Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Langtímaárangur í baráttunni
gegn atvinnuleysi byggist á því að
atvinnulífið í landinu rétti úr kútn-
um og skapi raunveruleg framtíð-
arstörf. Vinnumarkaðsúrræði hafa
það markmið að viðhalda hæfni og
getu þeirra einstaklinga sem
misst hafa vinnuna til þess að vera
til reiðu og tilbúnir þegar kallið
kemur frá atvinnulífinu. Aðeins þá
hefur atvinnuleysið minnkað þeg-
ar þessi störf verða til og fólk er til
að sinna þeim,“ sagði Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar á ársfundi stofnunar-
innar í gær.
Hættulegt að trúa að úrræðin
séu lausnin á atvinnuleysinu
„Jafn gríðarlega mikilvæg og
þau tímabundnu störf eru sem
verða til með vinnumarkaðs-
úrræðum þá er það jafnhættulegt
að trúa því að þau séu lausnin á at-
vinnuleysinu og að miða stjórn-
sýslu og fjárlagaákvarðanir út frá
því að sú sé raunin,“ sagði hann.
Gissur sagði að þrátt fyrir að
atvinnuleysi væri að minnka væri
stór hópur einstaklinga sem hefur
orðið langtímaatvinnuleysi að
bráð og ekki fundið starf við hæfi.
„Þúsundir einstaklinga eru við það
að tæma réttindi sín í
atvinnuleysistryggingakerfinu og
það er óljóst hvað bíður þeirra.
Um það standa samræður yfir
um þessar mundir en það er rétt að
minna á það, að lög um vinnumark-
aðsaðgerðir kveða á um skyldu
hins opinbera til að standa fyrir
þjónustu og viðeigandi aðstoð til
atvinnuleitendur til að verða virkir
þátttakendur á vinnumarkaði,“
sagði Gissur.
Þetta skuli gert með vinnu-
markaðsaðgerðum á borð við
vinnumiðlun, mat á hæfni atvinnu-
leitanda og skipulagi úrræða sem
eru til þess fallin að auka vinnu-
færni hans. „Það er afar brýnt að
þessum kringumstæðum verði ekki
mætt með hringlandahætti í skipu-
lagi og fjárveitingum, hagsmuna-
skaki og dreifingu kraftanna,“
sagði hann.
Gissur sagði að dæmin af alvar-
legu atvinnuleysi í Evrópu sýndu
að „órói, tortryggni og vantrú ein-
staklinganna gagnvart kjörnum
stjórnvöldum sem ráða ekki við
þróun efnahagsmála eða sýna ekki
aðgerðir til að spyrna við fæti, fer
vaxandi.
Við aðstæður sem þessar er
afar brýnt að stjórnvöld og
hagsmunasamtök fyrir-
tækja og launafólks samein-
ist um aðgerðir sem a.m.k.
hafi líknandi áhrif á það
ástand sem var-
ir, þar sem
lækningin felst
vitaskuld í
engu öðru en
öflugu at-
vinnulífi.“
Tæma réttindin og
óljóst hvað bíður
Forstjóri VMST varar við hringlandahætti um úrræði
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verði bráðabirgðaákvæði um rétt til
greiðslu atvinnuleysistryggingabóta í
fjögur ár ekki framlengt um áramót-
in, gæti fjöldi þeirra sem þurfa á fjár-
hagsaðstoð sveitarfélaga að halda eft-
ir að hafa misst rétt til atvinnu-
leysisbóta orðið um 3.600 í lok næsta
árs og meira en tvöfaldast á einu ári.
Áætlaður kostnaður sveitarfélag-
anna vegna einstaklinga sem misst
hafa bótarétt eftir langtímaatvinnu-
leysi og þurfa á fjárhagsaðstoð að
halda gæti þá verið kominn í 5,5,
milljarða kr. í lok næsta árs ef gengið
er út frá því að fjárhagsaðstoð til
hvers einstaklings sé að meðaltali 150
þús. kr. á mánuði.
Þessar upplýsingar komu fram í
erindi Gyðu Hjartardóttur, fé-
lagsþjónustufulltrúa Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, á fjármálaráð-
stefnu sveitarfélaga í gær.
Fram kom í erindi Gyðu að ef
bráðabirgðaákvæðið yrði ekki fram-
lengt hefðu 1.600 manns fullnýtt rétt
sinn til atvinnuleysisbóta um næstu
áramót. Því til viðbótar munu 120-170
manns fullnýta bótarétt sinn um hver
mánaðamót á næsta ári.
Ný könnun sýnir að þeim sem sóttu
um fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna
vegna atvinnumissis og eru án bóta-
réttar fjölgaði jafnt og þétt á þessu
ári. Þeir voru 1.361 í janúar sl. en
1.476 í mars svo dæmi séu nefnd.
Gyða segir í samtali við Morgun-
blaðið að fundað sé með fulltrúum í
velferðarráðuneytinu þessa dagana
þar sem m.a. er rætt um að koma af
stað mótvægisaðgerðum vegna þess-
ara stórauknu verkefna sveitarfélag-
anna.
Hugmyndir um tryggingagjald
Forsvarsmenn sveitarfélaga hafa
sett fram hugmyndir um að til að fjár-
magna þessi verkefni renni hluti
tryggingagjalds til þessa, sem gæti
skilað samtals 1,8 milljörðum kr. á
ári. Gyða segir að þessi fjármunir
yrðu þá m.a. nýttir í vinnumarkaðs-
aðgerðir fyrir þetta fólk sem misst
hefur bótaréttinn og þarf á fjárhags-
aðstoð sveitarfélaganna að halda.
