Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Huginn Freyr Þorsteinsson ogElías Jón Guðjónsson aðstoð-
armenn skrifa grein saman á Smug-
una, vefsíðu VG.
Þeim er „Teboðs-
hreyfingin“ vestra
hugleikin, þótt sam-
hengislaust sé. Þeim
er illa við Heimssýn
og hugðarefni henn-
ar. Flokksbróður
þeirra, Bjarna Harð-
arsyni, þykir þetta
skrítið:
Til skamms tíma hélt SteingrímurJ. því á lofti að hann væri „guð-
faðir Heimssýnar“ en nú sendir
hann hlaupastráka fram til að skíta
sömu samtök út. Umskiptin eru
vissulega mikil.
Fyrrum áttu bæði Steingrímur J.og Katrín pólitískan frama sinn
og stuðning að þakka baráttu gegn
ESB-aðild sem og þátttöku í starfi
Heimssýnar. Katrín var þar síðast
heiðursræðumaður 1. desember
2008 en kosið var vorið eftir.
Ennþá eru margir VG liðar virkirí starfi þeirra samtaka en slíkir
fá ekki háa einkunn hjá aðstoðar-
ráðherrunum sem enda pistil sinn á
því að meintir „teboðsmenn“ innan
VG séu tæki í höndum auðvaldsins
og taki nú þátt í því að koma fyrstu
vinstristjórn lýðveldisins frá völd-
um.
Það er auðvitað gremjulegt fyrirsanntrúaða ESB-sinna að horfa
nú til þess að ESB-umsóknin hefur
eitrað og eyðilagt stjórnarsamstarf
vinstriflokkanna. Það sem kemur
stjórninni frá völdum er fylgishrun
sem ESB-þráhyggjan veldur mestu
um.
Að skella þá skuldinni á Heimssýn
með illa grunduðum hatursáróðri
um þau samtök er vitaskuld langt
utan velsæmis.“
Bjarni
Harðarson
Fara mikinn finni
þeir smugu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.9., kl. 18.00
Reykjavík 6 rigning
Bolungarvík 7 alskýjað
Akureyri 8 skýjað
Kirkjubæjarkl. 8 rigning
Vestmannaeyjar 8 rigning
Nuuk 5 þoka
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 12 skúrir
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Stokkhólmur 15 léttskýjað
Helsinki 12 skúrir
Lúxemborg 13 léttskýjað
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 16 skýjað
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 13 skúrir
Vín 16 skúrir
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 23 heiðskírt
New York 22 heiðskírt
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 27 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:47 20:01
ÍSAFJÖRÐUR 6:49 20:09
SIGLUFJÖRÐUR 6:31 19:52
DJÚPIVOGUR 6:16 19:31
Áfangasigur vannst í gær í máli íslensku
hjónanna Friðriks Kristinssonar og Bjarnhild-
ar Hrannar Níelsdóttur og dætra þeirra í Kól-
umbíu sem ekki hefur verið hleypt úr landinu í
9 mánuði eftir ættleiðingu. Dómari á æðra
dómstigi af tveimur innan héraðsins sneri fyrri
dómi og sendi málið til baka á neðra dómstigið.
Á Facebook-síðu fjölskyldunnar kemur fram
að þau gleðjist mjög yfir þessum áfanga. Sig-
urinn er þó ekki í höfn því sami dómari og
dæmdi gegn þeim áður þarf nú að endurskoða
málið og hjónin telja hann ekki hlutlausan í
nálgun sinni. Hann hefur 10 daga til að endur-
skoða málið, en hjónin óttast að hann muni
draga það.
Friðrik og Bjarnhildur Hrönn fóru utan hinn
16. desember í fyrra og væntu þess að geta far-
ið heim með ættleiddar dætur sínar að 6 vikn-
um liðnum eins og vaninn er. Í millitíðinni sner-
ist kólumbískum yfirvöldum hugur og meinuðu
þeim að yfirgefa landið með börnin.
Sent á neðra dómstigið
Dómstigin í Kólumbíu eru mörg en þeim
hjónum var umhugað um að halda málinu inn-
an héraðs, því færi það fyrir hæstarétt yrðu
stelpurnar tvær, þær Helga Karólína og Birna
Salóme, líklega teknar af þeim á meðan. Í gær
dæmdi svo dómarinn á efra dómstigi fjölskyld-
unni í vil og sendi málið aftur á neðra dóm-
stigið. Í dómnum kemur fram hörð gagnrýni á
fyrri dóm. Þar er tekið fram að stelpurnar séu
börn þeirra hjóna og að enginn annar geri til-
kall til þeirra. „Við vonum að við komumst
fljótlega heim, ef allt gengur vel ætti það ekki
að taka lengri tíma en einn mánuð að klára
málið,“ segir á facebook-síðu Bjarnhildar og
Friðriks. Ríkisstjórn Íslands ákvað á dögunum
fyrir tilstuðlan Össurar Skarphéðinssonar að
styrkja fjölskylduna um þrjár milljónir króna,
en níu mánaða dvölin í Kólumbíu hefur að von-
um verið afar kostnaðarsöm.
Áfangasigur foreldranna
Fyrri dómi hnikað og málið aftur tekið fyrir
Fá þrjár milljónir frá ríkisstjórn
Kólumbía „Við vonum að við komumst fljótlega heim,
ef allt gengur vel ætti frágangur málsins ekki að taka
meira en mánuð,“ segir á síðu fjölskyldunnar.
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is