Morgunblaðið - 29.09.2012, Page 59
skipstjóra- og stýrimannafélaga, og
hefur verið forseti Farmanna- og
fiskimannabandsins frá 2002.
Árni hefur setið í stjórn Lífeyris-
sjóðs sjómanna og situr í stjórn líf-
eyrissjóðsins Gildis. Hann hefur set-
ið í fjölda nefnda og ráða fyrir hönd
skipstjórnarmanna, s.s. í sáttanefnd-
inni margumtöluðu að undanförnu
sem hefur verið sáttanefnd um
breytingar á lögum um fisk-
veiðistjórnunarkerfið. Þá er hann fé-
lagi í Oddfellowreglunni.
Árni æfði handbolta á unglingsár-
unum með ÍR í Reykjavík og keppti
með KA í yngri flokkum.
Músíkalski skipstjórinn
Árni spilar töluvert á píanó og
hljómborð fyrir sjálfan sig og aðra.
„Ingimar Eydal var eitthvað að
reyna að kenna mér á píanó en ég
held að við höfum hvorugur tekið það
of alvarlega. Ég lærði samt nóg til að
hafa gaman af því.
Ég var vanur að taka með mér
hljómborðið á sjóinn og spilaði
stundum fyrir Rússana á úthafskarf-
anum út af Reykjanesinu. Þeir voru
nú bara mjög hrifnir greyin.
Ég gríp oft í píanóið heima og rifja
upp eitt og annað. Það er róandi.
Hins vegar hef ég dregið úr lestri
eftir að ég hætti til sjós. Þá las maður
stundum eina bók á frívakt, en nú les
maður bara einhverja lagaþvælu og
horfir svo á sjónvarpið.“
Fjölskylda
Árni kvæntist 29.9. 1974 Steinunni
Sigurðardóttur, f. 29.9. 1954, þjón-
ustufulltrúa við Landsbankann. Hún
er dóttir Sigurðar Indriðasonar, f.
4.12. 1930, stjórnanda Bifreiðaprófa
ríkisins á Norðurlandi, og k.h., Rósu
Kristínar Jónsdóttur, f. 12.5. 1933, d.
6.10. 1995, húsfreyju.
Börn Árna og Steinunnar eru Sig-
urður, f. 23.1. 1976, sjómaður í
Reykjavík, en kona hans er Saranrat
Neeladanuvong matreiðslukona;
Heimir Örn, f. 5,5, 1979, fyrrv. at-
vinnumaður í handknattleik, kennari
og þjálfari meistaraflokks karla hjá
Akureyri, en kona hans er Marta
Hermannsdóttir tannlæknir og er
sonur þeirra Dagur Árni Heimsson,
f. 2006; Rósa María, f. 8.3. 1991, nemi
í sálfræði við HÍ.
Systkini Árna eru Baldvin Jóhann-
es Bjarnason, f. 22.4. 1940, fyrrv.
skólastjóri á Akureyri; Freysteinn
Bjarnason, f. 29.8. 1945, vélstjóri og
framkvæmdastjóri SÚN í Neskaup-
stað; Bjarni Bjarnason, f. 10.1. 1949,
fyrrv. skipstjóri og útgerðarmaður á
Súlunni á Akureyri; Guðlaug María
Bjarnadóttir, f. 30.3. 1955, leikkona
og kennari í Rvík; Sigríður María
Bjarnadóttir, f. 4.7. 1956, kennari á
Akureyri; Jóhannes Gunnar Bjarna-
son, f. 31.3. 1962, fyrrv. bæjarfulltrúi,
íþróttakennari og þjálfari á Ak-
ureyri.
Foreldrar Árna: Bjarni Jóhann-
esson, f. í Flatey á Skjálfanda 23.9.
1913, 18.11. 2001, skipstjóri á Ak-
ureyri, og Sigríður Freysteinsdóttir,
f. á Hrafnagili í Eyjafirði 18.8. 1918,
d. 21.10. 1991, húsfreyja.
Úr frændgarði Árna Bjarnasonar
Árni
Bjarnason
Sigríður Bjarnadóttir
húsfr.
