Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 31

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 ✝ Birgir PállGylfason fædd- ist í Reykjavík 9. júlí 1988. Hann lést af slysförum 25. ágúst 2012 í Fre- drikstad í Noregi. Foreldrar hans eru hjónin Gylfi Jónsson, f. 15.6. 1958, sonur Jóns H. Guðmundssonar, f. 19.1. 1937 og Hrafnhildar Matthíasdóttur, f. 3.9. 1936 og Hildur Hanna Ás- mundsdóttir, f. 28.4. 1960, dótt- ir Ásmundar Jóh. Jóhanns- sonar, f. 29.10. 1928, látinn 27.1. 2004 og Bergþóru Benedikts- dóttur, f. 8.8. 1927, látin 13.10. 2004. Bróðir Birgis Páls er Jó- hannes Már Gylfason, f. 24.9. 1982, kvæntur Láru Hrund Bjargardóttur, f. 15.7.1981 og eiga þau tvo syni. Birgir Páll ólst upp í Garðabæ og stundaði nám í Hof- staðaskóla, Garða- skóla og Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Tækniskólanum ár- ið 2011. Hann byrjaði ungur að starfa við hlið föður síns og bróður í fyrirtæki fjöl- skyldunnar. Hann tók meira- próf 18 ára og síðan aflaði hann sér vinnuvélaréttinda. Birgir Páll starfaði við smíð- ar hér á landi og í Noregi. Útför Birgis Páls fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 13. september 2012, og hefst at- höfnin kl. 13. Vertu sæll, elsku vinur minn, vegirnir hljóta að skilja. En ég þig glaðan aftur finn. – Allt fer að Drottins vilja. Þökk fyrir blíðu brosin þín, barnið mitt elskulega. Minning þín ljúfa mér nú skín. Mínum hún léttir trega. Söknuður hjúpar hjarta mitt. – Hann skapar vegaþrautir. – Láttu nú Drottinn ljósið þitt lýsa mér réttar brautir. Blessaðu elsku barnið mitt. Birg það í faðmi þínum. Láttu því blessað ljósið þitt ljóma með krafti sínum. Við mér nú ljómar ljúft þín náð. Læknar hún benjar mínar. – Algóði faðir, allt mitt ráð ég fel í hendur þínar. (Sr. Böðvar Bjarnason.) Kveðja frá mömmu og pabba. Minning Birgis Páls lifir í hjört- um okkar allra, minningin um glæsilegan og lífsglaðan ungan mann á leið út í lífið með gott veganesti úr foreldrahúsum. Birg- ir Páll lauk sveinsprófi í húsasmíði vorið 2011 og stofnaði þá sitt eigið fyrirtæki og vann við smíðar hér heima um tíma. En hann vildi kanna ókunna stigu og kynnast veröldinni. Hann ákvað að halda út í heim á vit ævintýranna. Nor- egur var fyrsti áfanginn á þeirri leið og vann hann þar þegar kallið kom. Nú er hann horfinn á vit ljóssins og kannar önnur ævin- týralönd. Við vitum að í fyllingu tímans mun hann taka á móti okk- ur ásamt öðrum ástvinum sem horfið hafa frá okkur til ljóssins heima. Við erum þakklát og láns- söm fyrir að hafa fengið að kynn- ast Birgi Páli og hafa hann hjá okkur um stund. Hvíl í friði, elsku frændi. Takk fyrir tímann sem með þér áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð yfir kveðjuna hér, þinn orðstír mun lifa um ókomna daga, indælar minningar í hjarta okkar ber. (P. Ó. T.) Elsku Hildur, Gylfi, Jóhannes og Lára. Við biðum Drottin að um- vefja ykkur kærleika sínum og veita ykkur huggun og frið í sorg- inni. Jenný, Guðmundur og dætur. Orð fá ekki lýst því hvað það er sárt að kveðja þig, kæri vinur og frændi. Það er greinilega þörf fyr- ir þitt góða hjartalag í öðrum heimum. Þú varst fullur af kær- leik og vildir láta gott af þér leiða. Ég er ánægður með að deila stórum hluta af minningum barn- æsku minnar með