Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 6

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Velkomin í sundlaugar Árborgar Frítt inn fyrir 17 ára og yngri Sundhöll Selfoss Opin allt árið Virka daga: kl. 6.30–21.30 Helgar: kl. 9.00–19.00 Sundlaug Stokkseyrar Sumaropnun: 1. júní –15. ágúst Virka daga: kl. 13.00–21.00 Helgar: kl. 10.00–17.00 Vetraropnun: 16. ágúst–31. maí Virka daga: kl. 17.00–20.30 Lau: kl. 10.00–15.00 Sun: lokað Gjaldskrá Fullorðnir (18-66 ára): Einstakt skipti 550 kr. 10 skipta kort 3.400 kr. 30 skipta kort 7.400 kr. Árskort 25.900 kr. Leigutilboð: handklæði, sundföt og aðgangseyrir 1000 kr. 67 ára og eldri fá frían aðgang gegn framvísun skilríkja. Öryrkjar og atvinnulausir fá frían aðgang en verða að framvísa korti til staðfestingar. www.arborg.is Skinfaxi 4. tbl. 2012 Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson. Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson o.fl. Forsíðumynd: Filmverk, Selfossi. Umbrot og hönnun: Indígó. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Prófarkalestur: Helgi Magnússon. Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender. Ritnefnd: Stefán Skafti Steinólfsson, Gunnar Gunnarsson, Ester Jónsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Óskar Þór Halldórsson. Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Sími: 568-2929 Netfang: umfi@umfi.is Heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn UMFÍ: Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa og kynningarfulltrúi, Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki, Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi, Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari. Stjórn UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, Haukur Valtýsson, varaformaður, Jón Pálsson, gjaldkeri, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, ritari, Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi, Bolli Gunnarsson, meðstjórnandi, Stefán Skafti Steinólfsson, meðstjórnandi, Baldur Daníelsson, varastjórn, Matthildur Ásmundardóttir, varastjórn, Anna María Elíasdóttir, varastjórn, Einar Kristján Jónsson, varastjórn. Forsíðumynd: Gleðin var eins og jafnan allsráðandi á Unglingalandsmótinu sem haldið var á Selfossi í sumar. Knattspyrnan er alltaf vinsæl á mótinu og laðar til sín fjölda keppenda. Á myndinni eru Gísli Frank Olgeirsson (til hægri) og Elvar Örn Jóns- son (til vinstri). Liðið Smjörflugurnar keppti bæði í fótbolta og körfubolta í flokki stráka 15–16 ára. Þeir lentu í 6. sæti í fótbolta og 20. sæti í körfubolta. 16. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Höfn í Hornafirði næsta sumar. Árið 2012 rennur brátt sitt skeið á enda. Það var viðburðaríkt hjá ung- mennafélagshreyfingunni og þegar litið er um öxl má hreyfingin vera afar stolt og getur horft björtum augum til nýja ársins sem bíður fram undan. Í hraðfleygu samfélagi okkar, þar sem hlutirnir eru oft fljótir að breytast, eru möguleikarnir enda- lausir. Styrkur UMFÍ er mikill og þessi samtök, með yfir eitt hundrað þús- und félaga, munu hér eftir sem hingað til vinna að góðum málefn- um í þágu lands og þjóðar. Spenn- andi tímar blasa við og krafturinn og áræðnin hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Einn af stærstu viðburðum UMFÍ á þessu ári var 15. Unglingalands- mótið sem haldið var á Selfossi. Það tókst framúrskarandi vel og var fram- kvæmdaaðilum og heimamönnum á Selfossi til sóma. Unglingalands- mótin leika orðið stórt hlutverk innan UMFÍ og eru eitt af flaggskip- um hreyfingarinnar. Mótin eru kjör- inn vettvangur fyrir fjölskylduna til að koma saman og verja verslunar- mannahelginni saman í heilbrigðu umhverfi. Hafinn er undirbúningur fyrir næsta Unglingalandsmót sem verður haldið á Höfn í Hornafirði en síðast var haldið þar mót 2007. Á Höfn er fyrsta flokks aðstaða með frjálsíþróttavelli lögðum gerviefni og glæsilegri sundlaug. 2. Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Mosfellsbæ sl. sumar. Var umgjörð- in með ágætum og framkvæmdin sérlega glæsileg. Næsta mót verður haldið í Vík í Mýrdal næsta sumar. Mörg önnur spennandi viðfangs- efni blasa við á nýja árinu. Íþrótta- og æskulýðsstarf hefur líklega aldrei verið mikilvægara en á þeim þreng- ingatímum sem við höfum lifað á síðustu árum. Það er því afar brýnt að við hlúum vel að þessu sviði og gætum þess sem aldrei fyrr að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að því. Staðreyndirnar tala sínu máli í þessum efnum en kannanir sýna það aftur og aftur að þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi eflir ein- staklinginn og gerir hann sterkari til að takast á við nám og starf. For- varnagildi hennar er margsannað. Það er von okkar allra að nýja árið verði okkur öllum gjöfult og happadrjúgt. Íslendingar hafa áður staðið frammi fyrir þrengingum en með baráttuviljann að vopni hefur okkur alltaf tekist að rétta úr kútn- um. Það mun einnig gerast nú. Skinfaxi óskar ungmennafélög- um sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi aldrei mikilvægari Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.