Pétur Þorkelsson
b. á Selskerjum
Guðlaug Dagbjört Pétursdóttir
húsfr. á Akureyri
Freysteinn S. Sigurðsson
iðnvkm. og verkalýðsfor-
kólfur á Akureyri
Sigríður Freysteinsdóttir
húsfr. á Akureyri
Kristbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Hálsi
Sigurður Sigurðsson
b. á Hálsi í Öxnadal
Gunnar Guðmundsson
hákarlaskipstj. í Vík í
Flateyjardal
Valgerður Katrín
Guðmundsdóttir
húsfr. í Flateyjardal
María Gunnarsdóttir
húsfr. í Flatey
Jóhannes Bjarnason
hreppstj., útg,m. og kennari
í Flatey á Skjálfanda
Bjarni Jóhannesson
skipstj., vélstj. og fram-
kvæmdastj. á Akureyri
Guðrún Sigurðardóttir
húsfr. á Birningsstöðum
Bjarni Bjarnason
b. á Birningsstöðum
Systkinin Sigurður, Heimir Örn og Rósa María.
ÍSLENDINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Magnús fæddist í Vest-mannaeyjum 30.9. 1922.Foreldrar hans voru
Magnús Helgason gjaldkeri og k.h.,
Magnína Jóna Sveinsdóttir hús-
freyja.
Magnús var af Bergsætt, en Her-
dís, amma hans, var systir Mar-
grétar, ömmu Ellerts B. Schram,
fyrrv. alþm., og langömmu Magnúsar
Orra Schram alþm. Þær Margrét og
Herdís voru dætur Magnúsar, á
Litlalandi í Ölfusi Magnússonar á
Hrauni í Ölfusi, bróður Jórunnar,
langömmu Steindórs, afa Geirs
Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Magnús lauk gagnfræðaprófi frá
MR 1938, prófi frá Loftskeytaskól-
anum 1946, símvirkjaprófi með radí-
ótækni sem sérgrein 1948 og stund-
aði síðan framhaldsnám við skóla
Pósts og síma.
Magnús var sjómaður á árunum
1937-42, m.a. á norsku fragtskipi á
fyrstu árum seinni heimsstyrjaldar.
Hann var bifreiðarstjóri 1942-45,
loftskeytamaður á togara 1946 og
síðar loftskeytamaður í afleysingum,
starfaði í radíótæknideild Pósts og
síma 1946-56, var verkstjóri þar
1950-53, yfirverkstjóri 1953-56,
stöðvarstjóri Pósts og síma í Vest-
mannaeyjum 1956-66, 1975-78 og
1983-87. Magnús var bæjarfulltrúi í
Vestmannaeyjum 1962-82 og bæjar-
stjóri þar á árunum 1966-75, var
alþm. Suðurlands fyrir Alþýðuflokk-
inn 1978-83, var skipaður félags-,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra í síðara ráðuneyti Ólafs Jó-
hannessonar, 1978 og sinnti þeim
ráðuneytum auk samgöngu-
ráðuneytis fram í febrúar 1980.
Magnús var formaður Bygging-
arsamvinnufélags símamanna 1954-
56, sat í yfirskattanefnd Vest-
mannaeyja 1957-62, í stjórn Spari-
sjóðs Vestmannaeyja 1957-78, í
framkvæmdastjórn Brunabótafélags
Íslands frá 1966 og var stjórn-
arformaður þar 1980. Hann var kjör-
inn varaformaður Alþýðuflokksins
árið 1980 og gegndi því embætti til
1984.
Magnús var tvíkvæntur en meðal
barna hans af síðara hjónabandi er
Páll, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins.
Merkir Íslendingar
Magnús H.
