Skinfaxi - 01.11.2012, Qupperneq 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Aðventan er gengin í garð og undirbún-
ingur jólahátíðarinnar er efst í hugum margra,
hátíðar sem einkennist af gleði og kærleika
og tilhlökkun yfir að senn verði gamla árið
kvatt og nýju ári fagnað. Ársins, sem senn er
liðið, verður minnst fyrir margt en það nýja
bíður okkar sem óskrifað blað en fullt vænt-
inga um betri tíð.
Í hverju húsi skína marglit jólaljós sem
minna á komu frelsarans og það ljós sem
hann færði heimsbyggðinni með fæðingu
sinni.
Ungmennafélagar munu vinna áfram að
ræktun lýðs og lands þar sem áhersla verður
lögð á mannrækt í tengslum við menningu,
íþróttir, forvarnir, fræðslu og umhverfið. Í
nútímasamfélagi er nauðsynlegt að vekja
fólk til umhugsunar um mikilvægi heilbrigðs
lífsstíls, fjölbreytileika þjóðfélagsins og virð-
ingu fyrir umhverfinu. Samvera fjölskyldunn-
ar, yngri kynslóðarinnar sem hinnar eldri, er
þýðingarmikil til að nýta fortíðina sem best
sem veganesti inn í framtíðina.
Það er okkur mikils virði að skapa vettvang
til að efla félagsþroska einstaklinga og sam-
skiptahæfileika og að læra gildi þess að starfa
með öðru fólki að sameiginlegum markmið-
um. Þannig byggjum við upp frumkvæði og
styrkjum forystuhæfileika einstaklinga.
Til framtíðar litið sé ég ungmennafélaga
stuðla að því að auka vitund fólks um að við
búum í síbreytilegu samfélagi þar sem m.a.
ber að líta á fjölbreytileika mannlífsins, þróun
í tækni og aukinn vilja til þess að íþrótta-
félög, æskulýðsfélög, félagsmiðstöðvar og
skólar starfi saman í að skipuleggja tóm-
stundastarf fyrir börn og unglinga. Þessar
breytingar kalla á að við höldum áfram að
virkja fólk til þátttöku í félags- og sjálfboða-
liðastarfi ásamt því að mennta fólk til forystu
innan hreyfingarinnar.
Þetta viljum við gera og ætlum okkur að
gera þrátt fyrir að hafa minna fjármagn nú
en áður til að halda úti því öfluga starfi sem
við stöndum fyrir. Við erum ekki vön að
kvarta en það væri óneitanlega skemmtileg
Væntingar um betri tíð
tilbreyting að sjá stjórnvöld setja aukinn
fjárstuðning í æskulýðs- og íþróttastarfið á
næsta fjárhagsári.
En við höfum yfir mörgu að gleðjast og
víða um land fara fram á næstu vikum upp-
skeruhátíðir ársins hjá ungmennafélögum
þar sem íþróttamenn af báðum kynjum
verða heiðraðir fyrir unnin afrek. Félagar
koma saman til að fagna góðum árangri,
æfingar, keppnir, samkomur og ferðir verða
skipulagðar til að mæta áhuga, væntingum
og metnaði þeirra einstaklinga og hópa sem
eru þátttakendur og vilja ná árangri á lands-
vísu og heimsvísu. Á hverjum degi veitum
við landsmönnum mikla ánægju og
skemmtun með fjölbreyttu starfi okkar sem
er eldsneytið sem heldur okkur gangandi.
Megi aðventan færa okkur öllum ljós og
frið og góðar samverustundir. Ég óska ykkur
öllum gleðilegrar jólahátíðar og þakka fyrir
gott samstarf á árinu sem er að líða.
Íslandi allt!
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
BESTU ÞAKKIR FYRIR
SJÁLFBOÐALIÐAVINNUNA
Um átta milljón króna hagnaður varð af
Unglingalandsmóti UMFÍ 2012 sem haldið
var á Selfossi um verslunarmannahelgina í
sumar sem leið. Þetta kom fram á lands-
mótsfundi HSK sem haldinn var í Selinu á
Selfossi 8. nóvember s.l. Tekjur af mótinu
voru 20,8 milljónir króna en kostnaðurinn
var 12,7 milljónir. Hagnaður Héraðssam-
bandsins Skarphéðins af mótinu var því
um 8 milljónir króna.
