Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 62

Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 LISTASAFN ÍSLANDS Listasafn Reykjanesbæjar ALLT EÐA EKKERT Samsýning 55 listamanna af Reykjanesi. 30. ágúst - 21. október Bátasafn Gríms Karlssonar 100 bátalíkön Byggðasafn Reykjanesbæjar VERTÍÐIN Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Kvikmyndasýning sunnudag kl. 15: Björgunarafrekið við Látrabjarg Fjölbreyttar sýningar: Teikning – þvert á tíma og tækni Björgunarafrekið við Látrabjarg – ljósmyndir Óskars Gíslasonar Aðventa á Fjöllum – ljósmyndir Sigurjóns Péturssonar Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár Tvær í einni/Two for one – ljósmyndir Sverris Björnssonar Mikið úrval af gjafavöru í safnbúð og ilmandi kaffi í Kaffitári. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17 SKIA Skugginn í myndlist frá því fyrir miðja 20. öld og til samtímans Sunnudagur 30. september kl. 15 Listamannsspjall Katrín Elvarsdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis NAUTN OG NOTAGILDI myndlist og hönnun á Íslandi SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Kaffistofa – Leskró – Barnakró Opið alla daga kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði SAGA TIL NÆSTA BÆJAR íslensk vöruhönnun í tíu ár Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÖLVUÐ AF ÍSLANDI 19.5. – 4.11. 2012 DÁLEIDD AF ÍSLANDI 19.5. – 4.11. 2012 HÆTTUMÖRK 19.5. – 31.12. 2012 MUSÉE ISLANDIQUE; Ólöf Nordal 14.9. - 4.11. 2012 HOMO ISLANDICUS - Málþing í dag kl. 11-13 í tengslum við Musée Islandique. Sjá nánar á; www.listasafn.is SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. www.listasafn.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 2914 Opið þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-14, sunnudaga kl. 13-16 SÝNINGARSALIR Í KJALLARA: Sýningin „Lífið í Vatnsmýrinni“ 5. sept. - 4. nóv. opið 12-17 alla daga, lokað mánudaga. Á sýningunni er hægt að kynnast marglaga sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er hugsuð til að efla vitund um náttúruna inni í borginni og borgina í náttúrunni. NÁTTÚRUSKÓLI NORRÆNA HÚSSINS - fjölskyldudagskrá alla virka daga í sept. og okt. kl. 12-17, lokað mánudaga. Ratleikur með spurningum og verkefnum sem fjölskyldan leysir saman Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030 www.norraenahusid.is , nh@nordice.is Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis. NORRÆNA HÚSIÐ Söfn • Setur • Sýningar Hljómsveitin Moses Hightower og tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti blása til tónlistarveislu í Há- skólabíói þann 14. desember kl. 20. Forsala miða fer fram á vefnum midi.is. Ásgeir Trausti sendi nýver- ið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Dýrð í dauðaþögn, og fjórmenning- arnir í Moses Hightower gáfu út plötuna Önnur Mósebók í ágúst sl. Tónlistarveisla í Háskólabíói Fjórmennningar Moses Hightower Kvartett dönsku söngkonunnar Cathrine Leg- ardh leikur á Munnhörpunni í dag milli kl. 15- 17. Kvartettinn skipa auk Leg- ardh þeir Kjart- an Valdemarsson á píanó, Valde- mar K. Sigurjónsson á bassa og Einar Scheving á trommur. Þau flytja þekkt djasslög auk frumsam- inna laga. Aðgangur er ókeypis. Þetta verða síðustu tónleikar í jazz- tónleikaröð Munnhörpunnar í ár. Kvartett Cathrine Legardh í Hörpu Cathrine Legardh Óttar Guðmunds- son verður með uppistand um geðveiki í Egils- sögu í Landnáms- setrinu á morgun kl. 16. Þar flettir hann ofan af ýms- um leynd- armálum sög- unnar, s.s. hvernig vinátta Egils og Arinbjarnar var í raun, af hverju hlutur kvenna er jafnlítill og raun ber vitni og af hverju Egill yrk- ir nær einvörðungu um sjálfan sig. Uppistand um geð- veiki í Egilssögu Óttar Guðmundsson AF LISTUM Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Þrátt fyrir að það setji und-arlegan tón í stemningunafyrir RIFF að heiðurs- verðlaun hátíðarinnar skuli fara til B-myndaleikstjórans Dario Argento, er engu að síður ýmislegt þar sem fólk má vera spennt fyrir. Maður getur samt ekki að því gert að vera örlítið meira hikandi um að fara blint á kvikmyndasýningar hátíð- arinnar ef Argento er toppurinn á tilverunni hjá dagskrárstjóra henn- ar, en hann er einmitt samlandi Arg- ento. Hátíðin í fyrra var samt góð og dagskrárstjórinn hefur notað tengsl sín á Ítalíu til að kynna RIFF með öflugum hætti og mun Rómaborg meðal annars fyrir tilstuðlan hans halda kvikmyndahátíð tileinkaða RIFF í seinni hluta október.    