Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Samþykktar voru
breytingar á sam-
gönguáætlun á nýloknu
þingi þar sem gert er
ráð fyrir því að fram-
kvæmdir við Norðfjarð-
argöng skuli hefjast á
næsta ári. Ekki er úti-
lokað að ákvörðun um
útboð Dýrafjarð-
arganga geti legið fyrir
eftir 2-3 ár. Þökk sé
þeim þingmönnum sem
samþykktu tillögu Arnbjargar
Sveinsdóttur um jarðgöng milli Seyð-
isfjarðar og Egilsstaða. Framkoma
ríkisstjórnarinnar sem greiddi at-
kvæði gegn þessari tillögu á Alþingi
er til háborinnar skammar og sömu-
leiðis hjáseta Steingríms J. Sigfús-
sonar.
Fram kemur í yfirlýs-
ingu formanna stjórn-
arflokkanna að lögfest-
ing veiðigjalda sem hart
hefur verið deilt um á
Alþingi geri nú stjórn-
völdum kleift að hefja
kröftuglega uppbygg-
ingu í samræmi við fjár-
festingaáætlun rík-
isstjórnarinnar. Þar með
er nokkuð ljóst að hægt
verður að bjóða út mik-
ilvægar samgöngubætur
á landsbyggðinni svo
sem Norðfjarðargöng á
næsta ári. Búið er að samþykkja
breytingartillögu við samgönguáætl-
unina sem felur það í sér að stefnt
verði að því að flýta rannsóknum og
undirbúningi Fjarðarheiðarganga.
Núverandi ástand vegarins á heiðinni
sem stendur í meira en 600 m hæð er
engum bjóðandi eftir að löggæslan var
flutt án nokkurs tilefnis frá við-
komustað Norrænu upp í Egilsstaði.
Miðað er við að þessum rann-
sóknum og undirbúningi Seyðisfjarð-
arganga verði hagað með þeim hætti
að framkvæmdir við göngin geti haf-
ist í kjölfar Norðfjarðar- og Dýra-
fjarðarganga. Mestu máli skiptir að
beygjurnar í Neðri-Stafnum hverfi
sem fyrst. Af fúsum og frjálsum vilja
fæst réttlætið ekki sem af minnsta
tilefni er tekið ófrjálsri hendi frá
Seyðfirðingum, Norðfirðingum,
Vopnfirðingum og fleiri lands-
mönnum á meðan stuðningsmenn
Vaðlaheiðarganga opinbera vanþekk-
ingu sína á samgöngumálum Austur-
lands. Um tímamótasamþykkt er að
ræða eftir að tillaga Arnbjargar
Sveinsdóttur um Fjarðarheiðargöng
var samþykkt með afgerandi meiri-
hluta á Alþingi þótt Steingrímur J.
Sigfússon hafi vottað Seyðfirðingum
sína dýpstu fyrirlitningu. Allt tal um
að Tryggvi Þór Herbertsson sé fyrsti
flutningsmaður tillögunnar er sett
fram gegn betri vitund. Óbreytt
ástand í samgöngumálum Seyð-
isfjarðar réttlætir ekki að þessi við-
komustaður ferjunnar sitji á hakanum
enn meir en orðið er þótt Norðfjarðar-
og Dýrafjarðargöng verði efst á blaði.
Erlendis verja álfyrirtækin miklum
fjármunum í samgöngubætur og er
ekkert óeðlilegt þótt svo yrði einnig
hér á landi. Án þeirra eykst samstarf
Vopnfirðinga aldrei við byggðirnar
sunnan Hellisheiðar eystri og Norð-
austurhornið. Öllu máli skiptir að ran-
sóknum og undirbúningi á jarð-
gangagerð milli Egilsstaða og
Seyðisfjarðar sé hagað með þeim
hætti að unnt verði að stytta biðlist-
ann eftir veggöngunum sem leysa af
hólmi núverandi veg í 640 m hæð á
Fjarðarheiði. Fyrr geta Seyðfirðingar
aldrei fengið öruggari vegtengingu við
Egilsstaðaflugvöll þegar illviðri og
mikil snjódýpt á heiðinni eru höfð í
huga.
Stuðningsmenn Héðinsfjarðar- og
Vaðlaheiðarganga á Austfjörðum sem
þræta fyrir að Arnbjörg Sveinsdóttir
hafi tvisvar flutt tillögu á Alþingi um
veggöng undir Fjarðarheiði opinbera
fyrirlitningu sína á samgöngumálum
Mið-Austurlands og suðurfjarðanna.
Þessar rangfærslur um flutnings-
mann tillögunnar einkennast af þekk-
ingarleysi, fáfræði, pólitískri sið-
blindu og pólitískum árásum á
samgöngumál Seyðisfjarðar sem
skaða uppbyggingu atvinnuveganna í
fjórðungnum. Þær eru ekki til þess
fallnar að rjúfa einangrun stóra
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup-
stað við heimamenn sem búa sunnan
Oddsskarðsganganna, á suðurfjörð-
unum, norðan Fagradals og Hellis-
heiðar eystri. Þeir sem votta flutn-
ingsmanni tillögunnar um veggöng til
Seyðisfjarðar sína dýpstu fyrirlitn-
ingu eiga það inni að þeir verði
dregnir til ábyrgðar á orðum sínum.