Magnússon
Laugardagur
85 ára
Ingimundur B. Jónsson
Oddbjörg Þórarinsdóttir
Sigurbjörg Óskarsdóttir
80 ára
Einar Sigurður Björnsson
Jón Hallsson
Kristín Erla Ásgeirsdóttir
Þórunn Hermannsdóttir
75 ára
Björn Jóhannesson
Finnbogi S. Guðmundsson
Helga Guðmunda
Emilsdóttir
Hreinn Úlfarsson
Logi Guðbrandsson
Sigmundur Böðvarsson
70 ára
Birna Sveinbjörnsdóttir
Björk Björgvinsdóttir
Ester Hallgrímsdóttir
Hartvig Ingólfur Ingólfsson
Vilborg S. Gestsdóttir
60 ára
Andrea K. Bjarnadóttir
Ástvaldur Guðmundsson
Ingibjörg Bjarnadóttir
Sheila K. Fitzgerald
Steinar Pétursson
50 ára
Álfheiður Einarsdóttir
Bent Hansson
Bragi Jónsson
Elísabet Hreiðarsdóttir
Grzegorz Karpowicz
Guðbrandur Hansson
Guðrún Hrönn Tómasdóttir
Héðinn Jónsson
Hulda María Hrafnsdóttir
Jórunn Arnbjörg
Magnadóttir
Kristín Inga Ármannsdóttir
Sigrún Soffía Gísladóttir
Sigurbjörn Ólason
Sigurður Magnússon
40 ára
Anna Íris Sigurðardóttir
Anna Kristín
Gunnlaugsdóttir
Ásta Björk Árnadóttir
Baldur Geir Arnarson
Elías Halldór Bjarnason
Elín Ósk Hölludóttir
Fjóla Þorgeirsdóttir
Garðar Guðmundsson
Halldóra Ágústa Pálsdóttir
Halldór Ágúst Björnsson
Hans Niklas Hyström
Hjörtur Sigurþórsson
Hrafn Árnason
María Hlín Eggertsdóttir
Ólöf Jónína Jónsdóttir
Sigurður Birgisson
30 ára
Árni Guðbjartsson
Barði Þór Jónsson
Brynja Hrafnkelsdóttir
Christopher W.E. Crocker
Elvar Már Valdimarsson
Hugrún Valtýsdóttir
Ingveldur Magnúsdóttir
Kolbrún Elma Schmidt
Malgorzata Wrzosek
Milos Milojevic
Sólveig Lára Sigurðardóttir
Unnar Þór Bjarnason
Sunnudagur
103 ára
Jón Magnússon
85 ára
Elínborg Stefánsdóttir
Guðberg E. Haraldsson
Runólfur Þórðarson
Valdimar Jóhannsson
80 ára
Sólborg Björnsdóttir
75 ára
Guðni Marelsson
Helga Guðríður
Friðsteinsdóttir
Olga Kristín Jónsdóttir
Ólafur Jóhannsson
Vilberg Alexandersson
70 ára
Gróa Berglind Pálmadóttir
Guðni Guðmundsson
Marcella Iniguez
Ólafur Sigurðsson
Reynir Rósantsson
Svava Jónsdóttir
60 ára
Árni Jónsson
Ásgeir Árnason
Birgir Guðbjörnsson
Bjarni Jónsson
Björk Gunnarsdóttir
Elín Kristjana
Þorvaldsdóttir
Friðrik Ingi Ingólfsson
Haraldur Þorgeirsson
Hildur Þorkelsdóttir
Hulda Sigurbjörg
Sigurðardóttir
Ína Dóróthea Jónsdóttir
Jens Andrés Guðmundsson
Margrét B.
Kristbjörnsdóttir
María Isabel Contreras
Möller
Ólafur Sveinsson
Pálína Auðbjörg Valsdóttir
Sigurlaug Halla
Jökulsdóttir
Snorri Hjaltason
Sævar Guðbjörnsson
50 ára
Bergsteinn Sigurðsson
Gísli Gunnar Guðmundsson
Guðný Rut Sverrisdóttir
Haraldur Gunnarsson
Hávarður G. Bernharðsson
Hermann Valgarður
Baldursson
Ingvar Jónasson
Karl Björnsson
Lilja Guðný Björnsdóttir
Ólafur Óskar Stefánsson
Páll Þór Ármann
Ragnar Bjartmarz
Remigijus Kersis
Smári Steinarsson
Stefán Geir Þórisson
Teresa Barbara Rudnicka
40 ára
Björn Grétar Friðriksson
Helena Guðmundsdóttir
Helga Kristín Helgadóttir
Helgi Pétursson
Neil John Smith
Pétur B. Scheving
Thorsteinsson
Sigríður Björk Jónsdóttir
Unnur Anna
Valdimarsdóttir
30 ára
Arnar Sigurjónsson
Aron Árnason
Baldur Már Stefánsson
Davíð Thoroddsen
Guðjónsson
Eiður Jónsson
Fannar Veigar Einarsson
Friðþór Smárason
Gunnar Auðunn
Jóhannsson
Hallgrímur Aðalsteinsson
Hlín Sæþórsdóttir
Jónas Ingólfur Lövdal
Kolbrún Sara Ósk
Kristinsdóttir
Ragnar Jónsson
Svava Bernhard Gísladóttir
Vésteinn Már Rúnarsson
Til hamingju með daginn
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður