Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 48

Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 ✝ SvanhildurSigurjónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur fæddist í Reykjavík 16. apríl 1932. Hún lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 20. september 2012. Foreldrar henn- ar voru Kristín Guðnadóttir hús- freyja frá Skarði í Landsveit, f. 11.12. 1904, d. 30.8. 1970, og Sigurjón Sigurjónsson vélstjóri frá Stuðlum í Norðfirði, f. 16.10. 1903, d. 22. júní 1971. Svanhildur, eða Svana eins og hún var kölluð, var elst þriggja systkina. Systkini henn- ar eru: 1) Hjördís, f. 1933, hús- freyja, Seltjarnarnesi, maki Markús Þórhallsson. 2) Guðni, f. 1934, vélstjóri, Seltjarn- arnesi, maki Steinunn Stein- arsdóttir. Svanhildur ólst upp á Ás- vallagötu í vesturbæ Reykjavík- ur. Hún stundaði nám í Miðbæj- arbarnaskólanum og síðar Gagnfræðaskóla Ingimars Jóns- sonar. Uppvaxtarár sín dvaldi hún á sumrin í Skarði, austur í maki Marteinn Jónasson. Stjúp- dóttir Svanhildar er Hrafnhild- ur Jóhannsdóttir, f. 8.8. 1947, sambýlismaður Valgarður Gunnarsson. Barnabörn Svan- hildar eru 11 og lang- ömmubörn tvö. Árið 1981 flutti Svanhildur til Reykjavíkur og settist að á ný í gamla góða Vesturbænum sínum, enda KR-ingur alla tíð. Þar bjó hún lengst af við Fram- nesveg og síðar á Fornhaga. Starfaði hún frá þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur á Land- spítalanum við Hringbraut, á handlækningadeild 13d. Síðasta hluta starfsævi sinnar vann hún á hjúkrunarheimili Hrafnistu. Vorið 1984 réð Svanhildur sig í sumarvinnu við hjúkr- unarfræðistörf í Kaupmanna- höfn og varð sú borg hennar starfsvettvangur í ein fjórtán sumur þar á eftir. Lengst af vann hún á De Gamles by, öldr- unarsjúkrahúsi þar í borg. Eftir aldamótin fór að bera á alvarlegum veikindum sem Svanhildur glímdi við síðan. Frá 2007 dvaldi hún á hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík til ársins 2011 að hún fluttist til Eyja, þar sem hún naut frá- bærrar umönnunar á Hraun- búðum, meðal annars hjá fyrr- verandi samstarfskonum sínum. Útför hennar fer fram í Skarðskirkju á Landi laug- ardaginn 29. september 2012 og hefst athöfnin kl. 14.30. Landsveit, á æsku- slóðum Kristínar móður sinnar og var sá staður henni alla tíð mjög kær. Árið 1951 innrit- aðist Svanhildur í Hjúkrunarkvenn- askóla Íslands. Á námstímanum starfaði hún við hjúkrun á Land- spítalanum og síð- ar á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja, en þangað réðst hún fyrst sem hjúkrunarnemi 1952. Eftir útskrift sína vorið 1954 flutti hún til Eyja og bjó þar næsta aldarfjórðunginn, þar sem hún giftist og bjó sér heimili ásamt fjölskyldu sinni er hún eignaðist í Eyjum. Eig- inmaður Svanhildar var Jóhann Friðfinnsson frá Vest- mannaeyjum, f. 3.11. 1928, d. 13.9. 2001. Þau skildu. Börn Svanhildar og Jóhanns eru: 1) Ástþór, f. 21.6. 1955, maki Katrín Ævarsdóttir. 2) Kristín, f. 11.1. 1960. 3) Jóhann Þorkell, f. 11.5. 1961, maki Hildur Halldórsdóttir. 4) Davíð, f. 21.6. 1965, maki Ingrid Ker- telhein. 5) Vigdís, f. 3.10. 1969, Ég er friðlausi fuglinn, sem flýgur í norðurátt, er syngjandi svanir líða suður um heiðið blátt. (Davíð Stefánsson) Á kveðjustund þegar ég minn- ist móður minnar er efst í huga þakklæti fyrir það ríkulega vega- nesti í æsku sem ég fékk frá þess- ari einstöku gæðakonu. Ferðir Sindbaðs sæfara, þrautir Herak- lesar, sérviskulegar glettur Nas- reddins hodja og raunir Bláskjás, ásamt ljóðum Davíðs um hrafna- móðurina, Afríku Kobba, og stúlkuna sem drakk í sig blóðið, auk allra hinna ljóðanna og sagn- anna sem hún las. Það glæddi hugmyndaflug smádrengs, fyrir tíma sjónvarps, rétt eftir miðja öldina úti í