Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
www.forlagid.is
Nú loks fáanleg aftur
í handhægu broti
með mjúkum spjöldum.
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Versta niðurstaða átakanna í Sýr-
landi væri sú að í stað þeirra stjórn-
valda sem nú fara með völd, tæki við
stjórnarfar sem einkenndist af átök-
um ólíkra minnihlutahópa, segir Jo-
seph Maila, yfirmaður stefnumótun-
ar franska utanríkisráðuneytisins.
Maila, sem er sérfræðingur í málefn-
um arabaríkjanna, er staddur hér á
landi á vegum franska sendiráðsins
og Alþjóðamálastofnunar og hélt í
gær fyrirlestur í Háskóla Íslands um
átökin í Sýrlandi.
Um 26 þúsund manns hafa látist og
200 þúsund særst í átökunum milli
stjórnarhers forsetans Bashar al-As-
sad og uppreisnarmanna frá því í
mars á síðasta ári og hafa hundruð
þúsunda almennra borgara flúið
heimili sín. Eins og víðar í arabalönd-
unum hefur sýrlenska þjóðin kallað
eftir lýðræðisumbótum en hefur ver-
ið svarað með sívaxandi hörku, kúgun
og ofbeldi.
Maila segir nær að tala um arabísk
vor en arabískt vor þegar rætt sé um
öldu uppreisna í arabaríkjunum, þar
sem pólitískar og efnahagslegar að-
stæður hafi verið afar ólíkar í t.d.
Túnis, Egyptalandi, Jemen og Sýr-
landi, og eftirmál byltinganna sömu-
leiðis mismunandi frá einu landi til
annars. Hins vegar hafi krafan alls
staðar snúið að innleiðingu lýðræðis,
að réttinum til þátttöku og kröfu á
reisn. Það sem liggi á að tryggja í
Sýrlandi sé að baráttan fyrir lýðræði
þróist ekki út í stríð innan samfélags-
ins.
„Þetta er kapp í átt til þess að ná
samstöðu gegn pólitískri sundrung
en hættan er ekki pólitísk sundrung
sem slík, heldur sundrung innan sam-
félagsins. Þannig mun liggja á að
mynda nýja ríkisstjórn; andspyrnu-
öflin þurfa að finna einhvern sáttar-
grundvöll, þannig að þau geti leitt
baráttuna gegn sundrung milli sér-
trúarhópanna,“ segir Maila.
Maila segir Assad stóla á að átök
breiðist út milli minnihlutahópanna í
landinu en þannig muni hann rétt-
læta að halda í völdin. „Eina leiðin
fyrir hann til að komast undan er að
segja sem svo: „Sjáið bara, þetta
snýst ekki um lýðræði, heldur um
einn minnihlutahóp sem berst gegn
öðrum minnihlutahóp. Og barátta
mín gegn þeim er lögmæt, þar sem
þeir eru að reyna að útrýma hvor öðr-
um“,“ segir Maila.
Óásættanleg rök
Hann segir að það verði á endanum
sýrlenska þjóðin sem frelsar Sýrland
undan ógnarstjórn Assad en hann
segir rök Kína, Rússlands og jafnvel
Brasilíu fyrir því að koma sýrlensku
þjóðinni ekki til aðstoðar, óásættan-
leg. Þessi ríki hafi brigslað öðrum
þjóðum um að vilja steypa sýrlensku
stjórninni af stóli undir yfirskini
mannúðarsjónarmiða en það sé ekki
hlutverk þeirra að hafa afskipti af
innanríkismálum fullvalda ríkja.
„Við stöndum andspænis óyggj-
andi aðstæðum, hann er að myrða
fólkið sitt, og þeir segja að við ættum
ekki að skipta okkur af, af því að
þetta er sjálfstætt og fullvalda ríki?
Ég get ekki samþykkt slíka rök-
semdafærslu,“ segir Maila en hann
segir þjóðirnar eiga ákveðinna hags-
muna að gæta í þessu sambandi, þar
sem Kína, til dæmis, gæti einn daginn
þurft að takast á við byltingu í Tíbet
og sjái sér þannig ekki hag í því að
setja fordæmi fyrir inngripi erlendra
ríkja.
