Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 39
fjölda sjónvarpsleikrita, sjónvarps-
þátta og sjónvarpsframhaldsþátta,
leikið í og verið meðhöfundur að 14
áramótaskaupum og var leikstjóri
þess árið 2005. Auk þess hefur hún
stjórnað fjölda útvarpsþátta.
Meðal leikrita sem Edda hefur
leikið í hjá Borgarleikhúsinu má
nefna Alveg brilljant skilnaður; Sex í
sveit, farsi sýndur í þrjú leikár; Leit-
in að vísbendingu um vitsmunaverur
í alheimnum, einleikur; Afaspil,
barnaleikrit, og Einhver í dyrunum.
Hjá Þjóðleikhúsinu lék hún m.a. í
Allir á svið; Halldór og Hollywood;
Lína langsokkur; Amma þó; Áhorf-
andinn í aðalhlutverki; Pétur Gaut-
ur; Kabarett í Leikhúskjallaranum,
og Flugleik, en í Iðnó lék hún í Þjónn
í súpunni; Ferðin á heimsenda; Sýnd
veiði, og Uppistand.
Auk þess má nefna Hjónabands-
sælu í Gamla bíói 2011-2012; Nörd, í
Gamla bíói; Fúlar á móti hjá Leik-
félagi Akureyrar; 5 stelpur.com, sýnt
í Austurbæ; Brávallagatan – Arn-
arnesið, í Gamla bíói; Blómarósir og
Heimilisdraugar, í Alþýðuleikhúsinu,
og Sápa 1 og 2 í Kaffileikhúsinu
Hlaðvarpanum.
Edda lék í kvikmyndunum Hrafn-
inn flýgur; Gullsandur; Stella í orlofi;
Hin helgu vé; Karlakórinn Hekla;
Villiljós; Stella í framboði; Perlur og
svín, og Hrafnar, sóleyjar og myrra.
Edda hefur samið leikverkin
Láttu ekki deigan síga Guðmundur
(ásamt Hlín Agnarsdóttur), sýnt af
Stúdentaleikhúsinu; Mars og Venus,
og Sápu 1 og Sápu 2 (meðhöfundur).
Edda var leiðbeinandi og leikstjóri
á Sólheimum í Grímsnesi, hefur
haldið námskeið fyrir stórfyrirtæki
og félagasamtök um tjáningu, sjálf-
styrkingu, þjónustulund, húmor sem
samskipta- og stjórntæki, heilsuefl-
ingu og fleira.
Hún hefur haldið fjölda námskeiða
fyrir konur, staðið fyrir kvennaferð-
um og verið fararstjóri fyrir ferða-
skrifstofur erlendis.
Edda var framkvæmdastjóri Al-
þýðuleikhússins 1978-80, Gríniðj-
unnar 1988-92, Listar og fræðslu ehf.
2004-2011 og GEB slf. frá ársbyrjun
2012. Hún sat í umferðarnefnd
Reykjavíkur 1984-88, í stjórn 4.
deildar FÍL 1994-96, í stjórn leiklist-
arráðs 1996-2000, atvinnumálanefnd
FÍL 2000-2007, var framkvæmda-
stjóri Sumarleikhúss Sólheima 2002-
2004, kynningarfulltrúi Sólheima
2002-2004 og situr í fulltrúaráði Sól-
heima frá 2006.
Fjölskylda
Fyrri maður Eddu er Sigurgeir
Guðmundsson, f. 25.1. 1952, skóla-
stjóri. Þau skildu.
Dætur Eddu og Sigurgeirs eru
Eva Dögg, f. 27.8. 1970, MBA, í sam-
búð með Bjarna Ákasyni og á hún
fjögur börn; Margrét Ýrr, f. 26.2.
1973, hjúkrunarforstjóri á Lundi á
Hellu, en maður hennar er Sigurður
Rúnar Sigurðsson og eiga þau þrjú
börn.
Seinni maður Eddu er Gísli Rúnar
Jónsson, f. 20.3. 1953, leikari og leik-
stjóri. Þau skildu.
Synir þeirra eru Björgvin Franz, f.
9.12. 1977, leikari en kona hans er
Berglind Ólafsdóttir og eiga þau
tvær dætur; Róbert Óliver, f. 9.4.
