Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 49
Síðar þegar ég varði jólum í
Kaupmannahöfn þar sem ég var
við nám var mitt fyrsta verk í jóla-
undirbúningi að fá svaninn minn
sendan, annars yrðu engin jól!
Amma var mikill forkur og
vann einnig mikið. Veislur hristi
hún fram úr erminni og ég skil
ekki hvernig hún gat gefið mér
svo mikinn tíma miðað við allt
sem hún hafði fyrir stafni.
Í minningahólfinu er fjöldi
bæjarferða sem sumar leiddu
okkur í heilmikil ævintýri, bíó- og
leikhúsferðir og göngur um
Kaupmannahöfn sem var mikill
uppáhaldsstaður okkar beggja.
Fundir fóstbræðralagsins okkar
urðu einnig ófáir í formi notalegra
samverustunda; með súkkulaði að
narta í, að lesa Familie Journalen
og spjalla. Amma kunni svo vel að
setja eigin minningar fram á svo
lifandi hátt að mér fannst ég
hljóta að hafa upplifað allt líka.
Við rifjuðum oft upp sameiginleg-
ar stundir frá Kaupmannahöfn og
einnig ýmsar sögur sem við elsk-
uðum að segja og heyra aftur og
aftur. Þær allra bestu voru sög-
urnar sem amma gat aldrei klár-
að að segja án þess að vera farin
að gráta um leið og hún hló sínum
innilega hlátri.
Það voru öfundsverð forrétt-
indi að eiga ömmu sem einnig var
góð vinkona mín. Amma Svana
varð aldrei gömul í anda og ég er
ákaflega þakklát fyrir þá góðu
vináttu sem við áttum og byggðist
á gagnkvæmri virðingu og því að
eiga margt gott að gefa hvor ann-
arri. Hún amma var næm á til-
finningar, það var einn hennar
ljúfasti eiginleiki í gleði jafnt sem
sorg. Það var einnig ómetanlegt
að fylgjast með henni „ömmu
löngu“ í spjalli og leik við syni
mína.
Elsku amma. Nú ertu komin til
þeirra sem þú elskaðir svo heitt
en fóru á undan þér í Sumarlandið
– og kannski þú rekist líka á eitt-
hvað af góðu fólki sem kann sög-
urnar sem við óskuðum að húsin
og trén í Kongens København
gætu sagt okkur.
Takk fyrir allt.
Þín
Svanhildur.
Amma Svana var fyndin,
skemmtileg, hlý og góð. Hún var
best í því sem ömmur eiga til að
gera, að dekra barnabörnin sín.
Það var alltaf svo gaman að fara í
heimsókn til ömmu, hún sá alltaf
til þess að eiga til nóg af súkku-
laðirúsínum, Diet Coke og Bug-
les.
Það var bara svo gott að vera
hjá ömmu því hún hafði svo gam-
an af því að vera með okkur.
Amma var alltaf til í að spila,
kenna okkur kapal, segja sögur
(sem hún átti meira en nóg af),
hún var alltaf til í að hlusta á okk-
ur og það skipti ekki máli hversu
oft við sögðum sömu brandarana,
hún hló alltaf jafn mikið.
Amma horfði með okkur á bíó-
myndir og hvort sem það var
Mary Poppins, Fríða og dýrið eða
Mr. Bean þá hló hún alveg jafn
mikið og við, ef ekki bara meira.
Hún var mikil prjónakona, og
njótum við ennþá góðs af því.
Amma var líka ofur-amma, hún
var hjúkrunarfræðingur svo ef
eitthvað var að þá var alltaf best
að spyrja bara ömmu, enda átti
hún svar við öllu. Okkur þótti líka
merkilegt að hún færi til útlanda
að vinna sem hjúkka og mikið var
gaman að heimsækja hana í
Kaupmannahöfn, þar fannst
henni gott að vera – enda voru
dönsku blöðin aldrei langt undan
þar sem amma var annars vegar.
Við eigum skemmtilegar minn-
ingar með ömmu í Tívolí.
Það var erfitt að horfa á ömmu
hverfa frá okkur smátt og smátt,
því er gott að vita að nú er hún
komin á betri stað, alveg eins og
hún á að sér að vera. Fyndna,
skemmtilega, hlýja og góða elsku
amma Svana.
Elskum þig og söknum,
Helena, Tómas Aron
og María Kristín.
Svana frænka mín fékk hvíld-
ina á Dvalarheimilinu Hraunbúð-
um í Vestmanneyjum eftir
margra ára baráttu við alzheimer.