Vopnabúrið áhyggjuefni
Maila segir átökin í Sýrlandi vissu-
lega hafa áhrif á stöðu mála milli Ísr-
aels og Írans en verði sýrlensku
stjórninni steypt af stóli verði Íran af
mikilvægum bandamanni og muni til
dæmis missa áhrif sín við austanvert
Miðjarðarhaf. Maila segir Ísraela á
hinn bóginn uggandi yfir því hvað
verði um hið gríðarstóra vopnabúr
Sýrlands, þá ekki síst efnavopnin.
Vopnabúr Líbíu hafi verið skilin eftir
óvarin og eftirlitslaus þegar Gaddafi
var steypt af valdastóli og það sé
áhyggjuefni í hvaða höndum efna-
vopn Sýrlands endi.
Maila segir að ómögulegt hafi verið
að spá um þá hrinu uppreisna sem
farið hafi um arabaheiminn en að
spilling, atvinnuleysi meðal ungu
kynslóðarinnar og síhækkandi raddir
sem kölluðu eftir umbótum, hafi þó
gefið ákveðnar vísbendingar. Hann
segir athyglisvert hvernig bylting-
arnar hafi einskorðast við lýðveldis-
ríki en ekki borist til konungsveld-
anna.
„Mín skoðun er sú að konungsveld-
in grundvallist á mun djúpstæðari og
sterkari hefðum en stjórnirnar sem
rekja uppruna sinn til valdarána
sjötta og sjöunda áratugarins. Þessar
stjórnir hafa misst lögmæti sitt, það
sem þær lofuðu stóðst ekki og orð-
ræða þeirra nær ekki til kynslóðanna
í dag,“ segir Maila.
Hætta á sundrung í samfélaginu
Mikilvægt að samstaða náist meðal andspyrnuaflanna í Sýrlandi, segir sérfræðingur Óásættanlegt
að nota fullveldi landsins sem rök gegn því að koma fólki til aðstoðar Konungsveldin ónæmari
Morgunblaðið/Kristinn
Sýrland Maila segist bæði bjartsýnn og svartsýnn á ástandið en er þess viss að umbótasinnar hafi sigur að lokum.
Holti – Á vatnasvæði Holtsóss undir Eyjafjöllum
renna margar ár, sem þekktar eru fyrir silungsveiði
og að lax gengur í þær á haustin. Nýlega kastaði
Kristinn Ágúst Sigurlaugsson fyrir fisk í Kelduáln-
um í landi Guðmundar Ragnarssonar á Núpi, sem
sagði fréttaritara af viðureign Kristins við laxinn,
sem tók langan tíma. Fór svo að lokum að hann
þurfti að síma eftir hjálp við að landa laxinum. Jó-
hann Jensson á Fit kom til hjálpar með háf og
myndavél til að festa þetta í minni; stærsta veiddan
lax undir Eyjafjöllum þetta sumarið, 19,8 pund, 99
sentimetrar á lengd.
Veiðimaðurinn símaði eftir aðstoð
Ljósmynd/Jóhann Jensson
Veiði er lokið eða að ljúka í flestum
laxveiðiám landsins.
Rangárnar eru undantekning, þar
mun veiði halda áfram langt fram í
næsta mánuð.
Á vef Landssambands veiðifélaga,
www.angling.is, segir að óvíst sé enn
hvort samanlagður afli sumarsins
nái 22.000 löxum, en það verði ekki
fjarri því. Síðasta vika skilaði 765
löxum samanlagt og er þá heildarafl-
inn kominn upp í 21.277 fiska.
„Ekki er hægt að segja annað en
að þessi lélegu aflabrögð eru okkur
öllum mikil vonbrigði. Vonandi verð-
ur þetta sumar einstakt hvað afla-
brögð snertir og næsta veiðitímabil
betra,“ segir á vefnum. Ytri-Rangá
heldur sem fyrr toppsætinu með
4.122 laxa. Þar hafa veiðst 10-30 lax-
ar á dag undanfarna daga. Eystri-
Rangá kemur næst með 2.816 laxa
og í þriðja sæti er Miðfjarðará með
1.610 laxa. sisi@mbl.is
Stefnir í 22 þúsund laxa veiði