Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Það verður ekki stór veisla en ætli ég haldi ekki lítið partí eftirgöngurnar á laugardaginn,“ segir Guðrún Harpa Gunnars-dóttir sem er þrítug í dag. Hún segir eftirminnilegustu afmæl- isveislurnar hafa verið bekkjarafmælin í grunnskóla. Í minningunni standi upp úr furðuhattapartí sem hún stóð fyrir á 13 ára afmæli sínu. „Það var alltaf skemmtilegast í bekkjarafmælunum þegar maður var yngri.“ Guðrún segir að óveðrið í upphafi vikunnar muni væntanlega ekki setja strik í reikninginn varðandi áætlanir helgarinnar. „Göngurnar verða frá Kársstöðum og réttirnar í Arnarhólsrétt,“ segir Guðrún en hún tekur alltaf þátt á hverju hausti og getur ekki ímyndað sér að gera annað. Útiveran, tengingin við náttúruna og samveran séu virki- lega heillandi og skemmtilegur hluti af réttunum. Í sumar var Guðrún í fæðingarorlofi en sjálf á hún þrjú börn, það yngsta 7 mánaða. Aðra hverja helgi bætast tvö börn í hópinn og því er væntanlega oft kátt á hjalla á heimili hennar í Stykkishólmi en Guð- rún er alin upp í Helgafellssveit. „Í sumar hef ég nýtt tímann með börnunum. Þegar ég klára fæðingarorlofið sný ég aftur til vinnu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.“ Fjölskyldan stóra á hug Guðrúnar allan og er hennar aðaláhugamál en einnig tekur hún fram að henni þyki skemmtilegt að ferðast innanlands. heimirs@mbl.is Guðrún Harpa Gunnarsdóttir 30 ára Bíður með veislu fram yfir réttir Mæðgur Guðrún Harpa ásamt dóttur sinni, hinni sjö mánaða Ingi- björgu Sesselju Jónsdóttur sem er yngst fimm systkina. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Marianne og Daniel Glad fagna sextíu ára brúðkaupsafmæli sínu í dag, 13. sept- ember. Brúðkaup þeirra fór fram í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu árið 1952. Demantsbrúðkaup Akureyri Kjartan Hjaltalín fæddist 11. nóvember kl. 19.51. Hann vó 3.965 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Guðrún Kjartansdóttir og Páll Hjaltalín Árnason. Nýir borgarar Reykjavík Freyja Mjöll fæddist 29. desember kl. 7.11. Hún vó 3.760 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Áslaug Kristvinsdóttir og Axel Hreinn Steinþórsson. E dda fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófum frá MH 1972, útskrif- aðist frá Leiklist- arskóla Íslands 1978 og er nú að ljúka MA-prófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Edda debuteraði í leikritinu Sonur skóarans og dóttir bakarans, eftir Jökul Jakobsson, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1978. Hún hefur síð- an starfað óslitið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Auk þess í Alþýðuleik- húsinu, Hinu leikhúsinu og með ýms- um öðrum leikhópum, sem leikari, leikstjóri og höfundur, nú síðast með Leikhúsmógúlnum í Gamla bíói. Hún hefur rekið eigin leikhús, s.s. Gríniðjuna, List og fræðslu og Fræðsluleikhúsið, og leikið, leikstýrt og samið efni fyrir flesta starfandi ljósvakamiðla hér á landi, leikið í Edda Björgvinsdóttir leikkona – 60 ára Morgunblaðið/Jim Smart Edda Björgvinsdóttir Leikkonan hóf ferilinn í leikritinu Syni skóarans og dóttur bakarans 1978. Í hlutverki gleðigjafans Morgunblaðið/Jón Svavarsson Foreldrar og sonur, Björgvin Franz, Gísli Rúnar leikstjóri og Edda fagna að lokinni frumsýningu á farsanum Allir á svið, í Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.