Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Kvikmyndirnar fimm sem tilnefndar
eru til Kvikmyndaverðlauna Norð-
urlandaráðs verða sýndar í Bíó
Paradís 14. - 20. september en það
er kvikmyndaklúbburinn Græna
ljósið sem stendur fyrir sýningum á
þeim í í samstarfi við Nordisk Film
& TV Fond.
Myndirnar sem tilnefndar eru til
verðlaunanna eru Á annan veg frá
Íslandi, En kongelig affære frá Dan-
mörku, Kompani Orheim frá Noregi,
Kovasikajuttu frá Finnlandi og Play
frá Svíþjóð.
Tilkynnt verður um verðlauna-
hafa Kvikmyndaverðlauna Norð-
urlandaráðs 2012 í október og verða
verðlaunin afhent á Norðurlanda-
ráðsþingi í Helsinki 2. nóvember.
Frekari upplýsingar um myndirnar
má finna á vef Bíós Paradísar, biop-
aradis.is.
Íslensk Hafsteinn Gunnar Sigurðs-
son, leikstjóri Á annan veg.
Fimm nor-
rænar og til-
nefndar í bíó
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er klassísk saga sem maður
hefur heyrt í mörgum myndum án
þess að hafa kannski lesið bókina.
Allt hefst þegar gullkort kemur
óvænt í leitirnar og menn fara í fjár-
sjóðsleit á ævintýraeyju í Karíbahaf-
inu. Þarna er allt sem prýða á alvöru
sjóræningjasögu, s.s. páfagaukur,
sverð og byssur, bardagar og læti,“
segir Sigurður Sigurjónsson leik-
stjóri um Gulleyjuna sem frumsýnd
verður í Borgarleikhúsinu annað
kvöld kl. 19. Verkið er leikgerð Sig-
urðar og Karls Ágústs Úlfssonar af
sögu Roberts Louis Stevenson, en
tónlistina í sýningunni samdi Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson. Leik-
mynd var í höndum Snorra Freys
Hilmarssonar og um búninga sáu
Agnieszka Baranowska og Júlíanna
Lára Steingrímsdóttir.
Gulleyjan er samstarfsverkefni
Borgarleikhússins og Leikfélags
Akureyrar og var frumsýnd fyrir
norðan í byrjun árs. Spurður hvort
miklar breytingar hafi verið gerðar
á uppfærslunni við flutninginn suður
svarar Sigurður: „Við komum auð-
vitað reynslunni ríkari í bæinn með
sýninguna, enda sýndum við hana
fimmtíu sinnum fyrir fullu húsi fyrir
norðan. Að grunninum til er þetta
auðvitað sama sýningin, en við erum
með slatta af nýjum leikurum auk
þess sem þeir eru fleiri. Auk þess er-
um við nú að á stærra sviði og höfum
aðgang að öflugri tækni hér í Borg-
arleikhúsinu. Þannig að það verður
öllu flaggað til hér fyrir sunnan.“
Sem fyrr er Björn Jörundur Frið-
björnsson í aðalhlutverki, en honum
til halds og trausts eru Kjartan Guð-
jónsson, Þórunn Erna Clausen, Sig-
urður Þór Óskarsson. Álfrún Örn-
ólfsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson og
Theodór Júlíusson auk fleiri leikara.
„Það er svo sannarlega valinn maður
í hverju rúmi. Þetta er góð blanda af
miklum reynsluboltum eins og Theo-
dór og Berg auk nýrra leikara á borð
við Sigurð Þór, en hann er af-
skaplega efnilegur strákur sem
syngur og dansar eins og engill. Ég
hef mikla trú á honum í framtíðinni í
mínum bransa,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Sigurður Gull-
eyjuna vera sannkallaða æv-
intýrasýningu sem höfða ætti til allr-
ar fjölskyldunnar frá u.þ.b. sex ára
aldri og upp úr. „Ég hef orðið var við
að sjóræningjar höfða ekki síður til
okkar fullorðna fólksins. Það er eins
og að sjóræninginn blundi í okkur
öllum. Þó þeir hafi verið ribbaldar á
sínum tíma þá er ákveðinn æv-
intýraljómi yfir sjónræningjunum
sem höfðar sterkt til fólks í dag og
flestum finnst gaman að klæða sig
upp sem sjóræningjar á grímuböll-
um,“ segir Sigurður. Spurður hvort
til standi að hafa sérstaka sýningu
þar sem leikhúsgestir geti mætt í
sjóræningjabúningum segir Sig-
urður það vel koma til greina. „Það
væri reyndar skemmtilegt ef fólk
myndi dressa sig upp fyrir sýningu.
