Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Viðskiptavinir Sjávarbarsins á Grandagarði gátu í gær gætt sér á sjald-
gæfum fiski, dílamjóra. Aðeins voru veidd rúmlega 300 kg af þessum djúp-
sjávarfiski við Ísland í fyrra. „Hann minnir svolítið á steinbít og hlýra en
minni og fínni í sér, stinnur og fallegur og holdið er hvítt, við steikjum
þetta eins og steinbít. Það er gaman að vera með eitthvað sem er dálítið
öðruvísi,“ segir Magnús Ingi Magnússon veitingamaður.
Skrítinn fiskur í boði
Morgunblaðið/Kristinn
Bæði Benedikt Bogason og Helgi I.
Jónsson sem voru skipaðir í embætti
hæstaréttardómara frá og með 1.
október nk. hafa starfað sem hæsta-
réttardómarar í tæpt ár í afleys-
ingum. Aðeins annar þeirra var sett-
ur dómari en Benedikt gegndi stöðu
sem Páll Hreinsson er skipaður í en
hann er í leyfi. Gera má ráð fyrir að
Hæstiréttur fari fram á að sú staða
verði auglýst og að dómarar verði þá
aftur tólf eins og verið hefur eftir að
þeim var fjölgað um þrjá fyrir nokkr-
um misserum, segir í svari frá innan-
ríkisráðuneytinu við spurningu um
hvort ráðið verði í fyrri stöður Helga
og Benedikts. Þeir setjast nú í stóla
Garðars Gíslasonar og Jóns Steinars
Gunnlaugssonar sem láta af störfum
um mánaðamótin.
Hæstaréttardómarar
verða áfram tólf
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Kallað hefur verið eftir kröfum í
þrotabú félagsins Brooks Trading
Ltd, sem skráð er á Tortola á
Bresku Jómfrúaeyjunum. Félagið
var í eigu Sheikh Mohammed bin
Khalifa Al-Thani, sjeiksins frá Kat-
ar sem forráðamenn Kaupþings
kynntu til sögunnar á sínum tíma
sem kaupanda að 5% hlut í bank-
anum. Innköllun krafna er auglýst í
Lögbirtingablaðinu.
Félagið fékk
lán frá Kaupþingi
upp á 50 milljónir
dollara skömmu
fyrir bankahrun-
ið 2008, jafnvirði
6,2 milljarða
króna. Var félag-
ið fyrst og fremst
stofnað kringum
þessa lántöku hjá
Kaupþingi en fram kom í fjölmiðlum
í mars á þessu ári að slitastjórn
Kaupþings ætlaði að stefna Al-
Thani til fullrar greiðslu á láninu.
Átti að höfða málið fyrir íslenskum
dómstólum en talsmaður slitastjórn-
ar vildi ekki gefa upplýsingar um
hvar málið væri statt..
Lánið var veitt til Brooks Trading
til móts við framtíðarávinning sem
gæti skapast vegna kaupa félagsins
á lánshæfistengdu skuldabréfi, sem
gefið var út af Kaupþingi. Var lánið
veitt án persónulegrar ábyrgðar Al-
Thanis og hefur verið hluti af svo-
nefndri Al-Thani fléttu sem emb-
ætti sérstaks saksóknara hafði til
rannsóknar og gaf síðar út ákæru á
hendur stjórnendum Kaupþings.
Fyrirtaka í því máli fer einmitt
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur eft-
ir helgi.
Frestur til að lýsa kröfum í bú
Brooks Trading er til 11. október
nk. Talsmaður slitastjórnar Kaup-
þings vildi ekki staðfesta að hún
væri með kröfu í búið, þar sem slita-
stjórnin tjáði sig ekki um málefni
einstakra viðskiptavina. Ekki náðist
í skiptastjóra búsins en hann var
skipaður í mars árið 2010.
Félag Al-Thanis gjaldþrota
50 milljón dollara lán frá Kaupþingi eina eignin Hluti af Al-Thani fléttunni
sem stjórnendur Kaupþings eru ákærðir fyrir Fyrirtaka í héraðsdómi eftir helgi
Sjeikinn Al-Thani
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á kjöti og fiski hefur hækkað
milli ára og eru dæmi um verulegar
verðhækkanir. Verð á mjólk og eggj-
um er einnig að hækka.
Þetta má lesa út úr verðkönnun
Hagstofu Íslands en þar kemur
meðal annars fram að verð á hangi-
kjötsáleggi hefur hækkað úr 3.872
krónum kílóið í ágúst í fyrra í 4.449
krónur kílóið í ágúst í sumar. Nemur
hækkunin 15% á einu ári.
Af öðrum dæmum, sem rakin eru í
grafinu hér til hliðar, má nefna að
kílóverð á úrbeinuðu hangilæri hef-
ur hækkað úr 1.798 í 3.119 krónur
eða um rúmlega 73%.
Lambalærið hefur hins vegar
lækkað milli ára, fer úr 1.445 krón-
um kílóið í 1.375 krónur.
Mikil breyting á tveim árum
Athygli vekur að heill frosinn
kjúklingur hefur hækkað úr 539
krónum kílóið í ágúst 2010 í 763
krónur kílóið í ár, hækkun sem nem-
ur 42%. Svínakótelettur hafa hækk-
að mikið frá því í fyrra, fara úr 1.116
krónum í 1.418 krónur og hafa því
hækkað um 27% á einu ári. Verðið
var 1.042 krónur í ágúst 2010 og er
hækkunin síðan þá um 36%.
