Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 55
Aldarminning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
✝ GuðbjarturKristinn Ás-
geirsson (Róbert)
fæddist 31. desem-
ber 1932. Hann
lést 19. júní 2012 í
Sarasota í Flórída.
Foreldrar hans
voru Ásgeir Guð-
bjartsson, f. 26.
ág. 1901, d. 28.
des. 1977, og Jón-
ína Sigurðardóttir,
f. 6. okt. 1899, d. 2. feb. 1992
Alsystkin: Stella Ásgeirs-
dóttir Thomas, f. 2. sept.
1931, Einar Ásgeirsson, f. 5.
jan. 1934, Sigurður Ásgeirs-
son, f. 3. mars. 1936, og Þórir
Ásgeirsson, f. 7.
sept. 1937. Sam-
feðra Guðbjörg
Svanfríður Ás-
geirsdóttir Niel-
sen, f. 22. des.
1924, d. ágúst
2007 í Kaup-
mannahöfn.
Eftirlifandi eig-
inkona Guðbjarts
er Helen og dóttir
hans af fyrra
hjónabandi er Kristín María
sem er gift og á dótturina
Viktoríu.
Útförin hefur farið fram og
var jarðsett í Fossvogs-
kirkjugarði.
Nú er hann bróðir minn bú-
inn að kveðja. Andlát hans kom
mjög snöggt, þó svo að hann
hafi ekki verið hraustur síðustu
þrjú árin.
Guðbjartur Ásgeirsson fædd-
ist í Viðey hinn 31. desember
1932. Fjölskyldan fluttist síðan
á Grímsstaðaholtið þar sem við
systkinin ólumst upp.
Batti eins og bróðir minn var
kallaður fluttist til Ameríku
snemma á sjötta áratugnum.
Lærði hann kokkinn á hinu
flotta hóteli Waldorf Astoria í
New York, síðar bjó hann lengi
bæði í Pittsburgh og Cincinnati
en flutti svo í sólina og sjóinn á
Flórída. Starfaði hann sem
kokkur alla tíð, eða þar til fyrir
þremur árum. Fyrstu áratugina
sem hann var búsettur í Am-
eríku voru ferðir hans hingað
heim ekki margar, hann hafði
mikið að gera, átti fjölskyldu og
eigin veitingarhús. En á seinni
árum hafði hugur hans leitað
meira og meira heim og var
hann búinn að fljúga yfir hafið
alloft á síðustu árum.
Gaman var að taka á móti
honum og fórum við Oddný
með hann um landið í síðustu
tveimur ferðum hans hingað
heim. Bæði fórum við hringinn
og eins á Vestfirði þaðan sem
við erum ættaðir. Þau hjónin
heimsóttu Vestmannaeyjar
með Sigga bróður okkar og
fjölskyldu hans. Fannst Batta
landið sitt stórfenglegt og
hafði mjög gaman af þessum
ferðum. Hann var með Íslands-
kort meðferðis og þar merkti
hann inn á alla vegi sem við
keyrðum, kortið hengdi hann
svo upp í bílskúrnum sínum
heima í Ameríku og hafði gam-
an af að sýna fólki það og segja
frá.
Að ferðast um heimshöfin á
skipum var nokkuð sem Batti
hafði mjög mikla ánægju af,
hann vann á skipunum hér
heima sem ungur maður og
leið vel á sjó. Hann var dugleg-
ur að fara með skemmtiferða-
skipum í fríum og skoða hina
ýmsu staði. Við Oddný vorum
svo heppin að fara með honum
og Helen konu hans í eina slíka
ferð fyrir nokkrum árum. Batti
var fróður um þá staði sem við
heimsóttum og duglegur að
segja okkur frá, hann var
skemmtilegur ferðafélagi.
Fyrir þremur árum ákvað ég
að fara að heimsækja Batta og
Stellu systur okkar til Flórída.
Þar áttum við systkinin
ánægjulegar stundir, þau tóku
vel á móti mér og við nutum
þess að vera saman. Þau
bjuggu í göngufæri hvort frá
öðru og voru mjög samrýnd.
