Skinfaxi - 01.11.2012, Side 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Nýlega voru kynntar niðurstöður í könn-
un Rannsókna og greiningar (R&G) fyrir
árið 2012 á stöðu ungmenna í 8.–10. bekk.
Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands og Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur létu vinna skýrslu
úr könnuninni líkt og árið 2010 þar sem
skoðuð var sérstaklega ánægja iðkenda
ásamt fleiri áhugaverðum þáttum.
Hvert félag og héraðssamband fékk
skýrslu með niðurstöðum iðkenda sinna
sem eru bornar saman við landsmeðaltal
og meðaltal íþróttaungmenna. Í ár voru
gerðar skýrslur fyrir fleiri héraðssambönd
en fyrr og því er samanburðurinn enn
áhugaverðari en áður. Aðildarfélög Ung-
mennafélags Íslands geta einnig borið
saman við niðurstöðurnar fyrir árið 2010
og því sést hver þróunin hefur verið hjá
einstökum félögum.
„Þessi rannsókn er hluti af „Ungt fólk“-
rannsóknarröðinni sem hefur verið í gangi
í tuttugu ár. Fyrir tveimur árum unnum við
í fyrsta skipti sérstaklega niðurstöður fyrir
félaga innan ÍBR en við ákváðum prófa
hvort hægt væri að nýta rannsóknina sér-
staklega fyrir íþróttafélögin og íþrótta-
héruðin. Þetta lofaði góðu og var mikil
ánægja hjá þeim að vita hver staðan væri
hvað varðaði aðstöðu, þjálfara, vímuefna-
neyslu og fleira. Í fyrrahaust komu UMFÍ
og ÍSÍ að máli við okkur og spurðu hvort
ekki væri hægt að gera sams konar rann-
FORVARNAGILDI
ÍÞRÓTTA ÓTVÍRÆTT
Niðurstöður í könnun Rannsókna og greiningar:
sókn fyrir öll íþróttahéruð í landinu. Í þetta
var ráðist og niðurstöðum hefur verið skil-
að fyrir 25 héruð sem eru nógu stór til að
hægt sé að vinna fyrir þau en þrjú voru of
lítil. Auk þess var hægt að vinna niður-
stöður fyrir 51 félag í landinu innan héraðs-
sambandanna, nánast öll innan ÍBR, ÍBH
og ÍBA. Núna eru 33 félög komin með
stöðuna hjá sér í samanburði við aðra.
UMFÍ og ÍSÍ sáu þarna tækifæri til að
styrkja enn gæðastarfið í íþróttahéruðun-
um og íþróttafélögunum. Það er margséð
að íþróttastarfið skiptir miklu máli en með
þessu móti var hægt að koma með klárar
niðurstöður fyrir hvert og eitt íþróttahérað.
Við vonum svo að svona rannsóknir verði
gerðar reglulega með einhverra ára milli-
bili en það er ekki nóg að sjá niðurstöð-
urnar einu sinni. Við verðum að vita hvert
við stefnum og hafa samanburð sem varð-
ar það,“ sagði Jón Sigfússon hjá Rannsókn-
um og greiningu sem vann þessa rannsókn
með Viðari Halldórssyni, íþróttafélags-
fræðingi hjá Háskólanum í Reykjavík.
Jón Sigfússon,
Rannsóknum og
greiningu, og Viðar
Halldórsson, Há-
skólanum í Reykja-
vík, en þeir unnu
rannsóknina.