þér, þó að við fáum ekki tækifæri til að rifja þær upp saman. Það urðu ávallt miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst og það breyttist ekkert þegar við urðum eldri. Mér leið alltaf vel eft- ir að hafa hitt þig. Mér þykir óskaplega vænt um þig og ég trúi ekki að þú skulir vera farinn. Vináttu okkar og minningu mína um þig mun ég ávallt geyma á góðum stað. Þinn vinur og frændi, Bjarki Már Gunnarsson. Birgir frændi hefur fylgt okkur bræðrum nánast frá því að við munum eftir okkur. Þær minning- ar sem við tengjum við Birgi eru alltaf jákvæðar og góðar hvort sem um ræðir vatnsstríð út í garði, frændahitting eða gönguferðir á fjöll. Það fylgdi Birgi alltaf mjög þægilegt andrúmsloft enda var hann virkilega rólegur og góður strákur og það var alltaf stutt í smitandi hláturinn hjá honum. Birgir kvaddi okkur alltof snemma og eftir situm við bæði daprir og dofnir en fáum engu breytt. Kalli varð sá síðasti okkar til að hitta hann en þeir hittust í ræktinni stuttu áður en Birgir fluttist til Noregs. Þar töluðu þeir saman um daginn og veginn. Birg- ir var hress og kátur og talaði um að það væri nóg af verkefnum framundan hjá þeim félögum í smíðinni. Einnig talaði hann um að það væri kominn tími á reglu- bundinn hitting hjá okkur frænd- unum. Ferðin uppá Hvannadals- hnúk sem við fórum í fyrrasumar var afar skemmtilegt og eftir- minnileg. Birgir undi sér vel í fjall- göngum og naut þess að horfa á útsýnið af þessum hæsta tindi landsins. Foreldrum, bróður og fjöl- skyldunni allri sendum við innileg- ar samúðarkveðjur með von um að ljúfar minningar um góðan dreng mildi söknuðinn og færi huga þeirra birtu og yl á ókomnum ár- um. Birgir mun alltaf verða hluti af okkur. Saknaðarkveðjur, Jón Heiðar og Karl Jóhann. Elsku Birgir Páll, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svo fljótt. Okkur skortir orð á þessum erfiðu tímum. Hörmulegt slys hefur nú breytt öllu. Þú fórst til Noregs fullur til- hlökkunar til að vinna við smíðar og með áætlanir um að ferðast síð- an um heiminn og láta gott af þér leiða. Nú hefur ferðalagið breyst og þú ferðast um aðrar slóðir. Við trúum því að Guð ætli þér mik- ilvægt verkefni. Við minnumst þess hvað það var alltaf mikil gleði þegar þið frændurnir hittust. Við sjáum þig fyrir okkur glaðlegan, bjartan og góðan strák sem gaman var að gefa að borða því að þú hrósaðir mikið því sem þér fannst gott. Við sjáum þig fyrir okkur myndarleg- an, hraustan og jákvæðan ungan mann sem elskaði útivist, ferðlög og umfram allt fjölskyldu sína og vini. Allar góðu minningarnar um samverustundir okkar verða ekki teknar frá okkur. Við kveðjum þig, elsku vinur, með sárum sökn- uði, hvíl í friði. Megi algóður Guð styrkja elsku Gylfa, Hildi, Jóhannes og Láru og okkur öll í þessari miklu sorg. Matthildur (Maddý) og Gunnar. Æskuvinur minn, Birgir Páll, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Við höfum þekkst frá fæð- ingu og ávallt staðið saman. Sem börn vorum við danspar í dans- skóla og leiddumst þegar við vor- um saman og sama hve langt var liðið frá því við hittumst þá var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Hann var góður vinur og traustur, ein af bestu manneskj- um sem ég hef þekkt og alltaf til í ævintýri. Hann kom með