Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Hausthefti Þjóðmála er komiðút og er að vanda fullt af for- vitnilegu efni fyrir áhugamenn um stjórnmál og þjóðmál í víðum skiln- ingi.    Þetta hefti berþess nokkur merki, eins og við er að búast af þjóð- málatímariti, að nú styttist í prófkjör og kosningar og á síðum þess er að finna nokkrar um- hugsunarverðar greinar þessu tengdar.    En þar er einnig að finna efnióskylt væntanlegum alþing- iskosningum, svo sem greinina Brandarinn farinn að súrna eftir Ragnhildi Kolka, þar sem hún fjallar um stjórn Besta flokksins í borginni og færir rök fyrir því að glansinn sé farinn af vörumerkinu „Jón Gnarr“, eins og það er orðað.    Ragnhildur kemur víða við íádeilu sinni á borgaryfirvöld og segir meðal annars: „Jón Gnarr er ekki bara persóna heldur líka hersingin sem rann inn í borg- arstjórn í kjölsoginu. Óreiðan sem fylgir er afleiðing þess að hvert og eitt kemur með sitt markmið. Allt skal vera svo smellið og sniðugt og billegar lausnir ævinlega valdar ef annað stendur til boða. Borið er við að borgin hafi úr svo litlu fjár- magni að spila. Þó er ausið í dek- urverkefni og útiskemmtanir eins og Neró sé hér við völd og pen- ingum kastað í forgengilegt rusl.“    Hún nefnir einnig stríð borg-arstjóra við aspirnar, sem lokið hafi með sigri njólans sem borgarbúar vaði nú upp í klof um alla borg, og mörg önnur dæmi sem einnig eru lýsandi fyrir þann vanda sem borgarbúar sitja uppi með enn um sinn. Njólarnir í borginni STAKSTEINAR Veður víða um heim 28.9., kl. 18.00 Reykjavík 7 heiðskírt Bolungarvík 5 heiðskírt Akureyri 6 skýjað Kirkjubæjarkl. 8 léttskýjað Vestmannaeyjar 6 heiðskírt Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 9 skúrir Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 11 léttskýjað Helsinki 12 skýjað Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 13 skýjað Glasgow 11 skúrir London 13 skýjað París 16 léttskýjað Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 17 skýjað Vín 20 skýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 20 léttskýjað Madríd 17 skúrir Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 16 alskýjað Montreal 15 skýjað New York 19 skúrir Chicago 19 skýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:33 19:04 ÍSAFJÖRÐUR 7:39 19:07 SIGLUFJÖRÐUR 7:22 18:50 DJÚPIVOGUR 7:03 18:33 Skúli Hansen skulih@mbl.is Framboð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, hefur skilað inn fjár- hagsuppgjöri sínu, árituðu af löggilt- um endurskoðanda, til Ríkisendur- skoðunar í samræmi við lög og reglur. Heildarkostnaður við framboð Ólafs Ragnars var rúmar 6,5 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 2,6 milljónir í rekstur kosningaskrifstofu fram- boðsins, tæpar 2,8 milljónir í auglýs- ingar og tæp 1,1 milljón í fundi og ferðakostnað. Þá nam annar kostn- aður framboðsins rúmum 44 þúsund krónum. Lagði fram 2,2 milljónir Tekjur framboðsins á móti fyrr- nefndum kostnaði námu rúmum 6,5 milljónum. Samtals fékk framboðið framlög frá 36 einstaklingum og námu þau í heildina rúmum 2,5 millj- ónum. Einnig fékk framboðið framlög frá níu lögaðilum og námu þau sam- tals tæplega 1,5 milljónum króna. Þá nam merkjasala framboðsins rúmum 350 þúsundum en sjálfur lagði Ólafur Ragnar tæpar 2,2 milljónir til fram- boðsins. Loks er í fjárhagsuppgjörinu tekið fram að framboðinu hafi ekki borist nein framlög, hvorki frá einstakling- um né lögaðilum, sem voru yfir 200 þúsund krónum. Framboð Ólafs Ragnars hefur skilað fjárhagsuppgjöri Framboð Forsetinn skilar uppgjöri. Morgunblaðið/Eggert Innifalið er flug með sköttum, gisting með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Verð á mann í tvíbýli: 79.900 kr. Bókaðu þig á wowtravel.is eða í síma 590 3000 Þú vilt ekki missa af þessari frábæru helgarferð. Berlín er hlaðin listum, menningu, fróðleik og ótal spennandi viðburðum af öllu tagi. Farastjóri er Hjálmar Sveinsson. Hjálmar og þú í Berlín 2. – 5. nóvember wowtravel.is Glerverksmiðjan Samverk ehf Eyjasandi 2, 850 Hella Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi sími: 488 - 9000 www.samverk.is samverk@samverk.is Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf Víkurhvarfi 6, 230 Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.