Hún segir að til að sveitarfélögin geti
tekið við þessum hópi þurfi þau tæki
og tól til að sinna þessari nærþjón-
ustu. Hafa sveitarfélögin m.a. talið
nauðsynlegt að gerðar verði breyt-
ingar á lögunum um félagsþjónustu
og að sérfræðingar starfi á vegum
sveitarfélaganna til að meta stöðu og
starfshæfni hvers og eins atvinnuleit-
anda sem þarf á fjárhagsaðstoð að
halda.
„Sveitarfélögin eru ekki að víkja
sér undan þessari samfélagslegu
ábyrgð, heldur eingöngu að takast á
við breytta tíma,“ segir Gyða.
Af gögnum má sjá að ef fjöldi at-
vinnulausra sem eru að notfæra sér
úrræði fyrir atvinnulausa og fjöldi
þeirra sem njóta fjárhagsaðstoðar
sveitarfélaga vegna atvinnumissis er
bætt við fjölda atvinnulausra á skrá
kemur í ljós að atvinnuleysið var 6,5%
í júní en ekki tæplega 5% eins og tölur
um fjölda á skrá hjá VMST sýndu.
Tvöfalt fleiri
sem þurfa
fjárhagsaðstoð
Fjölgar stöðugt í hverjum mánuði
Framtíðarspá fyrir
fjárhagsaðstoð
sveitarfélaganna
Fjöldi einstaklinga ef bráðabirgða-
ákvæði verður framlengt
Fjöldi einstaklinga ef bráðabirgða-
ákvæði verður ekki framlengt
Júní 2012 Des. 2013
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0 Heimild: Vinnumálastofnun
Þurfa fjárhagsaðstoð
» Heildarfjöldi þeirra sem
fengið hafa fjárhagsaðstoð
sveitarfélaganna var 7.715 á
seinasta ári en þeir voru 5.994
á árinu 2009 og hefur farið
jafnt og þétt fjölgandi.
» Forsvarsmenn sveitarfélag-
anna telja nauðsynlegt að
lagagrundvöllur fjárhags-
aðstoðarinnar verði skýr og
hafa skorað á velferð-
arráðherra að skipa starfshóp
um málið án tafar.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Ég er mjög meðvitaður um fjár-
hagsstöðu lögreglunnar sem og ann-
arrar starfsemi sem undir innan-
ríkisráðuneytið heyrir. Þar vil ég til
dæmis nefna embætti sýslumanna.
Mér finnst fullkomlega eðlilegt að
menn láti í sér heyra með varnaðar-
orðum eins og lögreglan hefur gert
og fulltrúar annarrar starfsemi
einnig beint við mig,“ segir Ög-
mundur Jónasson innanríkis-
ráðherra, spurður út í stöðu lög-
gæslumála í landinu. Eins og komið
hefur fram í Morgunblaðinu síðustu
daga eru lögreglumenn orðnir lang-
þreyttir á niðurskurði og hafa
áhyggjur af því að hann endi með
stórslysi, en vegna mannfæðar þurfa
þeir orðið að velja á milli slysa eftir
því hvert þeirra hljómar alvarlegast
og geta ekki sinnt hinum.
Ekkert endanlega afgreitt
Samkvæmt fjárlögum ríkisins
2013 verður ekki sett aukið fé til lög-
gæslumála í bráð. „Þegar gengið var
frá fjárlagafrumvarpinu í sumar var
gert ráð fyrir lágmarksaðhaldi með
það að markmiði að draga úr halla-
rekstri ríkisins. Jafnframt var þá
ákveðið að endurskoða útgjöldin við
aðra umræðu fjárlaga með tilliti til
tekna ríkisins þegar liði á haustið og
myndin hefði skýrst hvað tekjuhlið-
ina varðar. Það breytir því ekki að
við verðum að horfast í augu við erf-
iðan fjárhag ríkisins. En það er ekk-
ert endanlega afgreitt í þessu efni
fyrr en fjárlög hafa verið sam-
þykkt,“ segir Ögmundur.
Fullkomlega eðlilegt að
menn láti í sér heyra
Morgunblaðið/RAX
Að störfum Lögreglumenn eru
orðnir langþreyttir á niðurskurði.
Ráðherra með-
vitaður um stöðu
lögreglunnar
Útreikningar standa yfir hjá
Vinnumálastofnun vegna end-
urgreiðslna atvinnuleysisbóta
til um 2.000 einstaklinga í
hlutastörfum, sem fengu of
litlar bætur vegna rangra út-
reikninga allt frá 1. september
2010. Alls þarf að endurgreiða
250 milljónir, sem sækja þarf
um á fjáraukalögum. Ekki ligg-
ur fyrir hversu háa greiðslu
hver og einn fær en upphæð-
irnar eru misháar. Skv. upplýs-
ingum Vinnumálastofnunar
má ætla að upphæðirnar sem
um ræðir geti verið á bilinu 2
til 4 þúsund fyrir hvern mán-
uð sem viðkomandi var á
bótum. Bæturnar verða
greiddar 5. okt. Stór
hluti fjárhæðarinnar
mun fara í staðgreiðslu
skatta og hluti fer einnig
til skuldajöfnunar
vegna of-
greiddra bóta
sem hluti
hópsins kann
að hafa feng-
ið.
2-4 þúsund á
hvern mánuð
ENDURGREIÐSLA BÓTA
Gissur Pétursson
Morgunblaðið/Golli
Vandi Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að þótt atvinnuleysi hafi minnkað sé enn stór hópur langtímaatvinnu-
lausra sem ekki hafi fundið starf við hæfi og vandi hans hverfi ekki þó að hann missi rétt til atvinnuleysisbóta.
ÞÚ LEGGUR HANA
EKKI FRÁ ÞÉR!
www.forlagid.i s – alvöru bókaverslun á net inu
EFTIR
HÖFUND
DÁVALDSINS
NÝ
KILJA