skemmtileg- ustu sögurnar, dró okkur krakk- ana út um allt í útilegum og hlát- urinn hans var einstakur. Hann átti svo marga drauma og langaði að gera svo margt. Hann var fær ljósmyndari og hugleiddi að halda sýningu. Hann bauð mér að vera módel í vor, það var virkilega skemmtileg lífsreynsla sem ég gleymi aldrei. Við fórum inní helli, nokkuð sem ég hef ekki gert áður. Svo flott og töff. Hann sagðist fara stundum einn að rúnta, skoða hella og aðrar náttúruperlur. Ég pantaði að koma með næst í hellaskoðun! Hann prentaði og rammaði inn eina af þeim fallegu myndum sem hann tók í þessari ferð og gaf mér. Myndin mun ávallt hanga á veggnum mínum. Við hittumst daginn áður en hann fór til Nor- egs, skelltum okkur í bakaríið og spjölluðum saman. Birgir var alltaf hreinskilinn við mig, hann sagði mér að hann hefði verið að vinna með sjálfan sig og hann teldi að hreinskilni skipti mestu í samskiptum. Hann sagði að hann værir rosalega stoltur af mér og hefði gaman af því að sjá hvernig ég hef blómstr- að i gegnum árin. Ég sagði við hann að ég væri rosalega stolt af honum, gerir það sem hann vill og lifir lífinu, núna væri hann að fara út og með plön um að ferðast um heiminn, nokk- uð sem mig hefur dreymt um að gera! Hann sagði að ég hefði ver- ið sín fyrsta ást ef svo má segja en við vorum límd saman á leikskóla- aldri og slepptum ekki hendinni hvort af öðru. Hann vissi að ég myndi alltaf verða til staðar, ég væri eins og systir hans og að honum þætti afskaplega vænt um mig. Það var notalegt að ræða við hann, Við enduðum svo þennan hitting með faðmlagi og ég sagði að ég vildi endilega koma að heimsækja hann í Noregi, og að mér þætti afskaplega vænt um hann. Ég hef alltaf litið upp til hans Birgis, ævintýramannsins sem lét ekkert stoppa sig, alltaf brosandi og traustur. Mun alltaf muna eft- ir þér elsku vinur, hvíldu í friði. Ég sendi mína dýpstu samúð- arkveðju til Hildar, Gylfa, Jó- hannesar og fjölskyldu. Katrín Sif. Ég get varla trúað því að vinur minn sé farinn og það svona ung- ur. Það braut mig gjörsamlega. Einn besti maður og mesti vinur sem ég hef kynnst. Alltaf tilbúinn að hjálpa fólki og gera því lífið betra, þrátt fyrir að það myndi kosta hann tíma og erfiði. Ég mun seint geta útskýrt fyrir fólki sem þekkti ekki Bigga hversu góð sál hann var. Því verður ekki með orðum lýst. Forréttindin að hafa verið góður vinur hans eru þvílík. Biggi var einstakur og aðdáunar- verður á margan hátt. Hann lét ekkert stöðva sig og gerði allt það sem hann langaði til. Við áttum svo margar góðar stundir saman og ferðuðumst víða. Innanlands og til útlanda, alltaf var Biggi tilbúinn að koma með. Allar ferðirnar á van-inum gleymast aldrei. Ég er svo þakk- látur fyrir að hafa kynnst Bigga því hann gerði líf mitt skemmti- legra og viðburðaríkara. Ég votta fjölskyldu hans alla mína samúð. Minn elsku vinur, við sjáumst einn daginn aftur. Ég lá um dag- inn á svölunum í hengirúmi eins og þegar við slökuðum á í Mexíkó, horfði á himininn og hugsaði að nú værir þú með mínum nánustu uppi hjá Guði að vernda mig. Ég mun ávallt sakna þín. Þinn 210 vinur, Gunnar Örn Heiðdal. Minn elsti vinur. Kallaður burt. Félagi, sem bróðir. Til þín ég leit alltaf upp. Þú varst óhræddur við það sem hræddi þig. Þú fylgdir hjartanu