Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 25
Það er fátt til að vekja bjartsýni þegar horft er á stöðu heimsmála nú um stundir. Opinber umræða á Vest- urlöndum eins og hún berst okkur frá þorra stjórnmálamanna og fjölmiðlum snýst um hvernig takast megi að krafsa sig upp úr efnahagskreppunni til að halda áfram uppteknum hætti þar sem frá var horfið fyrir fjórum ár- um. Lykillinn að því er sagður vera að endurvekja kaupgleði almennings og fjárfestingar og draga með því úr vax- andi atvinnuleysi. Loforð þar að lút- andi eru helsta beita frambjóðenda í leit að kjörfylgi, nú síðast í Bandaríkjunum. Um undirliggjandi meinsemdir og framtíðarhorfur mannkyns þegja flestir stjórnmálamenn eða standa ráðþrota. Sláandi þögn um umhverfismálin Rösk fjörutíu ár eru liðin síðan umræða hófst um þær afleiðingar sem hraður efnahagsvöxtur eft- irstríðsáranna kynni að hafa á umhverfið. Aðvör- unarorð Rómarklúbbsins um endimörk vaxtar vöktu ýmsa af værum blundi, en fleiri voru þó þeir sem sögðu þau fjarstæðu. Á Stokkhólmsráðstefnu SÞ 1972 voru til umræðu margvíslegar ógnir við umhverfi manna, og sett var á fót Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna. Hugmyndin um sjálfbæra þróun skaut rótum á 8. áratugnum og varð í Ríó 1992 og í Jóhannesarborg tíu árum síðar burðarás tillagna um aðgerðir til viðnáms og bjargar. Í júní sl. komu þjóðarleiðtogar saman til fundar á ný í Ríó og minntu á gömlu fyrirheit, en lítið sem ekkert kom þar nýtt fram. Það var líka eins og fáir legðu við hlustir og flestir forystumenn þjóða að ekki sé talað um jöfra viðskiptalífsins kinokuðu sér við að rifja upp vanefndir frá liðnum áratugum. Þögn ráða- manna og yfirborðsleg umfjöllun fjölmiðla um harðnandi vistkreppu á jörðinni er sláandi og síst til þess fallin að knýja á um nauðsynlegar breytingar. Aðeins ein Jörð Hugmyndin um sjálfbæra þróun byggist á þrem- ur stólpum sem allir þurfa að vera traustir, eigi vel að farnast. Um er að ræða náttúrulegt umhverfi, efnahagsþróun og samfélagsmál. Þessa víðfeðmu þætti þarf að stilla saman ef takast á að tryggja heil- brigða framvindu. Því fer fjarri að það hafi tekist í tíð núlifandi kynslóða og því hvelfast nú risavaxin hnattræn vandamál yfir sem aldrei fyrr. Loftslags- breytingar af mannavöldum vegna kolefnisbrennslu tala þar skýrustu máli og engin marktæk teikn eru um viðbrögð til að hægja á þeim. Kapphlaupið um olíuna í Austurlöndum nær og á norðurslóðum talar þar sínu máli. Á sama tíma gera auknar sveiflur í veðurfari og hækkandi sjávarborð hvarvetna vart við sig. Grænlandsjökull minnir á hvað í vændum er. Þær raddir eru líka að heita má hljóðnaðar sem benda út í himingeiminn í leit að sökudólgi. Uppgjöf alþjóðasamfélagsins við að endurnýja Kyotosátt- málann til að koma böndum á losun gróðurhúsalofts boðar ekki gott. Mesta ábyrgð á þeirri stöðu bera Bandaríkin og Kína sem til samans losa um 40% gróðurhúsalofts á heimsvísu, Bandaríkin þar af langmest miðað við höfðatölu. Hvert glatað ár án markviss viðnáms er dýrkeypt. Efnahagskerfi í blindgötu Af undirstöðuþáttum sjálfbærrar þró- unar er efnahagskerfið ráðandi. Þar er að leita skýringa á flestum þeim ófarnaði sem við mannkyni blasir og án grund- vallarbreytinga á efnahagsstarfsemi og