Eyjum. Auk annars at- lætis sem hún veitti mér. Að vera farangur í „Litla ferða- félaginu“ á tíðum ferðum suður til Reykjavíkur til ömmu og fólksins á Ásvallagötunni var stórfínt hlutskipti drengs utan af landi á sjöunda áratugnum, sem fékk að valsa í tveimur spennandi heim- um. Leikhúsferðir og tónleikar skipuðu einnig sess í uppeldis- fræðum hennar. Sumarferðir fjöl- skyldunnar austur í sveitir og ferðalög um landið. Góðar minn- ingar eru á endanum mestu verð- mætin og það er aldeilis nóg af þeim, þar sem mamma kom að. Með Canon-vélina sína var hún síðan ötul að skrásetja heimilislíf- ið. Merkilegar þóttu mér sögur hennar frá Reykjavík hernámsár- anna, af svörtum markaði í skápnum hjá ömmu og smástelp- ur á hlaupum undan loftvarnar- merkjum. Heimsstyrjöldin síðari hafði bein áhrif á Ásvallagötunni. Sigurjón faðir hennar bjargaðist við illan leik úr hafinu nærri strönd Skotlands þegar Dettifoss varð fyrir tundurskeytaárás þýsks kafbáts og tilveran á æsku- heimili mömmu varð aldrei söm á eftir. Mamma ákvað það kornung að læra hjúkrun, þar sem hún lá rúmföst með skarlatssótt, í sóttkví á Farsóttarheimilinu eins og tíðkaðist að gera í hennar upp- vexti, og seinna átti hún eftir að starfa við hjúkrun í nærri hálfa öld. Mikið öryggi í því, fannst mér, að eiga móður sem var hjúkrun- arkona. Og það fengum við svo sannarlega að reyna mín litla fjöl- skylda þegar nafna hennar og fyrsta barnabarn kom í heiminn. Seinna lauk hjónabandi hennar í Eyjum og hún flutti burt, þegar tvær sómamanneskjur skildu, en nýstofnuð fjölskylda mín safnað- ist fljótlega á eftir henni til Reykjavíkur. Margs er að minnast frá góð- um stundum. Kaupmannahöfn þegar rómantíkerinn Svana litla Sigurjóns réð sig sumarlangt á sjúkrahús í borginni við sundið og við komum í heimsókn. Þau urðu síðan á endanum nokkuð mörg vinnusumrin hjá henni þar í borg og reyndar einnig einn vetur. Langar vaktir á Lansanum eða Hrafnistu drógu ekkert úr því að hún töfraði fram veislur fyrir sitt fólk og þurfti ekki langan undir- búningstíma eða græja það sem um var beðið. Greiðvikin og ein- staklega viðræðugóð. Fjölskyldumáltíðin, „beinlaus- ir fuglar“, eftir uppskrift frá ömmu Stínu, var alltaf tilhlökk- unarefni og hér eftir fjölskyldu- hefð, helguð góðum minningum. Jæja, mamma mín, þá verður þetta ekki lengra hjá okkur. Þú varst hvíldinni fegin í lokin. Ég þakka fyrir öll góðu árin sem við fengum saman og óska þess að nú ferðist þú heilbrigð og sæl um Sumarlandið. Ástþór. Ég tel mig lánsama að hafa átt svo góða tengdamömmu eins og Svönu. Okkar fyrstu kynni voru á Ás- vallagötunni haustið 1973. Hún horfði sposk á þessa stelpu sem var mætt inn á gólf með elsta syni hennar. Held hún hafi hugsað að þetta væri nú ekki rétti pakkinn fyrir hann. En frá þessum fyrsta degi og alla daga eftir það áttum við gott samband sem aldrei bar skugga á. Svana var einstaklega næm og fann um leið ef eitthvað var að og kom það best í ljós þegar nafna hennar kom í heiminn. Þá var gott að eiga hana hjúkrunarkonuna að, við hliðina á sér og sjá til þess að allt bjargaðist á endanum. Þetta voru góð ár sem við áttum saman í Eyjum. Svana var ein- staklega myndarleg húsmóðir þó að hún væri i fullri vinnu á sjúkra- húsinu þar sem hún kunni best við sig, að hjálpa öðrum. En hús- móðirin Svana var ekki í vanda með að halda stór matarboð, eða prjóna heilu peysurnar. Og síðan árin okkar í Reykja- vík eftir að við fluttum sama árið frá Eyjum. Við vorum nú alltaf meira fyrir höfuðborgina við Svana. Með þrjá unglinga á skóla- aldri og í fullri vinnu ásamt auka- vöktum bjó hún sínum gott heim- ili á Framnesveginum þar sem við öll fjölskyldan hittumst reglulega og áttum okkar góðu stundir. Eft- irminnileg