Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 31
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31 KÖRFUBOLTI: Með sanni má segja að Ungmenna- félagið Tindastóll hafi komið rækilega á óvart á dögunum þegar liðið gerði sér lítið fyrir og vann Lengjubikarinn. Tindastóll hafði fram að því ekki unnið leik í Dominos-deildinni, leikið þar fimm leiki og tapað öllum, svo að fátt benti til þess að liðið myndi fagna sigri í Lengjubikarn- um. Annað kom á daginn því að liðsmenn Bárðar Eyþórssonar, þjálfara liðsins, sprungu út eins og blóm á sumardegi og fögnuðu glæstum sigri í keppninni. Úrslit í Lengjubikarnum fóru fram í Stykkishólmi helgina 23.–24. nóvember. Í undanúrslit- um sigraði Tindastóll lið Þórs frá Þorláks- höfn og Snæfell sigraði Grindavík. Í hrein- um úrslitaleik hafði svo Tindastóll betur gegn Snæfelli, 96:81. Gríðarleg einbeiting og stemning ein- kenndi allan leik Tindastólsliðsins. Varnar- leikurinn var firnasterkur allan tímann og þennan beitta leik réðu heimamenn í Snæfelli ekki við. Tindastóll vann nú þennan bikar í annað skiptið í sögu félagsins en liðið vann einnig þessa keppni fyrir þrettán árum. Tveir leik- menn liðsins, Svavar Birgisson og Helgi Freyr Margeirsson, voru með í bæði skiptin. „Sigurinn í Lengjubikarnum kom okkur leikmönnum ekki á óvart. Það hefur verið stígandi í liðinu þannig að þetta kom okkur í sjálfu sér ekki á óvart. Það var gríðarlega gaman að vinna sigur í þessari keppni eftir 13 ára bið,“ sagði Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls, í samtali við Skinfaxa. Helgi Rafn sagði að hlutirnir hefðu ekki fallið með liðinu í Dominos- deildinni en hann hefði fulla trú á liði sínu og það hlyti að fara að smella í gang. „Við höfum verið að leika betur en úrslit- in gefa til kynna. Það býr miklu meira í lið- inu og leikmenn þurfa núna að taka sig saman í andlitinu og taka betur á því. Ég er ekkert smeykur því ég hef mikla trú á þessu liði,“ sagði Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls. Tindastóll Lengjubikarmeistari ÞÚ FÆRÐ ÍÞRÓTTAGALLANA OG MERKINGUNA Á SAMA STAÐ – Bros með Hummel

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.