Ekki datt mér í hug þá að þetta
væri í síðasta sinn sem ég hitti
bróður minn því hann var svo
ákveðinn í að koma í frí heim til
Íslands. Hann ætlaði sér að
sýna dóttur sinni Kristínu Mar-
íu og dótturdóttur, Viktoríu,
landið sitt, og var hann búinn
að skipuleggja ferð hingað heim
nú í september.
Örlögin höguðu því hins veg-
ar svo að hann átti ekki eftir að
sjá landið sitt aftur, en þær
mæðgur ásamt Stellu systur
komu til landsins í þá ferð sem
Batti hafði skipulagt. Þær
komu með ösku hans með sér,
svo hans hinsti hvílustaður er í
landinu sem honum þótti svo
vænt um og talaði svo mikið
um.
Batti var góður bróðir og
hans verður sárt saknað. Ég
votta dóttur hans, Kristínu
Maríu, dótturdóttur, Viktoríu,
eiginkonu, Helen, og Stellu
systur samúð.
Hvíldu í friði bróðir, takk
fyrir allt.
Þinn
Þórir.
Guðbjartur Krist-
inn Ásgeirsson
Faðir okkar,
Sveinn Kristinn
Nikulásson, hefði
orðið 100 ára 25.
september 2012 en
hann lést á Akureyri
25. apríl 1988, þá 75
ára.
Sveinn fæddist
25. september 1912 í
Hafnarfirði, sonur
Dýrfinnu Kristínar
Sveinsdóttur, Braut-
arholti í Hafnarfirði, og Nikulásar
Ásgeirs Steingrímssonar, þekktur
sem Bíla-Lási, en þau stofnuðu
ekki til frekara sambands.
Dýrfinna fór til Raufarhafnar
um 1915 í síldarsöltun á vegum
Norðmanna og kynntist þar Björg-
vini Jóhannssyni útgerðarmanni
frá Rifi á Melrakkaslétttu og hófu
þau búskap og útgerð á Raufar-
höfn.
Dýrfinna var forkur til allra
verka, innan- sem utanhúss, saum-
aði íslenska búninga, peysuföt og
flestan fatnað á karlmenn, lista-
mannsaugað leyndi sér ekki. Á
Raufarhöfn eignaðist hún þrjú
börn en Nikulás eignaðist tólf börn
í Reykjavík. Sveinn ólst upp á
Raufarhöfn hjá móður sinni og
voru störf hans því tengd útgerð,
síld og fiski. Hann var mjög hand-
laginn, sérstaklega við vélar, eld-
og járnsmíði, rennismíð og að lang-
mestu sjálfmenntaður. Þótti hann
mjög úrræðagóður og ekkert
Sveinn Kristinn
Nikulásson
handtak virtist fara
til spillis. Hann varði
stórum hluta ævi
sinnar á vélaverk-
stæði Síldarverk-
smiðja ríkisins við
járnsmíði, vélavið-
gerðir og vélgæslu.
Sveinn kom með
fyrstu vörubifreiðina
til Raufarhafnar og
var hún mikið notuð
við uppbyggingu á
Síldarverksmiðjunni ásamt öðrum
verkefnum.
Hann var líka þekktur og eft-
irsóttur til viðgerða í fiskiskipum
Norðmanna, Færeyinga og að
sjálfsögðu Íslendinga sem leituðu í
land á Raufarhöfn.
Tollvörður var hann á síðari ár-
um á Raufarhöfn og síðstu ár
starfsævinnar starfaði hann hjá
Pósti og síma á Akureyri við lag-
ervörslu.
Sveinn hóf sambúð með Þór-
höllu Svanholt Björgvinsdóttur frá
Krossavík í Þistilfirði, f. 23. janúar
1916, d. 18. mars 1996. Eignuðust
þau fimm syni: Reyni 1943, Birgi
1945, Heimi 1947, Ásgeir 1950 og
Björgvin 1958 og eru þeir allir á lífi.
Sveinn og Þórhalla hófu sinn bú-
skap á Akureyri 1944 en fluttu
1948 til Raufarhafnar en aftur til
Akureyrar 1974 og eru þau jarð-
sett þar.
Minningin um þau lifir.
Reynir Svanholt.