1993, nemi.
Foreldrar Eddu eru Björgvin
Friðgeir Magnússon, f. 29.9. 1923,
fyrrv. skólastjóri, og Margrét Krist-
insdóttir, f. 26.3. 1930, sjúkraliði.
Úr frændgarði Eddu Björgvinsdóttur
Magnús Pálsson
steinsm. og vatnsberi í Rvík
Sesselja Gísladóttir
af Kortsætt, fór til Ameríku
Kristófer Magnússon
sjóm. í Rvík
Margrét Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Valgerður S. Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Magnús Vigfússon
verkstj. á Kirkjubóli við Rvík
Sólveig Jónsdóttir
húsfr.
Edda
Björgvinsdóttir
Björgvin Friðgeir Magnússon
fyrrv. skólastj.
Margrét Kristinsdóttir
húsfr. í Rvík
Ágústa Sigríður Kristófersdóttir
húsfr. á Staðarhóli
Kristinn Magnússon
verkstj. að Staðarhóli við Rvík
Guðbjörg Sigurveig Magnúsd.
húsfr. í Rvík
Guðbjörn Björnsson
verkam. í Rvík
Magnús Guðbjörnsson
póstfulltr. og frægur
hlaupari í Rvík
Erlingur Roland
Magnússon
forstj. í Rvík
Rögnvaldur
Othar Erlingsson
framkvæmdastj. í
Kópavogi
Kristófer Már Kristinsson
umhverfisfr. og fyrrv. alþm.
Morgunblaðið/Eggert
Sæla Edda og Laddi í Hjónabands-
sælu hjá Leikhúsmógúlnum nýverið.
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Jón Þórarinsson tónskáld fædd-ist í Gilsárteigi í Eiðaþinghá íSuður-Múlasýslu, en ólst upp
á Seyðisfirði að mestu. Foreldrar
hans voru Þórarinn Benediktsson,
hreppstjóri og alþm. í Gilsárteigi í
Eiðaþinghá og k.h., Anna María
Jónsdóttir húsfreyja.
Jón varð stúdent frá MA 1937,
stundaði nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og var m.a. í einkatímum
hjá dr. Victor Urbancic. Hann
stundaði nám við Yaleháskóla í
Bandaríkjunum, lauk Mus.B.-prófi í
tónfræði 1946, og Mus.M.-prófi í tón-
smíði 1947 en aðalkennari hans var
Paul Hindemith. Hann sótti einnig
námskeið við hinn víðfræga Juilli-
ard-skóla í New York og fór námsför
til Austurríkis og Þýskalands og
dvaldi þá lengst af í Vínarborg.
Jón var yfirkennari í tónfræði og
tónsmíði við Tónlistarskólann í
Reykjavík 1947-68, og kennari
þar með hléum eftir 1979, og við
Söngskólann í Reykjavík. Hann var
starfsmaður Ríkisútvarpsins á
stríðsárunum og fulltrúi í tónlist-
ardeild 1947-56.
Jón hefur verið talinn helsti for-
göngumaður að stofnun Sinfón-
iuhljómsveitar Íslands, var fyrsti
stjórnarformaður hennar, fram-
kvæmdastjóri og stjórnarmaður í 20
ár.
Jón var dagskrárstjóri lista- og
skemmtideildar sjónvarpsins
1968-79, sat í útvarpsráði, stjórn
og úthlutunarnefnd Kvikmynda-
sjóðs og Menningarsjóðs útvarps-
stöðva, var tónlistargagnrýnandi
dagblaða og söngstjóri Karlakórsins
Fóstbræðra, Stúdentakórsins og
Gamalla Fóstbræðra. Þá var hann
forseti Bandalags islenskra lista-
manna í tvígang og stjórn-
arformaður Listahátíðar í Reykja-
vík.
Jón starfaði að rannsóknum og
ritun íslenskrar tónlistarsögu um
árabil og sinnti tónsmíðum en meðal
stærri verka hans má nefna Völuspá
og Minni Ingólfs, bæði samin fyrir
hljómsveit og kór, auk sönglaga,
kammerverka og kórverka.
Jón lést 12.2. 2012.
