Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Íslandsmeistarakeppni í ökuleikni á fólksbílum verður haldin á Kirkju- sandi í Reykjavík á sunnudag kl. 13. Þar gefst öllum sem vilja kostur á að koma og spreyta sig á Volks- wagen-bifreið sem Hekla mun lána til keppninnar. Ökukennarafélag Íslands hefur samið spurningar og gefst öku- mönnum tækifæri til að leita svara við þeim, því markmiðið er að öku- menn viti öll svörin í lok keppni og verði þannig betur upplýstir um einstök atriði í umferðinni. Sett verða upp fjögur mismunandi þrautaplön og þau má sjá á heima- síðu Brautarinnar, www.brautin.is, og þar má einnig skrá sig til keppni. Eins og venjulega er keppt í kvennariðli og karlariðli. Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sæt- in í hvorum riðli. Þátttökugjald er 1.000 krónur. Þeir ökumenn sem vilja kanna sína hæfni í akstri eru því hvattir til að koma og taka þátt, segir í til- kynningu. Einu kröfurnar eru að viðkomandi hafi gilt ökuleyfi. Áhorfendur eru velkomnir. Keppt í ökuleikni á Kirkjusandi Ökuleikni Þátttakendur munu spreyta sig á margvíslegum þrautum í keppninni. Endurvinnslan hefur opnað tæknivædda móttökustöð fyrir skilagjaldsskyldar drykkjar- umbúðir að Dalvegi 28 í Kópa- vogi. Í móttökustöðinni eru sjálf- virkar talningarvélar og þurfa viðskiptavinir Endurvinnslunnar því ekki að telja eða flokka um- búðirnar áður. Eina skilyrðið er að umbúðirnar séu heilar. Áfram er hægt að skila beygluðum um- búðum en þær þarf að telja og flokka í ál, plast og gler áður en komið er í móttökustöðina. Sjálfvirkar talningarvélar eins og eru í móttökustöðunni að Dal- vegi og hafa verið í móttökustöð Endurvinnslunnar í Knarrarvogi um nokkurt skeið eru nú að ryðja sér til rúms hér á landi. Afgreiðslutími móttökustöðv- arinnar að Dalvegi er alla virka daga frá kl. 11 til 18 og laug- ardaga frá kl. 12 til 16.30. Fyrstur Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, var fyrsti viðskiptavinurinn. Sjálfvirkar vélar telja umbúðir hjá Endurvinnslunni Í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá því að Glerárvirkjun á Ak- ureyri tók til starfa verður opið hús hjá Norðurorku hf. laug- ardaginn 29. september milli kl. 10.00 og 14.00. Opið verður í Glerárvirkjun og í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Rangárvöllum. Heitt verður á könnunni fyrir gesti og gangandi. Einnig verða myndir og gamlir munir úr sögu Rafveitu Akureyrar til sýnis. Allir velkomnir á afmælishátíð- ina í dag. Glerárvirkjun sýnd Haldinn verður kynningarfundur á rammaskipulagi gömlu hafn- arinnar í Reykjavík í dag, laug- ardag. Kynningin hefst með göngu um hafnarsvæðið undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar, formanns stýrihóps rammaskipulagsins. Gangan hefst við Hörpu klukkan 11. Kynningarfundurinn í Sjó- minjasafninu Vík hefst klukkan 12. Þetta er í annað sinn sem hald- inn er kynningarfundur um skipu- lagið, sá fyrri var haldinn í maí sl. Þá var líka efnt til göngu um svæðið. Hátt í eitt hundrað manns mætti í gönguna og á fundinn. Ganga um höfnina STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur Auðunn Árnason Stykkishólmur Á þessum árstíma er ferðamönn- um er heimsækja Hólminn farið að fækka. Það er að heyra hjá þeim sem stunda ferðaþjónustu að ferða- menn hafi verið heldur færri í sumar en í fyrra. Áberandi er að færri Ís- lendingar gistu Hólminn.    Dúntekja við Breiðafjörð var mjög góð í vor. Veðráttan var hag- stæð, þurrt og hlýtt. Íslenskur æð- ardúnn ehf. í Stykkishólmi tekur á móti dúni og hreinsar hann og selur. Að sögn Erlu Friðriksdóttur fram- kvæmdarstjóra skilaði dúnninn sér mun fyrr í sumar en áður. Sala á dúni er sveiflukennd. Nú er eft- irspurn og gengur vel að selja, eink- um til Japans. Verðið í jenum hefur ekki náð því sem það var fyrir efa- hagshrunið.    