✝ Sesselja SvanaEggertsdóttir
Guðmundsson
fæddist í Reykja-
vík 24. október
1922. Hún lést 18.
september síðast-
liðinn í Louisville í
Kentucky.
Sesselja Svana
var dóttir hjón-
anna Eggerts
Ólafssonar lýs-
ismatsmanns og
Ragnhildar Gottskálksdóttur
sem lengi bjuggu í Tjarnargötu
30.
Sesselja Svana giftist Jóni
Sigurði Guðmundssyni 13. apríl
1946 í Reykjavík. Hann lést
2004. Börn Sesselju Svönu og
Jóns Sigurðar eru
Örn Eggert, Jór-
unn Hilda og Jón
Sigurður. Barna-
börnin eru sex og
langömmubörnin
tíu.
Sesselja Svana
lauk prófi frá
Kvennaskólanum í
Reykjavík 1940 og
fór svo í skóla til
Bandaríkjanna.
Sesselja Svana
og Jón Sigurður fluttu til Lou-
isville, Kentucky í Bandaríkj-
unum 1950 og hafa búið þar
síðan. Þau hafa haft náið sam-
band við Ísland.
Bálförin hefur farið fram í
Louisville, Kentucky.
Látin er ástkær frænka okk-
ar, Sesselja, eða Dedda frænka
eins og við ávallt kölluðum
hana. Dedda var gift móður-
bróður okkar systkina, Jóni S.
Guðmundssyni, sem lést árið
2004. Hún var glæsileg, vel
gefin og kom sérlega vel fyrir.
Störf Jóns leiddu hann til met-
orða í fyrirtækjum í Bandaríkj-
unum og á sjötta áratugnum
stofnuðu þau eigið fyrirtæki í
harðviðarverslun og er það enn
rekið af myndarskap af fjöl-
skyldunni.
Dedda og Jón voru samhent
og var Jón ræðismaður Íslands
í Kentucky og komu þau því
víða að málum sem vörðuðu
samskipti Íslands og Banda-
ríkjanna og létu sig miklu
skipta að halda sambandi við
landa sína og ættingja.
Árlega komu þau hjónin til
Íslands og seinni árin eftir lát
Jóns kom Dedda með fjöl-
skyldu sinni til að dvelja um
tíma og ferðast um landið og
hitta vini og kunningja. Þegar
við systkinin vorum yngri var
alltaf ævintýri þegar Dedda og
Nonni frændi komu í heim-
sókn. Alltaf var bjart og kátt
þegar þau hjónin komu og iðu-
lega var einhverju spennandi
laumað í litla hönd þegar heils-
að var. Heimili þeirra var okk-
ur alltaf opið og nutum við
þess systkinin að fá að dvelja
hjá þeim um stutta og langa
hríð. Á okkar heimili var ávallt
talað um Deddu frænku með
mikilli virðingu og hlýju og
ávallt talað um þau hjónin í
sömu setningu.
Mikil og góð samskipti héld-
ust við Deddu og hennar börn
eftir að móðir
okkar og Nonni létust. Þegar
Dedda frænka kom í sína ár-
legu Íslandsferð hittumst við
alltaf nokkrum sinnum í kaffi
eða mat og var mikið hlegið og
haft gaman.
Við sendum fjölskyldu henn-
ar okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur og biðjum algóðan Guð að
styrkja þau á þessum sorgar-
tíma.
Við kveðjum frænku okkar,
sem verður sárt saknað, með
uppáhaldssálmi móður okkar
og Nonna frænda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Jórunn, Jón, Arnhildur,
Ingibjörg og Sigríður
Magnúsarbörn og
fjölskyldur.
Sesselja Svana
Eggertsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi
lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda
inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram.
Minningargreinar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Lómasalir 6-8, 0203 (225-3548), þingl. eig. Geir Ingi Geirsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Kópavogsbær, Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, Sýslumaðurinn í Kópavogi og Vátryggingafélag
Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
28. september 2012.