Þær mamma voru systkinadætur
og góðar vinkonur alla tíð.
Mamma alin upp í Landsveitinni
þar sem heimsóknir til systranna
Svönu og Dísu til Reykjavíkur
voru svo sannarlega tilhlökkunar-
efni.
Ég man snemma eftir þessari
flottu frænku minni sem giftist til
Vestmannaeyja og átti fimm börn
á aldur við okkur systur. Alla tíð
hefur samgangur verið mikill og
góð vinátta á milli fjölskyldnanna.
Svana var skemmtileg kona
með mikinn húmor og dillandi
hlátur. Hún var vinsæl sem
hjúkrunarkona og eignaðist vini
víða. Hún var glöð á góðri stund
og kunni að njóta augnabliksins.
Oft hugsa ég um það þegar hún
lagði land undir fót á fullorðins-
aldri og fór í sumarvinnu til
Kaupmannahafnar eins og unga
fólkið gerir.
Í nokkur ár eftir að Svana flutti
suður kom ég jafnan í byrjun
febrúar til hennar til að gera fyrir
hana skattskýrsluna. Þar var tek-
ið á móti mér með kostum og
kynjum. Alltaf fór maður í burtu
saddur og sæll og með góða mat-
aruppskrift upp á vasann.
Í ágúst hitti ég Svönu í Vest-
mannaeyjum. Það var sorglegt að
sjá hvernig sjúkdómurinn hafði
rænt hana minninu og getunni til
samskipta. Hennar dillandi hlát-
ur var að fjara út. Ég sá á henni
að nú var komið nóg. Munu þær
nú hvíla saman vinkonurnar í
Skarðskirkjugarði þar sem upp-
hafið og ræturnar liggja. Ég kveð
þig, frænka – takk fyrir allt.
Birna Einarsdóttir.
Árið 1975 fluttist ég ásamt eig-
inmanni mínum til Vestmanna-
eyja. Á vegi mínum þar varð
margt gott fólk. Þar á meðal
Svana sem nú er kvödd. Svana
var geislandi og létt í fasi.
Ávallt tilbúin að gefa af sér og
liðsinna sínu samferðafólki en
sjálf þurfti hún svo lítið að þiggja.
Svana var hjúkrunarfræðingur
og í því starfi nutu mannkostir
hennar sín vel.
Það var bæði lærdómsríkt og
gott að vinna með Svönu við
hjúkrun. En best var þó vinátta
hennar, sem vel er varðveitt.
Með virðingu og þökk kveð ég
Svönu sem á vegi mínum varð fyr-
ir tæpum 40 árum. Ástvinum
hennar sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur. Blessuð sé minning
Svönu.
Katrín Þórlindsdóttir.
Við vorum átta í saumaklúbbn-
um, er Svana sú fyrsta sem kveð-
ur.
Við komum saman þessar
fimm, sem enn erum í Eyjum, til
að setja línur á blað og minnast
gömlu, góðu daganna, þegar við
vorum allar ungar og léttar á fæti
og alltaf var sól og sumar. Við
vorum tiltölulega nýgiftar og vor-
um á þessum árum að hlaða niður
yndislegum börnum okkar. Við
vorum svo þurfandi fyrir að hitt-
ast, tala saman og slappa af eftir
annríki dagsins, að okkur datt
ekki annað í hug en að hafa
saumaklúbbana í hverri viku og
stóðu herlegheitin oft langt fram
á nótt.
Svana fór snemma af stað og
tíndi okkur allar upp í bílinn og
kom okkur á áfangastað, enda var
hún sú fyrsta, sem hafði bíl til um-
ráða. Oft var mikið fjör í þessum
ferðum, einkum á snjóþungum
vetrum, þegar allir þurftu að fara
út og ýta.
Svana var hin „týpíska“ ofur-
húsmóðir eins og við sáum í
dönsku og amerísku blöðunum
með ryksuguna í annarri hend-
inni og hrærivélina í hinni. Hún
átti sérlega myndarlegt og fallegt
heimili með manni sínum Jóhanni
Friðfinnssyni. Hún saumaði og
prjónaði út í eitt og hnallþórurnar
hennar voru sko ekkert slor.
Fljótlega fæddust börnin hvert af
öðru, Ástþór, Kristín, Jóhann
Þorkell, Davíð og Vigdís.
