Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 21
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21
Nú er tíminn til að skipuleggja næsta ferðaár
Ferðaáætlun Útivistar kemur út 13. desember
Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is
Þróttur 80 ára
litið gangi starfið mjög vel hjá félaginu,“
sagði Kristján Árnason í spjallinu við
Skinfaxa.
Kristján sagði að iðkendur væru orðnir
yfir eitt hundrað talsins. Júdódeildin væri
mjög öflug og nokkuð stórir flokkar í knatt-
spyrnunni á meðal þeirra yngstu. Hjá sum-
um þeirra eldri hefði verið reynt að vera í
samstarfi við Njarðvíkinga.
„Við höfum starfsrækt meistaraflokk í
knattspyrnunni undanfarin ár og réðum í
vetur Þorstein Gunnarsson til að þjálfa
liðið. Við væntum góðs af störfum Þor-
steins með meistaraflokkinn í 4. deildinni.
Við tókum í notkun tvöfaldan knatt-
spyrnuvöll á sl. sumri svo að við getum
sagt að aðstæður séu mjög góðar.
Hlutirnir eru komnir í fastar skorður og
ég horfi björtum augum fram á veginn,“
sagði Kristján Árnason, formaður Ung-
mennafélagsins Þróttar.
Efst til hægri: Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjar-
stjórnar, og Kristján Árnason, formaður Þróttar,
við undirskrift nýs samstarfssamnings.
Efst til vinstri: Strákarnir í Heiður slógu á létta
strengi.
Neðri mynd: Tobbi trúður skemmti krökkunum af
sinni alkunnu snilld.