Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 38

Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Á suðurströndinni eru víða árósar þar sem myndast hafa lón og víðáttumiklar sand- leirur umhverfis þau. Allt frá Eystrahorni að Ölfusá má telja fjöl- mörg lón og leirur ásamt fjölda árósa, s.s. Hornafjarðarós, Dyr- hólaós, Holtsós, Af- fallsós, Skipagerðisós o.s.frv. Útföll þessara vatnsfalla færast iðulega til eftir sjávarstraumum og ríkjandi vindáttum og útföll smærri vatnsfalla stíflast iðulega. Þá stækka lónin óðfluga og valda tjóni á aðliggj- andi nytjalöndum, girðingum og jafnvel fasteignum. Sum þessara svæða liggja allfjarri byggð en önnur eru á daglegu áhrifa- og nýtingarsvæði byggðar, sem liggur fast að þeim. Manns- höndin hefur á liðnum áratugum og öldum haft mikil afskipti af þessum vötnum sérstaklega við Hornafjarð- arós, Dyrhólaós, Holtsós og Hóls- árós. Dyrhólaós Í störfum mínum hef ég haft af- skipti af mörgum þessara ósa á liðn- um árum. Er það einkum vegna moksturs, þegar útfall í sjó hefur lokast og verja þarf nytjalönd og girðingar fyrir vatnságangi. Norðan og austan við Dyrhólaey í Mið- Mýrdal er Dyrhólaós, allstórt lón, myndað af smáám, lækjum og af- rennsli landþurrkunarskurða á mýr- lendinu. Ósinn hefur útfall austan við Eyjarhornið gegnum malarkamb, svokallað Eiði. Oft teppist útfallið í brimum og flæðir þá Ósinn langt upp á láglendið umhverfis Ósinn. Bændur í Mýrdaln- um hafa lengst af (frá því á 16. öld) fram- kvæmt og kostað út- moksturinn, fyrst með handafli en síðar með vélum, en sveitarfélag- ið, Vegagerðin og Landgræðslan hafa stöku sinnum styrkt þær framkvæmdir fjár- hagslega. Í undirbúningi að gerð aðalskipulags- tillögu fyrir Mýrdals- hrepp var því haldið fram í álitsgerð Umhverfisstofnunar og af nokkrum „opinberum“ sérfræðingum og einn- ig í umsögnum um tillöguna, að Dyr- hólaós væri lítt snortinn af manna- völdum og bæri því að varðveita hann sem slíkan. Þessar ótrúlegu, nánast fáránlegu, fullyrðingar höfðu án efa áhrif á þá óviðunandi nið- urstöðu Skipulagsstofnunar að leggjast gegn tillögu sveitarstjórnar um nýja veglínu ofan við Dyrhólaós. Framræsla mýranna í Mýrdaln- um um miðja síðustu öld hafði gíf- urleg áhrif á allt gróðurfar við Dyr- hólaós og afkomuskilyrði bænda á landþröngum jörðum í Mið-Mýrdal. Og að sjálfsögðu höfðu þær fram- kvæmdir einnig áhrif á Dyrhólaós. Fyrst eftir skurðgröftinn barst mik- ið af jarðefnum í ósinn og síðan gerði skurðakerfið það að verkum að regn- og leysingaflóð skiluðu sér miklu hraðar en áður til óssins með tilheyrandi áhrifum. Einnig hefur safnast í ósinn verulegt magn gos- efna t.d. frá tveim síðustu gosum 2010 og 2011. Þannig hefur borist í ósinn mikið magn jarðefna af fram- burði úr skurðum, ám og lækjum, ásamt úrgangi, s.s. áburði, lífrænum og tilbúnum, af túnsléttum milli skurða svo og skolpi frá byggðinni í kring. Allt þetta hefur haft þau áhrif að ósinn grynnkar stöðugt og lífríkið hefur breyst vegna lífrænna efna frá byggðinni. Þá hafa fiskeldistilraunir með haf- beit og kvíaeldi einnig haft áhrif á ósinn, en þær stóðu yfir í nokkur ár á níunda tug síðustu aldar, með til- heyrandi raski, í og við ósinn, ásamt með vegagerð úr Reynishverfi út eftir Reynisfjöru að útfallinu. Fisk- eldi hlýtur alltaf að vera verulega mengandi en