Það sluppu stuðningsmenn Axarveg-
ar og Héðinsfjarðarganga á Austur-
landi við þegar þeim var þvert um
geð að Arnbjörg Sveinsdóttir skyldi
fá samþykkta á Alþingi í febrúar 1999
tillöguna um að næstu jarðgöng yrðu
milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar. Kannski kunna svona djarf-
hugar ekki að meta annað betur en að
þeim verði kennt að bera fulla ábyrgð
á gjörðum sínum og orðum eftir þeim
lagareglum sem í landinu gilda.
Ákvörðun um Norðfjarðargang
stendur óhögguð.
Veggöng undir Fjarðarheiði
Eftir Guðmund Karl
Jónsson »Um tímamóta-
samþykkt er að
ræða eftir að tillaga
Arnbjargar Sveins-
dóttur um Fjarðarheið-
argöng var samþykkt
með afgerandi meiri-
hluta á Alþingi þótt
Steingrímur J. Sigfús-
son hafi vottað Seyðfirð-
ingum sína dýpstu fyr-
irlitningu.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður
Alþjóðahafrann-
sóknaráðið ICES hefur
birt mat sitt á stærð
makrílstofnsins ásamt
ráðgjöf um leyfilegan
heildarafla fyrir árið
2013. Hrygning-
arstofninn er metinn
tæpar 2,7 milljónir
tonna, rúmlega 300
þúsund tonnum minni
en á síðasta ári og ráð-
lagður afli er um 15%
minni.
Um langt skeið veiddu aðildarríki
ESB og Noregur mikið magn af mak-
ríl sem var landað framhjá vigt. Þetta
var opinbert leyndarmál sem viðkom-
andi stjórnvöld létu viðgangast. Þó að
Skotar og Írar hafi nýlega verið
dæmdir í háar fjársektir fyrir athæfið
liggur umfang brotanna ekki ná-
kvæmlega fyrir.
Árleg ráðgjöf Alþjóðahafrannsókn-
aráðsins um hámarksafla úr markíl-
stofninum byggist á aflareglu sem
Noregur, ESB og Færeyjar gerðu
samkomulag um fyrir fjórum árum.
Reglan miðast við að veiða að hámarki
tiltekið hlutfall af metinni stofnstærð.
Árið 2010 birtist vísindagrein sem
véfengir matið á stofnstærð makríls út
frá mælingum og tölfræðigreiningum
(Simmonds o.fl., ICES Journal af
Marine Science 67:1138-1153 (2010)).
Höfundar greinarinnar eru vís-
indamenn frá ríkjum ESB og Noregi.
Þeir vísa til þess sem vitað er um um-
fangsmikla ólöglega löndun makrílafla
framhjá vigt úr skipum ESB auk
brottkasts og þess sem sleppt úr veið-
arfærum. Meginniðurstaða þeirra er
sú að til að ná samræmi
milli mats á afföllum út
frá mismunandi gögnum
þyrftu uppgefinn afli og
brottkast að vera 1,7 til
3,6 sinnum meiri en
skráður afli. Til þess að
stofnstærðarmatið geti
verið á réttu róli þurfa
aflatölur einnig að vera
það. Það er ekki einfalt
mál að segja til um
hverju kunni að skeika
þegar makríllinn á í hlut
þar sem það liggur í eðli
glæpamála að þau verða
ekki alltaf upplýst að fullu. Ljóst má
hins vegar telja að makrílstofninn
umtalsvert stærri en talið hefur verið,
jafnvel hátt í tvöfalt stærri.
Mikilvægt er að lagt verði í um-
fangsmikla og vandaða vinnu við end-
urmat á stærð makrílstofnsins án taf-
ar þannig að ákvarðanir um
heildarafla og samningar um skipt-
ingu afla milli ríkja geti byggst á rétt-
um upplýsingum. Íslensk stjórnvöld
og íslenskir vísindamenn eru hvattir
til að taka frumkvæðið í þessu mik-
ilvæga hagsmunamáli enda hafa
stjórnvöld í ESB og Noregi ekki sinnt
því.
Makrílstofninn er
vanmetinn
Eftir Friðrik J.
Arngrímsson
Friðrik J.
Arngrímsson
»Mikilvægt er að lagt
verði í umfangs-
mikla og vandaða vinnu
við endurmat á stærð
makrílstofnsins án taf-
ar.
Höfundur er framkvæmdastjóri LÍÚ.
ERT ÞÚ MEÐ VERKI?
Stoðkerfislausnir hefjast 1. október nk.
Hentar þeim sem eru að glíma við einkenni
frá stoðkerfi og vilja læra á sjálfan sig og
finna sín mörk í hreyfingu.
• Mán., mið. og fös. kl. 18:30
• Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara ásamt
kennslu í réttri líkamsbeitingu
• Fyrirlestrar um verki, svefntruflanir og heilbrigðan lífstíl
• 8 vikna námskeið
• Verð: 39.800 kr. (19.900 kr. á mánuði)
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Allir verkir hafa minnkað. Ég var áður alltaf svo
þreytt og alltaf að leggja mig. Mér finnst satt að
segja að allir sem eru að finna til verkja ættu að
koma hingað. Hreyfingin hefur líka áhrif á alla
starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir
sálina. Mér líður miklu betur og ég er ákveðin í
að halda áfram.“
Sólveig Guðmundsdóttir
Þjálfari: Sólveig María
Sigurbjörnsdóttir sjúkraþjálfari
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Sérsmíðaðar innréttingar
Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar
sérsmíði á innréttingum.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.