Árið l957 fæddist þeim and-
vana drengur. Þá var ekkert sem
hét sorgarferli og engin sálfræði-
hjálp til að takast á við sorgina,
maður þurfti bara að rétta úr
kútnum og bera sig vel. Við viss-
um ekki fyrr en löngu seinna hví-
lík áhrif þetta hafði á Svönu og líf
hennar. Hún hafði því miður alltaf
mikla innilokunarkennd hér í
Eyjum og við vissum að hennar
staður var Reykjavík. Oft keyrði
hún upp á flugvöll og horfði með
tárin í augunum á eftir flugvél-
unum, sem fóru til Reykjavíkur.
Haustið 1972 leysti hún Unni
Gígju af á Heilsugæslustöðinni,
þegar hún fór í framhaldsnám til
Noregs.
Svo kom gosið í janúar 1973 og
var starfsemin flutt til Reykjavík-
ur og Svana hugsaði um ung-
barnaeftirlitið og aðra Vest-
mannaeyinga. En það fer ekki
alltaf saman gæfa og gjörvileiki.
Smám saman raknaði hjónaband-
ið upp og upp úr 1980 fluttist hún
til Reykjavíkur og bjó þar með
börnum sínum sem öll fóru í
framhaldsskóla. Hún vann á
draumastaðnum Landspítalan-
um. Svo fór hún oft til Danmerkur
og vann þar lengri eða skemmri
tíma. Síðustu árin vann hún svo á
DAS.
Svo kom þessi andstyggðar
sjúkdómur Alzheimer og læddist
að henni eins og svo fjöldamörg-
um öðrum. Fyrir tveimur árum
kom hún svo hingað heim á
Hraunbúðir og þar leið henni eins
vel og hægt var. Þótt hún væri
kannski ekki alveg viss hver væri
hver af gömlu vinkonunum, þá
lifnaði samt yfir henni þegar hún
sá okkur. Í apríl sl. var haldið upp
á 80 ára afmælið hennar með
bakkelsi og sérrílögg. Guðbjörg
mætti með gömlu saumaklúbbs-
myndina, sem tekin var á ljós-
myndastofu. Þá brosti okkar kona
blítt. Við sendum börnum hennar
og fjölskyldum þeirra, systkinum,
hollsystrum og vinum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Elsku
Svana, vertu Guði falin og hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Gamli saumaklúbburinn,
Þóra, Guðbjörg Hólm-
fríður, Kristín, Unnur Gígja,
Steina og Sigurborg.
Svana skólasystir okkar er nú
fallin frá og við fylgjum henni til
hinstu hvílu með söknuði.
Okkar fyrstu kynni voru fyrir
rúmum 60 árum í dagstofu
Hjúkrunarskóla Íslands, sem þá
var til húsa á 3. hæð Landspít-
alans. Við vorum ungar, lífsglaðar
og eftirvæntingarfullar, en mark-
miðið var það sama hjá okkur öll-
um, að hefja nám í hjúkrun. Góð
vinátta tókst með okkur holl-
systrum, sem hefur haldist alla
tíð.
Svana starfaði allan sinn
starfsaldur við hjúkrun, hún var
farsæl í starfi og eftir því tekið
hvað hún sinnti sjúklingum sínum
af mikilli alúð. Hún hafði afskap-
lega þægilega nærveru og var
glettin og skemmtileg á góðri
stund.
Svana átti stóra fjölskyldu sem
hún hugsaði vel um enda bæði
vinnusöm og myndarleg til allra
verka.
Á kveðjustund þökkum við
Svönu fyrir samfylgdina og send-
um börnum hennar og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur. Megi
góður Guð blessa þau öll.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson)
Blessuð sé minning Svanhildar
Sigurjónsdóttur.
Fyrir hönd hollsystra,
Jónína Nielsen.
MINNINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
✝ Guðný Bergs-dóttir fæddist í
Reykjavík 2. apríl
1944.
Hún lést í Kaup-
mannhöfn 25. júlí
2012.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón-
ína Sveinsdóttir
húsfrú, f. 18.2.
1917, d. 9.3. 1974,
og Bergur Pálsson,
skipstjóri, f. 13.9. 1917, d. 14.11.
1991. Systkini Guðnýjar: Guð-
mundur, samfeðra, f. 1942. Maki
Sigríður Jóhannsdóttir, f. 1946.
Þau eiga þrjú börn og fjögur
barnabörn. Páll, f. 1945, d. 1992.
Maki Helga Guðnadóttir, f.
1953. Þau eiga tvo syni. Áður
átti Páll þrjár dætur. Barnabörn
eru átta. Þórunn, f. 1947. Fyrri
maki Friðrik Steingrímsson, f.
