Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Ég hef aldrei komið til Íslands og finnst það mjög spennandi,“ segir bandaríski barítónsöngvarinn Thomas Hampson en hann mun halda tónleika, ásamt píanóleik- aranum Wolfram Rieger, í Eldborg- arsal Hörpu, 6. febrúar á næsta ári. Spurður að því hvort hann hafi heyrt af nýja tónlistarhúsinu í Reykjavík segist hann hafa heyrt heilmikið um það og húsið sé ein af ástæðum þess að hann hafi ákveðið að halda tón- leika á Íslandi. Hampson hefur notið mikillar vel- gengni um árabil og telst til helstu stjarna óperuheimsins í dag, hefur sungið burðarhlutverk í virtum óp- eruhúsum á borð við Metropolitan- óperuna í New York, La Scala í Míl- anó og Staatsoper í Vínarborg. Hann hefur sungið inn á um 150 plötur, fimm sinnum hlotið hol- lensku Edison-verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur í tónlist, Grammy-verðlaun, frönsku Grand Prix du Disque-verðlaunin og þýsku Echo-verðlaunin sem söngvari árs- ins, svo fátt eitt sé nefnt. Þá er hann einnig stofnandi The Hampsong Fo- undation, stofnunar sem hefur það að markmiði að kynna og efla söng- list í Bandaríkjunum og á heimsvísu og samskipti ólíkra menningar- samfélaga. Hampson er 57 ára og þreytti frumraun sína á óperusviði árið 1974. Afrekaskráin er því orðin æði löng. Blaðamaður sló á þráðinn til Hampsons í byrjun viku og ræddi við hann um sönglistina og tón- leikana. Ólíkar áskoranir – Hvenær ákvaðstu að gerast óp- erusöngvari? „Jeminn eini, það er langt síðan. Óperan valdi mig eiginlega, á marga vegu. Ég nam reyndar lögfræði, hafði hug á því að fara út í al- þjóðalögfræði en komst að því að ég hafði ástríðu fyrir tónlist og fé- lagsvísindum,“ svarar Hampson. Hann hafi ekki haft neina löngun á æskuárum sínum til þess að verða óperusöngvari eða koma fram á sviði en heillast síðar af söng og því sem hægt væri að miðla með list í sínum margbreytilegu formum. – Mér skilst að þú hafir þokast meira í áttina að Wagner-hlut- verkum undanfarið? „Nei, reyndar ekki. Ef eitthvað er hef ég frekar verið að víkka þekk- ingu mína á Verdi,“ segir Hampson en vissulega taki hann enn að sér Wagner-hlutverk, t.d. í Parsifal. Það séu takmörk fyrir því hversu mikið hann geti bætt við sig í Wagner en hugsanlega muni hann, eftir fimm til tíu ár, syngja hlutverk Hans Sachs í óperu Wagners, Die Meistersinger von Nürnberg. – Hvaða hlutverk myndir þú segja að hefði verið mesta áskorunin fyrir þig á ferlinum? „Þetta er góð spurning,“ svarar Hampson og þarf ekki að hugsa sig lengi um. „Dr. Faust eftir Ferruccio Busoni, það er mikil áskorun, ég var að syngja Mandryka í Arabella (eftir Richard Strauss), það hlutverk er mikil áskorun hvað söng varðar,“ nefnir Hampson. Þá sé það mikil áskorun að túlka ákveðnar persónur óperuverka, t.d. Macbeth, Iago og Boccanegra í óperu Verdis, Mac- beth. – Hvers konar barítón ertu? Hampson skellihlær og segir spurninguna mjög góða. „Að öllu gamni slepptu þá held ég að ég sé í grunninn lýrískur barítón með mikla dramatíska möguleika,“ svarar Hampson. Rödd hans sé það sem á þýsku sé kallað „strahlend“, kraft- mikil og tær og krafturinn meiri á hærri nótunum. Röddin sé samt sem áður ágætlega djúp. Röddin er tungumál – Nú ertu þekktur af því að geta sungið í ýmsum stíl, t.d. ljóðasöng, óperu og söngleikjatónlist. „Ég tek