Fersk ýsuflök kosta aftur á móti
svipað og í fyrra en þau hækka úr
1.443 krónum í 1.458 krónur, hækk-
un sem ekki fylgir verðbólgu á tíma-
bilinu. Þá er lax ódýrari en í fyrra en
verðið fer úr 2.051 krónu í 1.984
krónur. Rækja hækkar hins vegar
mikið, fer úr 1.172 krónum í 1.414
krónur og hækkar um 21%.
Mjólkurvörur hafa hækkað í öllum
tilvikum í verðkönnun Hagstofu Ís-
lands og sker verðhækkun á skyri
sig úr, en það hækkar úr 340 krón-
um í fyrra í 400 krónur eða um 18%.
Jógúrt með ávöxtum hækkar úr 479
krónum í 520 krónur eða um 9%.
Tekið skal fram að nokkrir vöru-
flokkar hafa lækkað en mikill meiri-
hluti varanna hefur hækkað.
Hækkandi áburðarverð
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur
hjá Bændasamtökum Íslands, hefur
skoðað alþjóðlega þróun á verði bú-
vara. „Verð á aðföngum hefur farið
hækkandi, korn- og fóðurverð hækk-
aði nú í sumar. Þróunin á sér lengri
aðdraganda. Búvörur hafa hækkað
varanlega í verði á síðustu fimm ár-
um að mati alþjóðastofnana.
Í sumar varð mikill uppskeru-
brestur, öndvert við það sem búist
var við í fyrravetur. Kornfram-
leiðslan er áhrifamesti þátturinn í
þessu en litlar birgðir undanfarin ár
ýta undir verðsveiflur og verðhækk-
anir nú í sumar,“ segir Erna
Ágúst Ágúst Ágúst Ágúst Ágúst
Kjötvörur 2008 2009 2010 2011 2012
Dilkakjöt, súpukjöt, kg 542 655 643 835 852
Dilkakjöt, læri, kg 1.221 1.217 1.081 1.445 1.375
Dilkakjöt, lærissneiðar, kg 1.748 1.879 1.166 1.509 1.744
Dilkakjöt, hryggur, kg 1.422 1.498 1.413 1.782 1.809
Dilkakjöt, kótelettur, kg 1.657 1.825 1.718 1.803 2.067
Nautakjöt, gúllas, kg 1.816 1.930 2.137 2.330 2.245
Svínakjöt, læri með beini, kg 797 848 883 949 1.017
Svínakjöt, kótelettur, kg 1.422 1.028 1.042 1.116 1.418
Heill frosinn kjúklingur, kg 463 520 539 733 763
Dilkalifur, kg 375 394 406 421 431
Dilkakjöt, léttsaltað, kg 605 763 624 678 681
Dilkahangikjöt, læri úrbeinað, kg 1.587 .. 2.399 1.798 3.119
Nautakjöt, hakkað, kg 1.251 1.252 1.217 1.404 1.451
Kjötfars, kg 499 552 368 530 555
Vínarpylsur, kg 1.008 1.105 1.176 1.069 1.164
Kindabjúgu, kg 603 615 631 674 725
Lifrarkæfa, kg 1.242 1.261 1.388 1.480 1.444
Hangikjötsálegg, kg 3.562 3.790 3.721 3.872 4.449
Skinka, kg 2.254 2.488 2.590 2.683 2.820
Ýsuflök fersk, kg 1.130 1.233 1.425 1.443 1.458
Ýsa slægð og hausuð, kg 592 622 743 939 939
Stórlúða, kg 2.040 2.202 2.501 2.716 2.990
Rækjur, frystar, kg 790 1.052 1.120 1.172 1.414
Lax, kg 1.104 1.396 1.782 2.051 1.984
Saltfiskur, kg 1.338 1.389 1.480 1.551 1.594
Harðfiskur, kg 5.817 6.196 7.607 8.141 8.415
Mjólkurvörur og egg
Nýmjólk, l 91 109 105 114 121
Kókómjólk, l 269 314 316 328 352
Súrmjólk, l 125 157 156 173 185
Skyr, kg 260 295 296 340 400
Jógúrt,með ávöxtum, kg 328 455 455 479 520
Rjómi, l 776 815 823 842 898
Mjólkurostur, brauðostur 26%, kg 1.105 1.217 1.244 1.319 1.379
Mjólkurostur, Gouda 17%, kg 1.035 1.160 1.171 1.181 1.330
Egg, kg 463 554 533 605 645
Smjör, kg 471 573 564 626 673
Smjörlíki, kg 310 432 417 441 519
Verð á nokkrum vörutegundum og þjónustu
Miðað við verðlag á öllu landinu
Heimild: Hagstofa Íslands
Verð á kjöti og fiski
hækkar milli ára
Rækja 21% dýrari Úrbeinað hangilæri 73% dýrara
Morgunblaðið/Ómar
Kjötborð Verð á kjöti hefur hækkað á milli ára. Hækkunin er mismikil.
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi
sími: 488 - 9000
www.samverk.is
samverk@samverk.is
Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf
Víkurhvarfi 6, 230 Kópavogi