Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Baráttan um sæti á listum stærstu
stjórnmálaflokkanna er að hefjast
og fjölgar daglega framboðsyfirlýs-
ingum. Hið pólitíska landslag fer
því fljótlega að skýrast.
Unnur Brá Konráðsdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi vegna alþing-
iskosninga 2013. Hún vill að um-
sókn um aðild að Evrópusamband-
inu verði tafarlaust dregin til baka.
Þá vill hún að lögð verði fram
raunhæf áætlun í efnahagsmálum
með það að markmiði að ná tökum
á rekstri ríkissjóðs án frekari
skattahækkana.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir sæk-
ist eftir öðru sætinu hjá Sjálfstæð-
isflokknum í Suðvesturkjördæmi.
Hún segist vilja taka þátt í mótun
metnaðarfulls samfélags sem bygg-
ist á frelsi og fjölbreytni. Ragn-
heiður var oddviti sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar
frá 2002-2007 og jafnframt bæj-
arstjóri. Hún hefur setið á Alþingi
frá árinu 2007.
Jón Gunnarsson hefur ákveðið
að gefa kost á sér í 2. sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi. Jón hefur set-
ið á Alþingi síðan árið 2007 og
starfað í atvinnuvega- og velferð-
arnefnd þingsins á því tímabili.
Gunnlaugur Snær Ólafsson sæk-
ist eftir 6. sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Gunnlaugur hefur meðal annars
starfað í stjórnmáladeild Banda-
ríska sendiráðsins á Íslandi, hjá ör-
yggisdeild Bandaríska sendiráðsins
í Bagdad og sem pólitískur ráðgjafi
hjá borgarstjórnarflokki Höyre í
Ósló. Hann er upplýsingafulltrúi
hjá Heimssýn, sem berst gegn að-
ild Íslands að ESB.
Steingrímur J. Sigfússon
hefur í huga að gefa kost á sér
áfram. „Ég hef ekkert annað
gefið í skyn eða látið uppi en
að ég sé að halda áfram í
stjórnmálum.,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, að-
spurður hvort hann ætli
að gefa aftur kost á sér í
næstu þingkosningum.
Inga Sigrún Atladóttir, forseti
bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu
Vogum, hefur ákveðið að gefa kost
á sér til að leiða framboð VG í Suð-
urkjördæmi í næstu kosningum.
„Ég er nýlega gengin til liðs við
flokkinn en lengi hef ég starfað
innan Samfylkingar. Ég yfirgaf
Samfylkinguna vegna þess að fram-
kvæmd stefnu flokksins tekur að
mínu mati ekki mið af umhverf-
issjónarmiðum og berst ekki gegn
sterkri stöðu einokunar- og stórfyr-
irtækja á kostnað hagsmuna al-
mennings,“ segir í yfirlýsingu frá
henni.
Skúli Helgason hefur ákveðið að
gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
„Ég vil leggja mitt af mörkum til
nýrrar atvinnu- og menntastefnu á
komandi kjörtímabili með áherslu á
þjóðareign á auðlindum, lýðræðis-
og stjórnkerfisumbætur, aukið
vægi menntamála og fjölbreytta at-
vinnuuppbyggingu í sátt við um-
hverfið,“ segir í yfirlýsingu frá hon-
um.
Guðlaugur Gylfi Sverrisson,
verkefnastjóri hjá Úrvinnslusjóði
og fyrrverandi stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, býður sig
fram til forystu á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjavík fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Guðlaugur
Gylfi hefur lengi verið virkur í
starfi Framsóknarflokksins
Prófkjörsbaráttan að komast á skrið
Jón Gunnarsson
býður sig fram í 2.
sætið í Kraganum.
Ragnheiður Rík-
harðsdóttir stefnir
einnig á 2. sætið.
Unnur Brá vill 2.
sæti Sjálfstæðisfl. í
Suðurkjördæmi.
Steingrímur J.
Sigfússon er ekki á
förum úr pólitík.
Gunnlaugur biður
um 6. sæti í Krag-
anum hjá Sjálfstfl.
Skúli Helgason vill
2.-3. sæti Sam-
fylkingar í Rvk.
Unnur Brá sækist eftir 2. sæti í Suðurkjördæmi Steingrímur ætlar að halda áfram Ragnheiður
og Jón Gunnarsson keppa um 2. sætið í Kraganum Inga Sigrún úr Samfylkingu í framboð fyrir VG
Inga Sigrún stefnir
á framboð fyrir VG
í Suðurkjördæmi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
alþingismaður, fyrrverandi ráð-
herra og fyrrverandi varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins,
hefur ákveðið að gefa ekki kost
á sér á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðvesturkjördæmi fyrir
næstu þingkosningar. Þorgerð-
ur segist hafa notið þess að
hafa tekið virkan þátt í stjórn-
málum um langt árabil þar sem
hún hefur fengið tækifæri til að
berjast fyrir frelsi og fjölbreytni
í samfélaginu. „Ég er stolt af
þeim árangri sem náðist undir
minni forystu á sviði mennta-
og menningarmála og ekki síður
því að hafa gegnt mikilvægu
hlutverki í forystu Sjálf-
stæðisflokksins, fjöl-
mennustu stjórn-
málahreyfingar
landsins,“ sagði
Þorgerður í yfirlýs-
ingu sem hún sendi
frá sér í gær.
