Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Fjórtán stærstu bankar Spánar
þurfa aukið hlutafé sem nemur um
60 milljörðum evra. Þetta er nið-
urstaða álagsprófs sem ráðgjafafyr-
irtækið Oliver Wyman framkvæmdi.
Spænskir ráðamenn vona að nið-
urstöðurnar muni sefa áhyggjur
fjárfesta vegna ótta um að banka-
kerfið þyrfti á enn meira fjármagni
að halda vegna fjölda slæmra útlána.
Flestir þeir bankar sem koma
verst út úr álagsprófinu voru bankar
sem hafa nú þegar verið þjóðnýttir
eða þegið fjárhagsaðstoð frá ríkinu.
Banco Popular, sjötti stærsti banki
landsins, þarf hins vegar að sækja
sér aukið hlutafé sem nemur 3,2
milljörðum evra samkvæmt nið-
urstöðum álagsprófsins, en mark-
aðsvirði bankans er um 3,6 millj-
arðar evra. Því er talið ljóst að
bankinn á engra annarra kosta völ
en að fá aðstoð frá ríkinu eigi hann
ekki að fara í greiðsluþrot.
Spænsk stjórnvöld óskuðu eftir
100 milljarða evra aðstoð frá ESB í
júní til að endurfjármagna fallvalt
bankakerfi landsins.
Bankakerfið þarf 60
milljarða evra
AFP
Spánn Aðhaldsaðgerðum stjórnvalda mótmælt. Þörf er á um 60 milljörðum
evra til að endurfjármagna stærstu banka landsins.
Lyfjafyrirtækið
Watson Pharma-
ceuticals hefur
gefið út skulda-
bréf fyrir 3,9
milljarða Banda-
ríkjadala, 487
milljarða króna, í
tengslum við
kaupin á
samheitalyfja-
fyrirtækinu Act-
avis. Lánshæfiseinkunn Watson var
lækkuð í fyrradag.
Tilkynnt var um kaup Watson á
Actavis fyrr á árinu á 4,25 milljarða
evra, 683 milljarða króna.
Alls er um þrjá skuldabréfa-
flokka að ræða. Einn er upp á 1,2
milljarða dala og er til fimm ára. Er
ávöxtunarkrafan 1,875% sem er
135 punktum hærra en í sambæri-
legum ríkisskuldabréfum, sam-
kvæmt frétt Bloomberg. Annar
flokkur er upp á 1,7 milljarða dala
og eru þau bréf til tíu ára. Sá þriðji
er upp á 1 milljarð dala, til 30 ára.
3,9 milljarða
dala lántaka
Watson Fjármagnar
kaupin á Actavis.
Hagfræðideild Landsbankans telur
að stýrivöxtum verði haldið
óbreyttum á næsta vaxtaákvörð-
unarfundi peningastefnunefndar
Seðlabankans 3. október næstkom-
andi.
Peningastefnunefnd ákvað að
hækka ekki vexti á síðasta vaxta-
ákvörðunarfundi heldur taldi rétt
að bíða og sjá hversu varanleg
gengisstyrking krónunnar yrði.
Krónan hefur hins vegar veikst um
7,5% frá þeim og því væri vel hægt
að rökstyðja vaxtahækkun, bendir
hagfræðideild Landsbankans á.
Engu að síður telur hún að nefnd-
in muni fremur horfa til þess að
verðbólgumæling er í samræmi við
skammtímaspár og mælist 12 mán-
aða verðbólga 4,3%.
Spáir óbreytt-
um vöxtum
Seðlabankans
Fyrstu átta mánuðina 2012 voru
fluttar út vörur fyrir 413,3 milljarða
króna en inn fyrir 365,6 milljarða
króna. Afgangur var því á vöruskipt-
unum við útlönd, reiknað á fob-verð-
mæti, sem nam 47,8 milljörðum en á
sama tíma árið áður voru þau hag-
stæð um 66,5 milljarða á sama gengi.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 18,8
milljörðum króna lakari en á sama
tíma árið áður. Þetta er ennfremur
minnsti afgangur á vöruskiptum við
útlönd sem mælst hefur frá falli fjár-
málakerfisins haustið 2008.
Í ágúst voru fluttar út vörur fyrir
51,5 milljarða króna og inn fyrir
tæpa 39 milljarða króna. Vöruskiptin
í ágúst, reiknuð á fob-verðmæti, voru
því hagstæð um 12,5 milljarða króna.
Í ágúst 2011 voru vöruskiptin hag-
stæð um 8,8 milljarða króna á sama
gengi, samkvæmt frétt á vef Hag-
stofu Íslands.
Minnsti af-
gangur frá
bankahruni
Morgunblaðið/ÞÖK
Útflutningur Í ágúst voru fluttar út
vörur fyrir 51,5 milljarða.
18 milljörðum
minni milli ára