Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 14

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hafinn er undirbúningur að endur- nýjun elstu virkjunar Ísfirðinga, Fossavatnsvirkjunar í Engidal. Orkubú Vestfirðinga vill byggja nýtt stöðvarhús yfir nýja vél neðar í daln- um og hrófla sem minnst við gömlu stöðinni. Gömlu vélarnar geta þá orð- ið vísir að minjasafni um virkjun raf- orku fyrir íbúa kaupstaðarins. Fossavatnsvirkjun í Engidal sem er inn af Skutulsfirði var byggð af ný- stofnaðri Rafveitu Ísafjarðar á árinu 1936 og tekin í notkun í ársbyrjun 1937. Þetta var mikil framkvæmd á þeirri tíð og vann fjöldi manns við að stífla vatnið, grafa skurði til að veita vatninu niður fjallið og byggja stöðv- arhús. Allt var unnið með höndunum. Fljótlega varð ljóst að Fossavatns- virkjun myndi ekki nægja til að anna vaxandi eftirspurn Ísfirðinga eftir raforku. Á árinu 1942 hófust fram- kvæmdir við virkjun Nónhornsvatns og var bætt við vélakost rafstöðvar- innar til að nýta það. Rafstöðin í Engidal er að því leyti sérstök að þar eru tvær vélar sem framleiða raf- magn sín úr hvoru fjallinu. Framleiðslan er tæpar 5 GWh og vélarnar mala enn og eru mikilvægur liður í eigin orkuöflun Orkubús Vest- fjarða. Orkubúið hefur verið í miklum framkvæmdum við endurnýjun Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði. Sölvi R. Sólbergsson, framkvæmdastjóri orkusviðs OV, segir að ákveðið hafi verið að hinkra með næsta áfanga þar og vinna að endurnýjun í Engidal á meðan. Tvöfalt aflmeiri vél Orkubúið hefur auglýst útboð á nýjum vatnshverfli fyrir Fossárvirkj- un og tilheyrandi rafbúnaði. Hug- myndin er að byggja nýtt stöðvarhús yfir hana 600-800 metrum neðar í Engidal. „Með því móti er hægt að koma við vélgreftri við allt verkið,“ segir Sölvi. Ljóst er að endurnýja þarf pípurnar sem leiða vatnið úr Fossavatni í stöðvarhús, að minnsta kosti að hluta, þar sem leiðslan er far- in að leka. Áætlaður kostnaður við endurnýj- un virkjunarinnar er um 350 milljónir kr. Sölvi tekur fram að afla þurfi ým- issa leyfa fyrir þessari breytingu. Meðal annars þurfi að meta snjóflóða- hættu og athuga hvort fara þurfi í umhverfismat. Ef leyfi fást er áhugi á að ráðast í framkvæmdir á næsta ári. „Vélarnar ganga og við getum gefið þessu þann tíma sem þarf,“ segir Sölvi. Fyrirhugað er að kaupa 1,2 mega- watta vatnsaflsvél í hina nýju Foss- árvirkjun. Er uppsett afl hennar tvö- falt meira en í gömlu Fossavatns- virkjuninni. Sölvi segir að vatns- rennslið bjóði í sjálfu sér ekki upp á svo mikla framleiðsluaukningu en miðlun í Fossavatni sé það mikil, eða 0,8 Gl, að það réttlæti þetta mikla af- laukningu. Ný Fossárvirkjun neðar í Engidal Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Engidalur Elsti hluti rafstöðvarinnar í Engidal var reistur 1936. Bætt hefur verið við húsakostinn til að koma fyrir vatnsvél fyrir Nónhornsvatnsvirkjun. Vatnsvélar tveggja virkjana eru því í húsnæðinu auk dísilvéla. Minjasafn 75 ára gamall búnaður Fossavatnsvirkjunar er enn notaður í raf- stöðinni í Engidal. Hann verður í framtíðinni grunnur að minjasafni. Guðni Einarsson Una Sighvatsdóttir Útför Kristjáns Hinriks Þórssonar, 18 ára íslensks pilts sem var skotinn til bana í Bandaríkjunum um síðustu helgi, fer fram á morgun, föstudag, frá