Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn styður
að farin sé sú leið að gefa út skulda-
bréf í erlendri mynt til langs tíma til
að losa um snjóhengju aflandskróna
sem eru fastar inn í hagkerfinu.
Sjóðurinn telur einnig þörf á út-
gönguskatti á eigendur af-
landskróna, sem þyrfti að vera
verulegur, í því augnamiði að skapa
hvata fyrir aflandskrónueigendur til
að taka þátt í aðgerðum sem miða
að afnámi haftanna. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sendinefndar
AGS, undir forystu Dariu Zhak-
arovu, sem lauk í gær tveggja vikna
heimsókn sinni til Íslands.
Sendinefnd AGS varar við því að
ráðist sé í afnám hafta áður en rétt
skilyrði séu fyrir hendi – annars
væri hættan sú að gengi krónunnar
félli, verðbólga og skuldir einkageir-
ans myndu aukast sem hefði enn-
fremur ruðningsáhrif á bankakerfið.
Hins vegar er það mat AGS að það
gæti flýtt fyrir afnámi hafta ef ekki
yrðu sérstök tímatakmörk á því
hvenær þeim yrði aflétt. Samkvæmt
núverandi áætlun Seðlabankans um
afnám hafta er gert ráð fyrir að þau
verði afnumin í árslok 2013.
Þrátt fyrir að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn telji að stefna stjórnvalda
í ríkisfjármálum sé að mestu í sam-
ræmi við áætlanir, þá telur sjóð-
urinn þörf á enn frekara aðhaldi;
mælt er með því að ráðist verði í að-
haldsgerðir – annaðhvort frekari
niðurskurð eða skattahækkanir –
sem næmu 0,2% af vergri lands-
framleiðslu, eða um 3 milljörðum
króna.
Auka þarf ennfremur aðhald í
peningastefnu Seðlabankans eigi
bankanum að takast að ná verðbólg-
unni niður í markmið bankans um
2,5% verðbólgu. Þótt sjóðurinn telji
hagvaxtarhorfur ágætar þá er hætt
við því að skuldakreppan á evru-
svæðinu muni hafa frekari neikvæð
áhrif á íslenskt efnahagslíf.
Vill skuldabréfaút-
gáfu og útgönguskatt
AGS telur aflandskrónueigendur þurfa meiri þrýsting
Morgunblaðið/Ómar
AGS Frank Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, en
sjóðurinn telur að Seðlabankinn þurfi að ráðast í frekari vaxtahækkanir.
Heimsókn AGS
» Skapa þarf frekari hvata fyr-
ir aflandskrónueigendur til að
taka þátt í aðgerðum Seðla-
bankans.
» Fella þarf niður tímatak-
mörk á afnámi hafta.
» Þörf á meira aðhaldi í rík-
isfjármálum á næsta ári en
fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir.
Allt þyrfti að
ganga upp eigi
þær forsendur
stjórnvalda, að
vaxtajöfnuður
ríkisins nái há-
marki á næsta
ári, og í kjölfarið
dragi úr út-
gjöldum rík-
issjóðs til vaxta-
gjalda, að ganga
eftir.
Þetta kemur fram í nýjasta
fréttabréfi Júpiter rekstrarfélags,
en þar er bent á að vaxtajöfnuður
ríkissjóðs verður neikvæður um 63
milljarða 2013, sem er nokkur
aukning frá vaxtahalla á þessu ári.
Í umfjöllun fjárlagafrumvarpsins
segir að gert sé ráð fyrir því að
verðbólga fari lækkandi á árinu en
að „innlendir og erlendir vextir
hækki og að gengi krónunnar muni
veikjast frá fyrra ári“.
Greinendur Júpiter telja hins
vegar slíkar forsendur hæpnar.
„Hálffurðulegt [er] að vænta þess
að vaxtastig innanlands fari hækk-
andi samfara lækkandi verðbólgu,“
auk þess sem ólíklegt sé að vextir
Bandaríska og Evrópska seðla-
bankans muni hækka næstu miss-
eri. „Því verður ekki annað séð en
að ætlunin sé að ganga áfram á
gjaldeyrisforðann til að standa und-
ir aukinni einkaneyslu.“
Versnandi
vaxta-
jöfnuður
Hæpnar for-
sendur fjárlaga
Fjárlög 63 millj-
arða vaxtahalli.
IFS greining mælir með kaupum á
hlutabréfum í fasteignafélaginu
Reginn sem var skráð í Kauphöll Ís-
lands í júlí á þessu ári. Í greiningu
IFS er því spáð að gengi bréfanna
muni hækka um 16% – úr 9,8 krón-
um á hlut í 11,4 krónur á hlut – á
næstu sex til níu mánuðum. Sam-
kvæmt virðismati IFS ætti gengi
hlutabréfa í Regin að vera 10,4 krón-
ur á hlut í dag, sem er 6% meira en
gengi bréfanna stóð í við lok mark-
aða í gær.
