Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 34

Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Forysta vinstrigrænna ætlar flokknum án efa að fara aftur fram undir merkjum andstöðu við aðild að ESB. Hann halaði vel inn af atkvæðum í síðustu kosningum með því að þykjast vera allra flokka harðastur í andstöðunni við aðild þó að þegar hefði leg- ið fyrir ákvörðun í kosninga- baráttunni um að loforðið yrði að engu haft eftir kosningar. Nú treystir forysta flokks- ins á að gullfiskaminni kjós- enda sé meira en þjóðsaga og telur að með því að láta ein- hver orð falla um andstöðuna við aðild sé hægt að end- urvinna traust kjósenda og sannfæra þá um að þrátt fyrir svikin á þessu kjörtímabili verði hægt að treysta flokkn- um á því næsta. Ætla má að nógu erfitt væri að fá kjósendur til að fyrirgefa svikin ef gripið yrði til raun- verulegra aðgerða og verkin látin tala. Þó má telja víst að ein- hverjir fyrrver- andi kjósendur myndu þá sættast við flokkinn. En slíku er ekki að heilsa. Engar vísbendingar eru um að flokksforystan ætli sér að sýna nokkra viðleitni í málinu aðra en að flytja fjölmargar ræður um að hún sé virkilega að velta því fyrir sér að ef til vill muni þurfa að grípa inn í aðlögunarviðræðurnar ef fram heldur sem horfir. Og hún virðist ætla að velta stöðunni mjög alvarlega fyrir sér fram yfir kosningar og verður án efa aftur orðin sjóðheit í andstöðu sinni við aðild daginn fyrir kjördag og mun þá jafnvel heita því að slíta viðræðum eft- ir helgi. En að hún samþykki tillögur um að hætta aðlögunarferlinu nú, þegar slík samþykkt hefði enn einhverja þýðingu, er afar fjarlægur möguleiki. VG telur sig ekki þurfa að láta verkin tala í ESB-málinu} Treyst á meint gullfiskaminni Núverandistjórnar-liðar eru seinir í svifum þegar hagsmunir almennings eru annars vegar. Lappadráttur er þeirra samræmda göngulag. Með einni undantekningu þó. Þegar þeir þurfa að hlaupa undan orðum sínum og gerð- um, loforðum og fyrirheitum þá er ekki lítið flug á þeim. Jón Magnússon, fyrrverandi alþingismaður, nefnir sláandi dæmi þessa: „Í október 2008 tókst á ótrúlegan hátt að taka yfir rekstur bankanna og tryggja almenningi bankaþjónustu. Skipaðar voru skilanefndir sem fengu það hlutverk að koma fram sem stjórnir í við- komandi fyrirtækjum. Samið var við skilanefndarmenn um 16.000 króna tímagjald. Jóhanna Sigurðardóttir og Kúbu-Gylfi Magnússon for- dæmdu tímataxta skilanefnda í ársbyrjun 2009. Þóttust þau ætla að koma böndum á ofur- laun þeirra. Árangur Gylfa og Jóhönnu í þessu var ekki betri en í öðru sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Laun í skilanefndum og slitastjórn- um lækkuðu ekki undir hand- leiðslu Gylfa og Jóhönnu. Þvert á móti hefur komið fram í fréttum að þau hafi fljótt hækkað um 120%. Þessu til viðbótar var sjálftökuliðinu heimilað að semja við eigin fyrirtæki um þjónustu við þrotabú gömlu bankanna sem þetta sama fólk stjórnar sem skilanefndarmenn. Samkvæmt lög- um um fjármálafyrirtæki hafa skilanefndarmenn og slit- astjórnarmenn stöðu stjórn- armanna – auk þess að vera opinberir sýslunarmenn. Stjórnarmenn í fjármálafyr- irtækjum bera ákveðnar skyldur og Fjármálaeftirlitið, sem heyrði undir ráðuneyti Gylfa, og nú Steingríms J. hefur eftirlit með stjórn- armönnum fjármálafyr- irtækja. Eftirlitsskylda Fjár- málaeftirlitsins var síðan að nauðsynjalausu sérstaklega áréttuð með lögum nr. 78/ 2011 sem tóku gildi fyrir tæpu einu og hálfu ári. Gylfi Magnússon og Jó- hanna Sigurðardóttir gerðu ekkert til að fylgja eftir stóru orðunum frá 2009. Þau voru verndarar sjálftökunnar. Nú eru það Jóhanna Sigurðar- dóttir og Steingrímur J. Sig- fússon sem eru verndarar sjálftökuliðsins. Undan þeirri ábyrgð getur Steingrímur J. ekki vikist þó hann fari ítrek- að með fleipur um málið í fjöl- miðlum af alkunnum orðheng- ilshætti. Annað hvort veit Steingrímur J. ekki betur, en það sýnir þá vanhæfni hans, eða þá að hann stendur með- vitað með sjálftökuliðinu.