bollukaffi og stórboð með beinlausum fuglum. Þá átt- um við margt skemmtilegt spjall- ið á gamlárskvöldi sem stóð gjarnan vel fram á nýársnótt, á Frakkastígnum og síðar í Langa- gerði. Hún tengdamóðir mín var mik- ill Vesturbæingur alla tíð, meira að segja löngu seinna eftir að hún var komin á hjúkrunarheimilið Eir, austur í bæ, sagðist hún vera fegin því að hafa aldrei farið úr Vesturbænum. Og hún var einnig alla tíð gall- harður konungssinni og ekki bara að hún fylgdist vel með gangi mála í Amalíuborg, í gegnum dönsku blöðin, þá vann hún mörg sumur við hjúkrun í Kaupmanna- höfn og bjó þá á Friðriksbergi, hvar annars staðar. Við áttum góða daga þar saman í fyrstu vinnuferðinni hennar í Höfn og síðan aftur tuttugu árum síðar þegar fóru fjórir ættliðir, með tengdamömmu, ömmu og lang- ömmu í jólatívolíið 2006 og það var eftirminnileg skemmtiferð. Það reyndist síðasta ferðin henn- ar til Kaupmannahafnar. Og þótt minnið hafi eitthvað verið farið að gefa sig þegar hér var komið, þá stóð hún ekki í henni danskan, ef hún þurfti að ræða við þær af- greiðslukonurnar í verslununum á Strikinu. Eftir að við fjölskyldan vorum flutt að hluta til vestur á land átt- um við alltaf sérstaklega notaleg- ar stundir saman yfir áramótin í Dal á Snæfellsnesi á meðan heilsa hennar leyfði. Síðustu árin voru Svönu erfið og okkur öllum, því í veikindum sínum hvarf hún okkur og sjálfri sér þessi einstaka kona, inn í ann- an heim. Og það var sorglegur tími en lærdómsríkur. Við leiðarlok minnist ég hjálp- semi þinnar og vináttu, og þakka þér allt sem þú kenndir mér og ég bý enn að. Katrín Ævarsdóttir Það var á svölum haustdegi í Kaupmannahöfn sem ég hitti Svönu fyrst og það var ekki laust við að það gætti smá taugaveikl- unar hjá mér því ég var að hitta verðandi tengdamóður mína í fyrsta skipti. En áhyggjur mínar voru að sjálfsögðu óþarfar. Við náðum strax vel saman yfir öl- glasi við Svana og hefðbundið „tengdamömmu“-grín átti aldrei við um samskipti okkar eftir það. Svana hafði mjög gott skop- skyn og það var oft mikið hlegið og ég kunni alltaf sérstaklega vel að meta það að hún hló líka þegar ég sagði henni lélega brandara sem er list sem ekki allir kunna. Svana var mikil stemningskona og eftir að ég kom í fjölskylduna var hún alltaf með okkur á jólum og áramótum og oftar en ekki líka Kristín og strákarnir og þá var hún í essinu sínu – fullt af fólki og mikið fjör – og það var greinilegt að Svana var stolt af sínu fólki. Ólíver, sonur okkar Vigdísar, var mikill ömmustrákur og það var alltaf gaman hjá þeim. Það verður að segjast að þolinmæði hennar gagnvart drengsa litla var óendanleg og það er ekki til það Playmobil-sett sem hann náði ekki að plata út úr ömmu sinni í gegnum tíðina. Þegar fór að örla á sjúkdómnum sem lagðist á Svönu var Ólíver fljótur að átta sig á því að hann gat látið ömmu lesa sömu bókina aftur og aftur og aftur – hann þurfti bara að bíða í nokkrar mínútur og þá var amma búin að gleyma að hún hafði lesið bókina og það væri alveg sjálfsagt að lesa hana fyrir hann sem það væri í fyrsta sinn. Og sem betur fer man hann bara eftir ömmu sinni að- eins gleyminni en frábærri ömmu. Fyrir okkur hin var það sorg- legra en tárum taki að fylgjast með hvernig sjúkdómurinn náði tökum á henni og sjá hana hverfa smátt og smátt inn í sinn eigin heim. Sérstaklega var það erfitt fyrir Vigdísi en fórnfýsi hennar og umhyggja fyrir mömmu sinni var aðdáunarverð því oft á tíðum var það mjög erfitt og sérstaklega í seinni tíð. Það var mikil blessun þegar Svana fékk inni á Elliheimilinu í Vestmannaeyjum og eyddi þar síðustu misserum lífs síns í næsta nágrenni við Kristínu og strákana sem þreyttust ekki á að líta til