tónlistina sem tungumál mjög alvarlega. Ef ég nýt tónlistar- innar, kann að meta hana og tel mig geta sungið hana þá syng ég hana. Ég einbeiti mér fullkomlega að því sem ég er að syngja hverju sinni og engu öðru, að röddin sé það tungu- mál tónlistarinnar sem hún þarf að vera,“ segir Hampson. Þá skipti engu hvort hann sé að syngja verk eftir Cole Porter, George Gershwin, Richard Wagner eða Gustav Mahler. Hann sé fyrst og fremst hrifinn af ólíkum sálfræðilegum nálgunum tónlistarinnar og einbeiti sér að því að túlka þær ólíku leiðir listarinnar sem farnar hafi verið í því að sýna fólki hvað það þýði að vera lifandi. – Eru einhver markmið sem þú hefur sett þér sem listamaður sem þú hefur ekki enn náð, ef svo mætti að orði komast? „Ég er ekki viss um að það séu einhver ákveðin markmið ef við er- um að tala um óuppfyllta drauma. Ég hef verið afar lánsamur og markmið mín og draumar núna eru að halda heilsu og halda áfram þessari könnun minni. Mér finnst ég syngja betur núna en nokkru sinni, mér finnst ég búa yfir ákveðnum krafti og þroska sem ég geti jafnvel nýtt mér í verkum sem ég hef sungið nokkuð lengi,“ segir Hampson. Hann hlakki til þess að syngja ákveðin hlutverk sem bíði hans, hann muni t.d. árið 2014 syngja í fyrsta sinn í óperunni Woy- zeck eftir Alban Berg og einnig tak- ast á við Don Giovanni og Brúðkaup Fígarós eftir Mozart, svo eitthvað sé nefnt. Verkin séu mörg sem hann langi að glíma við á næstu ár- um. „Mér finnst ég ekki ófullnægður, ég vil bara halda mínu striki,“ bætir Hampson við kíminn. Hann sé í sínu besta formi hvað varðar þroska, kraft og sjálfstraust. Þetta haldist í hendur. „Ég vona að ég geti haldið þeim glugga opnum sem lengst,“ segir Hampson og hlær. Lög og aríur í bland Hvað efnisskrána á tónleikunum í Eldborg varðar segir Hampson að hún sé ekki tilbúin. Hann muni syngja þekkt lög og aríur í bland, t.d. eftir Schubert, Liszt og Wag- ner, líklega á þremur eða fjórum tungumálum. Efnisskráin muni höfða til unnenda góðrar tónlistar fyrst og fremst, sé ekki samin með óperunnendur eina í huga. Þroski, kraftur og sjálfstraust Ljósmynd/Dario Acosta Eftirsóttur Thomas Hampson þreytti frumraun sína í óperu árið 1974 og af- rekaskráin er löng. Hampson er á 57. aldursári og hefur komið fram í mörg- um þekktustu óperuhúsum heims, m.a. La Scala og Metropolitan.  Barítónsöngvarinn Thomas Hampson heldur tónleika í Eldborg í febrúar á næsta ári  Einn eftir- sóttasti barítónsöngvari heims  Finnst hann syngja betur nú en nokkru sinni og er fullur ástríðu Frekari fróðleik um Hampson og stofnun hans, The Hampsong Fo- undation, má finna á vefsíðunni hampsongfoundation.org. Miðasala á tónleika Hampsons fer fram á harpa.is og midi.is. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Með þessari sýningu langaði okkur að minnast þess að 40 ár eru liðin frá stofnun Myndhöggvarafélagsins, en félagið var stofnað í kjölfar útimynd- listarsýninganna fimm á Skólavörðu- holti á árunum 1967-1972,“ segir Inga Ragnarsdóttir, einn skipuleggj- enda, um sýninguna Minning um myndlist sem sýnd er í Listasafni ASÍ um þessar mundir og stendur út mánuðinn. „Frumkvöðlarnir að þessum sýn- ingum á Skólavörðuholtinu voru Ragnar Kjartansson og Jón Gunnar Árnason, en þeir voru báðir nem- endur Ásmundar Sveinssonar, en hugmyndin að þessum