Við tækjum slíku fagnandi, enda
myndi það bara skreyta sýninguna
okkar enn frekar. Þannig að ég hvet
fólk til að taka með sér sjóræn-
ingjaleppinn.“
„Eins og sjóræninginn
blundi í okkur öllum“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Rán „Þó þeir hafi verið ribbaldar á sínum tíma þá er ævintýraljómi yfir sjó-
ræningjunum sem höfðar sterkt til fólks,“ segir Sigurður Sigurjónsson.
Gulleyjan frum-
sýnd á stóra sviði
Borgarleikhússins
Frá Framleiðendum Toy Story 3, Finding Nemo og Up.
- Rolling Stone
- Guardian
- Time Entertainment
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTER
SÉÐ OG HEYRT
MBL
YFIR 64.000 GESTIR
STÆRSTA MYND SUMARSINS
STÆRSTA MYND WB ALLRA
TÍMA Á ÍSLANDI
„Maður verður að sja þessa mynd aftur,
það er svo mikið að ske að eitt skipti er ekki nóg, allavega fyrir mig.“
JON GUNNARSSON KVIKMYNDAUNNANDI…
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „WEDDING CRASHERS“ KEMUR FRÁBÆR
GRÍN SPENNUMYND ! BRADLEY COOPER ÚR HANGOVER FER Á KOSTUM.
ÁLFABAKKA
7
L
L
16 16
12
12
12
EGILSHÖLL
12
12
12
L
L
7
12
12
16
KEFLAVÍK
VIP
VIP
FROST KL. 6 - 8 - 10 - 11 2D
FROST LUXUS VIP KL. 6 - 8 - 10 2D
BOURNE LEGACY KL. 5:20 - 8 - 10:45 2D
BOURNE LEGACY KL. 10 2D
HIT AND RUN KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 5:50 - 10:20 2D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 2D
BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 2D
DARK KNIGHT RISES KL. 8 2D 16
L
12
12
KRINGLUNNI
FROST KL. 6 - 8 - 10 2D
HIT AND RUN KL. 10:20 2D
BABYMAKERS KL. 8 2D
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 2D
16
12
12
AKUREYRI
FROST KL. 8 - 10:10 2D
HIT AND RUN KL. 10:10 2D
BABYMAKERS KL. 8 2D
FROST KL. 8 - 10:10 2D
BOURNE LEGACY KL. 10 2D
BABYMAKERS KL. 8 2D
FROST KL. 6 - 8 - 10 - 11 2D
BOURNE LEGACY KL. 8 - 10:45 2D
HIT AND RUN KL. 8 - 10:10 2D
DARK KNIGHT RISES KL. 10:20 2D
STEP UP: REVOLUTION KL. 5:40 2D
BRAVE ÍSLTAL KL. 5:50 2D
ÍSÖLD 4 ÍSLTAL KL. 5:50 2D
„Spennandi og öðrvísi mynd.
Frábær leikur hjá Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur og myndatakan frábær.“
Rúnar Róberts – Bylgjan
“HÆTTIÐI NÚ ALVEG AÐ SNJÓA HVAÐ ÉG VAR HRÆDD Á ÞESSARI MYND!”
ÁSTRÍÐUR VIÐARSDÓTTIR - RUV
“VIRKILEGA VEL GERÐ OG SPENNANDI
OG GEFUR GÓÐA MYND AF LÍFINU UPP Á JÖKLI… HELD ÉG”
HARALDUR STEFÁNS / RETRO STEFSON
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
25% AFSLÁTTUR Í BÍÓ
PARADÍS-KLÚBBINN
TIL 22. SEPTEMBER!
Bíó Paradís-klúbburinn
Í Bíó Paradís-klúbbnum færð þú eina fría sýningu í
mánuði. Þú færð afslátt af miðaverði þeirra tæplega
400 kvikmyndatitla sem við sýnum árlega. Þú færð
líka verulegan afslátt af veitingum, á bar og kaffihúsi
Bíó Paradísar.
MOGGAKLÚBBUR
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar
í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.
KORTIÐ GILDIR TIL
30. september 2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Svona kaupir þú klúbbkortið
Þú getur keypt klúbbkortið á bioparadis.is/klubburinn-afslattur,
í miðasölu Bíó Paradísar, Hverfisgötu 54, Reykjavík
á milli 17:30 - 23:30 eða í síma 412 7711.
Kortið býður þín svo næst þegar þú kemur í bíóið.
ATH.! Framvísið Moggaklúbbskortinu við miðasöluna.
Almennt verð 10.900 kr.
Moggaklúbbsverð 8.175 kr.