IFS byggir spá sína einkum á því
að Reginn muni að öllum líkindum
ná hagstæðari fjármögnun á eftir-
standandi lánum félagsins. Frá því
hefur verið greint að samningar hafi
náðst um endurfjármögnun á Egils-
höll og nam upphæð lánsins 5,5 millj-
örðum króna og var verðtryggt til tíu
ára. Kjörin eru nokkuð góð, bendir
IFS á, eða 3,85% með veð í eigninni.
Samkvæmt síðasta ársfjórðungs-
reikningi kom fram að vextir á verð-
tryggðum lánum voru á bilinu 4,9%
til 5,3%, á meðan vextir á óverð-
tryggðum námu 7,4%. Ljóst er að
með endurfjármögnun á Egilshöll
muni meðalvextir á verðtryggðum
lánum Regins lækka umtalsvert. Að
mati IFS má reikna með að meðal-
kjör á lánum Regins eftir endurfjár-
mögnun hafi lækkað úr 5,1% í 4,7%.
Félaginu hefur tekist að endur-
fjármagna um þriðjungshlut af öllum
skuldum sem á því hvíla. Fastlega
má reikna með að Reginn muni
stefna að frekari endurfjármögnun á
útistandandi skuldum félagsins. IFS
telur hins vegar ólíklegt að Regin
muni takast að fá jafngóð kjör og
fengust við endurfjármögnun á Eg-
ilshöll við endurfjármögnun á öðrum
eignum í eigu félagsins. Í þeim efn-
um skiptir mestu máli að Egilshöll
hefur þann kost að hafa trausta lang-
tímaleigjendur, og því er það mat
IFS að kjör á öðrum lánum verði um
4,3%. hordur@mbl.is
Mæla með kaupum í Regin
IFS spáir því að bréfin gætu hækkað
um 16% í verði næstu sex mánuði
Morgunblaðið/Kristinn
Kauphöll Fasteignafélagið Reginn
fór á markað í liðnum júlímánuði.
● Skuldir hins opinbera eru orðnar
hættulega miklar, segir fjármálaráð-
herra Frakklands, Pierre Moscovic. Seg-
ir hann skuldirnar vera farnar að ógna
hagvexti í landinu.
Moscovic kynnti fjárlagafrumvarp
næsta árs á þingi í gær. Hann segir að
ekki sé hægt að búa við þetta ástand
miklu lengur. Ummæli Moscovic koma í
kjölfar fréttar frá Hagstofu Frakklands
um að skuldir hins opinbera nemi nú
91% af vergri landsframleiðslu.
Skuldir Frakklands
hættulega miklar
● Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir er
nýr upplýsinga-
fulltrúi Símans.
Hún hefur undan-
farið starfað sem
blaðamaður á
Fréttatímanum.
Hún er fyrrver-
andi ritstjóri og
fréttastjóri dag-
blaðsins 24
stunda, kvöldfréttastjóri á Morgun-
blaðinu og blaðamaður og vaktstjóri á
Fréttablaðinu.
Gunnhildur tekur við starfinu af Mar-
gréti Stefánsdóttur sem hefur ákveðið
að söðla um og taka þátt í rekstri Ís-
landsfunda, ferðaþjónustufyrirtækis í
eigu fjölskyldu hennar.
Gunnhildur til Símans
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
● Stjórn Pennans á Íslandi og Jóhanna
Waagfjörð, forstjóri félagsins, hafa
komist að samkomulagi um að Jóhanna
láti af störfum hjá fyrirtækinu í gær.
Jóhanna hefur verið forstjóri Penn-
ans á Íslandi ehf. frá nóvember 2011 en
áður gegndi hún tímabundið stöðu
framkvæmdastjóra fjármála hjá félag-
inu á árinu 2011.
Penninn á Íslandi ehf. var nýlega
seldur eftir að hafa verið í eigu Arion
banka frá apríl 2009.
Hættir hjá Pennanum
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-/
+00.0
+,1./1
,+.-02
,+.2/+
+3.0++
+-+.33
+.133+
+04.,-
+10.1,
+,-.22
,44.-0
+,2.+,
,+.510
,+./-1
+3.022
+-,.,1
+.10,/
+04.3
+10.0/
,,+.,01/
+,-.01
,44.33
+,2.50
,+.1,,
,+./00
+0.4,+
+-,.2,
+.10/-
+0+.-/
+24.5,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á