hvert sem það leiddi þig. Lærðir það sem þú vildir og lést fátt stöðva þig. Þú lifðir. Þú hafðir hlátur sem ég mun sakna sárt. Þú hafðir alltaf góða sögu að segja. Þú mikli grínisti og prakkari. Hreint hjarta þú hafðir og alltaf bros til að gefa. Þú mikla sál. Ég þakka tímann sem við fengum saman í þessum heimi og allt sem þú kenndir mér í lífinu. Allar góðu stundirnar okkar. Ég sakna þín sárt en við munum sjást aftur að lokum. Þinn vinur að eilífu. Birgir Freyr. Æðri verkefni eru örugglega ætluð þér, kæri Birgir Páll. Það er erfitt að átta sig á því að þú sért farinn, farinn frá vina- hópnum, frá okkur sem sitjum hérna eftir svo skilningsvana á þessari taktík almættisins. En til að við getum sett ein- hvern skilning í þetta, hljóta verk- efnin að vera afar brýn sem þú ert valinn til að sinna. Þú mættir í þennan heim 9. júlí 1988, sá áttundi í röðinni í barna- hóp vinahópsins. Vinahópsins sem samanstendur af 5 fjölskyldum þar sem foreldrarnir kynntust á sínum framhaldsskólaárum og hafa staðið saman síðan. Þú varst fallegur lítill bróðir fyrir Jóhannes sem fékk að ákveða seinna nafnið þitt og fannst Palli passa einstaklega vel við þig. Samband ykkar bræðra var einkar kært. Barnahópurinn stækkaði ört og þið sem komuð á bilinu 1987-1990 hafið haldið svo vel saman. Birgir Freyr, Katrín Sif, þú, Andrea, Ari Kristján og Elísabet, vinir fyrir lífstíð. En lífstíð okkar er misjafnlega löng. Skyldi það verði þitt hlut- verk að halda utanum þau og lýsa þeim veginn áfram á þeirra lífstíð? Við erum ekki í vafa um að það sé eitt af þínum verkefnum. Árleg útilega vinahópsins að Hrafnstóftum ásamt öðrum sam- verustundum með gönguferðum, sjósundi, bátsferðum, jólaboðum og öðru sprelli ylja okkur þessa dagana ásamt ljósmyndum og kertaljósum sem hafa verið kveikt daglega. Við sitjum með tárvot andlit og finnum fram allar þessar minning- ar, minningar um þig, elsku Birgir Páll. En það þýðir ekki að deila við almættið svo við verðum að halda áfram, reyna að binda um sárið og fá það til að gróa. Þurrka tár hvert annars, faðma, hugga, hlusta og hughreysta. Við vitum að þú munt hjálpa okkur. Við vitum að þú munt sýna okkur ljósið á erfiðum stundum. Við vitum að þú munt þerra tár- in okkar. Við ætlum að halda minningu þinni hátt á lofti svo að litlu frænd- ur þínir Gylfi Freyr og Sævar þekki þig um ókomna framtíð. Við ætlum að minnast þín alltaf, fyrir þann dreng sem þú varst. Hugur okkar er hjá foreldrum þínum sem syrgja þig svo sárt, hjá bróður þínum, mágkonu og fjöl- skyldunni. Hvíl í friði, við sjáumst aftur. Björk, Halldór, Katrín Ösp, Kolbrún Ósk og Ari Kristján. Birgir Páll Gylfason ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA ERLA ÓLAFSDÓTTIR, sem lést föstudaginn 7. september, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 14. september kl. 13.00. Arthur Björgvin Bollason, G. Svala Arnardóttir, Linda S. Bolladóttir Thomas, Michael W. Thomas, Erla Bolladóttir, Lilja Bolladóttir, Valur Valsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ég hitti Önnu fyrir framan skóbúðina Kron fyrir þremur ár- um þar sem hún stóð með draumaskó dóttur sinnar, sem hún hafði verið að kaupa, í poka. Hún sagði mér frá veikindum sín- um, hún væri hætt að vinna, en liði nokkuð vel og langaði