væntanlega voru allar þessar framkvæmdir með leyfi og vilja Umhverfisstofnunar og/eða fyr- irrennara þeirrar stofnunar. Fram- kvæmdirnar hafa þá verið í sam- ræmi við þeirra regluverk. Framantalið hefur haft áhrif á lífríki þessa svæðis og mun svo verða um ókomin ár meðan búseta verður í sveitinni. Það er því ansi langsótt að telja þetta lón og næsta nágrenni þess ómengað og langur vegur frá að það sé ósnortið af manna völdum. Sérstaða Dyrhólaóss er að mínu mati einkum sú, að í hann fellur eng- in stór á, heldur fjöldi lækja ásamt rennsli úr framræsluskurðum. Því skal einnig haldið til haga að vegur var lagður yfir sandleiruna norðan Dyrhólaeyjar haustið 1979 og end- urbættur á árunum þar á eftir, eftir efnum og ástæðum. Varð vegurinn til þess að greiðfært er út á Dyrhóla- ey og kom í veg fyrir að ekið væri þvers og kruss um leirurnar og á lágeynni og einnig þrálátar festur bíla og vandræði á leiðinni út í Dyr- hólaey. Vegurinn hindraði að ósinn flæmdist vestur fyrir Dyrhóla, allt að landi Garðakots, og kom í veg fyr- ir áframhaldandi landbrot á túnum fremstu bæjanna, á Ströndinni, sem svo er nefnd, sunnan Loftsala og Dyrhólabæja. Fyrir atbeina Land- græðslunnar tókst einnig að hindra sandfok frá fjörunni og graslendi (jafnvel votlendi) myndaðist þar á stóru svæði. Þrátt fyrir allt það sem hér að framan er talið virðast sérfræðingar Umhverfisstofnunar líta svo á að ós- inn og umhverfi hans sé enn ósnortið svæði. Niðurstaða mín er að þrátt fyrir nær stanslaust brambolt og krukk af öllu tagi við ósinn, í aldir og áratugi, þá hefur hann ekki borið neinn sjá- anlegan skaða af, en því fer víðs fjarri að hann sé ósnortinn af manna völdum. Hann verður áfram á sínum stað og á að fá að þróast og breytast í takt við náttúru og mannlíf í Mýr- dal. Ný veglína hringvegarins ofan við Dyrhólaós mun heldur ekki á neinn hátt skaða hann. Árósar Eftir Gylfa Júlíusson » Sérstaða Dyrhólaóss er að mínu mati einkum sú, að í hann fellur engin stór á, held- ur fjöldi lækja ásamt rennsli úr framræslu- skurðum. Gylfi Júlíusson Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Vegagerðarinnar og Landgræðslu ríkisins. Gömul og ný tillaga Vegagerðarinnar um veglínu í Mýrdal, margsamþykktri af sveitarstjórn hvers tíma Ég hef oft furðað mig á því hvers vegna krafan um stjórnlaga- dómstól er ekki hávær- ari á Íslandi og þá sér- staklega eftir hrun. Hvernig stendur á því að Íslendingar geta ekki spurt stjórnlaga- dómstól álits á því hvort einhver lög, stjórnarathafnir eða milliríkjasamningar sem settir eru af Alþingi standist stjórnarskrá? Hver getur verið ástæðan fyrir því? EES-samningurinn stjórnarskrárbrot? Þegar Ísland skrifaði undir EES- samninginn voru margir sem töldu hann brjóta í bága við stjórnarskrá. Kjósendur reyndu að hafa áhrif á framgang málsins með því að senda forseta Íslands, Vigdísi Finn- bogadóttur, áskorun undirskrifaða af 30.000 kjósendum um að setja málið í þjóðaratkvæði sem hún hafnaði að gera. Schengen-samningurinn var samþykktur af Alþingi þrátt fyrir mjög hörð þverpólitísk mótmæli og viðvaranir, og það sem meira var, op- inber ummæli þáverandi forsætisráðherra, Dav- íðs Oddssonar, um að hugsanlega væri Schen- gen á gráu svæði hvað varðar stjórnarskrána. Samt fór samningurinn í gegn, samþykktur af Al- þingi! Pantað lögfræðiálit