Rose Hill Funeral Home í Tulsa, Oklahoma. Málið hefur fengið gríðarmikla at- hygli vestra en auk Kristjáns heitins lést fjölskylduvinur hans, John White, einnig af sárum sem hann fékk í skotárásinni. „Það er svo óvanalegt að fólk sé skotið svona að ástæðulausu. Það er nánast óþekkt að svona gerist,“ sagði Helena Albertsdóttir Mawby, amma Kristjáns heitins, í samtali við Morgunblaðið. Viðtöl við hana birt- ust í mörgum bandarískum fjölmiðl- um fljótlega eftir ódæðisverkið. Hún sagðist hafa talað við fjölmiðlana í þeirri von að það myndi flýta fyrir því að ódæðismaðurinn næðist. Hinn meinti morðingi, Jermaine Jackson, 19 ára, var handtekinn í fyrrinótt í Arkansas-ríki. Í kjölfarið var hann ákærður fyrir tvöfalt morð. En fylgir því léttir í sorginni að ódæðismaðurinn skuli hafa náðst? „Það er að vissu leyti léttir og það fylgir því að vissu leyti kvíði,“ sagði Helena. „Það verða löng réttarhöld og ég hlakka ekki til að sjá þetta skrímsli. Við erum í svo miklu áfalli. Maður kann eiginlega ekki að flokka tilfinningarnar í augnablikinu, mað- ur fer úr einu í annað.“ Helena sagði að Kristján heitinn hefði verið ljúfur og hæglátur drengur og haft góða nærveru. „Hann var mjög listrænn og hafði það í sér að teikna, mála og semja ljóð. Hann var góður strákur, einn af þeim sem hafði svo fallegt bros og hlátur. Það hlógu allir með honum,“ sagði Helena. Þekkti hinn handtekna Lögreglan í Oklahoma hafði í gærkvöldi (að íslenskum tíma) ekki haft tök á að yfirheyra Jermaine Jackson, Bandaríkjamanninn unga sem situr í varðhaldi grunaður um morðið á Kristjáni Hinriki Þórssyni og John White. Þeir Jackson og Kristján Hinrik voru á svipuðum aldri og þekktust, voru jafnvel vinir, að sögn Dave Walkers, rannsókn- arlögreglumanns sem stýrir rann- sókn málsins. Ekki er ljóst hvort Jackson gerði sér grein fyrir því að Kristján Hinrik sat í bílnum þegar hann hóf skothríð. Lögreglan telur tengsl þeirra ekki rót að morðunum. Jackson, sem er á sakaskrá fyrir smáglæpi, var handtekinn í bænum Marianna í Arkansas-ríki austan við Oklahoma. Walker sagði að Jackson hefði klippt á sér hárið til að reyna að breyta útliti sínu og fengið hjálp til að flýja heimaborg sína Tulsa eft- ir morðið. Að sögn Walkers má þakka það upplýsingum frá almenn- ingi og rannsókn lögreglu að hann fannst. M.a. hafi grunsamleg hegð- un Jacksons komið upp um hann, án þess að hægt sé að útskýra það nán- ar á þessu stigi. „Það er nánast óþekkt að svona gerist“  Meintur morðingi var handtekinn Amman Helena A. Mawby segir fjölskylduna vera í áfalli. Morðárás » Kristján Hinrik Þórsson og John White urðu fyrir skotárás aðfaranótt sl. laugardags við verslun í Tulsa í Oklahoma-ríki. » Kristján lést fljótlega af sár- um sínum á sjúkrahúsi en John White lést á mánudagskvöld. » Jermaine Jackson, 19 ára, var handtekinn í fyrrinótt í Ark- ansas-ríki og ákærður fyrir tvöfalt morð. Þú velur og draumasófinn þinn er klár GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir) Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum H Ú S G Ö G N Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl. 11-16 Sunnudaga lokað BaselTorino RínLyon Verð áður 266.266 kr Basel 3ja sæta Aðeins 199.900 kr Alklæddur leðri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.