Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Komdu á frumsýningu á öruggasta bíl í heimi í Dag**
Þetta er þitt líf
Njóttu þess með Volvo V40
** “Að vera heimsins öruggasti bíll er ekki slæmur titill að bera sem nýliði, en Euro NCAP fann út úr því við prófanir á Volvo V40 að enginn bíll sem þar hefði verið prófaður
áður væri öruggari.“ http://www.mbl.is/bill/domar/2012/09/06/luxus_lipurta/
Volvo V40 - Svo mikið þú
Lifðu í lúxus. Veldu Volvo. Spyrðu um Spartækni Volvo.
• Frumsýndur 29. september
• Viðamikill öryggisbúnaður
• Fyrirtækjabíll ársins 2012 í
Danmörku
• Fullt hús í árekstrarprófunum
Euro NCAP
• Öruggasti bíll í heimi**
• Líknarbelgur fyrir vegfar-
endur staðalbúnaður
Leiðist þér að aka bíl sem er einskonar neyðarhylki? Ekki skemmtilegur, ekki fallegur, ekki tæknilega full-
kominn eða nægjanlega öruggur? Bara bíll til að koma þér á milli staða? Það ert ekki þú... er það? Þetta
er þitt líf. Láttu ekki spilla því fyrir þér. Lifðu því! Komdu og sjáðu bíl nútímans. Arfleifð skandinavískrar
hönnunar. Nýja afsprengi vitsmuna og fegurðar. Sjáðu nýjan Volvo V40 á frumsýningu hjá Brimborg. Nýr
Volvo V40 skarar fram úr. Eins og þú. Volvo V40 er sportlegur í akstri – traustvekjandi. Hann býður best
í sínum flokki í visthæfni - 94 g/km af CO2. Hann er líka nægjusamur á eldsneyti. Notar aðeins 3,6 lítra á
hundraðið í blönduðum akstri. Volvo V40 veitir þér munað í stað óþarfa prjáls. Og hann er svo flottur.
Eins og þú. Volvo V40 er fyrsti hlaðbakur Volvo og öruggasti bíll í heimi**. Glæsilegur fulltrúi mannlegrar
sköpunar sem mætir fullkomlega kröfum nútímamannsins um öryggi, vellíðan og frelsi.
Mikil eftirspurn eftir notuðum
Volvo. Gerðu góð skipti. Settu
Notaða bílinn uppí nýjan Volvo.
Lestu reynsluaksturinn
á Volvo V40
ð frábrugðin mynd í auglýsingu.
Andri Karl
andri@mbl.is
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins
gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni,
Berki Birgissyni og átta öðrum karl-
mönnum, sem ákærðir eru fyrir sér-
staklega hættulegar líkamsárásir,
ólögmæta nauðung, frelsissviptingu
og tilraunir til fjárkúgunar, hefst 19.
nóvember. Gert er ráð fyrir að hún
taki fjóra til fimm daga.
Fyrirtaka fór fram fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness í gærmorgun þar
sem síðustu greinargerðir voru lagð-
ar fram og þrætt um samantektir
lögreglu af skýrslutökum yfir sak-
borningum og vitnum. Sveinn Guð-
mundsson, verjandi eins sakborn-
inga, lét þá bóka að þar sem hljóð- og
mynddiskar með skýrslutökum
fengjust ekki afhentir færi hann
fram á það við ákæruvaldið að fá orð-
rétt endurrit af öllum framburðum í
málinu í stað samantekta lögreglu-
manna.
Skýrslutökurnar eru teknar upp í
hljóð og mynd og þær vistaðar á
geisladiska. Lögreglumenn tóku svo
saman það sem kom fram í skýrslu-
tökunum. Þetta þykir lögmönnum
mörgum ótækt enda treysta þeir illa
að lögreglumenn gæti að þeim atrið-
um sem horfa bæði til sektar og
sýknu.
Dómari lagði ekki mat á kröfuna
en Karl Ingi Vilbergsson aðstoðar-
saksóknari sagðist ekki ætla að
verða við henni. Sveinn fór ekki fram
á úrskurð vegna þessa en sagði höfn-
unina engu að síður varða frávísun
málsins enda færi hún gegn 37. grein
laga um meðferð sakamála, en í
henni segir að verjandi skuli jafn-
skjótt og unnt er fá afrit af öllum
skjölum máls sem varða skjólstæð-
ing hans, svo og aðstöðu til að kynna
sér önnur gögn í málinu. Sem fyrr
vísar ákæruvaldið í það að verjend-
um sé gefin aðstaða á lögreglustöð til
að kynna sér skýrslutökurnar í heild
sinni. Benti Karl Ingi einnig á að það
tæki allt að klukkustund að rita upp
tíu mínútur, skýrslurnar séu 32 og
einhverjar í nokkrar klukkustundir.
Sveinn nefndi á móti að það væri
mikið óhagræði af því fyrir lögmenn
að geta ekki kynnt sér gögnin á eigin
vinnustöð.
Ennfremur lagði Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, verjandi annars sak-
bornings, fram áskorun til ákæru-
valdsins. Sagði hann verjanda
sinn hafa kært eitt fórnarlamba í
málinu fyrir líkamsárás sem átti
sér stað sama kvöld og árásin
sem ákært er fyrir. Skoraði
hann á Karl Inga að leggja
fram gögn lögreglu
vegna þeirrar kæru og
sagði þau varpa ljósi á
málið.
Níu af tíu mönnunum eru meðal
annars ákærðir fyrir að fara
vopnum búnir að heimili manns
í Mosfellsbæ, ganga svo illa í
skrokk á húsráðanda að hann
hlaut þverbrot í gegnum nær-
hluta sköflungsbeins og 6 cm
opinn skurð á framanverðum
sköflungnum, brot á hnéskel og
fjölda annarra áverka. Þrír aðrir
karlmenn hlutu áverka í árás-
inni.
Í ákæru segir að meðal vopna
hafi verið golfkylfur, sleggja
með haus úr harðplasti, hand-
lóð og tréprik. Fórnarlömbin
áttu hvorki kost á því að komast
undan né verjast.
Þá er ákært fyrir aðra sér-
staklega hættulega árás þar
sem eitt fórnarlamba var
meðal annars þvingað til
að kasta þvagi yfir
annað auk þess að
sæta ofbeldi.
Ofbeldi með
vopnum
ÓVÆGNAR ÁRÁSIRVill endurrit af framburðum
Stimpingar Mikill viðbúnaður hefur verið í héraðsdómi þegar komið er með
sakborninga í umræddu máli. Þrátt fyrir það hefur komið til stimpinga.
Treystir ekki
lögreglu til að taka
saman helstu atriði
úr skýrslutökum