útisýningum var komin frá honum,“ segir Inga og bendir á að sýningarnar hafi verið víðfeðmar. „Alls tóku þátt 45 lista- menn á aldrinum 17-75 ára. Þarna sýndu hlið við hlið eldri kynslóð virtra listamanna, ungir róttækir listamenn, listnemar og áhugamenn,“ segir Inga og bendir á að það hafi verið algjör nýjung á sínum tíma að sýna í opinberu rými. „Í rauninni skapaðist þarna nýr vettvangur fyrir myndlist á Íslandi, sem haldist hefur allar götur síðan,“ segir Inga og bendir á að a.m.k. sjö verk sem upp- haflega voru á útimyndlistarsýning- unum séu enn til sýnis í opinberu rými. Leggja undir sig allt húsið Að sögn Ingu voru á útimynd- listarsýningunum fimm sýnd a.m.k. um 130 verk. Spurð hvernig hafi gengið að hafa uppi á þessum verkum aftur til sýningarhalds nú segir Inga það hafa kostað mikla vinnu. „Þegar við lögðum upp með sýninguna gerð- um við okkur grein fyrir að mörg ef ekki flest verkanna væru týnd og töpuð, en gera má ráð fyrir að rúm- lega 60% verkanna séu ónýt,“ segir Inga og bendir á að þetta útskýri m.a. heitið á sýningunni. „Þannig eru mörg af frægustu verkunum töpuð, eins og t.d. Súper- þvottavélin hennar Rósku, Flugan hans Magnúsar Tómassonar og Brauðið hans Kristjáns Guðmunds- sonar. Við ætluðum því alltaf að byggja sýninguna að stórum hluta á einkaljósmyndasafni og úrklippu- safni Ragnars Kjartanssonar,“ segir Inga og tekur fram að fundist hafi myndir af um 90% verkanna í safni Ragnars. „Þegar við fórum að leita að verkum kom það okkur þægilega á óvart hvað við fundum mikið, en á sýningunni eru 25 verk. Það er sér- lega gaman að geta rifjað upp verk listamanna sem vel voru þekktir þá, en fáir muna eftir í dag,“ segir Inga og nefnir í því samhengi verk eftir Jón B. Jónasson og Inga Hrafn Hauksson. „Við vorum t.d. af- skaplega stolt af því að finna verk hans, Fallinn víxill, sem var á sínum tíma eitt frægasta verkið og gerði Inga Hrafn að þeirri stórstjörnu sem hann varð í myndlistarlífinu þá.“ Sýningin Minning um myndlist leggur undir sig allt Listasafn ASÍ sem og garðinn umhverfis húsið. „Við höfum ekki jafnmikið útisvæði og þá, enda hefur leikskólinn Grænaborg risið á því svæði þar sem útisýning- arnar sjálfar voru á sínum tíma. Við sýnum því verkin í Gryfjunni og stóra salnum, í eldhúsinu má sjá ljós- myndasýningu af verkunum, á göng- unum eru myndir, blaðaúrklippur og upphaflegu sýningarskránar auk þess sem öndvegisverk eftir Sigurjón Ólafsson, Hallstein Sigurðsson og fleiri eru úti á svölum. Í Arinstofunni er síðan sýnd ný heimildarmynd eftir okkur Katrínu Agnesi Klar sem byggist á viðtölum við nokkra af þeim listamönnum sem tóku þátt í úti- myndlistarsýningunum. Þannig er hægt að fá smá innsýn í sýningarnar eins og þær voru á sínum tíma,“ segir Inga og tekur fram að Myndlistaskól- inn í Reykjavík hafi stutt gerð heim- ildarmyndarinnar. Þess má að lokum geta að Lista- safn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga milli kl. 13-17 og er að- gangur ókeypis. Minning um myndlist Morgunblaðið/Ómar Sólstafir Inga Ragnarsdóttir hjá verki Jóns Gunnars Árnasonar sem nefnist Sólstafir og er eitt fyrsta þrívídd- arverkið sem listamaðurinn vann í ryðfrítt stál. Segir hún mikinn feng í því að geta sýnt verkið á sýningunni.  Mörg verkanna voru týnd eða ónýt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.