viðskiptum er lítil von til að mannkynið nái inn á lífvænlega braut. Vaxandi mis- skipting efnislegra gæða milli heimshluta og innan þjóðríkja er innbyggð í núverandi kerfi. Ósjálfbær útþensla þess með síauknu álagi á umhverfið blasir við öllum. Hugtakið hnattvæðing segir sitt um breytingar síðustu áratuga en kjarni hennar felst í óheftu frelsi fjármagns í sókn eftir hámarkshagn- aði. Ríki heims hafa eitt af öðru kastað fyrir róða helstu stjórntækjum sínum og þau rekur síðan í ólgusjó blindra markaðsafla sem hvetja jafnt ein- staklinga sem samfélög til að safna skuldum og eyða um efni fram. Innbyggt siðleysi þessa kerfis birtist okkur m.a. í sólund og neyslu langt umfram þarfir sem forsendu þess að fólk hafi atvinnu. Mannfjölgun og þverrandi auðlindir Mannfjöldi á jörðinni var um 2 milljarðar fyrir einni öld, náði 7 milljarða markinu nú í ár og stefnir í 9 milljarða um miðja öldina. Álag á vistkerfi jarðar vegna fólksmergðar gerir hvarvetna vart við sig og mun stigmagnast með hörmulegum afleiðingum ef ekki tekst að breyta róttækt um stefnu. Sú framtíð sem að óbreyttu er verið að leggja grunninn að veld- ur eyðingu náttúrulegra vistkerfa og sívaxandi álagi á þau sem fyrir eru, útdauða fjölda tegunda ár hvert, vatnsskorti og hungursneyð og straumi flóttafólks frá svæðum sem verða óbyggileg. Ekki þarf að orðlengja um áhrif slíkrar öfugþróunar á friðsamlega sambúð þjóða. Kapphlaupið um þverr- andi auðlindir birtist okkur í margvíslegum mynd- um, nú síðast með ásókn fjölþjóðahringa og fjar- lægra stórvelda eins og Kína í jarðefni, m.a. á Grænlandi, og viðleitni þeirra síðarnefndu til að ná fótfestu hérlendis. Í glímu við vistkreppuna þarf öflugt alþjóðlegt samstarf í umhverfismálum samhliða gjörbreyttum búskaparháttum um veröld víða. Forsenda árang- urs er í senn vitundarvakning og að menn horfist í augu við þann vanda sem við blasir. Eftir Hjörleif Guttormsson »Ríki heims hafa eitt af öðru kastað fyrir róða helstu stjórntækjum sínum og þau rekur síðan í ólgusjó blindra markaðsafla Hjörleifur Guttormsson Umhverfi jarðar og ósjálfbært efnahagskerfi Höfundur er náttúrufræðingur. 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Ábending Menntamálaráðherra hafði eitthvað við frumvarp fjármálaráðherra til fjárlaga að athuga þegar umræður um stefnuræðu forsætisráðherra fóru fram í gærkvöldi. Kristinn Góður Íslendingur bú- settur erlendis hringdi í mig á dögunum og mátti vart mæla, en hóf samtalið með þessum hætti eins og fyrirsögnin greinir. Hvað meinarðu spurði ég? „Á virkilega að flytja lamba- kjöt inn á íslenskan markað og það frá Nýja-Sjálandi?“ spurði hann. Já, því miður er það að gerast, sagði ég. Hann hélt áfram: „Allt verður Íslands- ógæfu að vopni, þið vitið ekki hvaða auð- lindir þið eigið og eruð svo vitlausir að þið kunnið ekki að virða heilög vé.“ Hvað nú, spurði ég? „Ég sá í fréttunum að að auki heitir fyrirtækið sem þetta ætlar að gera Íslenskar matvörur, hverslags rugludallar eru þetta?“ bætti hann við. Já, sagði ég, og sá sem rekur fyr- irtækið er einn af meistarakokkunum okkar sem hafa gert matvælalandið Ís- land heimsfrægt fyrir lambakjöt, skyr, smjör, fisk, vatn og súkkulaði, matvæla- borð sem ekki á sinn líka. „Mikilmennska og minnimáttarkennd“ Hann ærðist í símanum og sagði: ,,Það blundar í ykkur bæði mikilmennska, minnimáttarkend og virðingarleysi.