Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 19

Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 ... og rjómi H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 0 8 - 1 6 7 4 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ríkislögreglustjóri lýsti í fyrrakvöld yfir neyðarstigi almannavarna vegna afleiðinga óveðursins á Norðaustur- landi. Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sagði í gærkvöldi að neyð- arstig væri enn við lýði. Neyðarstig þýðir að ástand sem þarf að afstýra sé orðið, það er til aðgreiningar frá óvissustigi og hættustigi. Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík vann að því í gær með heimamönnum á Norðaust- urlandi að útvega mannskap og tæki til leitar og björgunar á fé. Í frétt frá Ríkislögreglustjóra í gær kom fram að hátt í 70 manna hópur frá höf- uðborgarsvæðinu hefði þá farið norður til aðstoðar. Um 70 björgunarsveitamenn voru við leitina á Þeistareykjasvæðinu í gær og notuðust þeir við 40 vélsleða, tvo snjóbíla og fjölda jeppa, drátt- arvéla og flutningstækja, að sögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Á Reykjaheiði voru tólf manns við leit á sjö vélsleðum. Margir voru einnig við leit á Flateyjardal og í Bárðardal. Rauði krossinn opnaði fjöldahjálp- arstöð í Reykjahlíðarskóla í Mý- vatnssveit. Þar er mötuneyti, stuðn- ingur og ráðgjöf í boði. Ekki komu upp nein vandamál vegna ferða- manna á svæðinu í gær að sögn al- mannavarna. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Aðstoð Aðgerðastöð var sett upp á Húsavík vegna björgunarstarfsins. Neyðarstig enn í gildi norðanlands V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð SÉRPRENTAÐAR MÖPPUR hannaðar að utan sem innan eftir þínum þörfum HRINGDU OG FÁÐU UPPLÝSINGAR  562 8500 Fyrir fundi, ráðstefnur, markaðssetningar eða kynningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.