um EES? Þegar menn ræddu um hvort EES stæðist stjórnarskrá létu þáver- andi stjórnvöld gera lögfræðilega út- tekt á því hvort EES stæðist stjórn- arskrána. Álitið var á þá leið að það væri á gráu svæði en sennilega væri þetta í lagi. Á sama tíma voru aðrir lögfræðingar sem héldu því fram að EES-samningurinn stæðist engan veginn stjórnarskrána. Nú í dag halda þeir menn, sem hvað harðast studdu EES samninginn, því fram að hann standist ekki stjórnarskrána! En það er í þeim tilgangi að styrkja málflutn- ing sinn um að Ísland eigi að ganga í ESB. Ég ætla ekki að fara nánar út í þá sálma en varpa fram þeirri spurn- ingu hvers vegna krafan um stjórn- lagadómstól hefur ekki verið kröft- ugri á Íslandi miðað við ásakanir sem hafa gengið á víxl um að hin og þessi lög, stjórnarathafnir eða alþjóðasam- ingar standist ekki stjórnarskrána? Hvað er einfaldara en að gera út um slíkar deilur fyrir dómstól sem sker úr um það? Aðrar þjóðir, t.d. Þjóð- verjar (áður V-Þjóðverjar), hafa haft slíkan dómstól í ártugi með góðri sátt. Ég var þeirrar skoðunar eftir hrun að Íslendingar þyrftu að endurskoða stjórnarskrána og að við þyrftum að efna til „stéttaþings“ um hvernig við gætum bætt núverandi stjórnarskrá. Þá sá ég fyrir mér að menn mundu gera lagfæringar á núverandi stjórn- arskrá sem fælu í sér ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur (beint lýð- ræði) og úrskurðarvald um hvort lög, ákveðnar stjórnarathafnir eða milli- ríkjasamningar stæðust stjórnarskrá (stjórnlagadómstóll). Núverandi drög útópía? En að niðurstaðan yrði að núver- andi stjórnarskrá, sem er, ef ég man rétt, 17 blaðsíður, gæti orðið 200 blaðsíður sá ég ekki fyrir mér. Áður en ég held áfram vil ég taka fram að mér dettur ekki í hug að vanvirða þá vinnu, sem þeir sem voru fyrst kosnir á stjórnlagaþing og síðar skipaðir í stjórnlagaráð, hafa innt af hendi. Það er ekki nokkur vafi á því að það fólk innti sína vinnu af hendi með heið- arleika. En niðurstaðan er, að mínu áliti, útópía. Stjórnvöldum bannað að banna hryðjuverkasamtök? Ein ástæðan, af mörgum, sem hef- ur gert mig andsnúinn þessum drög- um er að mér finnst í meira lagi und- arlegt að í þessum drögum er eyðilagt ákvæði í núverandi stjórn- arskrá sem heimilar stjórnvöldum að setja bann við starfsemi flokka eins og til dæmis nýnasista, eða samtaka sem safna fé fyrir hryðjuverka- samtök eða samtaka sem vitað er að eru skipulögð glæpasamtök eins og til dæmis Hells Angels. Ég ætla að kjósa gegn þessum stjórnarskrárdrögum í kosningunum 20. október. Stjórnlagadómstól frekar en nýja stjórnarskrá? Eftir Helga Helgason »Ég ætla að kjósagegn þessum stjórn- arskrárdrögum í kosn- ingunum 20. október. Helgi Helgason Höfundur er stjórnmálafræðingur. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ EINSTAKLEGA GLÆSILEG NEÐRI SÉRHÆÐ MEÐ STÓRUM AFGIRTUM GARÐI, RÚMGÓÐUM PALLI OG SJÁVARÚTSÝNI VIÐ KVISTHAGA Í VESTURBÆ REYKJAVÍKUR. EIGNIN ER ALLS 183,4 FM ÞAR AF TVÖFALDUR 45,2 FM BÍLSKÚR. Hæðin var tekin í gegn að stórum hluta fyrir nokkrum árum. M.a eldhús, baðherbergi, gólfefni, lagnir, gluggar, gler og innréttingar. Glæsileg eign á eftirsóttum stað. Úlfar Davíðsson Sölufulltrúi 897 9030 Reynir Erlingsson lögg. fasteignasali Kvisthagi - Glæsileg neðri sérhæð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.