Áður en hátíðin hefst eru þaðhelst heimildarmyndir sem manni finnst maður ekki mega missa af eins og Meet the Fokkens, sem er umdeild hollensk heimild- armynd um sjötugar vændiskonur og Ai Wei Wei sem fjallar um kín- verskan andófsmann og listamann fram að handtöku hans árið 2011 sem vakti heimsathygli. Heimild- armyndir um snillinga eins og Woody Allen og Freddie Mercury ættu varla að geta misst marks. Svo eru nokkrar bíómyndanna spenn- andi kostur eins og þýska myndin Stríðsstelpur sem fjallar um nýnas- istastelpu og hefur vakið mikla at- hygli, ekki síst vegna þess að nýlega komst upp um gengi í Þýskalandi sem er ekki ólíkt því sem fjallað er um í myndinni. Þá eru Koss Pútíns og Sendiherrann spennandi kostir auk myndar Sólveigar Anspach, Drottningin frá Montreuil. Myndir Susanne Bier ættu ekki að klikka enda eru myndir hennar jafnan skrifaðar samkvæmt klassíkinni og mikið lagt í formið og næma leik- stjórn. Hún fékk meðal annars Ósk- arsverðlaunin fyrir myndina Hæv- nen sem er reyndar ekki sýnd á hátíðinni en í það minnst tvær af þeim þremur bíómyndum sem eru Hátíð kvikra mynda Danmörk Þrjár myndir eftir Susanne Bier verða sýndar á hátíðinni. sýndar eftir hana eru mjög góðar, Eftir brúðkaupið og Elska þig að ei- lífu. Það hefur reyndar ekki minnk- að frægð Bier að Lars Von Trier hefur varla getað haldið blaða- mannafund án þess að hnýta í hana en meðal annars komu hin mjög svo ósmekklegu ummæli hans um nas- isma í Cannes í fyrra í framhaldi af því að hann var að hnýta í hana en hún er gyðingur. Þá er hægt að mæla með Persepolis sem byggð er á myndasögu Marjane Satrapi sem varð feikivinsæl í Evrópu fyrir nokkrum árum og lýsir ástandinu í Íran ágætlega. Satrapi leikstýrði myndinni sjálf og fékk tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir frumraun sína á tjaldinu.    Þá er maður spenntur fyrirmyndum eins og Skepnum suð- ursins villta sem vakti mikla athygli á Sundance-kvikmyndahátíðinni og bæði bíómynd og ljósmyndasýningu listamannsins Ulrike Ottinger. Hátíðin smitar líka út frá sér í Reykjavík því kvikmyndasýningar verða í Sundhöll Reykjavíkur og á Kaffibarnum í tilefni af hátíðinni, málþing verða haldin á Sóloni Isl- andus og ljósmyndasýning í Nor- ræna húsinu. Hrönn Marinósdóttir og teymi hennar vann afrek með því að koma þessari hátíð á koppinn en færri vita hvers konar afrek þau vinna á hverju ári með því að halda henni gangandi. Þetta er barátta hvert einasta ár og alltaf njóta íslenskir áhorfendur ávaxta afreks teymisins sem fórnar sér í þeirri miklu vinnu sem þarf til að við hin getum notið þess að sjá eitthvað annað en hinar ágætu bandarísku bíómyndir Holly- wood-maskínurnar sem eru fínar í hófi en maður getur fengið algjört ógeð á. »Hrönn Marinós-dóttir og teymi hennar vann afrek með því að koma hátíðinni á koppinn en færri vita af- rekið sem þau vinna á hverju ári með því að halda henni gangandi. Tónlistarmað- urinn Biggi Hilmarsson samdi tónlistina við stuttmynd Elfars Að- alsteinssonar, Subculture, sem frumsýnd verður í dag á Al- þjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Reykjavík, RIFF. Elfar á m.a. að baki stuttmyndina Sailcloth sem John Hurt fór með aðalhlutverkið í og hefur hann hlot- ið fjölda verðlauna fyrir hana. Fyrsta sólóplata Bigga, All We Can Be, kemur út 1. október en Biggi hefur undanfarin ár samið tónlist erlendis fyrir kvikmyndir, sjónvarp og auglýsingar, m.a. fyrir kvik- myndaleikstjórann og framleiðand- ann Ridley Scott. Biggi samdi tónlist við mynd Elfars Biggi Hilmars Hljómsveitin Sudden Weather Change heldur í tæplega mán- aðarlanga tónleikaferð um Banda- ríkin í næstu viku. Fyrstu tónleikana heldur hljómsveitin á hátíðinni Cult- ure Collide í Los Angeles, 5. október og heldur hún þaðan til San Frans- isco og upp vesturströndina. Í Seattle mun hljómsveitin koma fram með öðrum íslenskum hljómsveitum á tónleikum sem haldnir eru af Ice- land Naturally og útvarpsstöðinni KEXP og bera titilinn Reykjavik Calling. Tónleikaferðinni lýkur í New York en þar mun hljómsveitin spila á tónlistarhátíðinni CMJ. Sudden Weather Change gaf fyrir skömmu út plötuna Sculpture og er tilgangur hljómsveitarinnar með tónleikaferð- inni sá að kynna sig og plötuna, í von um að landa plötusamningi. Í tónleikaferð um Bandaríkin Kynning Sudden Weather Change heldur utan í kynningarskyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.