Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 22

Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Fis kis lóð Gra nda gar ður Ána nau st Mýrargata Fiskislóð Fiskislóð HÉR Allt að 90% afsláttur Yfir 2500 titlar frá öll um helstu útge fendum landsins! Allir sem ka upa fyrir 6.000 kr. eða meira fá bó kagjöf. Þeir sem ka upa fyrir 12.000 kr. eða meira fá tvær veg legar bækur að g jöf. Opið alla helgina kl. 10–19 RISAlagersala á Fiskislóð 39 Skúli Hansen skulih@mbl.is Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti á fundi sínum í gær að afhenda ekki Ríkisendurskoðun frumvarp um fjáraukalög til umsagnar. „Það ríkir ekkert traust milli þings og Ríkisend- urskoðunar og við sjáum því ekki ástæðu til að leita umsagnar Ríkisendurskoðunar,“ sagði Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefnd- ar, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. „Ég hef miklar efasemdir um það. Ríkisend- urskoðun hefur þá lögbundnu skyldu að vera þingnefndum til ráðgjafar í mikilvægum fjár- hagsmálefnum ríkisins. Það er áratugalöng hefð fyrir því að stofnunin veiti fjárlaganefnd umsagnir um mikilvægustu frumvörp á þessu sviði,“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður hvort hann telji að fjárlaganefnd sé heimilt að skauta framhjá Ríkisendurskoðun með þessum hætti, og bætir við: „Þess vegna finnst mér þetta nú vera bæði hæpin ráðstöfun og í raun og veru ekkert ann- að en leikaraskapur af hálfu Björns Vals og meirihlutans í fjárlaganefnd.“ Að sögn Birgis þekkir hann ekkert til þess máls sem ágreiningi hefur valdið á milli fjár- laganefndar og Ríkisendurskoðunar. „Ég bendi þó á að þarna er um afmarkað deilumál að ræða og skyldur Ríkisendurskoðunar og mik- ilvægi hennar í kerfi okkar er slíkt að það er fráleitt að ætla að sniðganga hana í sambandi við meðferð mikilvægra lagafrumvarpa,“ segir Birgir. Áttar sig ekki á Birni Val „Þetta er eitthvað sem ég átta mig ekki á varðandi formann fjárlaganefndar og hugsan- lega varaformann líka. Þetta kemur mér í raun og veru í opna skjöldu, okkur er ekki gefið tækifæri til að tjá okkur um svona ákvarðanir sem skipta okkur verulegu máli um hefð- bundna starfshætti Ríkisendurskoðunar og fjárlaganefndar,“ segir Sveinn Arason ríkis- endurskoðandi og bætir því við að hann vísi því alfarið á bug að einhver trúnaðarbrestur sé kominn upp á milli stofnunarinnar og fjár- laganefndar um þessi mál. Þá bendir Sveinn á að Ríkisendurskoðun hafi alla tíð afgreitt erindi fjárlaganefndar varðandi fjárlög og fjáraukalög af fullkomnum heiðarleika. Þá sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í fjár- laganefnd, í viðtali við RÚV í gær að hún væri ósátt við þessa ákvörðun meirihluta nefndar- innar og að hún ætlaði að beita sér fyrir því í forsætisnefnd Alþingis að ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar yrði snúið við og frumvarpið í kjölfar þess sent til Ríkisendurskoðunar. Hafna umsögn Ríkisendurskoðunar  Ríkisendurskoðandi segir ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar hafa komið sér í opna skjöldu  Birgir Ármannsson segir ákvörðunina vera leikaraskap af hálfu Björns Vals og meirihlutans Fjárlaganefnd Vill ekki álit Ríkisendurskoðunar. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við þurfum auðvitað að fá á hreint af hverju þessi mál eru stopp í kerf- inu. Hjá Flugfélagi Íslands var metnaður fyrir því að skapa góða að- stöðu við flugstöð sína. Málið virðist komið í algjöra pattstöðu,“ segir Kristján L. Möller alþingismaður og fyrrverandi samgönguráðherra. Kristján hefur á Alþingi lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra, þar sem óskað er skýringa á því hvers vegna Flugfélag Íslands hafi ekki fengið leyfi ráðherra, sem fulltrúa eiganda þessa lands sem Reykjavík- urflugvöllur að hluta til stendur á, til að malbika bílastæðin við flugstöð sína. Mál þetta hefur verið í deiglu um nokkurt skeið. Fram kom í Morg- unblaðinu í sumar að byrjað yrði að innheimta bílastæðagjöld við af- greiðslu Flugfélags Íslands í haust. Þá yrði búið að malbika malarstæðin sem eru neðan við flugstöðina. Þar á bæ töldu menn alla reiti valdaða og fljótlega mætti hefjast handa. Borg- aryfirvöld voru í sumar, að því er fram kom þá, hlynnt málinu. Hins vegar hefur málið verið strand síð- ustu mánuði og því hefur þingmað- urinn óskað svara fjármálaráðuneyt- isins – en ríkið og borgin eru eigendur flugvallarsvæðisins í Vatnsmýrinni, hvort til helminga Bílastæðamálið er hluti af enn stærri pakka. Í nóvember 2010 var ákveðið að slá af framkvæmdir við byggingu samgöngumiðstöðvar, sem reisa átti skammt norðan Loftleiða- hótelsins við Reykjavíkurflugvöll, en áður höfðu ríki og borg gert samn- inga um slíkt. Ákvörðun þeirri fylgdi að í staðinn skyldi af fullum krafti farið í að byggja ódýra og léttbyggða flug- miðstöð á vestursvæði vallarins þar sem höfuðstöðvar FÍ eru. Lagði fé- lagið raunar fram á sínum tíma drög að teikningum að slíkri stöð – en af- greiðsla þess máls innan borgarkerf- isins hefur dregist í langan tíma Skipulagið er borgarinnar Kristján L. Möller spurði Ög- mund Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi í vikunni hvernig flug- stöðvarmálið stæði. Þar svaraði ráð- herrann því til að vilji sinn til upp- byggingar væri jákvæður og afdráttarlaus. Hann hefði í við- ræðum við Reykjavíkurborg óskað eftir því að málinu yrði hraðað – en minna yrði þó á að skipulagvald á svæðinu væri borgarinnar. Flugfélagið má ekki malbika Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Endurbætur bílastæða í uppnámi Flugvöllur Fyrirhugaðar fram- kvæmdir FÍ eru komnar í frost. „Alþingi hefur ekki að lögum skyldu til að fylgjast með því að skýrslum Ríkisendurskoðunar sé skilað á til- settum tíma, enda tími ekki tilsett- ur,“ segir Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis. Málefni Ríkisendurskoðunar hafa verið til umræðu og hefur Ásta R. Jó- hannesdóttir, forseti Alþingis, farið þess á leit við stofnunina að skil á skýrslum, sem Alþingi biður um, dragist ekki úr hófi. Byggir á 3. grein laganna Spurður hvort Alþingi hafi eftirlit með þessu segir Helgi svo ekki vera. „Skrifstofa þingsins fylgist með öllu sem snýr að þing- störfum, þ.e. fyrirspurnum, skýrslubeiðnum og öðru slíku sem ráðherrar svara. Það fer eftir skýrum verklagsreglum. En skv. 3. gr. laga um Ríkisend- urskoðun geta einstakir þingmenn og þingflokkar skrifað forsætis- nefnd og óskað eftir því að Ríkis- endurskoðun geri skýrslur um til- tekin mál. Forsætisnefnd tekur þá afstöðu til beiðninnar og sendir hana áfram til Ríkisendurskoðunar. Rík- isendurskoðun skilar svo skýrslu. Það eru engin tímamörk sett í bréfi forsætisnefndar, né koma þau fram í lögum. Við á skrifstofunni fylgjumst ekkert sérstaklega með þessum skýrslum. Ríkisendurskoðun tekur sér þann tíma sem hún þarf, hún ákveður hann. En það hefur verið haft samband við stofnunina þegar þingmenn hafa kvartað yfir því að skýrsla sé ekki komin og leitað skýr- inga.