með henni fram á síðasta dag. Á elliheimilinu starfar líka yndis- legt fólk sem hugsaði mjög vel um Svönu og á það miklar þakkir skildar fyrir það og það var okkur mikill léttir að vita af henni þar þegar aðstæður urðu þess valdandi að við Vigdís fluttum ut- an. Það eru góðar og fallegar minningar sem ég á um Svönu Sigurjónsdóttur og ég sendi börn- um hennar, ættingjum og vinum samúðarkveðjur. Marteinn Jónasson. Í huganum á ég stórt minn- ingahólf sem mér þykir óskaplega vænt um, merkt ömmu Svönu. Framan á því er mynd af ömmu úr fallega bleika albúminu hennar sem ég skoðaði oft sem stelpa. Myndin er tekin þegar amma er í kringum tvítugt og ég man eftir að hafa sagt henni að hún væri svo falleg á myndinni að hún hefði átt að verða kvikmyndastjarna. Amma gaf lítið fyrir það enda þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa snemma fundið sína köllun, hjúkrun, sem hún nam og starfaði við í hálfa öld. Sjálf áttaði ég mig líka fljótlega á því að þar sem ég ætti hjúkrunarkonunni ömmu líf mitt að þakka mætti ég vera fegin að henni sjálfri skyldi aldrei hafa komið það í hug að verða kvik- myndastjarna. Ein elsta minning mín um ömmu er frá því ég er þriggja ára. Við stöndum saman í anddyri sjúkrahússins í Vestmannaeyjum eftir jólaball. Hún dregur upp úr töskunni sinni tvo fallega svani til að hengja á jólatré og gefur mér annan. Ég hafði aldrei séð nokkuð fallegra enda vorum við báðar sérlega veikar fyrir öllu sem tengdist svönum. Þarna leið mér eins og við amma hefðum innsigl- að fóstbræðralag okkar á milli, svo hátíðleg var þessi stund. Fuglinn hengdi ég á tréð hver jól og þótti vænt um að vita af syst- ursvaninum á trénu hjá ömmu. Svanhildur Sigurjónsdóttir VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann www.kvedja.is Nyútfararstofa byggð á traustum grunni ´ ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR, Melási 11, Garðabæ, lést sunnudaginn 23. september á krabba- meinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 4. október kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahjúkrun Karítas og krabbameinsdeild 11-E. Hafþór Árnason, Sigríður Kristín Hafþórsdóttir, Magnús Már Magnússon, Hanna Björk Hafþórsdóttir, Sveinbjörn Hólmgeirsson, Ólafur Árni Hafþórsson, Hanna S. Steinarsdóttir, Helga María Hafþórsdóttir, Sigríður Benediktsdóttir, Sigurvin Ólafsson, Svandís Sigurðardóttir, Ríkey, Ísak, Bergur, Sara, Hafþór, Freyr og Aníta Máney. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og tengdasonur, EINAR RAFN INGVALDSSON, Vesturtúni 57, Álftanesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 24. september. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju mánudaginn 8. október kl. 13.00. Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Ingvaldur Þór Einarsson, Brynja Blanda Brynleifsdóttir, Ari Rafn Einarsson, Rakel Einarsdóttir, Maríanna Björg Ingvaldsdóttir, Einar Helgi Ingvaldsson, Guðrún Halldórsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐLAUG SIGURGEIRSDÓTTIR, Skarphéðinsgötu 4, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 26. september. Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Félags aðstandenda heimilisfólks á Droplaugarstöðum sem fást á skrifstofu Droplaugarstaða. Sigurgeir A. Jónsson, Þóra Hafsteinsdóttir, Sonja B. Jónsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Ívar Jónsson, Lilja Mósesdóttir, Fannar Jónsson, Elísabet S. Auðunsdóttir, Jón Þór Sigurgeirsson, Guðrún Iðunn Sigurgeirsdóttir, Einar Bjarni Sigurðsson, Birkir Kristján Guðmundsson, Jón Reginbald Ívarsson, Hrafnhildur Fannarsdóttir, Fannar Gunnsteinsson, Óskar Þór Einarsson, Sigurgeir Egill Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.