Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 41
UMRÆÐAN 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráð-
herra, sagði nýlega, að
stærsti sigur sitjandi
ríkisstjórnar væri vörn
velferðarkerfisins. En
hefur ríkisstjórninni
tekist að verja velferð-
arkerfið að fullu? Lít-
um á það mál. Stærstu
þættir velferðarkerf-
isins eru heilbrigð-
iskerfið og almanna-
tryggingarnar. Einna mesti
niðurskurðurinn hefur átt sér stað í
heilbrigðismálunum og ekki hvað
síst á Landspítalanum sjálfum. Á
Landspítalanum er búið að skera
niður inn að beini og orðið erfitt að
tryggja öryggi sjúklinga.
Á krepputímanum, frá 2008, hef-
ur rekstrarfé spítalans verið skorið
niður um 25%. Niðurskurðurinn
nemur 8,6 milljörðum kr. Starfs-
fólki hefur verið fækkað um 600
manns. Hjúkrunardeildum hefur
verið lokað úti á landi. Það hefur
bitnað illa á öldruðum. Og fæðing-
ardeildum hefur verið lokað á
mörgum stöðum á landsbyggðinni.
Víða er það nú þannig , að konur
geta ekki lengur fætt í sinni heima-
byggð, heldur verða þær að fara
um langan veg á sjúkrahús til þess
að fæða og kjósa þá margar konur
að fara til Reykjavíkur. Í sumar var
göngudeild fyrir kransæða-
sjúklinga á Landspítalanum lokað.
Áður hafði líknardeild Landakots
verið lokað. Hún var stofnuð fyrir
rúmum 10 árum til þess að hlynna
að mjög veikum, öldruðum sjúk-
lingum síðasta spöl lífs þeirra.
Stofnkostnaður deild-
arinnar var að miku
leyti greiddur úr
framkvæmdasjóði
aldraðra en einnig
með gjafafé, m.a. frá
Rauða krossinum. Það
er mjög óeðlilegt að
loka deild, sem stofn-
að er til á þennan hátt.
St.Jósefsspítala í
Hafnarfirði hefur
einnig verið lokað en
þar var rekin mjög
góð heilbrigðisþjón-
usta. Af því, sem hér
hefur verið nefnt, er ljóst, að ekki
hefur tekist að verja heilbrigð-
isþjónustuna.
Skorið niður
í almannatryggingum
En hvað þá með almannatrygg-
ingarnar? Hefur tekist að verja
þær? Lítum á það mál: Það hefur
verið skorið talsvert niður í al-
mannatryggingum og m.a.hefur líf-
eyrir aldraðra og öryrkja verið
skertur umtalsvert. Ríkisstjórnin
lét setja lög á árinu 2009 um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum. Þar var
gert ráð fyrir niðurskurði í al-
mannatryggingum, m.a. hjá lífeyr-
isþegum. Þessar ráðstafanir tóku
gildi 1. júlí 2009. Stór hópur aldr-
aðra og öryrkja var þá sviptur
grunnlífeyri, þar eð greiðslur úr líf-
eyrissjóði voru þá reiknaðar með
tekjum við útreikning á grunnlíf-
eyri, en það hafði ekki verið gert
áður. Þó hafði þessi hópur greitt til
almannatrygginga, beint og óbeint,
alla sína starfsævi.
Meira en 5000 lífeyrisþegar urðu
fyrir kjaraskerðingu vegna þess-
arar ráðstöfunar. Skerðingarhlut-
fall tekjutryggingar var hækkað úr
38,35% í 45% með þeim afleiðingum,
að 19000 eldri borgarar urðu fyrir
kjaraskerðingu og frítekjumark
vegna atvinnutekna aldraðra var
lækkað úr 110 þús. kr. á mánuði í 40
þús. kr. á mánuði. Niðurskurðurinn
vegna ráðstafana, sem tóku gildi
2009, nam 5 milljörðum kr. á árs-
grundvelli. En auk þess, sem skorið
hefur verið niður í almannatrygg-
ingum, var lífeyrir aldraðra og ör-
yrkja frystur nær allan krepputím-
ann. Aldraðir og öryrkjar hafa ekki
fengið sambærilegar hækkanir á líf-
eyri sínum eins og láglaunafólk hef-
ur fengið á launum. Samkvæmt lög-
um um almannatryggingar á
hækkun lífeyris að taka mið af
hækkun launa og verðlags og aldrei
að hækka minna en sem nemur
hækkun neysluvísitölu. Ekki hefur
verið staðið við þetta og því hefur
lífeyrir aldraðra og öryrkja dregist
aftur úr í launaþróuninni á kreppu-
tímanum .Til þess að jafn metin
þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 20%
strax.
Kjör aldraðra og öryrkja
þoldu ekki niðurskurð
Það er er því ljóst, að ekki hefur
tekist að verja velferðarkerfið að
fullu. Heilbrigðiskerfið hefur stór-
skaddast á stjórnartíma ríkisstjórn-
arinnar vegna mikils niðurskurðar.
Og almannatryggingar hafa verið
skornar niður með þeim afleið-
ingum, að kjör aldraðra og öryrkja
hafa verið skert verulega. Ég tel, að
kjör aldraðra og öryrkja hefðu átt
að vera undanskilin niðurskurði.
Kjörin eru svo lág að þau þola ekki
niðurskurð.
Á sama tíma og skorið er niður í
heilbrigðiskerfi og almannatrygg-
ingum getur ríkisstjórnin ekki hald-
ið því fram, að tekist hafi að verja
velferðarkerfið að fullu. Það hefur
sjálfsagt verið reynt að takmarka
niðurskurðinn en ekki er að sjá að
þeirri stefnu hafi verið fylgt í heil-
brigðiskerfinu.Þar er niðurskurð-
urinn mjög harkalegur. Nið-
urskurður almannatrygginga er ef
til vill aðeins mildari en kjör stórs
hóps aldraðra og öryrkja eru það
slæm, að þau þola enga skerðingu.
Einhleypur ellilífeyrisþegi hefur að-
eins 174 þús. kr. á mánuði eftir
skatt frá almannatryggingum, mið-
að við að hann hafi engar aðrar
tekjur. Ellilífeyrisþegi,sem er í
hjónabandi eða í sambúð, fær aðeins
156 þús. kr. eftir skatt frá almanna-
tryggingum. Hvernig á að vera unnt
að lifa mannsæmandi lífi af svo lág-
um fjárhæðum? Það er ekki unnt.
Það er rétt, að þetta dugi fyrir hús-
næði og brýnustu nauðsynjum en
ekki er unnt að veita sér neitt þar
fyrir utan af svo lágum lífeyri. „Vel-
ferðarstjórn“ hefði átt að hlífa öldr-
uðum og öryrkjum við niðurskurði
og það hefði alls ekki átt að frysta
lífeyri þeirra eins og gert var.
Ekki hefur tekist að verja
velferðarkerfið að fullu
Eftir Björgvin
Guðmundsson » „Velferðarstjórn“hefði átt að hlífa
öldruðum og öryrkjum
við niðurskurði og það
hefði alls ekki átt að
frysta lífeyri þeirra eins
og gert var.
Björgvin
Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Formaður kjaranefndar Félags eldri
borgara í Rvk.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
- með morgunkaffinu