Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 58

Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 58
58 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Það er gott að eiga afmæli á Íslandi. Hér lifir fólk lengur enannars staðar og það að verða sextug hér er ekki eins og víðaannars staðar. Mér finnst ég enn vera ung,“ sagði Sheila Fitzgerald, framkvæmdastjóri útvarpsstöðvarinnar Lindarinnar, sem á afmæli í dag. Sheila fluttist hingað til lands fyrir tuttugu árum með eiginmanni sínum Mike Fitzgerald. Þau eru frá Bandaríkjunum og fædd þar og uppalin. Mike átti íslenska móður og bandarískan föður og bjó hér um tíma á unglingsárunum. Þau Mike og Sheila lærðu bæði guð- fræði og þjónuðu í hvítasunnukirkjum þar vestra áður en þau fluttu hingað. En hvers vegna komu þau til Íslands? „Við komum til að starfa með kirkjunni á allan þann hátt sem við gætum, hvort heldur með ræðuhöldum, barnastarfi eða útgáfu. Við höfum sinnt þessu öllu. Eftir tveggja ára dvöl hér hófum við rekstur Lindarinnar og hún hefur verið aðalviðfangsefni okkar síðan,“ sagði Sheila. Útvarpsstöðin Lindin (www.lindin.is) er nú með 15 út- varpssenda víða um land og sendir einnig út sjónvarp á netinu auk útgáfu. Þá hjálpaði Lindin við að stofna kristilega útvarpsstöð í Færeyjum árið 2000. En ætlar Sheila að halda upp á afmælið? „Það verður afmælisveisla á sunnudagskvöld, en ég veit ekkert meira! Það verður skemmtilegt því Íslendingar kunna betur en nokkrir aðrir að halda upp á afmæli!“ gudni@mbl.is Sheila Fitzgerald er 60 ára í dag Afmælisbarn Sheila Fitzgerald, framkvæmdastjóri útvarpsstöðv- arinnar Lindarinnar, segir Íslendinga kunna að halda upp á afmæli. Það er gott að eiga afmæli á Íslandi Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir, óperusöngkona og söngkennari, er áttræð á morgun, 30. september. Hún hefur um ára- tugabil kennt söng hér á landi, bæði í Tónlistarskóla Garðabæjar og Söngskólanum í Reykjavík. Snæbjörg mun fagna af- mælisdeginum með fjölskyldu sinni. Árnað heilla 80 ára Reykjavík Amelía Rós fæddist 17. desember kl. 22. Hún vó 13 merkur og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Hildur Torfadóttir og Gísli Finnsson. Nýir borgarar Reykjavík Jóhann Andri fæddist 1. október kl. 0.45. Hann vó 3.780 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Sandra Vilborg Jóhannsdóttir og Óm- ar Andri Ómarsson. Á rni fæddist í Helga- magrastræti á Akureyri og ólst upp í Brekkunni. Hann var í Barnaskóla Akureyrar og Gagn- fræðaskóla Akureyrar, hóf nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík 1969, lauk þaðan fiskimannaprófi og síðan farmannaprófi 1973 og lauk prófi í útgerðartækni frá Tækniskóla Íslands árið 1985. Þá lærði hann á pí- anó í tvö ár hjá Ingimar Eydal. Árni hóf sína sjómennsku 15 ára á Harðbak EA 3, 1968, var háseti á Súlunni EA 300 á tveimur loðnu- vertíðum og þrjú sumur í Norður- sjónum, var með Eggerti Gíslasyni á Gísla Árna í þrjú ár, var 2. stýrimað- ur á Sigurbjörgu ÓF eitt ár og á skuttogaranum Snæfelli EA 740, síð- an 1. stýrimaður þar og loks skip- stóri meðan hann var gerður út. Hann var skipstjóri á nýju Snæfelli EA 740 frá því það skip kom nýtt til landsins 1988-89, stýrimaður og skip- stjóri á Oddeyrinni EA 310 1990 og var stýrimaður og skipstjóri á Ak- ureyrinni EA 110 1993-2001, fyrsta skipi Samherja hf. Árni var formaður Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga frá 1997 og varð formaður Félags skip- stjórnarmanna 2004, við sameiningu Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasamb. - 60 ára Morgunblaðið/Golli Sjómaðurinn Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnenda og forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins. Skipstjórinn sem spilaði á píanó um borð Útskrift Árni og Steinunn ásamt dótturinni, Rósu Maríu nýstúdent. Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is Tæki til vetrarþjónustu Stofnað 1957

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.