“ Er þetta ekki mikil fullyrðing? spurði ég á móti. Nei, sagði hann og bætti við: ,,Hugsaðu þér, þið eigið ferskasta, dýr- asta og besta fisk sem seldur er í veröld- inni, samt ætlið þið að hleypa Bretum og Spánverjum inn í landhelgina á ný.“ Það vill það enginn Íslendingur, sagði ég. „Þið ætlið inn í ESB, ekki satt?“ spurði hann? Nei, það verður slegið út af borð- inu í vetur eða kolfellt, sagði ég. Enn hóf vinur minn reiðilestur sinn: „Er það svo að landar mínir á Íslandi vita það ekki og virða það ekki heldur að þeir eiga þjóðarstoltið sitt, íslenska lambið.“ Jú, almenningur veit þetta. Við elskum okkar lambakjöt á hvaða aldri sem við erum, sagði ég. Maðurinn eða konan á bak við grillið eða eldavélina eru klár á því að lambakjöt er það ef gleðja skal góðan gest svo ekki sé talað um er- lendan vin, sagði ég með stolti. „En af hverju leyfa stjórnvöld á sama tíma inn- flutning á útlendu lambakjöti, og ætla að flytja inn hrátt kjöt og jafnvel lifandi dýr og alla sjúkdómaflóruna í ESB?“ spurði hann. Lambið er afurð landsins Á þessa leið þróaðist þetta samtal við Íslending sem er landi sínu trúr og hef- ur búið erlendis um langan tíma. Hann og erlendir aðdá- endur Íslands skilja illa virð- ingarleysi okkar fyrir auðlind- um sem aðrir dást að. Nú eru bændur og vinir þeirra að sækja lömbin sem koma fögur og lagðprúð af fjalli og annar hver Íslendingur er upptekinn af sinni sveit, ekkert síður fólkið í borg og bæjum þessa lands. Ég óttast ekki sam- anburð á íslensku og nýsjá- lensku lambi. Auðvitað ætlar meistarakokkurinn að flytja aðeins inn bestu bitana, fille og hryggi. Hvar ætlar hann að selja þá? Jú, hann trúir á hót- elin að þau muni kaupa þessa vöru. Nú er krafan þessi, og hana verða neyt- endur og bændur að gera til hótela, verslana eða matsölustaða, að það sé ljóst hvaðan lambakjötið kemur sem bor- ið er fyrir þá. Sjálfsagt verður reynt að koma þessu kjöti inn á elliheimilin og í grunnskólana. Íslenski fáninn Í sælkerabúðum Whole-Foods í Bandaríkjunum er íslenska fánanum stungið í kjötborðið. Þetta verða versl- anir að gera hér einnig. Ég virði meist- arakokkana okkar mikils sem farið hafa með nafn Íslands og gæði matvælalands- ins okkar í sigurför um víða veröld. Helgi Einarsson er einn þeirra meist- arakokka, þrátt fyrir þessa fljótfærni. Nú verður hann að skýra fyrirtæki sitt upp og nefna það ,,Íslensk og nýsjálensk matvara“. Engum manni í Nýja-Sjálandi dytti í hug að flytja þar inn landbún- aðarvörur úr kjöti eða mjólk. Ég skora á gróðahyggjumenn þessa lands að hugsa nú í réttavikunni hvort við eigum ekki að standa með bændum og þeirra frábæru gjöfum sem þjóðin elskar og dáir. Þar ríkir kyrrð og friður, grasið er gott, lind- arvatnið er ómengað, loftið tært og eng- in aðskotaefni notuð í íslenskan land- búnað. Lambið er afurð landsins. Eftir Guðna Ágústsson »Ég óttast ekki samanburð á íslensku og nýsjálensku lambi. Auðvitað ætlar meistara- kokkurinn að flytja aðeins inn bestu bitana, fille og hryggi. Guðni Ágústsson Hverslags asnaskapur er þetta? Höfundur er fyrrverandi landbúnaðarráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.