Ekki hefur enn sést til síldar á Breiðafirði á þessu hausti. Í fyrra var bátum minni en 200 br.tonn gert kleift að stunda síldveiðar og leigja til sín kvóta. Mikill áhugi er fyrir þessum veiðum og er reiknað með að átta bátar með heimilisfestu í Hólm- inum haldi til veiða um leið og síldin kemur. Hver bátur getur nú leigt til sín 8 tonn af síld á viku og er leigan 13.000 kr. á hvert tonn. Fiskvinnslufyrirtækið Ag- ustson er að koma upp tækjabúnaði til vinnslu á síld og hefur óskað eftir viðskiptum við bátana sem fara til síldveiða.    Það fór ekki fram hjá bæj- arbúum þegar upptökur fóru fram á myndinni Secret life of Walter Mitty. Það sem undrar hinn venju- lega íbúa er hversu umfangsmikið verk kvikmyndataka er. Í fylgdarliði Bens Stiller voru um 250 manns sem komu á einhvern hátt að verkefninu. Um 20 vöruflutningabílar fylgdu hópnum. Hópurinn dvaldi hér 5 daga. Á meðan þurftu bæjarbúar að sýna gestunum tillitssemi.    Álagning auðlindarskatts er að berast útgerðum landsins þessa dag- ana og er fyrsti gjalddagi 15. næsta mánaðar. Margir hrökkva við þegar þeir sjá hvað þeim ber að greiða. Skatturinn er mikið inngrip í rekst- ur fiskiskipa og veldur áhyggjum þeirra sem stunda í útgerð. En þetta er bara byrjunin, því skatturinn á að hækka næstu árum. Það er erfitt að skilja hugsanahátt stjórnvalda gagn- vart þessum mikilvæga atvinnuvegi landsmanna og þeim sem hann stunda.    Haraldur Sigurðsson og Ragnar Axelsson munu flytja fjögur erindi um Grænland í Eldfjallasafninu næstu laugardaga. Fyrsta erindið verður í dag kl. 14. Þar munu þeir fé- lagar segja frá ferðum sínum til Grænlands í máli og myndum. Gott framtak af þeirra hálfu. Hólmarar bíða eftir síldinni Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason Bíóbær Stykkishólmur er orðinn kvikmyndabær. Margir störfuðu við upptökur á kvikmynd Bens Stillers. DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 Haustið frá DUKA er komið Bleika slaufan, fjáröflunar- og ár- vekniátak Krabbameinsfélags Ís- lands í baráttunni gegn krabba- meini hjá konum, hefst formlega mánudaginn 1. október nk. en í gær var fyrsta slaufan afhent og jafn- framt kynnt hver hannaði hana að þessu sinni. Mikil leynd hefur að vanda hvílt yfir hönnuninni. Þetta er í þrettánda sinn sem átakinu er hrundið úr vör. Bleika slaufan er að þessu sinni hönnuð af skartgripaverkstæðinu SIGN í Hafnarfirði. Hönnun slauf- unnar byggist á tveimur blómum sem sveigjast hvort um annað og eru táknmyndir kvenna. Á bakhlið slaufunnar eru fjögurra blaða smárar en samkvæmt þjóðtrú eru þeir gæfumerki. Slaufan kostar 1.500 krónur og er einnig fáanleg sem silfurnæla og silfurhálsmen. Krabbameinsfélagið hefur sett sér það markmið að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur. Fyrsta slaufan var að þessu sinni afhent biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðar- dóttur, en hún tók við slauf- unni úr hendi einnar af sex hvunndags- hetjum sem tóku við bleiku slauf- unni í fyrra úr hendi Vigdís- ar Finn- bogadóttur, fyrrverandi forseta Ís- lands. Fyrsta Bleika slaufan var að þessu sinni afhent í Bleiku svítunni á Icelandair hótel Reykja- vík Natura en hluti gjalds gistinátta í svítunni rennur til Krabbameins- félagsins. Bleika slaufan er seld á fjölda sölustaða án nokkurrar álagningar. Söluandvirðið rennur því óskipt til söfnunar Krabbameinsfélags Ís- lands. Sölustaði Bleiku slaufunnar má finna á www.bleikaslaufan.is Sala á bleiku slaufunni hefst eftir helgina Bleika slaufan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.