“ Það er orðið eitt helsta einkenni rík- isstjórnarforyst- unnar að flýja eigin orð og fyrirheit} Kannast ekki við eigin orð Þ að kom mér ekkert sérlega á óvart þegar ég las einhvers staðar á dög- unum að Hamborgarfabrikkan hefði skilað mjög svo viðunandi hagnaði síðustu tvö ár. Staðurinn hefur undantekningarlaust verið smekkfullur þegar ég hef kíkt á Fabrikkuna í hamborgara en Fabrikkuborgararnir eru líka alveg sérlega góð- ir og hafa verið settir saman á mjög hug- myndaríkan og skemmtilegan hátt. Þó hvarflaði að mér þegar ég snæddi þar síð- ast að eflaust væri fleira en maturinn sem laðaði svanga að. Hugmyndin og framkvæmdin; mat- seðillinn, innréttingin, ís og lag fyrir afmæl- isbörnin og svona mætti áfram telja, allt virkar þetta vel saman að mínu mati. Það sem skilur þó hvað mest eftir sig held ég að sé þjónustan, starfsfólkinu hefur greinilega verið uppálagt að leggja metnað í störf sín og koma fram við viðskiptavinina, unga sem aldna, með kurteisi og virðingu. Þetta er ekki svo lítið afrek finnst mér þegar litið er til þess hvernig þjónustan er á mörgum íslenskum mat- sölustöðum, hvort sem það eru veitingahús eða skyndi- bitastaðir. Hún er stundum góð, stundum slæm en henni er oft vandræðalega ábótavant. Ég lenti til dæmis á meiriháttar annars hugar þjón- ustustúlku í hádegismat ekki alls fyrir löngu. Hún skammtaði mér og vinkonu minni einn matseðil eftir að við höfðum sest niður, rölti svo í burtu, kom aftur tveimur mínútum seinna og tók pöntunina, en virtist allan tímann hafa mun meiri áhuga á því sem var að gerast annars staðar í salnum. Rétt áður en við feng- um matinn kom hún svo aftur ráfandi eins og í leiðslu, henti hnífapörum á borðið fyrir framan okkur og lét sig svo hverfa þegjandi. Hún bauð ekki góðan dag né sagði hún gjörið þið svo vel og leit varla á okkur nema þegar hún sagði mjög efins að hún myndi athuga hvort það væri mögulega nokkuð hægt að verða við mjög ein- faldri sérósk varðandi pöntunina. Allan tímann mátti lesa úr svip hennar að hana langaði helst að vera einhvers staðar allt annars staðar. Það er þó ekki alltaf við starfsfólkið að sak- ast. Ég lenti líka í því nýlega að panta pasta á veitingahúsi, sem var svo mörgum mínútum seinna borið fram mauksoðið og var vægast sagt ólystugt. Þá varð mín nú doldið pirruð, þar sem viðkomandi staður er líka alls ekki ódýr, og ég lét þjóninn kurteisislega vita þegar hann kom að taka diskana að ég hefði ekki notið matarins. Hann svaraði „ha… ókei“ eða eitthvað álíka og álpaðist í burtu. Hann virtist óvanur og það hafði greinilega enginn sagt honum hvernig hann ætti að bregðast við kvörtun eða ábendingu viðskiptavinar. Borðfélaga mínum varð að orði eftir matinn að gæði þjónustunnar væru mun meiri á veitingastöðum erlendis, en þar tíðkast líka að greiða þjórfé, sem er ákveðinn hvati. Það gildir þó það sama hér og þar að samkeppnin er hörð og því skyldi maður ætla að matsölustaðir kepptust við að veita sem allra besta þjónustu. holmfridur@mbl.is Þjónn, það er fluga í súpunni Pistill Hólmfríður Gísladóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is M jög hefur dregið úr selveiðum hér við land síðustu hálfa öldina. Þó veiðast nokkur hundruð sel- ir á hverju ári. Bæði eru stundaðar veiðar á selkópum auk þess sem sel- ir koma í veiðarfæri fiskimanna. Þingmennirnir Birgitta Jóns- dóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason hafa lagt fram öðru sinni frumvarp um breytingu á lög- um um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýr- um. Þau