Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11. Sameig- inlegt upphaf með sunnudagaskólanum. Prest- ur Þór Hauksson. Kirkjukórinn leiðir safn- aðarsöng undir stjórn Kristina K. Szklenár. Freyjukórinn úr Borgarfirðinum syngur, stjórn- andi er Zsuzsanna Budai. Sunnudagaskólinn er í umsjón Ingunnar og Valla. Veitingar á eftir. ÁSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11 í umsjá Ásdísar djákna, Magnúsar organista og sr. Sig- urðar. Fermingarbörn aðstoða. Söngur og fræðsla í máli og myndum. Sjá askirkja.is. ÁSTJARNARKIRKJA | Tónlistarmessa kl. 11. Tónlistarflutningur er í höndum Gissurar Páls Gissurarsonar tenórsöngvara og Hilmars Agn- arssonar organista. Prestur er sr. Ragnar Gunnarsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kaffi á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunndagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Fjóla, Finnur og Agnes María. BREIÐHOLTSKIRKJA | Hausthátíð kl. 11, fjölskyldustund í kirkjunni með þátttöku barna og unglinga. Á eftir verða þrautir, leikir, basar Hollvinafélagsins og hressing. Orgelandakt hefst kl. 12.30. Tómasarmessa kl. 20. Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands prédik- ar. Boðið er upp á fyrirbæn með handayfirlagn- ingu og smurningu. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Ung- menni spila, stjórnandi Jónasi Þórir, kantor Bú- staðakirkju. Umsjón hafa Bára Elíasdóttir og Daníel Ágúst Gautason ásamt sóknarpresti. Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr kór Bú- staðakirkju, kantor Jónas Þórir. Prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björns- son. Organisti Zbigniew Zuchowicz og kór Digraneskirkju, B-hópur. Veitingar á eftir, verð 500 kr. Sjá digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur úr Kammerkór Dómkirkjunnar syngur, organisti Kári Þormar. Sunnudagskóli kl. 11 undir stjórn Árna Gunnars og Ólafs Jóns. FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Prest- ur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór kirkj- unnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ástu Haraldsdóttur. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Hreins Pálssonar og Péturs Ragnhildarson, íþróttadagur, allir mæta í íþróttafötum. Kirkju- vörður og meðhjálpari Jóhanna Freyja Björns- dóttir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Barna- og fjöl- skyldumessa kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar leið- ir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Hressing í lokin. Samkoma kl. 13.30. Tónlist- arhópurinn leiðir lofgjörð og Björg R. Pálsdóttir prédikar. Aðstaða fyrir börn og kaffi í lokin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar organista. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt öllum prestum safnaðarins. Sr. Bjarni Þór kveður Grafarvogssöfnuð eftir ell- efu ára þjónustu og því verður boðið til kaffi- samsætis að lokinni guðsþjónustu. Kór kirkj- unnar syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar organista og Björg Þórhallsdóttir syngur ein- söng. Sunnudagaskóli kl. 11. Borgarholtsskóli Þemamessa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Árni Svanur Daníelsson prédikar og þjónar. Félagar úr Kammerkór kirkj- unnar leiða söng, organisti erHilmar Örn Agn- arsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11, um- sjón hafa Helga og Nanda María. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Gideonfélagsins. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eft- ir. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GUÐRÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Bryndís Valbjarn- ardóttir, tónlistarflutningur í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Barnastarf í umsjá Guðmundar Brynjólfssonar og Ægis Arnars. Meðhjálpari Aðalsteinn D. Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Barnamessa kl. 10. Barnakaffi. Messa kl. 11. Dómkórinn í Reykjavík syngur, stjórnandi Kári Þormar, org- anisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Kaffi á eftir. Messa á miðviku- dag kl. 8.15. Morgunverður. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni og hópi messuþjóna. Fermingarbörn aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, organisti Douglas A. Brotchie. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Org- anisti Douglas A. Brotchie og forsöngvari Guð- rún Finnbjarnardóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Prestur sr. Gunnar Rúnar Matthíasson. Org- anisti Jón Ólafur Sigurðsson og félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og messusvör. Sunnu- dagaskóli kl. 13. Sjá hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Bæna- stund kl. 16.30. Samkoma kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 17. Margaret Saue Marti talar. HRAFNISTA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta kl. 11 í Menningarsalnum. Organisti Böðvar Magnússon, kór Hrafnistu leiðir safnaðarsöng. ORÐ DAGSINS: Jesús læknar á hvíld- ardegi. (Lúk. 14) Vopnafjarðarkirkja Líklegt verður að teljast að ein- hvern tíma á næstu áratugum munum við aftur gerast meðreiðarsveinar stórvelda á borð við ESB; líkt og var áður hjá okkur með Bandaríkin og Danaveldi. Og þá munum við verða að horfast í augu við að í Íslend- ingum blundar enn tilhneiging til að líta á bandalög við stórveldi sem nokkurs konar nátt- úrulögmál; líkt og hafið er fyrir sjávarútveginn og veðrið fyrir bændurna. Þó er þessi viðurkenning á hinu stórveldislega nágrannaríki ekki gamalt fyrirbæri, kannski ekki eldra en tæknivæðing sjávarútveg- arins fyrir öld þegar við fundum áþreifanlega fyrir því að fólksfjöldi okkar og lífskjör byggðust á að flytja út fisk og flytja inn tækni og þekkingu jafnframt. En einmitt þá hefur Danaveldi orðið áþreif- anlegri keppinautur um sjálfstæð- isvilja okkar en áður var. Þegar litið er á núverandi flokkakerfi okkar með þessum augum blasir nokkuð óvænt við: Flestir flokkanna ganga með trú á æskileika þess að vera í litlabróð- urssambandi við erlend stórveldi: Sjálfstæðisflokkurinn við- urkenndi Bandaríkin sem aðdáun- arvert stórveldi sem nauðsynlegt væri að skáka í skjóli við á kald- astríðsárunum. Samfylkingin erfir frá Alþýðuflokknum gamla trú á æskileika þess að tengja sig við eimreið yfirþjóðlegs kratisma í Evrópu, svo sem birtist nú í aðild- arferlinu um ESB. Þó virðast Vinstri-grænir ekki hafa erft þörf Alþýðubandalagsins fyrir stórveldi kommúnista í austri; líkt og var með Sovétríkin sálugu; ella myndu þeir þá vænt- anlega gera sér dælla við Kína nú. Þó má vera að sáðkorn ESB- trúarinnar hafi nú tekið sér ból- festu í hjörtum margra þeirra. Líkt virðist vera með sum minni framboðanna. Líta má svo á að daður við stór- veldi sem bakhjarl sé í raun mynd- birting öfgafullrar hægristefnu fyrir okkar litla Ísland; að því leyti að þar ytra er mannlífið undirorpið stórtækari og harðneskjulegri efnahagslegum samræming- araðgerðum en hafa tíðkast á Ís- landi. Að því leyti eru Bandaríkin, ESB og Rússland lík og jafnvel Kína. Þannig séð er ekki einungis Sjálfstæðisflokkurinn í bland öfga- hægrisinnaður, heldur líka Sam- fylkingin og sum minni framboð jafnvel líka. Þó svo að allir flokkarnir á Al- þingi séu í reynd aðallega litlir miðjuflokkar eru það kannski eink- um Vinstri-grænir og Framsóknar- flokkurinn sem búa ekki við rosa- lega hægriöfga-tilhneigingu í sér, heldur miðast eðli þeirra einkum við raunveruleika innanlands- pólitíkurinnar íslensku. Ef stórveldaþjónkun er ekki náttúrulögmál fyrir Íslendinga, er þá sjálfgefið að við munum hverfa aftur til