“ Ekki skylt að hafa eftirlit  Alþingi skýrir vinnulag sem viðhaft er vegna skýrslna Helgi Bernódusson Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Tilboð Nýherja í útboði ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfi árið 2000 var í kringum þrjátíu prósent- um hærra en tilboð Skýrr. Því var ekki talið verjandi að taka SAP-kerfi Nýherja fram yfir Oracle frá Skýrr. Þetta kom fram í máli Gunnars H. Hall, fjársýslustjóra, á fundi með fjárlaganefnd Alþingis í gær. Fjársýslan óskaði eftir fundinum til þess að ræða gagnrýni sem hefur komið fram á kerfið, kostnað við það og innleiðingu þess í kjölfar umfjöll- unar Kastljóss um skýrslu Ríkisend- urskoðunar frá árinu 2009. Gunnar var mikið spurður um skýrsludrög Ríkisendurskoðunar. Hann sagðist hafa fengið skýrsluna senda á fimmtudag með formlegum hætti til umsagnar. Gunnar var meðal annars spurður um hvort fyrir lægi heildarkostnaður við kerfið, bæði við uppsetningu þess og rekstur. Hann svaraði því til að upplýsingarnar væru viðskiptaupp- lýsingar og því hefði Fjársýslan ósk- að eftir leyfi Advania, sem er nýtt nafn Skýrr, til að birta tölurnar. Enn væri unnið að því að taka þær saman. Byrjað að borga 2006 Lagði Gunnar áherslu á að þær 160 milljónir sem upphaflega hefði verið óskað eftir í fjárlögum 2001 vegna kerfisins hefðu aðeins verið ætlaðar til undirbúnings og fyrsta áfanga innleiðingar þess. Alltaf hefði verið sótt um fjárheimildir til rekst- urs kerfisins til Alþingis síðan þá og það hefði nánast alltaf verið innan heimilda á þeim tíma. Lúðvík Geirsson, einn fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd, spurði hvers vegna gerður hefði verið verklokasamningur við Skýrr 2003 þrátt fyrir að á þeim tíma hefði stór hluti kerfisins ekki verið kominn í gagnið. Spurði hann jafnframt að því hvort Skýrr hefði þrýst á um samn- inginn til þess að fyrirtækið gæti byrjað að innheimta þjónustugjöld. Stefán Kjærnested, varafjár- sýslustjóri, sagðist ekki muna hvort Skýrr hefði þrýst á um að samning- urinn hefði verið gerður en að hann minnti að greiðslur vegna þjónustu við kerfið hefðu ekki hafist fyrr en í ársbyrjun 2006. Þá hefðu fleiri hlutar verið komnir í notkun og mikil þörf fyrir þjónustu við kerfið. Ekki verjandi að taka tilboði Nýherja  Fjársýslustjóri óskaði eftir fundi með fjárlaganefnd Morgunblaðið/Ómar Spurningar Stefán Kjærnested, varafjársýslustjóri (t.v.), Gunnar H. Hall, fjársýslustjóri, og Pétur Jónsson, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins. Fjölskyldutengsl Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda við fyrrverandi starfsmann Skýrr og starfsmann fjármálaráðuneytisins hafa ekkert með það að gera að dregist hefur að ljúka úttekt ríkisendurskoðunar á fjár- hagsupplýsingakerfi ríkisins. „Ég vísa þessum dylgjum algerlega á bug,“ sagði Sveinn í tilkynningu á heimasíðu embættisins. Þá segir ennfremur að Þórhallur Arason, bróðir Sveins, sem var yfirmaður þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem annaðist umsýslu eigna, hafi vikið sæti í nefnd sem sá um að meta tilboðin í hug- búnaðarkerfið þar sem þriðji bróðirinn, Atli Arason, hafi á þeim tíma ver- ið yfirmaður sölu- og markaðssviðs Skýrr. Sveinn hafi orðið ríkis- endurskoðandi eftir að Atli lét af störfum hjá Skýrr. Vísar á bug „dylgjum“ RÍKISENDURSKOÐANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.