Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Frjálsíþróttaráð UÍA stóð fyrir æfinga- búðum á Egilsstöðum dagana 20.–21. októ- ber sl. Ríflega 30 frjálsíþróttakappar víðs vegar að af Austurlandi nutu þjálfunar og hlýddu á fyrirlestra undir stjórn Þóreyjar Eddu Elísdóttur og Guðmundar Hólmars Jónssonar. Óhætt er að segja að krakkarnir hafi fengið spennandi innsýn í æfingar og líf afreksfólks sem hefur ýmsa fjöruna sopið í íþrótt sinni. Bæði eru þau Þórey Edda og Guðmundur þrautreyndir frjálsíþrótta- menn. Þórey Edda hefur keppt fyrir Íslands hönd á ótal stórmótum, svo sem EM, HM og Ólympíuleikum. Hápunkti ferils síns náði hún á Ólympíuleikunum í Aþenu er hún hafnaði í 5. sæti í stangarstökki. Guð- mundur Hólmar á að baki langan feril sem spjótkastari og hefur einnig keppt með landsliðinu víða um heim og náð góðum árangri. Hann sigraði til að mynda í spjót- kasti á Evrópubikarmóti á Möltu 2010. Guðmundur þjálfar nú með Ármanni, m.a. fjölþrautakonuna knáu, Helgu Margréti Þorsteinsdóttur. Þórey Edda Elísdóttir og Guðmundur Hólmar Jónsson, í efri röð lengst til vinstri, ásamt ríflega 30 frjálsíþróttaköppum víðs vegar að af Austurlandi sem nutu þjálfunar og hlýddu á fyrirlestra. Spennandi innsýn í æfingar og líf afreksfólks Dagskrá helgarinnar gekk afar vel en þar skiptust á fjölbreyttar æfingar og fyrir- lestrar um ýmis málefni tengd íþróttaiðk- un, s.s. mikilvægi hvíldar, svefns og matar- æðis. Á æfingum fengu krakkarnir að kynnast ýmsum nýstárlegum þjálfunaraðferðum og að sjálfsögðu kenndi Þórey Edda þeim undirstöðuatriði í stangarstökki. Þótti sum- um nokkuð hátt farið þegar þau héngu á stönginni og sveifluðust af kistu niður á dýnu. Af því tilefni var Þórey Edda meðal annars spurð, af hjartans einlægni: „Þórey Edda, verður þú aldrei lofthrædd þegar þú ert að svífa svona hátt upp í loftið?” Þórey Edda þvertók fyrir að hún fyndi fyrir lofthræðslu og sagði það vera einstaka tilfinningu að svífa um loftin blá ... sérstaklega ef ráin hangir uppi. Þórey Edda og Guðmundur áttu auka- æfingu og spjall með úrvalshópi UÍA í frjálsum íþróttum og ræddu við krakkana um mikilvægi þess að gefast ekki upp þótt á móti blási og að í íþróttum skiptist á skin og skúrir, en bæði hafa þau fengið að kynn- ast því og upplifað sinn skerf af meiðslum á ferlinum. Þórey Edda og Guðmundur voru mjög ánægð með frjálsíþróttakrakkana sem þau sögðu hafa verið einkar áhugasöm og dugleg og að allir sem einn hefðu lagt sig fram og gert sitt besta. Aukin heldur komu þau auga á ýmsa efnilega frjáls- íþróttagarpa sem gætu látið að sér kveða á næstu árum. Ræddu við krakkana um mikilvægi þess að gefast ekki upp þótt á móti blási og að í íþróttum skiptist á skin og skúrir.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.