Samkvæmt samþykkt héraðs-
þings HSK renna 70% þeirrar
upphæðar til aðildarfélaga sem
lögðu fram sjálfboðavinnu á
mótinu, í samræmi við unnar
vinnustundir, 20% til HSK og
10% í verkefnasjóð HSK. Um
650 sjálfboðaliðar unnu við mót-
ið, samtals 8.096 vinnustundir.
Að baki er velheppnað 15. Unglingalands-
mót UMFÍ. Héraðssambandið Skarphéðinn sá
um framkvæmd mótsins, í samstarfi við Sveit-
arfélagið Árborg. Stjórn HSK setti sér það
markmið að gera mótið sem glæsilegast og
að mati okkar tókst það með dyggilegri
aðstoð ykkar sem störfuðuð með okkur við
undirbúning og framkvæmd mótsins.
Gott og öflugt net sjálfboðaliða er lykilfor-
senda fyrir velgengni íþróttastarfs. Íþrótta-
hreyfingin er vettvangur öflugrar sjálfboða-
þjónustu á mörgum sviðum. Sjálfboðalið-
arnir gera íþróttafélögin að lifandi grasrótar-
hreyfingu sem er vettvangur tækifæra til að
leggja sitt af mörkum í samfélagsþjónustu
og fá um leið tækifæri til vaxtar og reynslu
sem nýtist í viðfangsefnum daglegs lífs. Störf
sjálfboðaliðanna eru nauðsynlegur þáttur í
íþrótta- og æskulýðsstarfi, þau efla samstarf,
umhyggju og kærleika og fela í sér marg-
breytta og lærdómsríka reynslu af félagsstörf-
um, að ógleymdri ánægjunni af því að koma
með verðmætt framlag til samfélagsins. HSK
óskaði eftir liðsinni sjálfboðaliða við undirbún-
ing og framkvæmd mótsins og svöruðu fjöl-
margir kallinu og mættu til starfa með okkur
og lögðu á sig mikla og óeigingjarna vinnu
til þess að mótið mætti heppnast sem best.
Fyrir hönd stjórnar HSK og framkvæmda-
nefndarinnar færum við öllum, sem lögðu
lóð á vogarskálarnar og gerðu okkur kleift
að halda 15. Unglingalandsmót UMFÍ með
miklum myndarbrag, bestu þakkir fyrir kröft-
ugt og öflugt framlag við undirbúning og
framkvæmd mótsins og væntum góðs sam-
starfs við ykkur við skipulagningu og fram-
kvæmd 27. Landsmóts UMFÍ á Selfossi 2013.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar, Sveitar-
félagið Árborg og starfsmenn þess, fyrir frá-
bæra samvinnu og aðstoð. Íbúum Selfoss
færum við góðar þakkir fyrir veitta aðstoð og
hjálp. Gestum mótsins þökkum við þátttök-
una og þá sérstaklega frábæru unglingunum
okkar sem voru svo sannarlega sigurvegarar
mótsins.
Guðríður Aadnegard, formaður HSK,
og Þórir Haraldsson, formaður
framkvæmdanefndar ULM.
Hátt í sjö hundruð sjálfboðaliðar störfuðu á Unglingalandsmótinu á Selfossi
Fulltrúar flestra aðildarfélaganna mættu á
fundinn til þess að taka við vinnulaununum.
Samtals voru rúmar 5,6 milljónir króna
greiddar út til félaganna. Deildir innan Umf.
Selfoss lögðu fram mesta vinnu á mótinu og
fengu því stærstu sneiðina, samtals rúm-
ar 3,2 milljónir króna. Stærsta skerfinn af
þeirri upphæð fékk knattspyrnudeildin,
rúmlega 938 þúsund, fyrir vinnu sína.
Í máli Þóris Haraldssonar, formanns
unglingalandsmótsnefndar, kom fram
að mótið hafi gengið gríðarlega vel og
engin stór vandamál hafi komið upp við
þetta stóra verkefni. Yfir 2.000 skráðu sig
á mótið en 1.952 keppendur skiluðu sér
á mótsstað og greiddu þátttökugjöld.
Lauslega er áætlað að um 15.000 gestir
hafi sótt Selfoss heim þessa helgi.
Auk þess að gera upp Unglingalands-
mótið frá því í sumar var 27. Landsmót
UMFÍ 2013 kynnt á fundinum en mótið
verður haldið á Selfossi dagana 4.–7. júlí
á næsta ári.