að fara að skrifa. Ég sagði henni að ég væri nýbúin að lesa frétt um að bjóða ætti upp á þriggja ára nám í skapandi skrifum í Háskólanum um haustið. Hún sýndi því mikinn áhuga og svo fór að hún settist á skólabekk. Ég hitti hana reglu- lega á förnum vegi eftir það og lét hún vel af náminu og alltaf gaf hún í skyn á sinn kankvísa hátt að hún væri þarna fyrir mitt tilstilli. Önnu kynntist ég í Myndlista- Anna Steinunn Ágústsdóttir ✝ Anna SteinunnÁgústsdóttir fæddist í Reykjavík 26. mars 1959. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 23. ágúst 2012. Anna var jarð- sungin frá Dóm- kirkjunni 5. sept- ember 2012. og handíðaskólan- um fyrir margt löngu og lágu leiðir okkar aftur saman þegar við unnum saman um tíma á auglýsingastofu. Hún heillaði mig eins og aðra með sinni einlægu og fal- legu framkomu og innræti. Hún var svo vel að sér um allt mögulegt og áhugasviðið var breitt. Hún vissi allt um tísku og hönnun, en var jafnframt svo meðvituð um hvað skipti máli í líf- inu. Ég hefði svo gjarnan viljað fá að fylgjast með skrifum hennar í framtíðinni og trúi að hún hefði getað afrekað margt á því sviði sem öðrum. Ég á eina fallega mynd sem hún teiknaði af dóttur minni nýfæddri og verður hún ætíð minning um yndislega konu sem ég veit að margir munu sakna. Við hefðum viljað njóta hennar svo miklu miklu lengur. Ég sendi Kjartani, börnum þeirra þremur, fjölskyldu og vin- um mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Svala Jónsdóttir. Við fráfall heiðurshjónanna Helgu Valborgar Pétursdóttur sem lést 9. maí sl., og svo Arnþórs Björnssonar sem kvaddi þennan heim 28. ágúst og jarðsunginn var föstudaginn 7. september, koma margar góðar minningar upp í hugann frá okkar fyrstu kynnum í Reynihlíð sumarið 1956. Ég hafði verið svo ólánsámur að brenna fæturna í Námaskarði og eftir dvöl á hjúkrunarheimilinu á Húsavík, buðu Helga og Arnþór mér þá að dvelja á hótelinu þang- að til ég væri aftur orðinn ferða- fær. Ég tók miklu ástfóstri við sveit- ina og alla sem þar bjuggu. Þau hjónin lögðu drög að því að ég Arnþór Björnsson ✝ ArnþórBjörnsson fæddist í Vopna- firði 16. júlí 1931. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 28. ágúst 2012. Útför Arnþórs fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 7. september 2012, og hefst athöfnin klukkan 10.30. fengi að ílengjast þar og byggja mér bústað á fallegum stað. Sá draumur rættist ekki, en ég kom aftur ár eft- ir ár til langdvalar og kynntist þá sveitalíf- inu og upplifði í allri sinni dýrð með göng- um, réttum, veiðum á vatninu, liðveislu ferðamanna og alls kyns ógleymanlegum uppákomum. Gaman var að fylgjast með hversu vel þau hjónin ásamt skyld- mennum í Reynihlíð og Vesturhlíð stóðu að uppbyggingunni á Hótel Reynihlíð í takt við vöxt þéttbýlis- ins við norðanvert Mývatn. Nú er þetta orðið einn eftirsóttasti ferða- mannastaður landsins, og stoltir afkomendur Reynihlíðarættarinn- ar hafa tekið við. Föstudaginn 31. ágúst síðastlið- inn var vinur okkar Ármann Pét- ursson bróðir Helgu jarðsunginn frá Reykjahlíðarkirkju. Það hefur verið skammt stórra högga á milli. Góðar æskuminningar frá sveit- inni lifa með okkur. Hugheilar samúðarkveðjur, Arndís og Mats.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.