Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Komdu á frumsýningu á Volvo V40 í Brimborg, Bíldshöfða 6 í dag.
Lifðu í Lúxus. Komdu í kaffi milli kl. 12 og 16.
Volvo V40 Kinetic
D2 dísil, 5 dyra, 115 hö, 6 gíra beinskiptur, eldsneytisnotkun
í blönduðum akstri 3,6 l/100km, CO2 94 g/km, fær frítt í stæði
í 90 mínútur í senn í Reykjavík.
Verð frá 4.590.000 kr.
Mánaðargreiðsla frá 29.752 kr./mán.*
Volvo V40 fæst sjálfskiptur
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | volvo.is
* Miðað er við óverðtryggðan grænan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 2.800.000 kr. Hlutfallstala kostnaðar 10,37%. Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur veri
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins
leggur til að aflamark í kolmunna verði aukið
á næsta ári en að minna verði veitt af norsk-
íslenskri vorgotssíld og makríl en veitt var
árið 2012. Ráðgjafanefndin fjallaði nýlega um
ástand nokkurra stofna uppsjávarfiska í
Norðaustur-Atlantshafi og gerði tillögur um
nýtingu þeirra.
Aflamark í kolmunna verður 643.000
tonn árið 2013 samkvæmt aflareglu. Sam-
kvæmt hlutdeild Íslendinga fáum við að veiða
113.000 tonn af kolmunna á næsta ári. Það er
veruleg aukning en á þessu ári var aflamarkið
391.000 tonn og hlutur Íslendinga af því
69.000 tonn.
Hrygningarstofn norsk-íslensku vorgots-
síldarinnar hefur verið að minnka og þykir
fyrirséð að sú þróun haldi áfram. Aflamark
árið 2013 verður 619.000 tonn og hlutur Ís-
lendinga í því um 90.000 tonn. Hlutur Íslands
árið 2012 var 120.000 tonn af norsk-íslenskri
vorgotssíld.
Hrygningarstofn makríls var metinn
vera um þrjár milljónir tonna á árunum 2009-
2011 en um 2,7 milljónir tonna á þessu ári.
Verði aflinn samkvæmt aflareglu á næsta ári
er gert fyrir að hrygningarstofninn verði um
2,6 milljónir tonna árið 2014. Samkvæmt afla-
reglu sem notuð hefur verið undanfarin ár er
aflamark ársins 2013 í makríl 497.000-542.000
tonn. Á þessu ári var það 586.000-639.000
tonn. Áætlaður heildarafli á árinu 2012 er um
930.000 tonn. Þar af er makrílafli Íslendinga
áætlaður um 150.000 tonn.
Minnkunin innan skekkjumarka
Björn Ævarr Steinarsson, sviðsstjóri
veiðiráðgjafarsviðs Hafrannsóknastofnunar-
innar, á sæti í ráðgjafarnefnd Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins fyrir Íslands hönd.
Hann sagði að hrygningarstofn makríls væri
m.a. að minnka vegna þess að lélegri árgang-
ar væru að koma inn í stofninn en minnkun
stofnstærðar væri þó innan eðlilegra skekkju-
marka.
„Hann hefur vissulega minnkað meira en
reiknað var með m.a. vegna þess að aflinn var
umfram það sem hann hefði átt að vera skv.
aflareglu.“
Björn benti á að ekki væri hægt að eigna
einni þjóð umfram aðra umframaflann sem
var upp á um 300.000 tonn. Sem kunnugt er
hefur ekki náðst samkomulag milli þeirra
þjóða sem veiða úr makrílstofninum um
skiptingu aflamarks.
Telur að um vanmat sé að ræða
„Ég tel að endurskoða þurfi mat Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins á makrílstofninum
og taka tillit til þess að um árabil fölsuðu
ýmsar Evrópusambandsþjóðir og Norðmenn
aflatölur gróflega. Það hefur mikil áhrif á
stofnmatið og ég tel óhætt að fullyrða að um
verulegt vanmat sé að ræða,“ sagði Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í frétt
á heimasíðu Landssambandsins í gær.
„Hvað ráðgjöf um kolmunna og síld varð-
ar er hún eins og við var búist. Kolmunn-
astofninn er að ná sér vel á strik en því miður
hefur nýliðun í norsk-íslenska síldarstofninum
verið mjög slök á síðustu árum og hann á
hraðri niðurleið,“ er haft eftir Friðriki. »43
Meiri kolmunni, minni síld og makríll
Ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins gefur út ráðgjöf um aflamark þriggja tegunda upp-
sjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi Kolmunnakvóti Íslendinga verður 113.000 tonn á næsta ári
Makríll Hrygningarstofn makríls minnkar
samkvæmt mati Alþjóðahafrannsóknaráðsins.