Merkir Íslendingar
Jón
Þórarinsson
90 ára
Axel Thorsteinsson
Jens Kristinsson
Óskar Vigfússon
85 ára
Ásdís Eysteinsdóttir
Eiríkur Bjarnason
80 ára
Arthur Guðmannsson
Björgvin Guðmundsson
Erla Sigfúsdóttir
Hulda Árnadóttir
Kjartan Helgason
Sigrún Gísladóttir
75 ára
Gyða Guðbjörnsdóttir
Helga Hafdís Gústafsdóttir
70 ára
Birna Sigurbjörnsdóttir
Bjarni Magnússon
Erla Kr. Hatlemark
Gunnar Örn Haraldsson
Hrefna Haraldsdóttir
Kristinn Jónsson
Ólafur Guðmundsson
Sigríður Björg Dagsdóttir
Sigurður Oddsson
Snorri Guðmundsson
Sæmundur Bjarnason
60 ára
Aðalsteinn Ólafsson
Arvid Kro
Ásdís Pálsdóttir
Ásta Þórarinsdóttir
Jóhann Einar Jakobsson
Jóna Ingvarsdóttir
Katrín Kristinsdóttir
María Kristín Kristjánsdóttir
Ólafur Friðriksson
Ragnheiður Torfadóttir
Stefanía S. Guðmundsdóttir
Þorlákur Rúnar Loftsson
Þórður Halldór
Hallgrímsson
50 ára
Andrea Gylfadóttir
Anna Þóra Björnsdóttir
Baldvin Viggósson
Björn Grétar Sigurðsson
Friðrik Vilhjálmur Grímsson
Ingimar Skúli Sævarsson
Jóhanna Lovísa Gísladóttir
Jóhannes Ellertsson
Jón Unnar Gunnsteinsson
María Anna Clausen
Þórunn Bergsdóttir
40 ára
Dagný Blöndal
Guðlaug Flosadóttir
Helen Símonardóttir
Íris B. Ansnes
Jón Ágúst Gunnarsson
Þórdís Þorvaldsdóttir
30 ára
Abdul Rozak Sigurgeirsson
Adam Bykowski
Andris Lapins
Arnar Stefánsson
Bjarni Þór Bjarnason
Heiðar Páll Atlason
Katarína Niznianska
Kyle Peter Pasqualucci
Marius Kozanovas
Natalía Stefánsson
Silja Glömmi
Til hamingju með daginn
30 ára Eyrún lauk BA-
prófi í sálfræði og fé-
lagsfræði við HÍ og er
framkvæmdastjóri Róró.
Maki: Þorsteinn Otti
Jónsson, f. 1980, graf-
ískur hönnuður.
Synir: Jökull Otti, f.
2007; Bjartur Otti, f.
2010.
Foreldrar: Hrefna Frið-
riksdóttir, f. 1965, kennari
við HÍ, og Eggert Sigþór
Sigurðsson, f. 1962, starf-
ar við umönnun fatlaðra.
Eyrún
Eggertsdóttir
40 ára Heiðbjört ólst upp
í Stekkjarholti í Skagafirði
og er nú kúabóndi á Efri-
Ási í Hjaltadal.
Maki: Árni Sverrisson, f.
1969, bóndi á Efri-Ási.
Börn: Bylgja Ösp Ped-
ersen, f. 1992; Hjördís
Helga Árnadóttir, f. 1994.
Foreldrar: Stefán Agnar
Magnússon, f. 1952,
byggingafr. og tjónmats-
maður hjá VÍS, og Hjördís
Pedersen, f. 1954, rann-
sóknarmaður við LSH.
Heiðbjört Hlín
Stefánsdóttir
40 ára Sturla lauk MSc.-
prófi í fjármálum fyr-
irtækja og er atvinnu-
flugmaður.
Maki: Helga Þorvalds-
dóttir, f. 1976, tölv-
unarfræðingur hjá Lands-
bankanum.
Börn: Jóhannes, f. 2004;
Þóranna, f. 2007, og
Kristinn, f. 2010.
Foreldrar: Ómar Arason,
f. 1944, flugstjóri, og
Anna Kritófersdóttir, f.
1946, bankastarfsmaður.
Sturla
Ómarsson
mbl.is/islendingar
www.gilbert.is
ELDFJALLAÚRIÐ
Frisland Goð