Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Þann 21.september gefur
Morgunblaðið út sérblað um
Heimili og Hönnun
Í blaðinu verða kynntir
geysimargir möguleikar
sem í boði eru fyrir þá sem
eru að huga að breytingar
á heimilum sínum.
Skoðuð verða húsgögn í
stofu, eldhús, svefnher-
bergi og bað, litir og lýsing
ásamt mörgu öðru sem er
huggulegt fyrir veturinn.
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
17. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
Barnaskór
Þú færð SKECHERS barnaskó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Fjarðarskór, Hafnarfirði | OUTLET Fiskislóð 75, Reykjavík | Blómsturvellir, Hellisandi |
Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Versluninni Skógum, Egilstöðum | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Leitað var fram í myrkur í gær að fé
á Þeistareykjasvæðinu og víðar á
Norðurlandi í gær. Leit hefst aftur í
birtingu í dag.
„Við gátum sinnt fleiri og stærri
svæðum í dag en í gær,“ sagði Svav-
ar Pálsson, sýslumaður á Húsavík og
yfirmaður almannavarna í Þingeyj-
arsýslu, þegar rætt var við hann í
gærkvöldi. „Það hefur verið lögð
mest áhersla á Þeistareykjasvæðið.
Þar hafa verið um 80 leitarmenn með
sín tæki og tól. Þeir fundu allnokkuð
af fé og mest á lífi.“
Svavar sagði aðspurður mjög erf-
itt að hafa yfirsýn yfir hve margt fé
hefði fundist. Svæðið er gríðarstórt
og var unnið á mörgum stöðum að
leit. Ekki voru allar kindurnar á
Þeistareykjum grafnar í fönn en
snjórinn var svo mikill að það þurfti
að troða slóðir fyrir þær.
Svavar sagði að um 140-150 manns
hefðu mætt til leitar í gærmorgun og
svo bættist í hóp leitarmanna eftir
því sem leið á gærdaginn. Leitar-
menn voru úr björgunarsveitum,
bændur og búalið. Á meðal sjálf-
boðaliða voru nemar úr Verk-
menntaskólanum á Akureyri. Þeir
fóru til leitar í Bárðardal og skiluðu
frábæru dagsverki, að sögn Svavars.
Von var á enn meiri liðsauka af höf-
uðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Svav-
ar gerði ráð fyrir að um eða yfir 200
manns yrðu við leitirnar í dag.
Í dag verður leit haldið áfram á
Þeistareykjum, enda var enn að finn-
ast þar fé í gær sem var vel á sig
komið. Viðbótarmannskapurinn sem
kemur til leitar í dag gerir kleift að
sinna svæðum sem ekki hafði tekist
að fara gaumgæfilega yfir. Svavar
nefndi t.d. Skarðsdal í Dalsmynni,
Kelduhverfi, Flateyjardalsheiði og
Flateyjardal og fremsta hluta
Fnjóskadals. Það verður svo metið í
kvöld hvort ástæða er til frekari leit-
ar. Svavar sagði að svo vel hefði
gengið í Bárðardal í gær að hægt
verði að nýta leitarmenn sem þar
voru við störf annars staðar í dag.
Þetta er ekki búið
„Menn eru frekar bjartsýnir.
Þetta er búið að ganga vel í dag. Gott
veður og mikill mannskapur, en
þetta er ekki búið,“ sagði Böðvar
Baldursson, fjallskilastjóri á Þeista-
reykjum, um það bil sem leit var að
ljúka í gærkvöldi. Hann sagði að
áhersla hefði verið lögð á að fara yfir
og bjarga fé sem var grafið í fönn.
Í gær voru reknir saman fjárhóp-
ar og voru notaðir jeppar og snjóbíll
til að troða slóðir fyrir féð. Böðvar
sagði að féð væri ótrúlega vel á sig
komið, þrátt fyrir óveðursskotið.
Þrjár dauðar kindur höfðu fundist,
tvær ær og eitt lamb.
„Það er jákvætt að það skuli ekki
vera búið að finnast meira dautt,“
sagði Böðvar. Dagurinn í dag og
morgundagurinn fara í að koma
þessu saman og þá skýrist frekar
hvað margt fé hefur fundist á Þeista-
reykjasvæðinu.
Neyðarástand í kjölfar óveðurs
Um 200 við leitina í dag
Leit gekk vel á Þeistareykjasvæðinu í gær Þar höfðu fundist þrjár dauðar
kindur í gærkvöldi Um 150 björgunarsveitarmenn og sjálfboðaliðar við leitina
Morgunblaðið/Skapti
Gómsætt Fé sem rekið var í hólf syðst í landi Þeistareykja gæðir sér á heyi sem því var fært síðdegis í gær.
Morgunblaðið/Skapti
Fráar Fjár var leitað á Þeistareykjasvæðinu á ýmsum farartækjum í gær.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Fé hefur fennt víðar en á Norðaust-
urlandi, en bændur í Skagafirði leita
nú fjár sem fennt hefur í Hamra-
heiði austan Mælifellshnjúks og
framundir Gilhagadal.
„Nokkuð hefur fundist dautt,
verst er tófan. Hún ræðst framan í
lömbin og rollurnar og étur nasirnar
og kjaftinn framan úr þeim. Þarna
er mikill snjór,“ segir Guðmundur
Hjálmarsson, einn leitarmanna.
Kindurnar fastar í sköflum
„Þær eru fastar í sköflum og haus-
inn stendur upp úr,“ segir Guð-
mundur sem er fæddur og uppalinn
á þessum slóðum og var kallaður til
aðstoðar.
„Ég er búinn að finna um 70 rollur
í dag [í gær], þetta er stórt og mikið
svæði og við höfum verið á vél-
sleðum hérna í dag,“ segir Guð-
mundur. „Verið er að leita í Gilhaga
og menn eru labbandi á bæjunum
hér í kring.“
Hann segir að því fé sem hafi
fundist á lífi hafi verið komið á
öruggan stað í skjóli frá tófum.
Hann segir ekki liggja fyrir hversu
margt fé sé á svæðinu. „En það er
talsvert ófundið.“
Leit verður haldið áfram í dag
með aðstoð björgunarsveita.
Morgunblaðið/Kristján
Kuldi Lamb í haga fyrir norðan.
Tófan
ræðst á
lömbin
Féð fast og getur
enga björg sér veitt