vilja að lögin nái einnig til sela en þeir eru undanskildir í nú- gildandi villidýralögum líkt og hval- ir, gæludýr og búfénaður. Einnig vilja þau festa aðferðir við veiði á selkópum í lög. Meðal annars er lagt til að lögin kveði á um að leyft verði að nota barefli við veiði á kóp- um líkt og við hefðbundnar veiðar á ungum fýls, súlu og skarfs. Þá er lagt til að leyft verði að nota net til að veiða selkópa. Bannað verður að skjóta nærri selalátrum og veiðar bannaðar í látrum og við þau. „Heildarlög sem fjalla um vernd og veiðar eru ekki til fyrir seli og fyrir löngu orðið tímabært að setja slík lög enda eiga meginreglur um- hverfisréttar og velferðar dýra að gilda um seli líkt og önnur spendýr,“ segir m.a. í greinargerð með frum- varpinu. Einnig kemur þar fram að áður hafi verið reynt að setja lög um seli og selveiðar. Þegar frumvarp til gildandi villidýralaga var lagt fram voru þar ákvæði um seli en þau voru felld út rétt áður en lögin voru sam- þykkt vorið 1994. „Full ástæða er til að flokka sel með öðrum villtum dýr- um og láta hann njóta þeirrar vernd- ar sem villidýralögin veita, meðal annars hvað varðar veiðar, og miðar þetta frumvarp að því,“ segir í grein- argerðinni. Vill enga breytingu Verði frumvarpið að lögum þá munu sömu almennu reglur gilda um selveiðar og aðrar veiðar á villt- um dýrum og fuglum og sömu kröf- ur gerðar til selveiðimanna og ann- arra sem veiða villt dýr og fugla. Þá er lagt til að ráðherra geti mælt fyrir um sérstök griðasvæði sela. „Ég vil ekki fá selinn inn í villi- dýralögin,“ sagði Pétur Guðmunds- son frá Ófeigsfirði og formaður Sam- taka selabænda. „Ég vil bara hafa þetta eins og þetta hefur verið. Þetta á að heyra undir atvinnuvega- ráðuneytið. Það eru bændur og sjáv- arjarðaeigendur sem eiga réttinn á þessu. Ég vil bara hafa það þannig. Að fara með þetta undir umhverf- isráðuneytið er vonlaust.“ Pétur telur að skotveiðar á sel séu ekki æskilegar. Bæði sé mikil hætta á að selir sleppi illa særðir og veslist svo upp og drepist. Eins valdi skot- hvellirnir mikilli truflun ef skotið er við eða í selalátrum. „Ef þú hleypir af byssu í selalátri þá ertu búinn að spilla því til margra áratuga,“ sagði Pétur. Hann stundar vorveiði á landsels- kópum í net. „Þetta fer allt fram í mestu rólegheitum. Hann lendir í neti og drukknar fljótt,“ sagði Pét- ur. „Við seljum skinnin fyrir ágætis pening og étum kjötið eins og við torgum. Þetta er mjög góður matur. Spikið er allt hirt og saltað. Það er tölu- verð ásókn í það. Fólk étur þetta með signum og söltum fiski.“ Eitthvað er um veiði á haustsel, það er útsels- kópum. „Það eru aðallega Breiðfirðingar sem eru að sæta sér í munni, en það er ekki mikið,“ sagði Pétur. Vilja seli undir sömu lög og önnur villt dýr Morgunblaðið/RAX Landselur Nokkrir selabændur stunda enn veiðar á vorkópum landsela og haustkópum útsela. Mjög hefur dregið úr selveiðum undanfarna hálfa öld. Mjög hefur dregið úr selveiðum síðustu áratugina. Heildarveiðin var allt upp í 6-7 þúsund seli á ári allt fram undir miðjan 9. ára- tug 20. aldar. Veiðin fór niður fyrir 1.000 seli á ári árið 2002 og hefur yfirleitt minnkað ár frá ári síðan. Hafrannsóknastofnun fékk upplýsingar um 396 veidda seli árið 2011, þar af voru 224 meðafli fiskiskipa. Erlingur Hauksson, sjávarlíf- fræðingur hjá Selasetri Íslands, sagði að minnkandi selveiðar endurspegli ekki stærð sela- stofnanna, þótt þeir hafi minnkað frá því fyrir hálfri öld. Hafrannsóknastofnun mat landselsstofninn vera 11.000 dýr árið 2011 og útsels- stofninn var talinn vera 6.100 dýr ár- ið 2008. Nú stendur yfir taln- ing á útsels- kópum. Dregið hefur úr selveiðum SELUM HEFUR FÆKKAÐ UNDANFARNA ÁRATUGI Pétur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.