1945. Þau eiga fjögur börn sam-
an. Seinni maki Helgi Þor-
steinsson, f. 1936, d. 2008, hann
á tvö börn. Helgi og Þórunn eiga
þrettán barnabörn saman. Guð-
rún, f. 1949. Maki Páll Sigurð-
arson, f. 1948. Þau eiga tvö börn
og fjögur barnabörn. Bergur, f.
1955.
mannafélaginu. Var blaðamað-
ur hjá Amagerblaðinu og Fre-
deriksbergsblaðinu í mörg ár.
Um tíma sinnti hún frétta-
mennsku hjá íslenska ríkissjón-
varpinu og vann fleiri störf. Síð-
asta starf hennar var hjá Den
Danske blindesamfund, var rit-
stjóri blaðsins þeirra og sá um
námskeið og fleira þar til hún
hætti störfum.
Áhugamál Guðnýjar voru
bækur. Hún las allt sem hún
náði í og keypti sér mikið af góð-
um bókum til lestrar, enda var
hún fróð og lét öll mál sig
skipta, stór og smá, heimsmál og
landsmál. Síðustu árin fór hún
mikið á bókasafn nálægt heimili
sínu á Frederiksberg og náði sér
í allar tegundir bókmennta til
lestrar. Guðný talaði móðurmál
sitt mjög vel. Hún heimsótti föð-
urlandið á nokkurra ára fresti,
síðast 2011, og var þá hér um
tveggja mánaða skeið. Henni
fannst gott að koma heim og
hitta allt sitt fólk, bæði ættingja
og vini, sem hún átti mikið af á
Íslandi.
Guðný var jarðsungin í kyrr-
þey að eigin ósk, hinn 8. ágúst sl.
í Kaupmannahöfn. Jarðsett var í
Sondermark-kirkjugarði, Rosk-
ildevej 54, Kaupmannahöfn, við
hlið Birgit, eins og hún sjálf
vildi.
Guðný giftist
Hólmari Krist-
mundssyni, þau
skildu. Hún giftist í
Danmörku Birgit
Reinholdt Nissen f.
1954, d. 1996.
Guðný var barn-
laus.
Guðný fluttist til
Akureyrar ung að
árum með for-
eldrum sínum og
bjó þar öll sín bernskuár. Gekk í
Barnaskóla Akureyrar og út-
skrifaðist frá Gagnfræðaskóla
Akureyrar 1960. En leiðin lá
snemma til útlanda, þar sem hún
vann á fæðingarheimili í Kaup-
mannahöfn í eitt ár og var í
London sem „au pair“ í eitt ár.
Kom aftur heim og vann þá m.a.
í móttökunni á Hótel KEA og á
Ferðaskrifstofunni Sögu. Flutt-
ist síðan til Reykjavíkur og vann
á skrifstofu hjá Ellingsen í nokk-
ur ár, gerðist síðan blaðamaður
hjá dagblaðinu Tímanum. Um
1975 fór hún til náms í blaða-
mennsku í London og lauk þar
prófi. Fluttist síðan til Kaup-
mannahafnar og bjó þar síðan.
Var félagi í danska blaða-
Elsku stóra systir. Þú yfir-
gafst okkur allt í einu. Sofnaðir
bara si svona. Hjartað gaf sig.
Þér varð að ósk þinni, þú fórst á
undan okkur systrum, varst
hrædd um að lifa okkur. Við kom-
um síðar, þá hittumst við öll aft-
ur.
Þér fannst þú bera ábyrgð á
okkur yngri systkinum þínum frá
því að við vorum lítil, því þú varst
sú elsta og frekasta, sagðir þú.
Þú skáldaðir margar góðar og
spennandi sögur jafnóðum og þú
sagðir okkur þær, stundum
margra daga framhaldssögur og
máttum við stundum greiða fyrir
það, með smá klóri á bakið, til
þess að fá framhaldið!
Takk fyrir öll tölvubréfin, takk
fyrir öll símtölin, takk fyrir að
fylgjast alltaf með öllu sem var
um að vera hjá mér og mínum,
takk fyrir að muna alltaf eftir öll-
um afmælisdögum í fjölskyld-
unni, hringja og óska til ham-
ingju, það var okkur mikilvægt.
Takk fyrir alla umhyggju og
ást sem þú sýndir okkur alla tíð.
Takk fyrir allan pappírsútskurð
og föndur sem þú sendir okkur í
gegnum tíðina, algjör listaverk
sem við eigum enn og munum
njóta í framtíðinni við hátíðleg
tækifæri.