Uppboð
Uppboðið verður haldið í húsi nr. 12 í Gufunesi,
Reykjavík, föstudaginn 5. október 2012 kl. 11:00:
Vélar í vélalínu A – færiband - staðsett í húsi nr. 12 í Gufunesi,
Reykjavík, Nánari lýsing: Skedder, rafmagnstafla við Skedder,
snigill frá Skedder ryðfrír, snigill upp í þvottavél ryðfrír, þvottavél,
2 þeytivindur, Densifier 1 ásamt tilheyrandi búnaði, Desifier 2 ásamt
tilheyrandi búnaði, Extruder með kælibaði, rafmagnstafla við
Extruder, blásari að pokasílói, pokasíló frá Extruder.
Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla, einungis
debetkort eða peningar.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
27. september 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Dalaland 11, 203-6772, Reykjavík, þingl. eig. Birgir Örn Birgisson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
fimmtudaginn 4. október 2012 kl. 14:30.
Leifsgata 4b, 200-8778, Reykjavík, þingl. eig. Úr einu í annað ehf,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudag 4. október 2012 kl. 11:00.
Miklabraut 70, 203-0567, Reykjavík, þingl. eig. Guðni Birgir Gíslason,
gerðarbeiðendur Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild, Miklabraut 70, hús-
félag, Reykjavíkurborg ogTryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 4.
október 2012 kl. 13:30.
Njálsgata 108, 201-0793, Reykjavík, þingl. eig. Hilmar Helgason,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudag 4. október 2012 kl. 11:30.
Nýlendugata 15a, 200-0405, Reykjavík, þingl. eig. Laugarásvídeó ehf.,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudag 4. október 2012 kl. 10:30.
Teigagerði 17, 203-4979, Reykjavík, þingl. eig. Guðjón Hilmarsson og
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf,
fimmtudaginn 4. október 2012 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
28. september 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Fagradalsbraut 25, Fljótsdalshéraði, fastnr. 231-0971, þingl. eig.
Fagradalsbraut 25 ehf, gerðarbeiðendur Fljótsdalshérað og
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:00.
Fagradalsbraut 25, Fljótsdalshéraði, fastnr. 231-0972, þingl. eig.
Fagradalsbraut 25 ehf, gerðarbeiðendur Fljótsdalshérað og
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:15.
Fagradalsbraut 25, Fljótsdalshéraði, fastnr. 231-0973, þingl. eig.
Fagradalsbraut 25 ehf, gerðarbeiðendur Fljótsdalshérað og
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:30.
Fagradalsbraut 25, Fljótsdalshéraði, fastnr. 231-0974, þingl. eig.
Fagradalsbraut 25 ehf, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:45.
Fjörður 4, Seyðisfirði, fastnr. 216-8423, þingl. eig. Birna Svanhildur
Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsspil sf, Sýslumaðurinn á Seyðis-
firði og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012
kl. 14:00.
Hleinargarður, Fljótsdalshéraði, landnr. 158097, þingl. eig. Byggingar-
félagið Óseyri 16 ehf, gerðarbeiðendur Fljótsdalshérað og Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hf, miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
27. september 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Blikahöfði 2, 223-7994, 50% ehl., Mosfellsbæ, þingl. eig. Almar
Danelíusson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf, Mosfellsbær, Rafport
ehf ogTryggingamiðstöðin hf, miðvikudag 3. október 2012 kl. 14:00.
Fannarfell 4, 205-2393, Reykjavík, þingl. eig. Ingi Anton Jónsson og
Rakel Rut Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Tryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:30.
Hraunbær 80, 204-4784, Reykjavík, þingl. eig. Björk Mýrdal og Árni
Marz Friðgeirsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf og Sjóvá-
Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 10:00.
Kambasel 85, 205-7096, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Ósk Rúnars-
dóttir og Brynjar Ævar Guðlaugsson, gerðarbeiðendur Fjarskipti ehf
ogTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 11:30.
Kóngsbakki 13, 204-8383, Reykjavík, þingl. eig. Erla Sigurþórsdóttir,
gerðarbeiðendur Kóngsbakki 13, húsfélag, og Reykjavíkurborg,
miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 11:00.
Laxatunga 59, 210610, Mosfellsbæ, þingl. eig. Kolbrún Jónsdóttir,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudag 3. október 2012 kl. 14:30.
Markholt 17, 208-3888, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Ólafsson,
gerðarbeiðendur Arion banki hf., Sýslumaðurinn á Blönduósi og
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 3. október 2012 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
28. september 2012.