Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Í tilefni af árlegum
alþjóðlegum Alzheim-
erdegi er vert að
huga að mikilvægi
hreyfingar hjá þeim
sem bera þennan
sjúkdóm. Heilabilun
er samnefnari fyrir
langvinna og stig-
versnandi sjúkdóma í
heila sem skerða
minni og aðra vits-
munalega getu þannig að ein-
staklingurinn þarf í sívaxandi mæli
á aðstoð að halda.
Algengi vitrænnar skerðingar
vex með aldri og tvöfaldast á
hverjum fimm árum eftir 65 ára
aldur, þannig að um það bil þriðj-
ungur 85 ára einstaklinga og eldri
er með vitræna skerðingu. Vitræn
skerðing er til staðar hjá þremur
fjórðu þeirra sem dvelja á hjúkr-
unarheimili, þar af er einn fjórði
með heilabilun á hæsta stigi en
fjórðungur með alvarlega heilabil-
un.
Mjög mikilvægt er að bregðast
við vitrænni skerðingu sem fyrst
og rannsaka hugsanlegar und-
irliggjandi orsakir, þar sem 10-
15% orsakanna hafa læknanlegan
þátt sem getur breytt nátt-
úrulegum gangi skerðingarinnar.
Fyrir þá sem hafa þá sjúkdóma
sem enn sem komið er
eru ólæknandi er mik-
ilvægt að koma inn
stuðningi hvers konar
við einstaklinginn og
nánustu fjölskyldu
hans.
Á LSH Landakoti
er minnismóttaka þar
sem veitt er greining,
meðferð og eftirlit
vegna vitrænnar
skerðingar. Meðferð
fer eftir undirliggj-
andi orsök. Algeng-
asta orsökin er Alzheimersjúkdóm-
ur. Við honum er til
einkennameðferð. Næstalgengasta
orsökin er heilabilun af orsökum
æðakölkunar og blóðtappa. Mik-
ilvægt er fyrir allar orsakir heila-
bilunar, jafnt vitrænnar skerðingar
af völdum hjarta- og æðasjúkdóma
sem Alzheimersjúkdóms, að með-
höndla alla áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma, svo sem hækkaða
blóðfitu og blóðþrýsting. Reyk-
ingar eru skaðvaldur gagnvart vit-
rænni getu eins og svo mörgu
öðru.
Stuðningshópar fyrir ættingja
og sérhæfð dagvist fyrir þá sem
eru með vitræna skerðingu eru
hjálpleg félagsleg úrræði. Sjúk-
dómsferlið tekur að jafnaði mörg
ár og allt upp í 15 ár frá grein-
ingu. Einstaklingurinn sjálfur get-
ur gert ýmislegt til að hjálpa sér,
til dæmis með hollu mataræði,
reglubundinni hreyfingu og með
því að huga að góðum svefnvenj-
um.
Aukin hreyfing og líkamleg
áreynsla sýnir sig að geta seinkað
og dregið úr einkennum vitrænnar
skerðingar. Margvísleg hreyfing
skilar þessum árangri svo sem erf-
ið heimilisstörf, ganga, sund og
formleg líkamsrækt. Einnig reynd-
ar annars konar æfingar eins og
jóga og tai-chi og vatnsleikfimi.
Hreyfing þarf að vera regluleg, að
lágmarki tvisvar í viku en þeim
mun meiri sem hún er, því betra.
Best er dagleg hreyfing og
áreynsla að lágmarki samtals 30
mínútur á dag.
Auk forvarnargildis hreyfingar
þeirra sem eru á miðjum aldri
stuðlar hreyfing einnig að al-
mennri vellíðan og auknum lífs-
gæðum. Hreyfing er eina þekkta
yngingarmeðalið og stuðlar að for-
vörnum gegn flestum langvinnum
sjúkdómum, ekki einungis vitrænni
skerðingu. Þegar vitræn skerðing
hefur komið fram dregur hreyfing
úr margvíslegum einkennum, svo
sem svefntruflunum, þróttleysi,
óróleika, kvíða og depurð. Í kjölfar
hreyfingar nýtist einstaklingnum
betur sú tilfinningalega og fé-
lagslega færni sem hann býr enn
yfir og þannig eru lífsgæði há-
mörkuð, jafnvel þó að sjúkdóm-
urinn hafi náð fullum framgangi.
Heilbrigð og hófleg hreyfing allt
lífið er mikilvæg og nú er ljóst að
það er aldrei of seint að hefja slíka
þjálfun. Vægi hreyfingar er mikið
gagnvart flestum langvinnum sjúk-
dómum og sérstaklega gagnvart
vitrænni skerðingu, þar sem engin
þekkt lækning er til í yfirgnæfandi
meirihluta orsaka.
Hreyfing hefur jákvæð
áhrif á vitræna getu
Eftir Þórunni B.
Björnsdóttur » Vægi hreyfingar er
mikið gagnvart
langvinnum sjúkdómum
og vitrænni skerðingu.