Þorgerður
Katrín hættir
STOLT AF ÁRANGRINUM
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Flugvöllurinn í München er anna-
samasti flugvöllur Þýskalands á eft-
ir Frankfurt, en um 38 milljónir
ferðamenn fóru um völlinn í fyrra
og er hann í sjötta sæti hvað far-
þegafjölda varðar í Evrópu.
Fulltrúar frá flugvellinum í
München og ferðaþjónustu í nær-
sveitum, meðal annars frá Týról og
Salzburg í Austurríki, kynntu svæð-
ið fyrir starfsfólki í ferðaþjónustu
hérlendis um helgina í tilefni af
heilsárs flugi Icelandair til Münc-
hen.
Margt í München
Um 98% farþega Icelandair í
flugi til München eru á leiðinni til
borgarinnar eða í næsta nágrenni.
Októberfest í München er fjölmenn-
asta bjórhátíð í heimi, Bayern
München er eitt frægasta fótbolta-
lið heims og BMV er ein þekktasta
bílategundin.
Florian Pötsch, markaðsstjóri á
flugvellinum, segir að í kynningum
sínum erlendis hafi hann fundið að
margir haldi að Þýskaland snúist
fyrst og fremst um viðskipti, fundi
og ráðstefnur. Það sé aukinheldur
dýrt land að heimsækja en þvert á
móti sé Þýskaland áhugavert ferða-
mannaland sem þurfi ekki að kosta
svo mikið. Hann nefnir sem dæmi
að hægt sé að fá góð hótelherbergi í
miðbæ München á góðu verði og
bílaleigubílar séu ódýrari en í ná-
grannalöndunum. München eigi sér
langa sögu og þar séu til dæmis
sögufrægir kastalar og kirkjur, torg
og garðar, merk listasöfn og tónlist-
arhús, margir þekktir viðburðir og
hátíðir. „München er borg menning-
ar og lista,“ segir hann og bendir
meðal annaras á að safn BMV vekji
mikla athygli auk þess sem gestir
geti fylgst með framleiðslunni. Nýi
fótboltavöllur Bayern München sé
líka mikið aðdráttarafl. Þess má
geta að tveir íslenskir fótboltamenn
hafa leikið með Bayern, Ásgeir Sig-
urvinsson og Andri Sigþórsson.
Alparnir í næsta nágrenni
Florian Pötsch segir að ferða-
menn, sem komi til München, sam-
eini gjarnan borgarlífið og náttúr-
una. Alparnir séu í næsta nágrenni
við borgina og ekki taki nema hálf-
tíma að aka upp í fjöllin. Zugspitze,
hæsta fjall Þýskalands, sé aðeins í
klukkutíma akstursfjarlægð frá
München. Neuschwanstein-kastali,
fyrirmynd kastalans í Disneylandi
og vinsælasti ferðamannastaður
Þýskalands, sé líka skammt frá
borginni. Aðeins taki um einn og
hálfan tíma að aka til Salzborgar,
þar sem Mozarts sé reglulega
minnst með margvíslegum hætti, og
útivistarsvæðin í Týrol séu ekki
langt frá. Swarovski-kristalverk-
smiðjurnar séu innan seilingar og
svo megi lengi telja. „Verkefni
ferðamannsins eru óþrjótandi í
München og nágrenni og boðið er
upp á dagsferðir og lengri ferðir við
allra hæfi,“ segir Florian Pötsch.
Bæjaraland í Þýskalandi er
meira en bílar, bjór og bolti
Flugvöllurinn í München mikið aðdráttarafl og næst annasamasti flugvöllur Þýskalands
AFP
Fjölmennasta bjórhátíðin Októberfest í München hófst um liðna helgi og lýkur eftir rúma viku. Um sex milljónir
sækja árlega þessa fjölmennustu bjórhátíð heims og þjónustufólk hefur vart undan að bera fram ölið.
Morgunblaðið/RAX
Ferðir Þorvarður Guðlaugsson,
svæðisstjóri Icelandair á Íslandi, og
Florian Pötsch á kynningunni.
„Flugvöllurinn í München er
ekki aðeins flugvöllur heldur er
lögð áhersla á að farþeginn finni
að hann sé kominn á áfanga-
stað,“ segir Florian Pötsch,
markaðsstjóri á flugvellinum.
Hann nefnir að flugvöllurinn sé
með sitt eigið bjórbrugghús og
stór kanna kosti liðlega tvær
evrur eða um 350 krónur. Sér-
stakur jólamarkaður með um 50
búðum og skautasvelli sé í flug-
stöðinni og á sumrin sé öldu-
sundlaug í gangi, strand-
blakvellir og fleira. Auk þess sé
margt þar sem vekji athygli á
Bæjaralandi. „Hugmyndin er að
láta fólki líða það vel að það vilji
ekki fara,“ segir hann. Florian
Pötsch bætir við að margir geri
sér ferð í flugstöðina án þess að
vera að fara í flug. „Það er svo
mikið um að vera og margt í
boði,“ segir hann.
Heimur út
af fyrir sig
FLUGVÖLLUR MEÐ ÖLLU
Vetur Flugvöllurinn í München.
Guðlaugur vill leiða
lista Framsóknar-
flokksins í Rvk.