Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Nefnd, skipuð starfsmönnum íþróttabandalaga og héraðssambanda, hef- ur undanfarin misseri skoðað hlutverk og starf íþróttahéraða. Var nefndin stofnuð í framhaldi af útkomu íþróttastefnu mennta- og menningarmála- ráðuneytis. Nefndin hélt fund í þjónustumiðstöð UMFÍ 12. nóvember sl. þar sem henni var kynnt starfsemi UMFÍ. Á fundinum var ennfremur rætt um samstarf og framtíð íþróttahéraða í heild sinni. Nefndin hefur hitt fulltrúa íþróttahéraða á landsvísu og farið yfir störf þeirra og hlutverk. Jafnframt eru hlutverk landssamtaka íþróttahreyfingarinnar skoðuð með aðkomu íþróttahéraða í huga. Í nefndinni eru Garðar Svansson, HSH, Þóra Leifsdóttir, ÍBA, Frímann Ferdinandsson, ÍBR, Jón Þór Þórðarson, ÍA, Hildur Bergsdóttir, UÍA, og Engilbert Olgeirsson, HSK. Hlutverk og starf íþróttahéraða skoðað Frá vinstri: Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Frímann Ferdinandsson, ÍBR, Garðar Svansson, HSH, Jón Þór Þórðarson, ÍA, Hildur Bergsdóttir, UÍA, Engilbert Olgeirsson, HSK, Þóra Leifsdóttir, ÍBA, og Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ. Þann 8. nóvember sl. var í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti. Íslendingar voru hvattir til þess að standa saman gegn einelti í samfélag- inu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir voru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu. Fólk var hvatt til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda. Nú í haust hefur Æskulýðsvettvang- urinn staðið fyrir 90 mínútna opnum fræðsluerindum um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála um allt land. Baráttudagur gegn einelti 8. nóvember Tilgangurinn með erindunum var að vekja athygli á þessum málaflokki og opna bet- ur augu fólks fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun. Staðir, sem heimsóttir voru, eru Vestmannaeyjar, Ísafjörður, Akur- eyri, Höfn í Hornafirði, Egilsstaðir, Grundar- fjörður, Borgarnes, Selfoss og Hólmavík. Erindin hafa verið mjög vel sótt, en yfir 250 manns hafa komið til að hlusta á þau. Mikil eftirspurn er eftir þessari fræðslu og stefnir Æskulýðsvettvangurinn á að verða við öllum þeim óskum. Á erindunum hefur nýútkominni Aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun sem og myndskreyttu eineltis- plakati verið dreift. Æskulýðsvettvangurinn hvetur fólk til þess að veita þessum málaflokki sérstaka athygli, ekki bara þennan dag heldur einnig aðra daga. Eins er fólk hvatt til þess að fylgjast með og halda áfram að fjölmenna á fræðsluerindin.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.