Ég á eftir að sakna alls þessa
og hugsa þá til þín með þakklæti
og söknuði. En lífið heldur áfram
og við gerum það besta úr því
sem við getum. Við töluðum oft
um þetta og reyndum að vera
bjartsýnar og jákvæðar, það er
ekkert annað í boði.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir,
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, Drottinn vakir,
daga’ og nætur yfir þér.
Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífið hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er.
Honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir,
daga’ og nætur yfir þér.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(Sb. 1945 – S. Kr. Pétursson)
Þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar okkar saman í gegn-
um lífið.
Elsku syss, hvíl í friði og hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Guðrún systir og fjölskylda.
Ég hitti Guðnýju Bergsdóttur
í fyrsta skiptið í febrúar 1998.
Það var þegar við Sveinn bróð-
ursonur hennar komum til Kaup-
mannahafnar, þar sem Sveinn
var að fara spila á þorrablóti Ís-
lendinga með hljómsveitinni 8-
villt. Ég gleymi aldrei svipnum á
Guðnýju þegar hún leit Svein
fyrst augum. Ég gat lesið úr
svipnum hennar að það var engu
líkara en að Palli bróðir hennar
stæði ljóslifandi fyrir framan
hana. Sem kom einmitt síðar í
ljós þegar hún sagði okkur frá
upplifun sinni. Hún hafði ekki séð
Svein í sex ár eða frá því að Palli
pabbi hans var jarðaður. Frá
þessari stundu mynduðu þau
Sveinn órjúfanleg tengsl.
Mér þótti yndislega vænt um
Guðnýju. Hún var svo dásamlega
blátt áfram og kom til dyranna
eins og hún var klædd. Það var
gaman að sitja með henni og
hlusta á hana segja sögur af upp-
vaxtarárum þeirra systkina og
hvað hún elskaði mömmu sína,
Jónínu Sveinsdóttur. Ég gat
gleymt mér í þessum sögum og
sá þau systkini fyrir mér á götum
Akureyrar um miðja síðustu öld í
leikjum með mömmu sinni þegar
pabbi þeirra varði stórum hluta
ársins á sjónum. Guðný sagði
mér hvað það hefði tekið á hana
að missa mömmu sína 1974 og
hvað hún hefði þurft að taka sig
saman í andlitinu til að lifa áfram
án hennar. Ég verð ævinlega
þakklát fyrir að hafa kynnst
Guðnýju, hennar vegna fékk ég
að heyra sögur af Palla, afa
dætra minna, sem ég fékk því
miður aldrei að kynnast. Hjá
henni fékk ég að lesa gamlar
gestabækur sem þau Palli áttu
þegar þau bjuggu saman í
Reykjavík. Hjá henni fann ég
hlýju og væntumþykju í minn
garð og okkar Sveins og stelpn-
anna okkar. Hún kallaði okkur
hnoðrana sína sem vísar til göt-
unnar þar sem húsið okkar
stendur, Hnoðravellir. Við skrif-
uðumst á síðustu 14 árin. Guðný
starfaði sem blaðamaður og kall-
aði sig „blaðurmann“ sem var al-
veg lýsandi fyrir hennar húmor.
Hún var svo snjall og skemmti-
legur penni, kankvís og kímin.
Takk elsku Guðný mín fyrir
samfylgdina, það er mér afar
dýrmætt að hafa fengið að kynn-
ast þér og takk fyrir alla þá
væntumþykju sem þú sýndir
mér og stelpunum mínum. Það
eru margir sem taka á móti þér
hinum megin, mamma þín og
pabbi, Palli og Birgit.
Samúðarkveðjur til fjölskyldu
og ástvina Guðnýjar. Minning
hennar lifir.
Theódóra Friðbjörnsdóttir.
Guðný Bergsdóttir
✝
Ástkær sonur, bróðir og frændi,
JÓN HILMAR HÁLFDÁNARSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 17. september.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
mánudaginn 1. október kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hálfdán Jónsson,
Júlíus Atli Hálfdánarson, Lovísa Grétarsdóttir,
Matthías Hálfdánarson, Brynja Guðmundsdóttir,
Júlíana Gísladóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MAIA SIGURÐARDÓTTIR
sálfræðingur,
lést fimmtudaginn 13. september.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Sigurður Andri Sigurðsson,
Maríanna Garðarsdóttir, Snorri Guðmundsson,
Kristján Garðarsson, Marta Nordal
og barnabörn.