Þórunn B. Björnsdóttir
Höfundur er sjúkraþjálfari á heilabil-
unardeild LSH, Landakoti.
Ég hef oft velt því
fyrir mér hvort gagn
sé í svokallaðri þróun-
araðstoð sem flestöll
vestræn ríki taka á
einhvern hátt þátt í,
senda fé, matvæli eða
aðra aðstoð til svo-
nefndra vanþróaðri
ríkja heimsins. Er um
raunverulega aðstoð
að ræða eða er þetta
meira friðþæging fyr-
ir íbúa Vesturlanda? Ég geri mér
fullkomlega grein fyrir að einhver
börn fá að borða, sumir fá aðstoð í
formi lyfja og enn aðrir læra að
lesa, fá fatnað eða önnur gæði sem
flæða af nægtaborði íbúa Vest-
urlanda.
Getur verið að mikið af þeirri að-
stoð sem hin svokölluðu þróuðu ríki
veiti missi marks, hvað ætli fari til
dæmis mikið af þeim fjármunum
sem við á Vesturlöndum sendum til
raunverulegrar aðstoðar og hvað
ætli fari mikið í stjórnun og um-
sýslu? Er hugsanlegt að þessi að-
stoð geri bara illt verra? Getur ver-
ið að íbúar hina svokölluðu
vanþróuðu landa venjist því að
þurfa ekki að bjarga sér upp á eig-
in spýtur, venjan sé að gera ekki
nokkuð til að reyna bjarga sér
heldur bíða eftir að fréttamenn og
aðrir beri út boðskap um eymd og
volæði til hina vestrænu ríkja og
skapi vorkunn í augum íbúa Vest-
urlanda sem fyllast samkennd og
vorkunn. Vesturlandabúar seilast í
sína vasa og gefa af sínum alls-
nægtum til aðstoðar við þá sem
eiga vart til hnífs og skeiðar.
Ísland tekur þátt í þessu í gegn-
um stofnun sem heitir Þróunarsam-
vinnustofnun og á fjárlögum fyrir
2013 veitum við 1.794.000 kr. í
þessa aðstoð, auk 2.180.300 kr. í
þróunaraðstoð og alþjóðlega hjálp-
arstarfsemi. Ég geri mér grein fyr-
ir því að við veitum þessa aura til
þessara mála vegna alþjóðlegra
samninga og þar að
leiðandi er ég ekki með
vangaveltur um okkar
aðstoð einvörðungu
heldur þróunaraðstoð í
heild sinni. Ég er
áhugasamur um að vita
hvað mikið af þessum
fjármunum fer í raun-
verulega aðstoð við
kaup á matvælum, lyfj-
um, bókum og fatnaði
fyrir þurfandi íbúa
landa sem þurfa á að
halda. Getur það verið
að við ásamt öðrum ríkjum Vest-
urlanda afhendum þessa fjármuni
til yfirvalda í hinum þurfandi ríkj-
um sem gera svo það sem þeim
hentar við aurana. Eða hugsanlega
hitt sem er líklega ekki skárra að
hjálparsamtök fara inn í lönd og út-
deila matvælum án samráðs við
stjórnvöld vikomandi lands í krafti
Sameinuðu þjóðana?
Því miður virðist margt benda til
þess að á árunum 1980-2005 hafi
innri vöxtur Afríkuríkja verið innan
við 0,5%, það er að segja ut-
anaðkomandi aðstoð virðist ekki
duga til að koma íbúum þessara
landa til að bjarga sér sjálfir, held-
ur gerir þá frekar að þurfalingum
sem reiða sig einvörðungu á aðstoð
að utan. Sumir leiðtogar Afr-
íkuríkja hafa einnig bent á að þessi
aðstoð drepi niður frumkvæði og
löngun þegna sinna til að bjarga
sér sjálfir.
Getur verið að í þessu máli gildi
málshátturinn „Sjaldan launar kálf-
urinn ofeldið“.
Er „Þróunarað-
stoð“ rangnefni?
Eftir Gunnar Örn
Hjartarson
Gunnar Örn
Hjartarson
» Getur verið að þró-
unaraðstoð til Afr-
íkulanda sé gagnslaus?
Erum við að gera meira
ógagn en gang? Á þróun
sér stað eða ekki?
Höfundur er rafvirkjameistari.
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga
Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Smiðjuvegur 6 (rauð gata) // 200 Kópavogur // Sími 567 7777 // parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
ALLT Í DÚNALOGN
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til
niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt,
gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar
læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur
eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og
meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn
og þarf ekki rakaþolið plast undir
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur,
hannað til að mæta og fara fram úr kröfum
markaðarins um hljóðdempun og pressu.
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
Meðan birgðir endast
www.forlagid.i s – alvöru bókaverslun á net inu
MAGN-
ÞRUNGIN
ÖRLAGASAGA
NÝ
KILJA
eru læstir inni í járnbúri gagnkvæms ótta.“
SV EN SKA DAGBLADET