10-17.
Síðasta abstraktsjónin
Eiríkur Smith 1964 - 1968
Hús
Hreinn Friðfinnsson
Sýningarnar standa til 19. ágúst
Opið 12-17, fim. 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Sunnlendingar á Ólympíuleikum
Sumarsýning Hússins
Jónsmessugleði á Eyrarbakka
23. júní
dagskrá á heimasíðu
www.husid.com
opið 11-18 alla daga
Byggðasafn Árnesinga
Sjóminjasafnið
SAGA TIL NÆSTA BÆJAR
Úrval íslenskrar vöruhönnunar
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
HORIZONIC
rými og víðáttur í hljóðlist
Listamenn frá útjaðri
Norðurlanda
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. Kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Ó
lyginn hefur
sagt að bók-
menntir séu
stundum
kjaftasögur gáfaða fólks-
ins og það á að sumu leyti
við um ljóðabókina
Skeiðæingatal eftir
bandaríska rithöfundinn
Edgar Lee Masters. Þessi
merkilega bók hefur nú verið
gefin út í afburðagóðri þýðingu
Hallbergs Hallmundssonar.
Edgar Lee Masters (1868-
1950) ólst upp í tveimur bæjum
í Illinois-ríki, Lewistown og
Petersburg, nálægt Skeiðará,
eða Spoon River. Masters starf-
aði sem lögmaður í Chicago í
tæp 30 ár og gaf út alls 21 ljóða-
bók, auk tólf leikrita, sex
skáldsagna og sex ævisagna,
meðal annars um Abraham
Lincoln, Walt Whitman og
Mark Twain.
Skeiðæingatal ber þar af sem
gull af eir og er eina bókin sem
hefur haldið nafni Masters á
lofti. Upphafsljóð bókarinnar,
Hvollinn, fjallar um allt fólkið
sem hvílir í Eikarhvoli, kirkju-
garði Lewistown. Hin ljóðin eru
eins konar grafskriftir eða
eftirmæli þar sem látna fólkið
lýsir ævi sinni í stuttu og lausu
máli.
Alls eru yfir 200 persónur í
þessum ljóðakirkjugarði og
Masters hafði kynnst eða heyrt
af mörgum þeirra þegar hann
ólst upp í grennd við Skeiðará.
Sagt er að gömlum sveitungum
Masters hafi sárnað hvernig
Skeiðæingum er lýst í bókinni.
Segja má að Skeiðæingatal
byggist að nokkru leyti á gróu-
sögum um breyskt fólk, t.a.m.
framhjáhöld og spillingu. Bókin
vakti strax mikla athygli þegar
hún kom út árið 1915 og við-
brögðin voru æði misjöfn.
Sumir lýstu henni sem nýstár-
legu stórvirki og líktu henni
jafnvel við Leaves of Grass eftir
Walt Whitman. Aðrir hneyksl-
uðust og nokkrir gagnrýnendur
töldu að „hneykslin“ í bókinni,
einkum kynlífshneyksli, væru
meginástæða þess að hún varð
fræg – ekki skáldskapurinn.
Þótt einstakar persónur séu
oft kveikja að ljóðunum fjalla
þau yfirleitt fyrst og fremst um
manngerðir. Persónurnar koma
úr öllum stéttum þjóðfélagsins,
á meðal þeirra eru fyllibyttur
og slagsmálahundar bæjarins
jafnt sem fína fólkið. Segja má
að Skeiðará, eins og þorpið er
nefnt í bókinni, sé heimur
mannanna í hnotskurn. Bókin
höfðar því til lesenda úti um
allan heim.
Í bókinni virðist Masters vilja
kollvarpa þeirri útbreiddu hug-
mynd að þorpin og húsin á
sléttunum vestra séu vígi hefð-
bundinna, kristinna siðferð-
isgilda. Ástlaus hjónabönd eru
höfundinum hugleikin og hon-
um er greinilega í nöp við það
viðhorf að hjónabandið sé heil-
agt og það sem Guð hafi sam-
einað skuli menn aldrei nokk-
urn tíma sundur slíta. „Það er
ekkert hjónaband á himnum,
en það er ást,“ segir Sarah
Brown við viðhaldið sitt og frú
Benjamin Pantier útskýrir hvers
vegna hún flæmdi eiginmann
sinn að heiman:
Og setjum enn svo að þú
sért kona einkar álitleg
og eini maðurinn sem lög og
siðferði leyfa þér að hafa
holdleg mök við
sé einmitt sá sem fyllir þig
viðbjóði.
Sumir ljóðmælendurnir óttast
ekki lengur sannleikann þar
sem þeir eru dánir. Þeir geta því
verið hreinskilnir og afhjúpað
ósannindi og hræsni í
samfélaginu.
Í lífinu var ég héraðsdómari,
haldari reikninga,
skar úr málum eftir því hvern-
ig lögmennirnir lugu,
ekki samkvæmt sannleik og
réttlæti...
viðurkennir til að mynda
héraðsdómari í einu ljóðanna.
Stjórnmálamaður játar að hafa
svikið almenning með því að
selja atkvæði sitt á þingi og rit-
stjóri viðurkennir að hann hafi
átt það til að „sópa mold yfir
hneyksli fyrir peninga og af-
hjúpa það vindum í hefnd-
arskyni eða til að selja blöð“.
Spilling kaupahéðna er auðvitað
afhjúpuð og umtalaðasti mað-
urinn í Skeiðæingatali átti
banka sem hrundi.
Ólyginn hefur sagt að sumar
persónurnar í bókinni gangi
aftur.
Sannleikurinn
sagður
í gröfinni
Bækur
Skeiðæingatal
bbbbn
Ljóð eftir Edgar Lee Masters.
Hallberg Hallmundsson sneri
á íslensku. Brú, 2012. Kilja,
149 bls.
Edgar Lee Masters
Bogi Þór Arason