slíks? Eða munu hin mörgu stórauknu tengsl Íslands við Vesturlönd, og heiminn allan, koma einhvern veg- inn í staðinn fyrir þá gömlu lausn? Ég vil enda þennan pistil á ný- legu ljóði mínu, sem er innblásið af fréttinni af grískum mótmælanda af klerkastétt sem virtist vera að mótmæla óförum landa sinna í ESB með því að fyrirfara sér en virtist um leið vera ofhaldinn af trú á annað stórveldi, nefnilega Drottins konungsríki. Ljóðið heitir Fáfengilegur mótmælandi og hefst svona: Prestur hengir sig í ljósastaur? Hvað, er hann að mótmæla Guði? Fyrir að styðja stjórnina, eða hvað? Eða fyrir að skerða eftirlaun klerka? Er Guð ekki almáttugur skapari sem þekkir eigin vilja? Eða telur klerkurinn Guð sinn vanþakklátan eftir sinn fórnfúsa bænastarfsferil? Eða ætlar hann sér kannski þá dul að verða pólitískt handbendi Drott- ins? Guðlasti sýnist mér þetta lykta af; eða þá bara elliglöp í klerki! Sá lendir víst aldeilis í því í Helvíti! TRYGGVI V. LÍNDAL, skáld og mannfræðingur. Risaveldatrú fjórflokksins og ESB Frá Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal Eðlileg viðbrögð við aðsteðjandi ógn Enn eitt árið gerist það að fiskteg- undin makríll (sem margir kalla rottu hafsins) veður uppi í landhelgi okkar Íslendinga, til mikils tjóns fyrir hefðbundna fiskstofna og fuglalífið við nánast alla strandlengj- una. Við sitjum allalvarlega í súp- unni og neyðumst til að verjast ásókn kykvendisins, líkt og menn myndu berjast gegn alvörurottu- plágu – það er, reyna að útrýma óværunni! Með öllum tiltækum ráð- um; veiðum til manneldis, veiðum til bræðslu, eldsneytisframleiðslu, áburðargerðar og rækjuræktar (afl- inn látinn sökkva skipulega til botns), svo fátt eitt sé nefnt, mis- kostnaðarsamt og ekki á allra færi. Mér hugnast ekki útrýming með sprengiefnum eða eitri – en með hefðbundnum aðferðum má að minnsta kosti draga úr tjóninu. Hvað er verið að fjasa um samn- inga við aðrar þjóðir? Við hljótum að vera í fullum rétti til að drepa eins mikið og unnt er af þessum illvíga innrásarfiskstofni sem ógnar sjálfri lífsafkomu þjóðarinnar í eigin lög- sögu. Er það ekki í rauninni sú tilhneig- ing íslenskra útvegsmanna að skapa auð úr aflanum og framfarir til sjós og lands sem fer í taugarnar á er- lendum vinaþjóðum okkar, líkt og á sumu samfylkingarfólki og vinstri- grænum, sjáandi jafnan ofsjónum, fyllt firrum og sér jafnvel rautt, þeg- ar sökkhlaðin fiskiskip koma til hafnar? „Hvaða útgerðarmaður er að græða núna? Í það minnsta ekki ég!“ Okkar ágætu nágrannaþjóðir, ekki síst Bretar með alla sína stór- kostlegu vísindamenn, hljóta að skilja að Íslendingum er nauðsyn ein að minnka makrílstofninn í land- helginni um a.m.k. 500-600 þúsund tonn á ársgrundvelli – til að vernda sandsíli, laxaseiði og öll önnur seiði, að viðbættum obbanum af öðrum kvikum lífverum í hafinu sem „rott- an“ ræður við og rænir frá okkur. PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON, leigubílstjóri. Eðlileg viðbrögð við aðsteðjandi ógn Frá Páli Pálmari Daníelssyni mbl.is alltaf - allstaðar Skráning í “Græna Korts Happdrættið” 2014 hefst 2. Október 2012. Þeir aðilar sem vilja taka þátt í happdrættinu verða að skrá sig inni á sérstakri heimasíðu á vegum Bandaríska Ríkisins. Vefslóðin fyrir skráningu í Græna Korts Happdrættið 2014 er www.dvlottery.state.gov og verður skráning opin frá 2. Október 2012 til kl. 16:00, að íslenskum tíma, 3. Nóvember 2012. Vinsamlegast athugið að þetta er eina heimasíðan á vegum Bandaríska Ríkisins sem ætluð er til skráningar í Græna Korts Happdrættið. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Bandaríska Sendiráðsins: http://iceland.usembassy.gov Skráning í “Græna Korts Happdrættið” E M B A S S Y O F T H E U N I T E D S TAT E S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.